Þjóðviljinn - 28.02.1975, Qupperneq 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. febrúar 1975
Að
snoru —
skóla. Ég þekkti alla bilstjórana
sem komu til okkar. Ég bað einn
þeirra að panta fyrir mig her-
bergi á hótelinu við Uxagötu.
Hann átti að panta herbergið á
sinu nafni og biðja um lykilinn ef
ske kynni að hann yrði seinn fyr-
ir, og segja að hann ætlaði burt
aftur i dögun. Ég veit um marga
bílstjóra sem hafa gert þetta og
það er ekkert athugavert við það.
Hann gerði það sem ég bað um,
borgaði fyrir herbergið og skilaði
mér lyklinum og svo fór hann
leiðar sinnar. Ég hef ekki einu
sinni séð hann siðan.
— Veistu hvað hann heitir?
spurði landfógetinn i skyndi.
— Nils Eliasson, sagði Rune. —
Karlinn er frá Gautaborg, en ég
held hann sé fluttur til Norrköp
ing. Ég komst að þvi eftirá að
hann hafði breytt nafninu dálitið,
þegar hann tók herbergið á leigu,
en þið getið ekki láð honum það.
Hann vissi auðvitað ekki til hvers
ég ætlaði að nota herbergið, og
hann kærði sig ekkert um að
flækjast i neitt sem kom honum
ekki við. Mér finnst það ekkert
skrýtið.
Það var ekkert skrýtið. Ekkert
var skrýtið þegar skýring fékkst
á þvi. Verjandinn leit af ungling-
unum tveimur i sófanum og á
héraðshöfðingjann við skrifborðið
og vissi að hann tók á sig áhættu.
— Ég ætla að kalla þessi tvö
sem vitni, sagði hann.
— Ég lika, sagði landfógetinn.
— En fyrst verður að yfirheyra
þau og við verðum að ná i bil-
stjórann og yfirheyra hann lika.
Og sömuleiðis frú Nohrström.
— Hún veit ekki neitt, sagði
Rune. — Við sáum ekkert bóla á
henni.
— Ennfremur verð ég að fara
fram á frest, sagði landfógeti.
— Til klukkan tiu i fyrramálið?
lagði héraðshöfðinginn til. —
Nægir það? Er verjandinn sam-
þykkur?
Verjandinn bandaði höndunum
með hátignarlegu umburöar-
lyndi.
— Ég má vist til, sagði hann, —
i þágu réttvisinnar. Skjólstæðing-
ur minn...
— Er ekki hægt að sleppa henni
núna? sagði Desi biðjandi.
— Sleppa henni? sagði land-
fógetinn og missti pennann. —
Hvers vegna i ósköpunum?
— tJt af lyklinum, sagði Desi. —
Lyklinum sem við höfðum fengið
lánaðan til að komast inn á hótel-
iö. Við tókum hann óvart heim
með okkur. Og af þvi að ég átti
ekki gott með að fara og skila
honum — þá hefur allt komist
upp, skiljið þið — þá fleygði ég
honum i, já, þar sem lögreglan
fannhann seinna. Hún stjúpa min
á ekki nokkurn þátt i þessu.
An þess að muna að reglusemi
hæfir þeim sem starfar fyrir rétt-
visina, fleygði landfógetinn vasa-
bókinni frekjulega frá sér á skrif-
borðið.
— Gátuð þið ekki gloprað þessu
út úr ykkur fyrr?
Hann horfði gremjulega á unga
parið i leðursófanum, Desi með
fritt, grannleitt stúlkuandlitið og
móðurlega breiðar lendar, Rune
með kæruleysisfas og vott af
sama púkaglottinu og faðir hans
hneykslaði náungann með.
— Nú? sagði landfógetinn. — Af
hverju gáfuð þið ykkur ekki fram
fyrr? Þá hefði ég komist hjá...
— Það vorum við"sem vildum
sleppa við vafstur, sagði Rune. —
Hún er sautján ára og ég er ni-
tján. Haldið þiðað það sé eitthvað
þægilegt að koma og segja frá
þessu?
— Pabbi var alveg bálvondur
yfir þvi að við skyldum hafa sést
saman úti, sagði Desi.
— Og auk þess, sagði Rune, —
vorum við alveg sannfærð um að
þetta myndi bjargast þótt við
þegðum. Þvi að þetta gekk alls
ekki til eins og þér sögðuð.
Landfógetinn togaði gremju-
lega i jakkahornin.
— Hvað gekk ekki þannig til?
spurði hann.
— Morðið og allt það, svaraði
Desi. — Hún stjúpa min hefur alls
ekki framið það, það hljótið þér
að skilja. Og ég held svei mér að
þér séuð ekki með réttu ráði að
tala svona um hana. Að hún sé
tilfinningasjúkt rándýr með van-
þroskaða skynsemi? Er hægt að
tala svona þegar fólk hlustar á?
Landfógetinn roðnaði þegar
hann heyrði sálfræðigreiningu
sina hafða eftir á þennan óvirðu-
lega hátt. En verjandinn hallaði
sér nær unga parinu i sófanum
með mikla vinsemd i svipnum.
— Klukkan hvað höfðust þið
eiginlega við á hótelinu?
— Frá klukkan ellefu til klukk-
an þrjú um nóttina, eða þvi sem
næst.
— Heyrðuð þið nokkurt hljóð úr
næsta herbergi?
— Nei, það var Rune sem svar-
aði. — Nei, og það er það undar-
lega. Við vorum vakandi allan'
timann og við heyrðum hvorki
hljóð eða fótatak eða nokkurn
skapaðan hlut. Og samt hef ég
heyrt vörubilstjórana segja, að
það væri svo hljóðbært á hótelinu
að allt heyrðist endanna á milli.
Hann bætti við alvarlegur á
svipinn:
— Nei, við heyrðum ekki neitt.
— Og ég segi fyrir mig, að ég held
að þarna hafi ekki verið framið
neitt morð, þvi að þá hefðum við
heyrt það. Ég held hann hafi ein-
hvern veginn kálað sér sjálfur.
Landfógetinn kom ekki upp
orði; verjandinn minnti á töfra-
mann sem finnur óvart' tvær
kaninur i hatti sem hann hélt að
væri tómur og héraðshöfðinginn
af Tibast bar fram lokaspurningu
iskaldri röddu:
— Þið getið sem sé fullyrt upp á
æru og trú að þið hafið ekki heyrt
neitt?
Rune kinkaði kolli til samþykk-
is, alvarlegur á svip.
— Ekki neitt, sagði Desi og
brosti blitt til gamla mannsins. —-
En auðvitað hlustuðum við ekki
mjög vandlega. Við höfðum um
ýmislegt annað að hugsa þarna
um nóttina.
3.
Frestun réttarhaldann til næsta
dags vakti mikla athygli. Furðu-
legar sögur komust á kreik. Trú-
legust þótti sagan um það að frú
Inez Viktorsson hefði hengt sig i
fangaklefanum.
Einhvers staðar i vistarverum
ráðhússins voru Rune og Desi
yfirheyrð, vandlega og hvort fyrir
sig. Landfógetinn og verjandinn
skrifuðu niður og veltu vöngum.
Ennfremur var haft upp á dular-
fulla vörubilstjóranum og hann
staöfesti söguna við rannsóknar-
lögregluna i heimabæ sinum.
Yfirheyrslur voru hafnar að nýju.
Frú Nohrström var leituð uppi i
eldhúsi sinu, þar sem hún blés frá
sér reykskýjum og krafðist bóta
fyrir vinnutap.
Þjálfuðu höfuðborgarblaða-
mennirnir slepptu öllu sambandi
sin i milli og eltu hvor sina slóð af
ákafa. Starfsmaður Lénstiðinda
var ekki eins slyngur, en á hinn
bóginn var hann persónulega
kunnugur ' hverjum manni. Það
leið ekki á löngu áður en þeir
lútvarp
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00 og 8.15 og
10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15, og 9.15. Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. dagbl.)
9.00 og 10.00. Morgunbænkl.
7.55. Morgunstund
barnanna kl. 9.15. Vilborg
Dagbjartsdóttir endar lest-
ur sögunnar um „Pippa
fjóskettling og frændur
hans” eftir Rut Magnús-
dóttur (4). Tilkynningar kl.
9.30. Þingfréttir kl. 9.45.
Létt lög milli atriða.
Spjallað við bændur kl.10.05
„Hin gömlu kynni” kl. 10.25.
Sverrir Kjartansson sér um
þátt með frásögnum og
tónlist frá liönum árum.
Morguntónleikar kl. 11.00.
Hljómsveit Leopolds
Stokowskis leikur
rúmenskar rapsódiur eftir
Enesco / Edith Peinemann
o g Tékkneska
fllharmóniusveitin leika
Fiðlukonsert i a-moll op. 53
eftir Dvorák.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan; Himinn
og jörð” eftir Carlo Coccioli.
Séra Jón Bjarman les
þýðingu sina (15).
15.00 Miðdegistónleikar.
Hermann Prey syngur Sex
lög op. 48 eftir Beethoven
við ljóö eftir Gellert; Gerald
Moore leikur á pianó. Ox-
fordk vartettinn leikur
strengjakvartett op. 13 eftir
Mendelssohn.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar
(16.15 Veðurfregnir)
16.25 Popphornið.
17.10 Ctvarpssaga barnanna:
„1 föður stað” eftir Ker-
stin Thorvall Falk. Olga
Guðrún Arnadóttir les þýð-
ingu sina (9).
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Þingsjá. Umsjón: Kári
Jónasson.
20.00 Sinfóniuhljómsveit
Berlinarútvarpsins heldur
hljómleika (Sent þaðan á
segulbandi). Hljómsveitar-
stjóri: Herbert Glietzen
Einleikari á pianó: Myung-
Whun Chung. Einleikari á
fiölu: Pierre Amoyal. a. „I
Vespri Siciliani”, forleikur
eftir Giuseppe Verdi. b.
Planókonsert nr. 2 i g-moll
op. 22 eftir Camille Saint-
Saens c. Fiðlukonsert i e-
moll op. 64 eftir Felix
Mendelssohn - Bartholdy. d.
„Hafið”, hljómsveitarverk
eftir Claude Debussy.
21.30 Útvarpssagan: „Klaka-
höllin” eftir Tarjei Vesaas.
Kristin Anna Þórarinsdóttir
leikkona les (9)
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (29).
22.25 Húsnæðis- og byggingar-
mál. Ólafur Jensson ræðir
við Óskar Hallgrimsson for-
mann húsnæðismála-
nefndar ASÍ um félagslegar
byggingaframkvæmdir.
22.50 Afangar.Tónlistarþáttur
I umsjá Asmundar Jóns-
sonar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.40 Fréttir i stuttú máli.
Dagskrárlok.
# sjónvarp
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.35 Lifandi veröld. Breskur
fræðslumyndaflokkur um
samhengið i riki náttúrunn-
ar. Sjötti og slðasti þáttur.
Lifið á vötnunum. Þýðandi
og þulur óskar Ingimars-
son.
21.05 Kastljós. Fréttaskýr-
ingaþáttur. Umsjónarmað-
ur Eiöur Guðnason.
21.55 Töframaðurinn. Banda-
riskur sakamálamynda-
flokkur. Mikið skal til mikils
vinna. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.45 Dagskrárlok.
'SImi 1^936 *
Leit aö manni
To find a man
Afar skemmtileg og vel leikin
ný amerisk litkvikmynd um
vandamál æskunnar. Leik-
stjóri Buzz Kulik. Aðalhlut-
verk: Darren O’Connor, Pam-
ela Sue, Martin, Lloyd Bridg-
es.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 8.
Ættarhöfðinginn
Creatures the World
forgot
Hrottaspennandi, ný, amerisk
litkvikmynd um harða lifs-
barátlu fyrir örófi alda. Leik-
stjóri: Don Chaffey. Aðalhlut-
verk: Julie Ege, Tony Bonner,
Brian O’Shaughnessy, Robert
John.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 6 og 10.
Sími 16444
Presentation
George Glenda
Segal Jackson
A Melvin Frank Film*
Touch
Of Class
Vottur af glæsibrag
Afbragðs fjörug og skemmti-
leg ný bandarisk gamanmynd
i litum og Panavision, um
ástaleiki með vott af glæsi-
brag og hæfilegum millispil-
um.
Glenda Jackson hlaut
Oscarverðlaun sem bezta leik-
kona ársins 1974, fyrir leik
sinn i þessari mynd. Leik-
stjóri: Melvin Frank.
ÍSLENSKUR TEXTI.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11,15.
LEIKFÉIA6
YKJAVÍKUR'
Iðnó:
FLÓ A SKINNI
i kvöld. — Uppselt.
DAUÐADANS
laugardag kl. 20.30.
SELURINN HEFUR
MANNSAUGU
sunnudag kl. 20,30.
FLÓ A SKINNI
þriðjudag kl. 20.30
243
sýning. Fáar sýningar eftir.
Austurbæjarbíó:
ISLENDINGASPJÖLL
miðnætursýning laugardag kl.
23.30.
Aðgöngumiðasalan i Austur-
bæjarbiói er opin frá kl. 16.
Simi 1-13-84.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14. Simi 1-66-20.
$®WÓflLEIKHÚSIÐ
COPPELIA
ballett i 3 þáttum.
Tónlist: L. Delibes.
Stjórnandi, höfundur leik-
myndar og búninga: Alan
Carter ballettmeistari.
Frumsýning I kvöld kl. 20.
Uppselt.
2. sýning sunnudag kl. 20.
KARDEMOMMUBÆRINN
laugardag kl. 15
sunnudag kl. 15
KAUPMAÐUR 1
FENEYJUM
laugardag kl. 20.
Leiikhúskjallarinn:
HERBERGI 213
sunnudag kl. 20,30.
Miðasala 13,15—20.
TÓNABÍÓ
31182
Flóttinn mikli
STEVE McijUEÉN JAMES GARNER RICHARD AHENBOROUGH
•tucTdckt copadcm JA.VES CHARLES DONALD JAWES
IHE GREAT ESCAPE donalo bronson pleasence coburn
'.■rv' - •/ ' COLORSk...*PANAVISIOII
Ri rcuu: IVj Unft8d ArtlSt8
Flóttinn mikli er mjög spenn-
andi og vel gerð kvikmynd,
byggð á sannsögulegum at-
burðum.
Leikstjóri: John Sturges.
ÍSLENSKUR TEXTI.
Myndin hefur verið sýnd áður
i Tónabfói við mikla aðsókn.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuö innan 12 ára.
Slmi 41985
Hnefafylli
af dýnamiti
ISLENSKUR TEXTI.
Bönnuð börnum
Sýnd kl. 8.
Skri f stof uf y lliríiö
Sænska mánudagsmyndin.
Aðcins sýnd i nokkur kvöld kl.
10.
Bönnuð innan 16 ára.