Þjóðviljinn - 23.02.1975, Page 16

Þjóðviljinn - 23.02.1975, Page 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. febrúar 1975 í síðustu grein var að þvi spurt, hvaða samræmi hefði verið á milli boðskapar Rauðra penna um ,,nýja bókmenntastef nu" og framkvæmdar — þ.e.a.s. bók- menntatexta í ritinu. Þegar skoð- aðar voru smásögur ritsins virtist það koma á daginn, að þær hefðu i stórum dráttum verið í hefð- bundnum raunsæisstil, lýstu kröppum kjörum alþýðufólks af samúð og skilningi, lýstu ábyrgð á hlutskipti þess á hendur þjóðfé- laginu. En þær greindu ekki frá jákvæðum þroskaferli persón- anna, ekki frá nýjum skilningi sem þær eignast i lífsbaráttu og stéttabaráttu eins og boðað var í sósíalrealisma í þrengri merkingu þess orðs. Þegar við hinsvegar virðum fyr- ir okkur Ijóðin í Rauðum pennum verður nokkuð annað uppiá ten- ingnum. Þótt í ritinu birtust ekki kvæði nema eftir níu höfunda — alls 34 — og þar af voru 28 kvæði eftir f jögur skáld, er að sumu leyti um meiri breidd að ræða í hugblæ, vali viðfangsefna og í formi en í ó- bundna málinu. Jóhannes: t trausti á tilgang. Guðmundur Böbvarsson: Brýnsluguöir, bitur ekki sigöin? Jón úr Vör: Nýtt efni, nýr hug- blær. Ljóöræn breidd og erlend tíöindi Steinn: Vegurinn er horfinn. örn Arnarson: tslenskar heiftar- vlsur. Nordal Grieg: Pólitlsk leikritun. W.H. Auden: Orti eftir pöntun frá Kristni. RAUÐIR PENNAR — FJÓRÐA GREIN Árni Bergmann tók saman Baráttuskáld Jóhannes úr Kötlumá átta kvæöi i Rauð- um pennum og liklegt er að mönnum finnist einmitt skáldskapur hans einskonar sam- nefnari fyrir ritið. bað er hann sem i inn- gangsljóðinu, Frelsi.setur fram stefnuskrá ritsins sem er mikil hliðstæða við greinar Kristins: verklýðsbaráttan er framhald af þjóðfrelsi og menningarbaráttu 19. aldar, sagan og fegurð landsins er ögrun og hvati i nýrri frelsisbaráttu alþýöu. 1 minningar- kvæöi um Maxim Gorki er ort um samstöð- una og alþjóðahyggjuna — þegar hin rika list Gorkis flaug yfir þessa blóðugu jörð: Og ennþá tók kipp hin kúgaöa sál i Klna og Sahara og Mexikó og vestur i Dölum og suöur meö sjó þvi sannleikans rödd talar alheimsmál Hann rimar i Kvæöinu um okkur Kötu sorgarsögu öreigakærustupars er ekki fær að njótast þvi að ,,þeir banna okkur að lifa”. 1 Hvaö nú ungi maöur? eru dregnar upp svipmyndir úr langri þrautagöngu mannsins og heitiö á hann aö sækja fram ,,f trausti á lifs þins tilgang”. I Tröiliö á glugganum snarar Jóhannes af sér ,,rós- fjötrum rimsins” sem hann annars viröir samviskusamlega I þessum ljóðum, og spyrðir saman islensk þjóösagnaminni og pólitik samtimans, draugurinn á gluggan- um er fasisminn og einnig sá drjóli „sem saug úr þér merginn um langar aldir”. Eig- inlega er þetta kvæði einskonar undanfari Sóleyjarkvæðis siöar. Jóhannes á sem sagt margt til: baráttuhvöt þar sem hvergi eru spöruð hin stærstu orð, hann segir raun- sæislegar smásögur I ljóði, hann bregður til frjálsræðis i formi — og hann hlustar lika á angurvært bergmál liðinna stunda („Þá var ég svo ungur”). Efahyggjan Og enn betur staðfestist hin ljóðræna breidd þegar á það er minnt, að annað aðal- skáld Rauðra penna er Steinn Steinarrsem á þar ellefu kvæði. Þar af er i raun og veru aðeins eitt sem tengist vigamóði Jóhannes- ar og Kristins en það er Þjóövlsa (1935) — — Og eitt sinn skulu draumar vorir rætast um þjóöfélag hins frjálsa, sterka manns, sem engin ránshönd, drápshönd vofir yfir.... En þá þegar er Steinn orðinn fullur með þá „háspekilegu tómhyggju” sem hann batt mikinn og þrákelknislegan trúnað viö. 1 Kvæöi um Krister efahyggjan tengd þvi', að betri tið, „þá veröa allir menn svo góðir” var spáð fyrir tvö þúsund árum, og allir vita hvernig farið hefur siðan. En oftar er þessi efahyggja eða tómhyggja naktari, eða eins og segir I Draumur: þig skortir hvorki vit né þrek I þraut og þú ert ekki kominn Iengra en hingaö... Og svo er haldið áfram i ýmsum tilbrigð- um — I Heimferöer bent á það að sá sem leitar að veginum heim mun ekki finna hann, þvi hann er ekki til, i Leyndarmálið er þessi hugblær túlkaður af magnaðri læ- visi eins og alkunna er: ég veit um vopn sem gæti sigrað óvin okkar, en ég get ekki skýrt frá þvi. Jón og Guömundur Onnur helstu skáld Rauðra penna eru jafn gerólikir menn og Jón úr Vör og Guðmundur Böövarsson sem báðir eru aö hefja sinn skáldferil. Jón úr Vör á fimm kvæði i ritinu. Hann fer létt og frjálslega með rímheföina I raunsæislegum myndum af fiskiþorpi og hversdagsamstri alþýðu- fólks, er að koma með nýjan tón, ný yrkis- efni inn i íslenskan kveðskap sem svo mjög er enn tengdur við sögu og landslag og sveit — og hefur lært sitthvað af sænskum ör- eigaskáldum, sem Magnús Asgeirsson er reyndar að þýða fyrir Rauða penna einmitt i sama mund. Og Guðmundur Böðvarsson stekkur fram eins og alskapaöur með listi- lega samfléttun á striti bóndans, fjötrum hversdagsleikans og þrá eftir „einhverju skirra, einhverju blárra”, minningu um töfra bernskulands og skáldskapar og hug- boði um ótiðindi utan úr heimi — hér fer þjóðleg og alþýðleg skáldskaparhefð endurnýjuð af góðum smekk og yfirsýn. Þarna kynnast lesendur perlum eins og Visurnar viö hverfisteininn 1936 og Rauöi steinninnog alls á Guðmundur fjögur kvæði i ritinu. Hér til viöbótar koma fimm höfundar. örn Arnarson og tvö stutt kvæði, þjóðlegar heiftarvisur. Sigurjón Friöjónsson og Hall- dór Helgasoneru yrkjandi bændur og leita eins og kollegi þeirra Stephan G. að yrkis- efnum I Bibliuna og íslendingasögur (Esai- as spámaður og Auöur sem ber Eyjólf gráa). Oddný Guömundsson yrkir pólitiska ferðaminningu um Hitlersæskuna og Kári Tryggvason, ungur nýliði, bregður á leik með suðrænt og pólitiskt umhverfi. Sænska mafian strax Ekki hefur kynning sú á erlendum skáld- um, sem Magnús Asgeirsson stendur að i ritinu þótt sæta minni tiðindum. Hann þýðir með þeim ágætum sem allir bekkia. ljóð eftir 19 skáld og kynning hans er að þvi leyti stefnuföst, að hann leggur höfuðá- herslu á sænsk nútimaskáld og svo norsk (Artur Lundkvist, Hjalmar Gullberg, Karin Boye, Sten Selander, Nordal Grieg, Arnulf överland, svo nokkrir séu nefndir — alls 12 noröurlandabúar. Þarna er fangakvæði Os- cars Wilde og drjúgur skammtur af tólf- menningunum eftir Alexander Blok, Is- landskvæðið fræga eftir W.H. Auden, sem beinlinis var ort fyrir Rauða penna: Svo kynnum þá heiminum eyna, hans elt- andi skugga, meö oflæti I búningi og versnandi fisk- sölukjör. t afdal hvin jassinn, og æskunnar fegurö fær alþjóölegt filmbros á vör... Þarna eru lika mættir til leiks Brecht og Ernst Toller og Carl Sandburg. Atta þýddar sögur, sögukaflar eöa leik- ritskaflar eru i Rauðum pennum. Tekin eru tvö fræg dæmi af pólitiskri leikritagerð samtimans — úr leikriti Friedrichs Wolfs um valdatöku nasista (Prófessor Mam- lock) og úr leikriti Nordals Griegs um Parisarkommúnuna (Ósigurinn). Birtir eru kaflar úr Góöa dátanum Sjveik eftir Jaroslav Hasek Febrúargangan eftir önnu Seghers, sem siðar varð ein helsta skáld- kona Austur-Þýskalands og úr byltingar- sögunni Hinir nitján eftir Fadééf. Stefan Zweig er á dagskrá, Orwell sá sem skrifaði siðar 1984, Maxim Gorki. Af fjórum erlend- um ritgerðum hefur ein reynst sérstaklega lifseig, en hún er eftir norömanninn Helge Krog og fjallar um skáldskap og siðerni — þar er sigildur kafli um það, hvernig sam- félagið fer meö óstýrilát skáld — fyrst reynir það aö berja þá i hel, þar næst aö þegja þá i hel, siðan að faðma þá I hel. Spádómar og veruleiki Er þá þessu yfirliti lokið. I upphafi var þvi lofað að áöur en amen kæmi á eftir efninu yrði velt vöngum yfir þvi, hvernig spádómum Rauðra penna reiddi af. Spásögnin var i stuttu máli þessi: Borg- aralegt samfélag hefur runnið sitt skeið á enda, það sýnir kreppan og fasisminn. Borgaraleg menning er einnig að syngja sittsiðasta. En fasismanum mun steypt, og upp hefjast ný og glæsileg alþýðumenning, og þar meö nýjar bókmenntir undir merkj- um sósialisma eða samstöðu með honum. t fyrsta lagi er svo mikið vist, að fasism- anum var komiö fyrir kattarnef. En borg- aralegt þjóðfélag reyndist lifseigara en menn bjuggust viö, sem og það sem meö fyrirvara má kalla borgaralegar bók- menntir. Ef menn halda sig beinlinis á póli- tiskum vettvangi, þá er þaö augljóst að á- hrifasviö sósialisma hefur færst stórlega út með byltingum og þjóðfrelsisbaráttu I þriðja heiminum sérstaklega, og þar með hruni nýlenduskipulagsins. En samband þjóðfélags og bókmennta og lista reyndist annað en Rauöir pennar hugöu. Af Sovét- rikjunum sem og af Islandi gátu menn fengiöhinar ólikustu staöfestingar á þvi, að almennar framfarir gáfu enga ávísun á betri bókmenntir eða rismeiri, að hnignun og kreppa eru eins likleg til aö vera hvati á bókmenntastarf eins og öryggi og velferð kunna aö slá á þaö svefnhöfgi. Bylgja hinna nýju, sósialisku bókmennta reis ekki eins hátt og Kristinn E. Andrésson boðaði af áfengri bjartsýni. En hún reis. Fordæmi Rauðra penna hefur vakað i ýms- um myndum. Eins og Olafur Jóhann segir i viðtali hér á opnunni: kynni þeirra af sósialisma gerðu þá skyggnari á þjóðfélag- iö. Og þeirra skilningur, þeirra áhugi á fé- lagslegum vandamálum hefur veriö tekinn upp afturog aftur með nýjum hætti: frá þvi aö iýsa nýjum átökum I kréppuplássinu, Óseyri viö Axarfjörð, var horfið að þvi að lýsa átökum um Islenskt sjálfstæði, andófi gegn erlendri ásælni, og svo sjálfsleit hins reiða unga manns I spilltu velferðarþjóöfé- lagi eða þá hlutskipti verkamanns við upp- haf stóriðjualdar. Hér hefur verið velt vöngum yfir efni og boðskap Rauðra penna i fjórum skömmt- um. Ekki er þar meö sagt að þeir séu kvaddir: enn getur verið von á viðtölum um þetta efni og vel eru þegin tilskrif hvers- konar um þá frisklegu hreyfingu I menn- ingarmálum sem var að taka á sig form fyrir fjörutiu árum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.