Þjóðviljinn - 13.11.1975, Side 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 13. nóvember 1975.
Islenskir námsmenn i Gautaborg segja:
Fordæmum skerð-
ingu námskjaranna
„Fundur islenskra námsmanna
i Gautaborg lýsir samhljóða yfir:
Við fordæmum alla skerðingu á
kjörum námsmanna. Kjör náms-
manna eru slik i dag, að minnkun
þeirra þýðir að námsmenn svelti.
Niðurskurður á lánum leiðir af
sér að stúdentar efnalitilla for-
eldra verða að hætta námi sam-
stundis. Stefnir rikisstjórnin
greinilega að þvi að efnamiklir
stúdentar hafi einkarétt á öllu
framhnlösnámi. Einnig mótmæl-
um við þvi harölega, að lægst-
launuðustu þegnarþjóðfélagsins
verkamenn og námsmenn séu
látnir bera kreppu auðvaldsins,
sem þeir hafa ekki átt þátt i að
skapa. Við krefjumst þess að stað
ið verði við gömul loforð og náms-
ián greidd að fullu.”
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið i Kópavogi
heldur kvöldvöku laugardagskvöldið 15. nóvember kl. 8.30. Fulltrúar
flokksráðsfundar svo og annað Alþýðubandalagsfólk velkomið.
Skemmtidagsskrá. — Stjórnin
Ungt fólk og Alþýðubandalagið
Ungir sósialistar i Kópavogi boða til fundar um ungt fólk og Alþýðu-
bandalagið i dag, fimmtudaginn 13. nóvember, i Félagsheimili
Kópavogs, — ath. breyttan fundarstað — og hefst hann klukkan 20.30.
Sjónarmið Alþýðubandalagsfélaga viða að af landinu verða kynnt og
eru málshefjendur eftirtaldir:
Einar Karl Haraldsson frá Æskulýðsnefnd
Guðrún Bjarnadóttir Hafnarfirði
Jóhann Geirdal Keflavik
Ólafur R. Einarsson Kópavogi
Rúnar Armann Arthúrsson Reykjavik
Eyjólfur Kjalar Emilsson Kópavogi
Væntanlega einnig frá Akureyri og Neskaupstað.
Alþýðubandalagsmenn, og þá ekki sist ungt fólk, er velkomið á fund-
Alþýðubandaiagið i Kópavogi.
Lóðaúthlutun
— Hafnarfjörður
Hafnarfjarðarbær mun á næstunni úthluta
lóðum fyrir ibúðarhús i Norðurbæ.
A. Einbýlishús.
B. Raðhús, einnar hæðar.
C. Tvibýlishús.
D. Fjölbýlishús (stigahús).
Nánari upplýsingar um lóðir til ráðstöfun-
ar og úthlutunarskilmála veitir skrifstofa
bæjarverkfræðings, Strandgötu 6.
r-T
i
#
RAFAFL
Vinnufélag
rafiðnaðar-
manna
Barmahlfð 4
HUSEIGENDUR,
HÚSBYGGJENDUR
• önnumst allar nýlagnir og
viðgerðir á gömlum raflögn-
,um.
• Setjum upp dyrasima og lág-
spennukerfi.
• Ráðgjafa og teikniþjónusta.
• Sérstakur simatimi milli kl.
1-3 daglega, simi 28022.
tJtför mannsins mins, föður okkar og sonar mins
Sigurðar Hjartar Stefánssonar
Holtagerði 54
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. nóvember kl.
1.30.
Sigriður Kristinsdóttir, Sólveig Böðvarsdóttir
Sigfrið og Erna Kristin
Útför
Halldórs Ólafssonar,
ritstjóra og fyrrum bókavarðar á isafirði
fer fram frá ísafjarðarkirkju i dag, fimmtudaginn 13.
nóv., kl. 2 eftir hádegi.
f.h. aðstandenda
Sigurður Kristjánsson
Gayle Smith, cellóleikari, frá
Bandarikjunum.
Hideko Udagawa, fiðluleikari, frá
Japan.
Japanskur
og banda-
rískur ein-
leikari
á 4. reglulegu
tónleikum
Sinfóníunnar
4. reglulegu tónleikar Sinfóniu-
hljómsveitar íslands verða
haldnir i kvöld fimmtud. 13.
nóvember kl. 20.30 i Háskólabiói.
Stjórnandi er KARSTEN
ANDERSEN aðalhljómsveitar-
stjóri, en einleikarar eru
HIDEKO UDAGAWA fiðluleikari
og GAYLE SMITH cellóleikari.
Ennfremur koma fram nokkrar
stúlkur úr Kór Menntaskólans við
Hamrahlið undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur.
A efnisskránni eru eftirtalin
verk:
Claude Debussy: — Þrjár
noktúrnir: Nuages, Fetes,
Sirénes. Arni Björnsson : — Upp
til fjalla, hljómsveitarsvita.
Johannes Brahms: Konsert fyrir
fiðlu og celló i a-moll op.102.
Slysin
Framhald af 1
heilt það sem eftir er ævinnar.
Læknavisindunum hefur fleygt
svo fram á siðustu 10—15 árum,
að hægt er að halda lifi i þessu
fólki, en að öðru leyti verður þvi
ekki bjargað. Fyrir svona 15 ár-
um hefði engin leið verið til að
bjarga lifi þess.
— Fjölmiðlar tala um dauða-
slysin, og menn hrökkva við þeg-
ar sagt er frá þeim, en ef menn
kynntu sér afleiðingar margra
slysa sem ekki leiða til dauða, þá
hygg ég að menn myndu ekki
hrökkva minna við.
— Hver eru algengustu meiðsl
fólks i umferðarslysum?
— Fyrir utan skurði og skrám-
ur eru það auðvitað beinbrotin.
Það er mikið um fót- eða hand-
leggsbrot, svo og höfuðhöggin,
sem ég nefndi áðan, og þau eru
alvarlegust. Ég hef tekið eftir þvi
að á siðustu árum er fólk sem
lendir i umferðarslysum miklu
verr farið, meiðslin meiri og al-
varlegri en fyrir 20 árum þegar
ég byrjaði sem læknir á slysa-
varðstofunni, sem bendir til þess
að árekstrarnir séu mun harðari
nú til dags, sem er auðvitað af-
leiðing aukinshraða I umferðinni.
Fulltrúar Búnaðarsambands
Suður-Þingeyjarsýslu:
Fóðuriðjan í
Saltvík brýn
nauðsyn
Átelur harðlega drátt á fjárveitingu
A föstudaginn i sl. viku komu
saman framámenn i Suður-Þing-
eyjarsýslu og átöldu harðlega
drátt þann sem orðiðhefur á fjár-
veitingum til væntanlegra fóður-
iðjuframkvæmda I Saltvik. Fund-
úrinn var haldinn að tilhlutan
stjórnar Búnaðarsambands suð-
ur-þingeyinga. A fundinn voru
boðaðir allir alþingismenn Norð-
urlandskjördæmis eystra, og
mættu þeir allir nema þingmenn
Sjálfstæðisflokksins. Auk þess
voru boðaðir: Landnámsstjóri,
framkvæmdastjóri Grænfóðurs-
verksmiðju rikisins, stjórn og
framkvæmdastjöri K.Þ., stjórn
og ráðunautar Búnaðarsam-
bandsins, bæjarstjóri, bæjar-
stjórnog hitaveitunefnd Húsavlk-
ur, formaður og framkvæmda-
stjór' Garðræktarfélags Reyk-
hveninga og oddviti Reykja-
hrepps. Allir þingmenn voru
mættir nema þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins.
A fundinum voru flutt sjö fram-
söguerindi um málefni fundarins.
A eftir framsöguerindum hóf-
ust fjörugar umræður og voru all-
ir á einu máii um þjóðhagslegt
gildi verksmiðjunnar.
Að lokum var eftirfarandi
fundarályktun samþykkt sam-
hljóða:
„Fulltrúafundur Búnaðarsam-
bands suður-þingeyinga, Kaupfé-
lags Þingeyinga, Húsavikurkaup-
staðar og Landnáms rikisins,
haldinn á Hótel Húsavik, 7/11,
1975, með þingmönnum norður-
landskjördæmis eystra, sam~
þykkir eftirfarandi:
Fundurinn telur að óeðlilegur
dráttur hafi orðið á nauðsynleg-
um fjárveitirigum til fram-
kvæmda við áætlaðar fóðuriðju-
framkvæmdir i Saltvik i suð-
ur-Þingeyjarsýslu
Fundurinn litur svo á, að hér sé
um að ræða, þjóðhagslega hag-
kvæma framkvæmd, sem nýtt
getur innlendan orkugjafa til
gjaldeyrissparnaðar fyrir þjóðar-
búið.
Reynslan hefur þegar sýnt að
þessifóðuriðnaður er fullkomlega
samkeppnisfær við annan iðnað i
landinu og skapar auk þess mikil-
væga tryggingu i fóðuröflun fyrir
landbúnaðinn, ekki sist fyrir
harðbýlustu héruð landsins.
Fundurinn skorar þvi á þing-
menn kjördæmisins að beita sér
fyrir þvi af alefli, að tekin verði
— Ég tel að þessi mikli hraöi i
umferðinni, já, og þessi mikli
hraði i öllu mannllfinu og sú
streita sem orsakast af þvi, eigi
hvað stærstan þátt i þessum tiðu
umferðarslysum. Eins er lyfjaát
fólks orðið mjög algengt, og það
er nær ómöguiegt að stemma
stigu við þvi, að þetta fólk aki btl,
nú, eða þá sé hálf-vankað gang-
andi I umferðinni og verði fyrir
bilum. Svo er auðvitað ekki hægt
að lita framhjá aukinni umferð,
hún á ekki litinn þátt i aukinni
slysatiðni, Og þá vaknar sú
spurning, — er þörf á allri þessari
bilaumferð? Á ekki að hefja
áróður fyrir þvi að draga úr bil-
ismanum, ætli vöxtur hans sé
ekki frumorsökin, ég gæti trúað
þvi,sagðíHaukuraðlokum. S.dór
Sérsamband
Framhald af bls. 16
ekki til þess að selja fisk á þeim
mörkuðum, sem norðmenn seldu
sinn fisk á. Betur borgaði sig nú
orðið að liggja með fiskinn, en
selja hann, þvi fáanlegt verð væri
undir kostnaðarverði. Sérstak-
lega á þetta við um ufsa.
Framkvæmdastóri hinna nýju
samtaka hefur verið ráðinn
Guðbergur Ingólfsson.
upp i fjárlög 1976, 60 miljón króna
fjárveiting, eða jafnvirði þeirrar
fjárhæðar tryggtá annan hátt, til
fyrirhugaðrar fóðuriðju við Salt-
vik, og stefnt verð að þvi að verk-
smiðjan geti tekið til starfa sum-
arið 1977.”
Undir samþykktina rituðu 23
bændur og aðrir framámenn i
sýslunni.
W
Alfsnes á
nauð-
ungar-
uppboð
Eigandinn
Sigurbjörn Eiríksson
skuldum vafinn
Álfsnes á Kjalarnesi verður selt
á nauðungaruppboöi i þessum
mánuði. Eru lýstar kröfur I jörð-
ina á annan tug miljóna.
Eigandi Alfsnessins er Sigur-
björn Eiriksson, veitingamaður,
sem ýmisst hefur verið kenndur
við Glaumbæ eða Klúbbinn.
Gjaldheimtan, innheimta rikis-
sjóðs, Kjalarneshreppur og Ut-
vegsbankinn eru meðal þeirra,
sem krafist hafa uppboðsins.
Um það hefur verið skrifað i
blöð og rætt i sjónvarpi og út-
varpi, að eigandi Alfsnessins nyti
sérlegrar verndar dómsmálaráð-
herra og Framsóknarflokks hans.
Hvað sem um það er, hefur sú
vernd ekki dugað Sigurbirni i
þetta sinn, og verður þessi eina
eign, sem á hans nafn er skráö,
seld á nauðungaruppboði i
þessum mánuði, nái hann ekki að
öngla saman fyrir skuldunum.
úþ
IGNIS
frystikistur
SÍmi:19294
RflHBBB
sími: 29660