Þjóðviljinn - 23.04.1975, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 23. april 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
sem eru sem sagt 30% af þessum
90, sem ég nefndi hér áðan. Hann
á að skila til baka þeim skatta-
fvilnunum, sem liggja í þvi að
hann hefur notað flýtifyrninguna
til að sleppa við skattgreiðslu. En
af þvf að það má heita öruggt
mál, að útgerðarmaðurinn er nú
ekki sérlega hrifinn af þvi að
þurfa að standa skil á þessu fjár-
magni, þá hefur verið séð fyrir
enn einni smugu i skattalögum til
að koma I veg fyrir það, að hann
þurfi nokkurn tima að standa skil
á skatti af þessum 30% einnig. Ef
hann kaupir annað skip, sem
væntanlega er i verðbólguþjóð-
félagi miklu dýrara heldur en
skipið, sem hann var að fyma, þá
heimilast honum að láta þessar
afskriftir,sem hann átti að greiða
skattinn af, ganga upp i nýjar
fymingar, sem geta numið, eins
og hér hefur verið sagt, allt að
31,5% á árinu 1975, þannig að það
má heita harla óllkiegt, að hann
borgi nokkurn tima nokkurn
skatt, ekki heldur af flýtifyming-
unni.
Skýring á skipasölum
Þessi furðulegu fyrningar-
ákvæði verða að sjálfsögðu enn
fáránlegri i ljósi þess, að lána-
fyrirgreiðsla til skipakaupa er 85-
90% og lánin eru veitt til allt að 18
ára. Eftir 4 ár, þegar skip er að
fullu fyrnt, hefur eigandinn sjálf-
ur aðeins greitt 30-34% af and-
virði skipsins, en þá selur hann
mjög oft skipið og afgangurinn af
verði skipsins er raunverulega i
eigu opinberra sjóða, en hann
hefur sjálfur fengið að njóta þess
hagnaðar, sem fólginn er I af-
skriftum af þeim hluta skips-
verðsins einnig. Við þennan þátt
málsins er svo þvi einu aö
bæta, að þaö er alkunn staðreynd
I þjóðfélagi okkar, aö skip eru
seld eftir 4-5 ár, og má heita frek-
ar regla, aö svo sé, og þarf þvi
enginn að vera neitt undrandi á
þvi, af hverju það stafar.
2.000 miljóna
hagnaður af
fyrningarreglum
Ef við gerum tilraun til þess að
meta þann heildarhagnaö, sem
fyrirtæki hafa árl. af fyrningar-
reglum, þá verðum við að lita á
opinberar tölur um brúttóhagnað
fyrirtækja, áöur en greiddur er
skattur og áður en afskriftir eru
reiknaöar. Samkvæmt upplýsing-
um Þjóðhagsstofnunar var
brúttóhagnaður allra fyrirtækja I
landinu á árinu 1973 um 5.100
milj. kr. Þar af var hagnaður i
iðnaði að undanskildum sements-.
áburðar- og áliðnaði 1506 milj., I
fiskiðnaði 2117, i smásöluversíun
567, I heildsöluverslun 571 og i
sjávarútvegi eða útgerð 361, sam-
tals gera þetta 5122 milj. kr. Ef
skattar væru greiddir af
hagnaðinum, eins og hann kemur
fyrir, þá heföu tekjuskattar átt að
vera á árinu 1974 2700 milj. kr. En
samkvæmt upplýsingum sömu
stofnunar er talið, að tekjuskattar
félaga hafi numið rúmum 700
milj. kr. á árinu 1974, sem sagt,
munurinn er hvorki meira né
minna en 2.000 milj. kr. Að
sjálfsögðu er munurinn fólginn I
þessum fyrningar- og Ivilnunar-
reglum, sem ég hef hér rakið, og
mönnum til fróðleiks er rétt að
skýra hér frá þvi, hvernig hlut-
föllin eru i grófum dráttum. Eins
og ég hef áður tekið fram, námu
varasjóðsheimildirnar á árinu
1973 511 milj. kr., en afskriftir
2.550 milj. og þó að manni finnist
að visu, að skatturinn ætti að gefa
þá eilltiö meira, þvi að mis-
munurinn á brúttóhagnaöi, af-
skriftum og varasjóðsheimildum
er sem sagt rúmlega 2.000 milj.,
skatturinn ætti þá að vera liðlega
1.000 milj., þá virðist vera, að
samkvæmt áætlunum um inn-
heimtan skatt, þá nemihann ekki
nema liðlega 700 milj. kr. og kann
ég nú ekki að gera grein fyrir þvi i
hverju þessi munur kann að vera
fólginn, en mér dettur i hug i
fljótu bragði, að hann liggi I þvi,
að skatturinn er að sjálfsögðu
ekki lagður á skatta fyrra árs og
má vera, að þeir séu sem sagt i
þessari tölu.En það er eitthvað,
sem veldur þessum 300 milj. kr.
mun. Upp úr stendur, að ef lagður
væri á 53% tekjuskattur á brúttó-
hagnað fyrirtækja i landinu, þá
ætti sá skattur að nema 2.700 milj.
fyrir skattárið 1973, en hann nam
aðeins rúmum 700 milj. kr.”
Heimildir fœreyinga
til veiða við Island
Afnotaréttur
þéttbýlisbúa
af landinu
1 miljarður á móti 36
Ragnar Arnalds kvaðst ætla að
menn þyrftu ekkert að efast um
þaö að fyrirt. bæru óeðlilega lit-
inn hlut af skattbyrðinni i land-
inu. A árinu 1975 er svo áætlað i
fjárlögum að tekjuskattur á ein-
staklinga nemi 6 miljörðum, toll-
ar 12 miljörðum og söluskattur 18
miljörðum, samtals 36 miljarðar.
En tekjuskattur á félög er
áætlaður 1 miljarður. En enginn
efi væri á þvi að tekjuskattur
félaga yrði enn minni en þetta ef
engar ráðstafanir væru gerðar nú
til að breyta þeim fyrningarregl-
um sem hann hefði gert grein fyr-
ir. Hins vegar væri ekki að finna I
rikisreikningi tölur um raunveru-
legan skatt félaga, og hefði hann
þvi orðið að styðjast við áætlaðar
hagtölur.
Bókhaldsrannsókn.
„Annar þátturinn I þings-
ályktunartillögu minni — sagði
Ragnar — er að fram fari sérstök
rannsókn á bókhaldi, birgðasöfn-
un og eignaaukningu þeirra
hundraða fyrirtækja, sem höfðu
meira en 5 milj. kr. i ársveltu á
árinu 1973, en fengu þó engan
tekiuskatt samkvæmt skattskrá
ársins 1974. Ég er sannfærður um
það, að margt muni koma i ljós
við þessa rannsókn, sem mönnum
var ekki áður ljóst, og ég lit svo á
að nauðsynlegt sé að gera slika
rannsókn til þess að átta sig þvi,
hvemig fyrningareglum verður
hagað I framtiöinni.
Hvað er
verðbólgugróði?
Tillaga min felur i sér að flýti-
fymingin sé þegar i stað afnumin,
og er þá rannsóknin fyrst og
fremst auövitað við það miðuð, að
fymingarreglurnar verði að öðru
leyti teknar til athugunar og þeim
skipað á nýjan veg að endur-
skoðun lokinni, þegar þeirri rann-
sókn er lokið. Ég er sannfærður
um það, að rannsókn af þessu tagi
mundi leiða i ljós, fleira heldur en
það, hvernig fyrirtæki hafa
hagnast á afskriftareglum. Eitt
af þvi, sem vinnst við slika rann-
sókn er það, að fá mætti hugmynd
um hinn mikla verðbólgugróða,
sem Islensk fyrirtæki taka til sin i
skjóli verðbólgunnar. Óþarfi ætti
að vera að gera hér grein fyrir
þvi, hvers eðlis sá gróði er, sem
kenna má við verðbólgu.
Verðbólgugróöi verður til, þegar
eign, sem keypt er með lánafyrir-
greiðslum, hækkar hlutfallslega
miklu örar i verði en áhvilandi
lán, þegar höfð er hliðsjón af
vaxtagreiðslum og hugsaniegu
visitöluálagi eða gengishækkun-
um lána. Verðbólgugróðinn er
sem sagt ævinlega tengdur lánum
eða skuldum I beinu eða óbeinu
formi, að sá, sem á skuldlausa
eign, hagnast ekkert á þvi einu að
eign hækki I verði.
50-70% hækkun
Samkvæmt lauslegri áætlun,
er ég hef reynt að gera, um lán,
óverötryggð og án gengis-
tryggingar úr bönkum og lána-
sjóðum, virðist mér, að þau hafi
numið milli 20-22 miljörðum kr. á
árinu 1974, milli 20 og 22 þús.
miljaröar á árinu 1974. Þvi miður
hef ég ekki nákvæmar upplýsing-
ar um heildarupphæð útistand-
andi lána úr bönkum eða öðrum
innlánsstofnunum eða úr fjár-
festingarlánasjóðum eða lifeyris-
sjóðum. En af fyrirliggjandi opin-
berum upplýsingum virðist mega
ætla, að upphæðin sé einhvers
staöar milli 80 og 90 þús. milj. kr.
A árinu 1974 hækkaði verðlag á
fasteignum og lausafé um 50-70%.
Það ætti þvi ekki neinn að þurfa
að fara i grafgötur um það að
veröbólgugróði á þessu eina ári,
1974, hefur verið gifurlegar.
Ég vil að lokum segja það að
með afnámi flýtifyrningar, með
endurskoöun fyrningareglnanna,
og sérstaklega með afnámi
veröhækkunarstuöulsins, og þar
að auki með þvi að skattleggja
nokkurn hluta af þeim
verðbólgugróöa.sem nú myndast
á ári hverju oftast með tilstyrk
rikisbanka og opinberra fjár-
festingarsjóða, mætti alveg vafa-
laust draga verulega úr skatta-
álögum á alþýðu manna. Tel ég
aö sérstaklega komi til álita að
fella niður söluskatt á ýmsum
nauðsynjavöruin og draga þannig
úr veröbólgunni.
Rikisstjórnin hefur lagt fyrir
alþingi tillögu þess efnis að þingiö
staðfesti niðurstöðu viðræðna um
heimildir færeyinga til fiskveiða
við island svo sem greinir i yfir-
lýsingu sem undirrituð var 22.
febrúar sl.
Þaö voru fulltrúar islensku rik-
isstjórnarinnar og landsstjórnar-
innar i Færeyjum sem tóku þátt i
viðræöunum, og var niðurstaða
viöræðnanna sú, að skipum sem
skrásett eru i Færeyjum skuli
heimilar fiskveiðar við Island
innan 50 milna landhelginnar á
takmörkuðum svæðum og timum
mismunandi eftir þvi um hvers
konar fiskveiðar er að ræða.
Handfæraveiðar skulu heimilar
með tima- og svæðisbundnum
takmörkunum. Varðandi linu-
veiöar og togveiðar eru einnig
takmarkanir á fjölda skipa og
veiöileyfin eru bundin við tiltekin
skip.
Frá 1. júli þessa árs skal
heildarafli færeyskra skipa á Is-
landsmiðunum eigi fara fram úr
20 þúsund lestum á ári.
Meðfylgjandi uppdrættir skýra
veiöiheimildirnar nánar.
Hjúkrunar-
frœðingur
Komið er fram stjórnar-
frumvarp þar sem lagt er til
að tekið verði upp starfsheitið
hjúkrunarfræðingur yfir þann
eða þá sem lokið hefur prófi
frá hjúkrunarskóla, en þeim
sem þess óska skuli þó eftir
sem áður heimilt að nota
starfsheitin hjúkrunarkona
eða hjúkrunarmaður.
Frumvarpið mundi, ef að
lögum verður, breyta starfs-
heitum i hjúkrunarlögum
þeim sem samþykkt voru á sl.
ári til samræmis við ofan-
greint. Þannig yrði starfs-
heitið hjúkrunarfræðingur
lögverndað fyrir þá sem lokið
hafa námi i hjúkrunarfræðum,
en gömlu starfsheitin njóta þó
sömu lögverndar og áður.
Fjórir þingmenn úr jafnmörg-
um flokkum leggja fram tillögu i
frumvarpsformi þess efnis aö
laxveiði i sjó verði skilyrðislaust
bönnuð og jafnframt fái ráðherra
heimild til að takmarka eða
banna veiði göngusilungs i sjó.
Flutningsmenn frumvarpsins
eru Steingrfmur Hermannsson,
Jón Árm. Héöinsson, Helgi F.
Seljan og Oddur Ólafsson. Segja
þeir I greinargerð að frumvörp
samhljóöa þessu hafi verið flutt i
fyrra og árið þar áður en ekki
oröið útrædd.
Eins og kunnugt er, hefur það
verið yfirlýst stefna fslendinga að
leyfa ekki laxveiði i sjó. Frá þess-
ari meginstefnu hefur þó verið
vikið með undanþáguákvæði i
lögunum um lax- og silungsveiði.
Undanþáguákvæði þetta nær i
framkvæmd aðeins til örfárra að-
ila I landinu.
114. gr. laganna um lax- og sil-
ungsveiði er þessi heimild orðuð
þannig:
„Nú hefur laxveiði i sjó verið
metin sérstaklega til dýrleika i
Sex þingmenn allra flokka
flytja tillögu: „Alþingi áiyktar að
skora á rikisstjórnina að hefja
fasteignamati þvl, er öðlaðist
gildi árið 1932, eða tillit hefur ver-
ið tekiö til hennar við ákvörðun
fasteignaverðs i þvi mati, og er
þá sú veiði leyfileg”.
Nú er lagt til að fella niður
þessa heimildarreglu.
Þýöingarmikið er, að stefna is-
lendinga sé skýr og án undan-
tekninga i þessum efnum. Mikill
ágreiningur er i ýmsum löndum
um veiði á laxi i sjó, og um reglur
varðandi slikar veiðar er oft tek-
ist á æðihart á erlendum vett-
vangi, m.a. i fiskveiðistofnunum,
sem islendingar taka þátt i.
Það veikir aðstöðu okkar is-
lendinga varðandi þessi mál að
hafa f okkar lögum undanþáguá-
kvæði, sem heimila laxveiðar i
sjó. Undanþáguregla þessi veikir
einnig mjög aðstöðu til að halda
uppi ströngu eftirliti með neta-
veiðum I sjó i nánd við veiðiár, en
eins og kunnugt er, eru deilur um
slikar veiðar algengar.
Undanþága til laxveiða i sjó
hefur staðið svo lengi, að ekki
sýnist nein ástæða til að halda
henni lengur.
undirbúning að þvi, að skipulögð
verði sumarbústaðalönd á rikis-
jörðum til afnota fyrir þéttbýlis-
búa, og láta semja frumvarp að
lögum um þetta efni, sem lagt
verði fyrir næsta Alþingi."
Það eru þeir Eyjólfur Konráð
Jónsson, Pálmi Jónsson, Bragi
Sigurjónsson, Magnús Kjartans-
son, Magnús Torfi Ólafsson og
Stefán Valgeirsson sem flytja til-
löguna. Igreinargerð segja þeir:
Allmiklar umræður fara nú
fram um eignar- og afnotarétt af
landi, um landvernd og landnytj-
ar. Kaupstaðabúar gera þá kröfu
að fá óhindraðan aðgang og afnot
af ónytjuðu landi, en jafnframt
þrá þeir flestir að hafa til einka-
afnota landsspildu, þar sem þeir
geta byggt sér sumarhús og dval-
ist i fristundum. Hefur þetta leitt
til þess, að verðlag á eftirsóttum
sumarbústaðalöndum hefur
hækkað verulega. Rikið á nú um
900 jarðir, sem margar hverjar
eru litt eða ekki nytjaðar. Viða á
þessu landi eru hin ákjósanleg-
ustu skilyrði til útivistar og sum-
ardvalar, sem eðlilegt er að
heimila alþýðu að hagnýta.
Deilur þær, sem sprottiö hafa
um afnotarétt lands, ættu að leiða
til þess, að leitast yrði við að
sætta sjónarmiðin, og að þvi mið-
ar tillaga þessi. Hún gerir ráð
fyrir, að landsmönnum öllum
verði gert kleift að hafa til einka-
afnota nokkurt land, sem jafn-
framt kynnu að fylgja þær kvaðir,
að leigutaki tæki þátt i ræktun
nærliggjandi landssvæða, gróður-
setningu trjáplantna, fiskrækt
o.s.frv. Að sjálfsögðu yrði samráö
haft við Náttúruverndarráð. Þá
er og ljóst, að þessar aðgerðir
mundu stemma stigu við óhóf-
legri hækkun verðlags sumarbú-
staðalanda, sem ýmsum vex þeg-
ar i augum. Hér er þvi um að
Framhald á 15. siðu.
Bann við
laxveiði
í sjónum