Þjóðviljinn - 28.02.1975, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. febrúar 1975
hverfi af matvælum
Söluskattur
Slíkt þykir sjálfsagt víða um
lönd til að jafna kjör manna
Þeir Magnús Kjartansson og
Eðvarð Sigurðsson leggja fram
frumvarp til laga um breytingu á
lögum nr. lOfrá 1960 um söluskatt
þannig að við lögskipaðar undan-
þágur frá söluskatti i 6. grein lag-
anna bætist: „Matvæli, kaffi og
te. Ráðherra skal með reglugerð
kveða á um mörkin milli matvæla
og annarrar vöru, t.a.m. sælgæt-
is”.
í greinargerð segja flutnings-
menn:
Með frv. þessu er lagt til að
hætt verði að innheimta söluskatt
af öllum matvælum, kaffi og te.
t gildandi lögum um söluskatt
eru i 6. gr. ákvæði um lögskipaðar
undanþágur frá þessari skatt-
heimtu. bar er að finna ákvæði
um að nýmjólk skuli undanþegin
söluskatti, og nær sú undanþága
einnig til súrmjólkur og undan-
rennu. Einnig er þar ákveðið að
ekki skuli leggja slikan skatt á
sölu á neysluvatni.
Vinstri stjórn jók
undanþágur
Þá kveða lögin svo á, að ráð-
herra sé heimilt að undanþiggja
ákveðnar tegundir vöru og þjón-
ustu söluskatti. Hefur sú heimild
verið notuð i allmörgum tilvikum,
einkum gerðist það þegar vinstri
stjórnin tók við störfum 1971. Af
þessum undanþágum má nefna
neyslufisk, notkun á heitu vatni
frá sameiginlegum kyndistöðv-
um, fæðissölu, mötuneyti, mjólk-
urvörum sem ekki voru áður und-
anþegnar, svo sem smjör, rjóma,
skyr og osta, heitt vatn frá hita-
veitum, oliu til húshitunar, raf-
magn til húshitunar og fargjöld
með strætisvögnum.
42% hækkun hjá
hægri stjórn
Eins og áður er sagt gerir
frumvarp þetta ráð fyrir að allar
matvörur verði undanþegnar
söluskatti, enn fremur kaffi og te.
Astæðan fyrir flutningi þess er aö
sjálfsögðu óöaverðbólga sú sem
dunið hefur á þjóðinni að undan-
förnu og á sér engar hliðstæður i
fyrri sögu islendinga. Engar vör-
ur hafa hækkað jafnmikið og
matvæli, en meðalhækkun þeirra
hefur orðið um 42% I tið núver-
andi rikisstjórnar. Á næstu vikum
munu svo dynja yfir nýjar stór-
hækkaniraf völdum siðustu geng-
islækkunar og af ýmsum öðrum
ástæðum. A sama tima er bannað
með lögum að greiða visitölubæt-
ur á kaup, og þær láglaunabætur,
sem greiddar eru, jafngilda að-
eins litlu broti af verðhækkunum.
Ástæða er til þess að vekja sér-
staka athygli á þvi að stórfelld
hækkun á matvælum bitnar hlut-
fallslega þyngst á láglaunafólki,
barnmörgum fjölskyldum, öldr-
uðu fólki og öryrkjum, sem nota
mestan hluta launa sinna til mat-
arkaupa, og þvi hefur sú þróun,
sem orðið hefur að undanförnu
magnað stórlega þjóðfélagslegt
ranglæti hérlendis.
2 miljarðar —
4% í visitölu
Með þvi að lögbinda að matvæli
skuli undanþegin söluskatti
mundi einnig falla niður hliðstæð
innheima á þeim söluskattsstig-
um, sem ekki hafa áhrif á fram-
færsluvisitölu, enn fremur við-
lagagjald af matvælum. Lækkun-
in mundi þvi jafngilda 19 hundr-
Eðvarð Sigurðsson.
aðshlutum. Miðað víð heildsölu á
matvælum á siðasta ári má áætla
aðsöluskatturaf þeim vörum hafi
numið 1,3—1,4 miljörðum króna.
Miðað við það verðlag, sem nú er
á matvælum og fyrirsjáanlegt er
af völdum gengislækkunarinnar
mundi niðurfelling á söluskatti af
matvælum, trúlega jafngilda um
2.000 milljónum króna. Slik niður-
felling á söluskatti i fyrra hefði
lækkað visitöluna um tæp 4%, en
hagsbótin hefði að sjálfsögðu
orðið margfalt meiri fyrir það
fólk sem notar meginhluta tekna
sinna til matarkaupa.
Stjórnvöld gætu
mismunað í
innf lutningi
Sú tilhögun að undanþiggja
matvæli söluskatti, eða hafa mun
lægri söluskatt eða virðisauka-
skatt á þeim tiðkast viða i grann-
löndum okkar og þykir sjálfsögð
til þess að jafna kjör manna.
Embættismenn hérlendis hafa
einatt haft uppi þær röksemdir
gegn slikri tilhögun að hún auð-
veldi kaupsýslumönnum undan-
drátt á söluskatti. Matvæli eru
hins vegar svo samfelldur vöru-
flokkur að auðvelt ætti að vera að
fella niður söluskatt af þeim án
þess að skattsvik aukist, enda eru
þau yfirleitt seld i sérstökum
verslunum. Af þessum ástæðum
er ekki heldur farið inn á þá braut
i frumvarpinu að greina i sundur
þörf matvæli og miður þörf. Þá
aðgreiningu gætu stjórnarvöld
hins vegar framkvæmt, meðan
innflutningur þjóðarinnar er háð-
ur neyslulánum, á þann hátt að
hætta um skeið að flytja inn er-
lent fiskmeti fyrir hundruð
miljóna króna á ári, kex, tertu-
botna, vinarbrauð, öl og erlent
vatn soðið niður i dósir, svo að ör-
fá dæmi séu nefnd.
Söluskattur
og útsvar lækki
Að undanförnu hafa kjaramál
mjög verið til umræðu milli full-
trúa verkafólks og rikisstjórnar. 1
þeim umræðum hafa fulltrúar Al-
þýðusambands Islands að sjálf-
sögðu sagt að þeir muni meta fé-
lagslegar aðgerðir til jafns við
kauphækkunir, þar á meðal
skattalækkanir. Þær skattalækk-
anir, sem koma láglaunafólki að
mestu gagni, eru lækkanir á sölu-
skatti og útsvari. útsvör eru nú
orðin mjög þungbær fyrir lág-
launafólk, og hefur Geir Gunn-
arsson nýlega flutt frumvarp um
leiðréttingar á þvi kerfi. Það
frumvarp, sem hér er flutt um af-
nám á söluskatti af matvælum,
hefur hliðstæðan tilgang og
mundi fyrst og fremst' koma að
gagni þvi fólki sem býr við erfið-
ust kjör i þjóðfélaginu.
Þolir ríkissjóður
tekjumissinn?
1 þessu frumvarpi er ekki fjall-
að um tekjuöflun handa rikissjóði
til þess að vega upp lækkun tekna
af söluskatti. Ástæðan er sú að
gengislækkunin mun hafa veruleg
áhrif á afkomu rikissjóðs, og
hingað til hafa gengislækkanir
ævinlega aukið rikistekjurnar. í
annan stað hafa ráðherrar að
undanförnu lýst áformum sinum
að lækka útgjöld rikisins veru-
lega. bvi er ekki timabært fyrir
óbreytta þingmenn að fjalla um
afkomu rikissjóðs, eins og nú
standa sakir, en komi i ljós að af-
nám söluskatts á matvælum geri
aðra tekjuöflun óhjákvæmilega
eru flutningsmenn að sjálfsögðu
reiðubúnir til þess að gera tillög-
ur um það, hvernig jafna megi
þau met án þess að iþyngja af-
komu lágtekjufólks.
Ragnar Arnalds flytur tillögu um
BREYTINGAR Á
SKATTALÖGUM
, svo arðvœnleg fyrirtœki verði ekki
skattfrjáls og
Kikisstjórn Jóhanns Hafsteins
kom þeirri heimild inn i skattalög
að eignir sem almennt nýtast I
áratug eða -tugi séu afskrifaðar á
4—6 árum. Með þvi verður fyrir-
tækjum kleift að skjóta tekjum,
sem nema þúsundum miljóna
króna undan skatti, enda kom i
Ijós við lauslega athugun á skatt-
skrá Reykjavíkur 1974 að um 240
félög með samaniagða ársveltu
yfir 10 þúsund miljónir króna
greiða engan tekjuskatt. Þessu
þarf að breyta i grundvallaratrið-
um.
Ragnar Arnalds flytur tillögu
til þingsályktunar um afnám
flýtifyrningar og skatt á verð-
bólgugróða. Skal rikisstjórnin
láta undirbúa frumvarp til laga
um breytingar á lögum um tekju-
skatt og eignarskatt með það
fyrir augum að koma i veg fyrir
aðarðvænleg fyrirtæki geti skotið
sér undan að greiða tekjuskatt
með ýmiss konar bókhaldsað-
ferðum. Stefnt skal að þvi, aö
ákvæði um svonefnda flýtifyrn-
ingu verði afnumin.
Jafnframt fari fram sérstök
rannsókn á bókhaldi, birgðasöfn-
un og eignaaukningu þeirra
almenningur
hundraða fyrirtækja, sem höfðu
meira en 5 miljónir króna i árs-
veltu á árinu 1973, en fengu þó
engan tekjuskatt samkvæmt
skattskrá ársins 1974. Á grund-
velli þessarar rannsóknar verði
undirbúin löggjöf um almennan
skatt á verðbólgugróða fyrir-
tækja.
Eignasala til
skattahagræðis
1 greinargerð segir flutnings-
maður:
Við lauslega athugun á skatt-
skrá Reykjavikur 1974 kemur i
ljós, að um 240 félög með saman-
lagða ársveltu yfir 10 þúsund
miljónir króna greiða engan
tekjuskatt, og eru þá hvorki með-
talin fyrirtæki, sem rekin eru I
nafni einstaklinga, né samfélög
með minna en einnar miljón kr.
ársveltu og aðeins félög i höfuð-
borginni.
Margar skýringar eru á þvi, að
hundruð arðvænlegra fyrirtækja
sleppa við að greiða tekjuskatt,
en ein sú helsta er ákvæði skatta-
laga um flýtifyrningu, sem fyrst
var sett i lög vorið 1971 áó frum-
kvæði rikisstjórnar Jóhanns Haf-
látinn borga
steins. Til viðbótar almennri
fyrningu, sem er allt að 1% á ári,
heimilast fyrirtækjum að draga
frá tekjum sinum allt að 6% flýti-
fyrningu. Á fjórum árum geta þvi
fyrirtækin sloppið við að greiða
skatt af tekjum, sem nema 84% af
andvirði fyrnanlegra eigna, og er
þvi engin furða þótt mörg þeirra
sleppi vel. Með stöðugri fjárfest-
ingu geta fyrirtækin komist hjá
þvi að greiða tekjuskatt um mjög
langt skeið, og það furðulegasta
þingsjá þjóðviljans
er, að þegar eignin er fullfyrnd,
þarf fyrirtækið aðeins að selja
hana og festa sér i staðinn aðra
eign til þess að geta byrjað að af-
skrifa á nýjan leik af fullum
krafti. Er þá oft um að ræða, að
eignirnar, sem koma i staðinn
fyrir þær seldu, hafa áður verið
að fullu afskrifaðar hjá fyrri eig-
anda, og getur þvi sama eignin
orðið til þess að spara nýjum og
nýjum eiganda tekjuskatts-
greiðslur, sem nema miljónum
króna.
Þetta þarf að
gera strax
Kjarni málsins er sá, að með
þvi að heimila, að eignir, sem al-
mennt nýtast i áratug og ýmsar i
marga áratugi, séu afskrifaðar á
4—6 árum, er verið að gera mönn-
um kleift að skjóta tekjum, sem
nema þúsundum miljóna króna,
undan skatti. Með tillögu þessari
er að þvi stefnt, að þessum fárán-
legu fyrningarreglum verði
breytt i grundvallaratriðum og
m.a. verði flýtifyrningin afnumin
með öllu. Þessa breytingu á
skattalögum má undirbúa með
stuttum fyrirvara og þarf að gera
strax.
Bókhaldsrannsókn
i 2-þættum tilgangi
önnur ákvæði tillögunnar
krefjast lengri tima til undirbún-
ings og framkvæmda. Eðlilegt
virðist, að fram fari sérstök rann-
sókn á bókhaldi, birgðasöfnum og
eignaaukningu þeirra fyrirtækja
sem engan tekjuskatt fengu sam-
kvæmt skattskrá ársins 1974, en
til einföldunar er hér lagt til, að
rannsóknin beinist fyrst og
fremst að þeim hluta þessara
fyrirtækja, sem höfðu meira en 5
miljónir króna i ársveltu. Rann-
sókn þessi hefur tviþættan til-
gang:
I fyrsta lagi að kanna til fulls,
hvaða aðrar ástæður en fyrning-
arreglur valda þvi, að fyrirtækin
borga ekki skatt. Reynist vera
um ólöglegar aðferðir að ræða,
verður málinu að sjálfsögðu visað
til saksóknara rikisins til frekari
meðferðar.
í öðru lagi þarf rannsóknin að
varpa ljósi á þá eignaaukningu,
sem almennt hefur átt sér stað i
krafti afskriftareglna, og skulda-
söfnunar á verðbólgutimum, og
yrði niðurstaðan höfð til hliðsjón-
ar við samninga frumvarps um
verðbólguskatt.
Fyrirkomulag á álagningu og
innheimtu verðbólguskatts getur
verið með ýmsum hætti og þarf
að undirbúa vandlega, en eðlilegt
virðist, að álagningin næði nokk-
ur ár aftur i timann.
Með afnámi flýtifyrningar og
með þvi að skattleggja nokkurn
hluta af þeim mikla verðbólgu-
gróða, sem nú myndast á ári
hverju, oftast með tilstyrk rikis-
banka og opinberra f járfestingar-
sjóða, mætti vafalaust draga
verulega úr skattaálögum á al-
þýðu manna, og kemur þá sér-
staklega til álita að fella niður
söluskatt á ýmsum nauðsynja-
vörum og draga þannig úr verð-
bólgu.
PÓSTUR OG
SÍMI
Staða VIÐSKIPTAFRÆÐINGS hjá Póst-
giróstofunni er laus til umsóknar.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá for-
stöðumanni póstgiróstofunnar og hjá
starfsmannadeild.