Þjóðviljinn - 02.08.1975, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. ágúst 1975
Laugardagur 2. ágúst 1975 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 7
Leiðangurinn hjá Lolla. Karl Hjelm lýsir fjallahringnum og
örnefnum, en Stefán Þorleifsson gætir þess (t.h.) að enginn fari
sér að voða. Nokkrar frumlegar skýringar komu fram um
mcrkingu örnefnisins Lolli og ekki allar prenthæfar.
NORÐFIRÐINGAR
í GÖNGUFERÐ
A eyðibýlinu Hellisfjarðarseli. Bjarni Þörðarson að flytja fróðleiksþátt á meðan aðrir grynnka á
nestinu.
A leið niður I Hellisfjörð. Hér iðkar hver með sinum hætti „samræmt
göngulag iornt”.
Þótt I mörg horn sé að lita við
hefðbundna atvinnu og uppbygg-
ingu i Neskaupstað á þessu
sumri, hafa menn fundið stund og
stund til aö njóta veðurblíðu á
siðustu vikum, sem hafa veriö
sólrikar i suðrænum blæ eins og
oft gerist á Austurlandi. Við
upphaf þessa sólmánaðar, nánar
tiltekið sunnudaginn 29. júni, var
efnt til gönguferðar yfir i Hellis-
f jörð, sem er næsti fjörður og nú I
eyði. Alþýðubandalagið i Nes-
kaupstað átti frumkvæðið að
þessari „landkönnun”, en
leiöangursmenn, sem urðu um 50
talsins, voru engan veginn i takt I
pólitiskum þanka; ungir og
gamlir með ólikar skoðanir og
viöhorf blönduðu geði i góðviörinu
þennan sunnudag og skildu
amstur eftir heima.
Bæjarstjórinn og kaupstaðurinn. Logi Kristjánsson, bæjarstjóri, stendur hér á mörkum eyöibýlisins
Borga og Grænaness, en handan fjarðar er Neskaupstaður.
Inn með Búlandi sunnar Norðfjarðar. Bagall rls hæst I f jallsegginni inn af fjarðarbotni.
Horft inn Hellisfjörð með Lakahnaus fyrir botni og Glámsaugu við Nóntind. Það er fariö að togna úr
lestinni á leið út á Götuhjalla.
Jóhann Eyjólfsson, 78 ára, var elsti göngugarpurinn og kannaðist vel
við þessar slóöir, ólst upp I Sandvik en átti heima i Hellisfjarðarseli á
dögum fyrra strfðsins.
Ferðin hófst þó i eins konar bil-
ferju við Grænanes, þar sem
öflugur vörubill (i eigu annars
bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins) ferjaði hópinn yfir Norð-
fjarðará i tveimur ferðum á palli
en mikill vöxtur var i ánni sem
hafði verið sundriðin þarna að
sögn kvöldið áður. Frá Grænanesi
var gengið þvert á brattann upp á
Hellisfjarðarskarð i rösklega 500
metra hæð yfir sjó og þar kastað
mæðinni. Gr skarðinu var gengið
inn og niður i Hellisfjörð að
Hellisfjarðarseli, sem var innsta
býli af 4 eða 5, sem um skeið
voru i firðinum. 1 rústunum á Seli
flutti Bjarni Þórðarson leið-
angrinum fróðleiksþátt um sögu
byggðar i firðinum og rakti ættir
manna þaðan út og suður, en
ýmsir norðfirðingar telja sig kyn-
borna hellisfirðinga. Siðan voru
gengnar með bæjum gamlar
slóðir út að Sveinsstöðum, og þar
m.a. skoðaðar leifar af norskri
hvalstöð, sem átti hér sina eyri i
byrjun aldarinnar, eins og viða á
Austfjörðum. Við Sveinsstaði
skildu leiðir, þvi að um þriðj-
ungur göngumanna sté þar um
borð i fleytu Halldórs
Þorsteinssonar, kannski orðnir
ögn þreyttir i kálfa og ökklum eöa
hræddir um að missa af sjón-
varpsspjalli við Sverri Kristj-
ánsson um kvöldið. Meirihlutinn
gekk hins vegar Götuhjalla út
fyrir Hellisfjarðarmúla og til
baka að Grænanesi. Fæst á þeirri
leið hið ágætasta útsýni til
byggðar og fjalla við Norðfjörð,
og góð æfing i að feta um bratta
skriðu á kafla.
Þessi ferðasaga verður ekki
rakin hér nánar, en nokkrar
myndir segja sitthvað af þvi sem
á vantar.
í lokin má geta þess, að Alþýðu-
bandalagið i Neskaupstað efnir til
annarrar ferðar 10. ágúst næst-
komandi i það sinn i rútubil upp á
gamlan máta og verður ekið til
Héraðs og haldið um „hring-
veginn skemmri” umhverfis
Löginn. Ef til vill slást alþýðu-
bandalagsmenn i næstu fjörðum
með i hópinn, en þátttaka er tak-
mörkuð við stuðningsmenn og
skyldulið þeirra, þar eð farkostur
er takmarkaður. Þetta er enn i
deiglu, en verður auglýst fljótlega
hér i Þjóðviljanum og i Austur-
landi 1. ágúst.
Norðfjaröarsveit og inn af Seldalur (til vinstri) og Fannardalur (t.h.).en Hólsfjall ris i 1000 metra hæð á
milli fyrir miðri mynd.