Þjóðviljinn - 02.08.1975, Side 3
Laugardagur 2. ágúst 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Heilmikið hjá Ferða-
félaginu yfir helgina
Ferðafélag islands, (Jtivist og
önnur samtök um ferðaiög hafa i
mörgu að snúast yfir verslunar-
mannahelgina. Hjá Ferðaféiagi
islands fengum við þær upplýs-
ingar að tvær ferðir i Þörsmörk
yrðu farnar með samtals um 400
manns. Þá verður farið i Land-
mannalaugar og vfðar og standa
allar ferðirnar til mánudags-
kvölds.
Á vegum Ferðafélagsins verður
farið i Kerlingafjöll og þaðan
áfram á Hveravelli. Þeir sem
vilja geta þá orðið eftir I Kerl-
ingafjöllum og komið siðan aftur
inn i ferðina i bakaleiðinni. Lagt
verður af stað i þá ferð fyrir há-
degi i dag. 1 gærkvöldi var lagt af
stað i Skaftafell og tjaldað þar.
Verða farnar gönguferðir um
svæðið þar i kring.
Að sögn Þórunnar Lárusdóttur
verða um 500-600 manns á vegum
Ferðafélags Islands um helgina.
Ferðirnar eru þó ekki óvenju-
margar heldur er ífólkið fleira að
þessu sinni en oft áður og hefur að
sögn Þórunnar verið fleira fólk i
ferðunum I sumar heldur en
undanfarin ár.
— Hvað kostar svo að fara i
ferðir með Fí?
— Það eru 4.400 krónur fyrir fé-
lagsmenn en 4.600 fyrir utanfé-
lagsmenn. Sama verð er á öllum
ferðum en þó er 100 króna afslátt-
ur á þær ferðir sem hefjast á
laugardögum i stað föstudags-
kvölda.
Og að lokum Þórunn?
— Ekkert annað en að fólk búi
sig vel, hafi hlýjan fatnað og sé
undirbúið fyrir öll veður. Menn
þurfa að geta notið ferðalaga þótt
regn komi úr lofti. —gsp
,,Það er ekki óliklegt að hingað
á mótið komi milli 5-10 þúsund
manns” sagði Hendrik Tausen i
spjalli um útimótið sem haldið
verður i Vatnsdal um helgina.
„Þetta er fjölskyldumót með fjöl-
breyttri dagskrá alla mótsdagana
þrjá og ef við miðum við Þjóð-
Fjölskylduhátíð
í Vatnsdalnum
hátlðina hér i fyrra, en þá komu
um 12.000 manns, er ekki óliklegt
að fjöldinn nái allt að tiu þús-
undum.
— Hverjir standa að mótinu?
— Það er Þjóðhátiðarnefndin
frá þvi i fyrra ásamt öllum
héraðssamböndum og iþrótta-
bandalögum á Vestfjörðum. Við
notum þarna öll þau mannvirki
sem voru i fyrra. Danspallar,
veitingaaðstaða, tjaldbúðapláss,
snyrtiaðstaða og fleira.
— Nokkuð athugað með
veðrið?
— Nei, ekki gaumgæfilega en
ef það verður gott yfir helgina
eins og margt virðist benda til er
ég sannfærður um að það verður
mikil umferð hér i Vatnsdalinn.
—gsp
„Renna alveg
blint í sjóinn99
— segja ungtemplarar sem halda
Galtalœkjarmótið
„Við rennum alveg blint I sjó-
inn með þetta mót upp á aðsókn-
ina að gera” sagði Sveinn Skúla-
son hjá islenskum ungtemplurum
þegar við spurðum hann um
Galtalækjarmótið sem þeir halda
nú enn einu sinni. „Hins vegar
erum við sannfærðir um að mótið
Fræðslustjóra-
embætti:
Sjö sóttu um
Suðurland
heppnast vel. Við höfum aldrei
kynnst áfengisvandamálum
verulega á okkar samkomum og
þá e.t.v. fyrst og fremst vegna
þess að þetta er fyrst og fremst
fjölskylduhátið og þær eru alltaf
rólegri en hinar”.
— Engin hugmynd um fjölda?
— Nei, þó má kannski taka mið
af siðasta móti, sem haldið var
1973. Þá komu um 8000 manns og
ég á ekki von á að það verði færra
nú. Þá voru einnig mót á Húsa-
felli og á Laugarvatni en hvorugt
þeirra verður haldið að þessu
sinni.
— Þið hafið dagskrá alla móts-
dagana?
Já, það er þétt dagskrá
skemmtiatriða allan timann. Við
höfum einnig lagt áherslu á að
halda verðinu niðri, þetta er eins
og ég sagði fjölskylduhátið og við
seljum inn á 1.500 krónur fyrir
hvern. Það þykir varla mikið
fyrir þriggja daga vist á svæðinu
og ókeypis á allar skemmtanir.
Þeir sem eru undir tólf ára aldri
fá siðan ókeypis.
— Eigið þið ekki varanleg
mannvirki þarna?
— Jú, skemmtipallur, salernis-
aðstaða og annað þess háttar er
okkar eign og stendur þarna árið
um kring.
—gsp
Tveir um Austurland
1 gær rann út umsóknarfrestur
um embætti fræðslustjóra á
Austurlandi og á Suðurlandi.
Tveir sóttu um Austurland, Þeir
Kristján Ingólfsson, námsstjóri,
og Guðmundur Magnússon,
skólastjóri i Reykjavik.
Sjö sóttu um embætti fræðslu-
stjóra á Suðurlandi: dr. Bragi
Jósepsson, Friðrik Guðni Þór-
leifsson, kennari á Hvolsvelli,
Hjörtur Þórarinsson, skólastjóri
á Kleppjárnsreykjum, Jón R.
Hjálmarsson, skólastj'óri Skóg-
um, séra Sigurður K.G. Sigurðs-
son, stjórnarráðsfulltrúi,
Reykjavik, Valgarð Runólfsson,
skólastjóri, Hveragerði, og Þor-
kell Steinar Ellertsson, fyrrver-
andi skólastjóri á Eiðum.
2. til 4. ágúst verður vegaþjón-
usta F.I.B. eins og hér segir:
Vegaþjónustubifreið F.I.B. 1 Ot
frá Selfossi og að Hellu.
Vegaþjónustubifreið F.l.B. 2
Húnavatnssýsla.
Vegaþjónustubifreið F.t.B. 4
Þingvellir Laugarvatn.
Vegaþjónustubifreið F.l.B. 5
Borgarfjörður.
Vegaþjónustubifreið F.I.B. 6(Jt
frá Dalvik fer i Fljót og nágrenni.
Vegaþjónustubifreið F.I.B. 7 Út
frá Hornafirði.
Vegaþjónustubifreið F.l.B. 8
Hvalfjörður.
Vegaþjónustubifreið F.l.B. 9 út
frá Akureyri.
Vegaþjónustubifreið F.I.B. 13
Út frá Hvolsvelli.
Ef þörf krefur verður þjónustan
aukin t.d. á sunnudag mun Gufu-
nes radió þá geta gefið nánari
upplýsingar. Aðstoðarbeiðnum er
hægt að koma á framfæri i gegn
um Gufunes radió s. 22384, Brú
radió s. 95-1112, Akureyrar radió
s. 96-11004. Ennfremur er hægt að
koma aðstoðarbeiðnum á fram-
færi i gegn um talstöðvarbifreið-
ar á vegum uti. Þeim, sem óska
aðstoðar skal bent á að gefa upp
númer bifreiðar og staðsetningu,
auk þess hvort menn eru félagar.
Húsnœðismálalög-
gjöf endurskoðuð
Gunnar Thoroddsen félags-
málaráðherra skipaði i gær nefnd
til að endurskoða gildandi hús-
næðismálalöggjöf og þá sérstak-
lega lög um Húsnæðismálastofn-
un rikisins nr. 30 frá 12. mai 1970
með siðari viðaukum og breyting-
um.
Nefnina skipa:
Ólafur Jensson, framkvæmda-
stjóri, sem jafnframt hefur verið
skipaður formaður nefndarinnar,
Benedikt Davfðsson, húsasmiður,
Gunnar S. Björnsson, húsasmiða-
meistari, Gunnar Helgason, for-
stöðumaður, óskar Hallgrims-
son, bankastjóri, Svavar Helga-
son, kennari, og Þráinn Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri.
Íþróttamótin á Austurlandi
Endurvakin
eftir 30 ár
í meira en þrjátiu ár hafa — Er þá engin skemmtidag-
iþróttamötin sem haldin voru á skrá?
Egilsstöðum og næstu byggða- — Jú, á laugardagskvöldi
lögum legið niðri. Nú á hins bjóðum við upp á fjölbreytt
vegar að endurvekja þau. skemmtiatriði og státum okkur
af þvi að þau eru öll „heima-
„Við höfum um tuttugu ung- tilbúin”. Við flytjum enga reyk-
mennafélög sem standa að víkinga hingað til þess að segja
þessu móti” sagði Hermann brandara. A sunnudeginum
Nielsen i samtali við Þjóð- verða „félagsmálatröllin” látin
viljann. „Að þessu sinni verður spreyta sig i einu og öðru. Þá
það haldið á Eiðum, verður einnig keppt i tunnu-
— Þetta er fyrst og fremst kappróðrinum og öðru:,
iþróttamót ekki rétt? leikjum sem farið verður i.
— Jú við köllum þetta „Aust’ Af dansleikjum verður ekki
urlands meistaramót” ^ Einmg mikið hjá okkur. Við höfum að
verður keppt i knattspyrnu, visu diskótek fyrir börn og ung-
handbolta, sundi og fl» ' linga i skólanum á Eiðum,
FERÐAMENN
Allar venjulegar
ferðavörur og veitingar.
Bensín og olíuafgreiðsla.
Verið velkomin.
Hvítárskáli
viö Hvítárbrú
Blönduská Blönduósi li
Heitir réttir — Heitar pylsur -Smurt brauð
f W Bensin og olíur
Það er sjálfsagt að koma við í
OLÍUSTÖÐINNI
Þegar þér eigið leið um Hvalfjörð
er Olíustöðin áningarstaður.
Við bjóðum:
SMARÉTTI
SMURT BRAUÐ
KAFFI
TE
SÚKKULAÐI
ÖL
GOSDRYKKI
GOTT VIÐMÓT
BENSiN OG OLIU
OPIÐ KL. 8-23,30 ALLA DAGA.
OLÍUSTÖÐIN
HVALFIRÐI