Þjóðviljinn - 24.12.1975, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 24.12.1975, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 24. desember 1975. MoUVlLJINN — StÐA II Gamall fangi: r JOLAHALD AÐ LITLA-HRAUNI 1 Klukkan er að verða átta að morgni. Úti er fimmtán stiga frost og norðan gola. Þetta er byrjun hins langa dags i lifi fang- ans. Kviðinn sest, að, og fyrir hon- um er engin vörn. Ég teygi mig eftir tóbaks- pakkanum og vef mér sigarettu. Ég þarf ekki ljós til þess; það kemur af áralangri þjálfun. Það er enn myrkur. Ég teyga djúpt að mér reykinn, til þess að róa taugarnar. Ég veit, eftir ritúalinu, hverju von er á. Klefinn sem ég dvel i er eins og allir hinir: Steypt flet með plast- dýnu, tvö teppi, koddi; engin sængurföt. Borð með skúffu við höfðalagið; á reykviskri dönsku kölluðust þessir kassar servant- ar. övarin ljósapera i miðju lofti. Glugginn, með stálgrindum, snýr að hafi. Ég er búinn að reykja nóg. Það sem eftir er af sigarettunni set ég 1 tóbakspakkann. Allt i einu kviknar á perunni. Ég loka augunum. Ég get aldrei vanist þessari skæru birtu. Skyldu þeir hafa fengið hug- myndina frá Hitler? Ég man ekki betur en auðvaldið á Islandi hafi dýrkað hann á sinum tima... 2 Siðan upphefst djöfullegasti hávaði sem engu er hægt að likja við. Það skellur stál við stál. Fyrst eru hengilásarnir opnaðir, slagbrandarnir dregnir frá, hengilásunum smellt aftur, stál- hurðunum svipt upp, og þær skella i steinveggina. Fangaverðirnir eru að flýta sér. Þeireru að enda sina vakt og aðr- irað taka við. Þessi árás á tauga- kerfi fangans stendur yfir i allt að fimm minútur. Fangarnir klæða sig i þær flikur sem þeir eiga; þeir hafa ekki úr miklu að velja. Samkvæmt reglu- gerð verðum við að kaupa allar nauðsynjar fyrir þá þóknun sem við fáum fyrir vinnuna; sú þókn- un samsvarar klukkutima-kaupi verkamanns sem við fáum eftir daginn. Hálftima siðar er flautað til morgunverðar. Fangarnir raða sér upp, hver með sina plastkrús. Morgunverðurinn er samkvæmt reglugerð hafragrautur, brauðsamloka með örþunnri ost- sneið, mjólk í krúsina. Hver fangi fær með sér kaffibrúsa ásamt brauðsamloku og tveim kexkökum... 3 Fimm minútum fyrir niu er hringt gamalli skipsbjöllu, sem gefur til kynna að vinnutimi hefj- ist. Stálhurðin opnast, þessi stál- hurð sem skilur að alla þá sem eru fyrir utan grindurnar og hina sem eru fyrir innan. 1 huga minn leitar spurning, þegar ég lit þessa unglinga. Sá yngsti er sextán ára. — Það skyldi þó ekki vera eitt- hvað bogið við kerfið? Það skyldi þó ekki vera, að einhverjir séu öfugumegin við grindurnar? Klukkan er níu. Tveir vörubilar með gripagrindum standa á hlað- inu. Fangarnir klifra upp á pall- ana og halda sér i gripagrindurnar. Leiðin liggur niður i fjöru. Við erum látnir moka þara á bilana. Þeir keyra hlassið upp fyrir flæðarmál þar sem þvi er sturtað i hrúgur og látið biða vors. Þá er úldnum þaranum stráð yfir kartöflu- garðana. Okkur er kalt. Við keppumst viö að moka til að halda á okkur hita. t fjörunni er tjald, sem borðað er i. Klukkan hálfellefu er kaffitimi. Einn fangavörðurinn kveikir á primus. Siðan er sest, drukkið, og hvilst. Eftir kortér byrjar vinnan á ný. Klukkan tólf er komið með matinn. Við fáum saltfisk og kartöflur samkvæmt reglugerð, tvö stykki fiskur, tvær storar kartöflur og makarlnklipa; vellingur. Hálftima matur og hvild. Klukkan fjögur segir einn fangavörðurinn: „Strákar, nú tökum við saman verkfærin, skol- um bilpallana!” Það er gert með fötum og úr flæðarmálinu. Siðan eru gripagrindurnar settar upp og haldið heim. Við erum ánægðir. Framundan eru jól og hvild. Hjá okkur verður sjálfsagt brugðið út af ritúalinu. Kannski verður messað... I ein- hverju verður minnst jóladags- ins, að minnsta kosti fæðingu barns. Hann var ekki krossfestur fyrr en seinna... 4 Við þvoum af okkur skitinn. I þessu islenska fangelsi fyrirfinnst ekki bað. Aftur á móti er vaska- hús uppi á háalofti, undir súð, þar sem einn fanginn hefur það starf að þvo af samföngum sinum. Ein- staka sinnum er hægt að baða sig upp úr stærsta blikkbalanum. Menn raka sig og fara i skástu fötin sin, þeir sem eitthvað eiga til að fara i. Nú er flautað i mat. Klukkan er sex. Við fáum nóg að borða: Hangi- kjöt, og hið hefðbundna íslenska jólabrauð með rúsinum. Borðsalurinn er þannig inn- réttaður, að meðfram veggjum beggja megin er slegið upp tré- fjölum nægilega breiðum til að matast við. Sætin eru langir tré- bekkir. Fangarnir snúa baki hver við öðrum. Hjá hverjum diski. sem er fylltur með indælis hangi- kjöti, er sigarettupakki, gjöf frá Hinu Opinbera. Við erum saddir, og okkur er hlýtt. Eftir máltiðina fara sumir að spila, aðrir fara inn i sin búr og vilja vera einir. Þeir hafa fengið bréf frá ættingjum og vinum, en samkvæmt reglugerð eru þau öll opnuð og lesin af fangavörðum áður en fanginn fær þau i sinar hendur. Við ræðum um það, að þeir i til- efni fæðingar hins krossfesta frelsara þeirra muni hafa lengur opið en venjulega. Og að þeir hafi ljós alla nóttina efast enginn um, enda gamall islenskur siður. Klukkuna vantar fimm minútur i niu. Þá glymur bjailan. Fyrir hverju glymur bjallan? Skyldi eiga að lesa yfir okkur? Liklega er presturinn kominn. Við höldum áfram að spila, gefum skit i prestinn. Þá er öskrað: „Allir i sina klefa!” Siðan upphefst ritúalinn: Hurðaskellir. Slagbrandarnir smella. Hengilásinn skellur aftur. Fangaverðir vilja losna og komast heim til að halda jól i faðmi fjölskyldunnar. Þeirra vakt er á enda. Ég sé, að þeir taka þetta nærri sér. Þeir eru daprir og reka ekki á eftir eins og venju- lega. Þeir bjóða gleðileg jól, áður en þeir skella stálhurðinni i lás. Ég sest á fletið Æskuminningarn- ar leita á huga minn, um jól bernsku minnar... 5 Ég minnist móður minnar og föður mins, sem sjaldan hafði vinnu, en við systkinin vorum hamingjusöm þrátt fyrir allan skort. Þá rikti atvinnuleysi. Ég held að atvinnuleysi sé stærsti glæpur auðvaldsins. Það á að varða við lög. 1 þessum hugleiðingum minum heyri ég grát. Ég átta mig ekki strax. En allt i einu minnist ég þess, að þeir komu með barn i gær. Hann er bara sextán ára. Úr neðanjarðardýflissunum heyrast dauf öskur öðru hverju þessa jólanótt. Þar dvelja tveir unglingar sem struku úr sælunni. Þeir eru búnir að vera þar i rúma tvo mánuði. Þessar miðalda- dýflissur eru i kjallara fangelsisins.Þar er ekki haft ljós. Fyrir gluggunum eru stálplötur til að útiloka dagsljósið. Á hurðirnar eru boruð þrjú göt. Það er loftræstingin. I þessum búrum eru steinsteypt flet, eitt teppi, hlandfata sem skvett er úr að morgni; ekkert Ijós. Um helgar kemur lögreglan frá Selfossi með drukkna menn, sem settir eru við hliðina á þeim. Ég stend við gluggann og horfi út á hafið. Ég sé nokkur kot þar sem is- lensk alþýða heldur jól. Það er ljós i hverjum glugga eftir sið- venju þessarar hátiðar sem er til- einkuð mannssyninum sem auðvaldið krossfesti, þvi þeir óttuðust hann. Er ég stend við gluggann og horfi gegnum grindurnar, þá allt i einu upphefst hið sigilda lag... Ileims um ból lielg eru jól... Einhver fanginn spilar á munn- hörpu. Hugur minn fyllist friði. Það er eins og klefinn ljómi af birtu, sem öllu er ofar. 1 hrifningu minni hrópa ég út i tómið: „Faðir, fyrirgef þú þeim ekki, þvi þeir vita hvað þeir gera!” Manssonurinn, það er eins og hann hrópi með okkur, i þessu myrka fangahúsi: „Enn haldið þið hátið til að minnast min, en samt krossfestið þið i minu nafni mina minnstu bræður og systur.” * Gleðileg jól... Úr islenskum fangaklefu: Ekki beint vistlegt. Húsbyggjendur — EINANGRUNARPLAST Getum afgreitt einangrunarplast á Stór- Revkjavikursvæðið með stuttum fyrir- N vara. Afhending á byggingarstað. Borgarplast hf. Borgarnesi Simi 93-7370 Helgar- og kvöldslmi 93-7355. ni>Hu fu'ttmt Við smíðum hringana Trúlofunarhringalitmyndalistinn kemur i góðar þarfir. Við sendum hann hvert á land sem er, þið finnið rétta stærð eftir málspjaldi, sem fylgir listanum, og við sendum hringana í póstkröfu. <Sull Sc á§>ílfur Laugavegi 35 Sími 20 620 Auglýsingasíminn er 17500 UOOVIUINl

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.