Þjóðviljinn - 28.02.1975, Side 13
Föstudagur 28. febrúar 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
Fölsku tónarnir
á sínum stað
Það var dapurlegt að heyra
Svavar Gests, einn helsta
formælanda Félags islenskra
hljómlistarmanna gegnum árin,
segja það i dagskrárkynningu
hjá Magnúsi Bjarnfreössyni
iaugardaginn 22. febrúar s.l. að
fengi hann að breyta dag-
skránni eftir eigin höfði, myndi
hann færa þáttinn ,,Að hlusta á
tónlist” á einhvern annan tíma.
Svavari fannst sem þessir
þættir Atla Heimis Sveinssonar
ættu ekki að vera á besta hlust-
unartima útvarpsins.
Nú er það svo, að þessir
tónlistarþættir Atla Heimis eru
Lagarfljótsvirkjun:
með besta útvarpsefni vetrar-
ins. Atli Heimir er með
afbrigðum skemmtilegur, út-
varpsmaður ,,á heimsmæli-
kvarða” og kann þá list að vekja
áhuga tóndaufra islendinga á
þeirri listgrein sem löngum
hefur tiðkast hér að sýna aðeins
áhugaleysi.
Einhvern veginn hefði maður
imyndað sér að Svavar Gests
hefði betra tóneyra en svo, að
honum þætti hlýða að gera litið
úr góðum tónlistarþætti. En
samtal þeirra Magnúsar
hljómaði svo rétt á eftir þætti
Atla Heimis eins og fölsk nóta,
og við þeim er vist litið að gera.
Einhverju sinni var góður fiðlu-
leikari, sem löngum lék i
beinum tónlistarútsendingum
Rikisútvarpsins, spurður að þvi
hvort ekki væri unnt að forðast
allar feilnóturnar. Fiðluleik-
arinn sagði að erfitt væri að
losna við þær, einna helst væri
að ætla þeim ákveðna stund i
útvarpinu, taka frá sérstakan
tima til að útvarpa fölsku
tónunum.
Kannski er dagskrárkynning
Magnúsar Bjarnfreðssonar best
til þess failin af öllum útvarps-
þáttum — en ég geri það að
tillögu minni að hún verði færð á
annan hlustunartima.
A mánudagskvöldið s.l. var á
dagskrá þátturinn ,,Byggöa-
mál”, sem fréttamenn útvarps-
ins annast. Þessi siðasti þáttur
var afar vel unninn og gagn-
legur.
Fréttamennirnir tóku þar
saman upplýsingar um þróun
jarðamála i nokkrum héruðum,
og sýndu glögglega með stað-
reyndaupptalningu, að lög um
eignarhald á bújörðum þurfa
endurskoðunar við — sport-
sinnaðir peningamenn úr þétt-
býli eru langt komnir að leggja
sumar sveitir i eyði eða spilla
jörðum með ágangi hrossa
sinna.
Á dögunum voru fréttamenn
gagnrýndir hér i Þjóðviljanum
fyrir að tala litið við þolendur
valdsmanna og kerfis, fólkið
sjálft. Þátturinn á mánudaginn
var veruleg bragarbót.
—GG
ÚTVARP
Smávægilegur leki
Prófanir
hafnar aftur
Þeir eru aö prófa vélar hinnar
nýju Lagarfljótsvirkjunar þessa
dagana. A mánudaginn, þegar
vatni var hleypt á vatnsgöngin
neöanjaröar að stöðvarhúsinu,
kom i ljós smávægilegur vatns-
leki, og létu verkfræðingar Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen,
sem hönnuðu mannvirkin eystra,
stöðva rennslu um vatnsstokkinn
á meðan lekinn var kannaður.
Nú er fullur kraftur aftur kom-
inn á vatnsrennslið að stöövar-
húsinú, enda kom i ljós, að lekinn
var smávægilegur, vandræðin
stöfuðu aðeins af ónýtu ræsi i
stöðvarhúsinu.
,,Það hefur verið gerð tilraun til
að mæla þennan leka i vatns-
ganginum”, sagði Loftur Þor-
steinsson, verkfræðingur, þegar
Þjóðviljinn ræddi við hann i gær,
,,og þetta sýnast vera um 2 sek-
úndu litrar sem leka út um
steypusamskeyti á tveimur stöð-
um i stöðvarhúsinu. Þaðer jafnan
um einhvern leka að ræða i svona
mannvirkjum, og 2 sekúndu litrar
eru ekki stórvægilegt miðað við
það að vatnsgöngin flytja 50.000
litra á sekúndu. Lekinn er þá
1/25.000 af þvi sem um göngin fer.
Og það ætti ekki að taka langan
tima að koma þessu ræsi i lag.
Vélarnar eru komnar á stað aftur
i þinghléi siöustu viku hélt
Helgi Seljan alþm. fundi með
félögunum á Egilsstööum, Eski-
A undanförnum árum hefur
verið efnt til samkeppni meðal
ungra norrænna flytjenda tónlist-
ar á vegum norræna Menningar-
málasjóðsins. Keppt hefur verið i
söng, pianóleik, orgelleik, leik á
strengjahljóðfæri og blásturs-
hljóðfæri, og nú fer fram keppni i
gitarleik. Akveöið hefur verið að
halda þessari keppni áfram enn
um sinn, en i stað þess að byrja
að nýju á keppni i söng eða leik á
eitthvert hljóðfæri, er nú i ráði að
núna og prófanir eru hafnar”.
Vatnsgöngin eru 4x4 metrar að
innanmáli og íallhæð virkjunar-
innar er liðlega 17 metrar, þannig
að þrýstingurinn á stokknum er
mikill.
firði og Fáskrúösfirði, þar sem
rædd var staðan i þjóömálum og
áhrif sfðustu aðgerða á efnahag
efna til norrænnar keppni i sam-
leik.Keppendur munu ekki koma
fram sem einleikarar, heldur sem
dúó, trió, kvartett eða kvintett.
Lögð verður áhersla á það, að
verkin, sem leikin verða séu nor-
ræn samtimaverk. Vegleg verð-
laun verða veitt. Nánari tilhögun
keppninnar verður auglýst siðar
(Frétt frá NOMUS-nefndinni
Samstarfsnefnd fyrir norræna
músik).
Sem fyrr segir var það Verk-
fræðistofa Sigurðar Thoroddsen,
sem mannvirkin hannaði, en
Norðurverk h.f. á Akureyri var
verktaki.
—GG.
launafólks i landinu.
Einnig var fundur haldinn i
stjórn og trúnaðarráði félagsins á
Reyðarfirði.
A Egilsstöðum var samþykkt
að Alþýðubandalagið beitti sér
fyrir fundi nú i mars eða april á
Egilsstöðum um stöðu land-
búnaðar á Austurlandi. Fundur-
inn yrði öllum opinn, en frum-
mælendur yrðu m.a. Páll Sig-
björnsson, héraðsráðunautur, er
f jalla myndi um stöðuna almennt,
Helgi Seljan alþm., er ræddi lána-
mál landbúnaðarins, tveir bænd-
ur af Austurlandi, er ræddu við-
horfin frá sinum sjónarhóli og
fenginn yrði maður héöan að
sunnan til þess að reifa nýjungar i
landbúnaðinum.
MIKILL HUGUR
Keppni í samleik
Helga frá Dagverðará:
ÞORRI
Heimsækir island
á ári hverju
Hrimlanda jarl
að heiti Þorri.
Ekur hann tímans
örugga vagni
er skreyta norðurljós
skýjaleiðir.
Hátt á Islands
öræfum stendur
sterkbyggð höll
í snjóaveldi,
þar ræður ríkjum
hinn ríklundaði
konungur Vetur
á klakastóli
Hart knýr hurðir
hraustur Þorri
kominn úr langferð
að konungs sölum.
Út er gengið
og inn er leiddur
Hrímlanda jarl
að hásæti Vetrar.
1975
Vel kveður Þorri
Vetur konung,
vel tekur vetur
vinarkveðju:
,,Velkominn sértu
til vorra sala
dvel hjá oss mánuð
drótt til gleði.
Sækir að öldnum
svefn og þreyta,
svo er um oss
það sér hver vitur.
Bónar þeirrar
er beðið Þorri
að ráðir þú voru
riki í mánuð.
Sterka þarf stjórn
á stóru ríki,
hvíldar er þörf
þeim hvíldar biður.
Gott er í dulda
draumheima
ver þeim að ganga,
sem visku leitar."
Þá mælir Þorri:
,,Þér skal veita
bón þína Vetur
svo vel þú hvílist,
hlotnist þér viska
i heimi drauma
og orka til stjórnar
stóru ríki."
,,Komið nú þjónar!
— kallar Vetur —
og veitið Þorra
vistir góðar.
Skemmtun skal hefja
til heiðurs gesti
svo gleðjist hann
í höllu vorri.
Stillið nú strengi
Stórsjór og Vindur
leikið undir
er Ægisdætur
hefja sönglist
til heiðurs Þorra
svo bergmál hljómi
frá bjargasölum.
Komið nú hingað
— kallar Vetur —
meyjar Snæs
Mjöll og Drífa,
klæðist í ykkar
kristalsskrúða
og dansið listdans
til dýrðar Þorra
Kveðja skal Þorri
— oss þörf er hvíldar —
njót þú gleði
og gamanmála.
Slepptu þó aldrei
stjórnartaumum,
né augnaþjónum
úr augsýn þinni.
Ak þú heill Þorri
til Hrimlands jökla.
Heill kom þú aftur
til hallar vorrar
að ári liðnu
það eykur gleði
þ’égna allra
í þessu ríki."
Helga frá Dagverðará
Þetta kvæði átti að birtast á
þorraþrælinn síðast liðinn laug-
ardag, en féll út vegna þrenglsa.
— Þjv.
Dani
sýnir á
Mokka
Alexander Sörenson, 27 ára
gamall dani, sem starfar hér á
landi, sýnir um þessar mundir á
Mokka. Mestur hluti myndanna
eru unnar i oliu, en nokkrar eru
pennateikningar og vatnslita-
myndir. Alexander stundar list-
nám i bréfaskóla i Sviþjóð,
Farmus School.
Alexander hefur áður sýnt i
Danmörku og Þýskalandi.
Sýningin verður opin i þrjár
vikur og er verð myndanna frá
kr. 1.500 til 20 þús.
Handbók
Handbókin Iceland kemur nú út
i sjötta sinn, og er útgáfan að
nokkru tengd þjóðhátiðarárinu
1974. Bækurnar hafa fyrst og
fremst verið hugsaðar til kynn-
ingará landi og þjóð fyrir útlend-
inga, enda gefnar út á ensku, en i
þeim hefur einnig verið að.finna
margvislegan fróðleik, sem
landsmönnum hefur ekki verið
tiltækur annars staðar.
Bókin skiptist i 48 kafla, og höf-
undar eru 43. Auk þess er töflu-
viðauki og listi yfir nær 400 bækur
á erlendum málum, sem fjalla
um Island og islensk málefni. Alls
er bókin 500 blaðsiður að stærð,
með 64 myndasiðum, flestum i lit,
og tveimur litprentuðum kortum.
—GA.
meðal Alþýðu-
bandalagsmanna
Þessi fundur verður auglýstur
siðar, en félagið á Fljótsdals-
héraöi sér um alla framkvæmd.
Á Reyðarfirði hefur það nú
fengist fram fyrir forgöngu Al-
þýðubandalagsins, að fundir
sveitastjórnar hafa verið opnaðir
almenningi og er mikill ánægja
rikjandi meðal fólks vegna þessa
siálfsagða fyrirkomulags.
Reyðarfjarðarfélagið ákvað að
efna til fræðslufundar i april og fá
Einar Olgeirsson fyrrv. alþm.
sem fyrirlesara. Þetta yrði gert i
samrái við eskfirðinga.
Þá ákvað stjórnin að leita eftir
þvi við Jónas Árnason rithöfund
og alþingismann, að hann kæmi
austur sem gestur félagsins,
e.t.v. i tengslum við árshátið á
Reyðarfirði á vegum Alþvðu-
bandalagsins. Skv. viðtali viö
Helga Seljan er mikill hugur i Al-
þýðubandalagsfólki austur þar að
efla flokksstarfið og herða barátt-
una gegn hægri stjórninni og af-
glöpum hennar.
Ljósmæðra-
blaðið
Nýlega hefur verið gefið út blað
af Ljósmæðrafélagi lslands og
nefnist það Ljósmæðrablaðið og
er i breyttum búningi.
Hefur það meðal annars að
flytja umsögn LMFt um fóstur-
eyðingafrumvarpið, nýjar lands-
hlutadeildir, lifeyrissjóð ljós-
mæðra, alþjóðlegt mót ljósmæðra
i Lausanne i Sviss, frumvarp til
laga um breytingu á ljósmæðra-
lögum og aðalfundargerð LMFl,
1974.
Ljósmæður hafa verið launa-
stétt i landinu i rúm 200 ár eða frá
árinu 1766 og gefið út blaðið yfir
50 ár.
Jónas
ekki Lárus
1 frétt af opnun bókamarkaðar
Bóksalafélagsins, var Jónas Egg-
ertsson, bóksali, sem árum sam-
an hefur verið einn af framá-
mönnum bóksala, ranglega
nefndur Lárus — vonandi tekur
prentvillupúkinn það ekki upp
oftar.