Þjóðviljinn - 21.01.1976, Blaðsíða 1
Síðustu fréttir:
Boðið komið
Samkvæmt upplýsingum sem Þjóðviljinn aflaði sér í
gærkvöldi, kom breski sendiherrann i utanríkisráðu-
neytið laust eftir kl. 18 í gær og afhenti þar formlegt
tilboð um að herskipin yrðu dregin til baka, og boð til
Geirs Hallgrímssonar um að koma til viðræðna við
Wilson starfsbróður sinn í Lundúnum.
Ekki tókst að f á þessa f rétt staðfesta í gærkvöldi.
Geir Hallgrímssyni stefnt til London
Herskipin farin út fyrir
En ný innrás boðuð verði hreyft við einum togara!
Þær fregnir bárust til
Islands í fyrrinótt, að
breska ríkisstjórnin hafi
ákveðið að kalla herskipin
út úr íslenskri landhelgi, en
jaf nf ramt var tekið f ram í
yfirlýsingu, sem breski
utanríkisráðherrann
Callaghan gaf fréttamönn-
um, að ný herskipainnrás
verði gerð þegar í stað, ef
íslensku varðskipin
,,áreiti" breska togara.
Breski utanrikisráðherrann tók
fram, að sér hefði hins vegar
„skilist” á Luns, framkvæmda-
stjóra NATO, að islensku varð-
skipin myndu hætta að áreita
breska togara, sem veiðar stunda
við Island.
James Callaghan, utanrikis-
ráðherra breta tók einnig fram á
fundinum með fréttamönnum, að
að Geir Hallgrimssyni yrði boðið
til L'ondon til viðræðna við Wilson,
forsætisráðherra breta.
Þjóðviljinn sér ástæðu til að
vekja á þvi alveg sérstaka
athygli, að þvi fer viðsfjarri, að
bretar kalli herskipin heim án
skilyrða. Fái breskir togarar, að
stunda hér veiðar i friði fyrir
islenskum varðskipum þarf að
sjálfsögðu engan herskipaflota
þeim til styrktar. Bretar lýsa þvi
hins vegar afdráttarlaust yfir, að
hafi NATOforstjórinn Luns,
„misskilið” eitthvað i Reykjavik
og togararnir fái ekki að veiða
óáreittir, þá verði ný herskipa-
innrás gerð þegar i stað.
Og þetta kallar „Islandsvinur-
inn” Luns hjá NATO „mjög
rausnarlegt” boð af breta hálfu.
Það sem bretar og Luns segja
við islensku ráðherrana er þetta:
Ef þið takið sjálfir að ykkurþað
hlutverk herskipanna, að vernda
bresku togarana fyrir varðskip-
unum, þá skulum við kalla her-
skipin út, annars ekki.
Það eru ekki orð ráðherranna
heldur reynsla næstu daga sem
mun skera úr því, hvort Islenska
rikisstjórnin hlýðir þvi kalli frá
NATO og bretum eða ekki.
Hætta á uppgjafarsamningum
við breta er nú nær en áður.
Með órofa samstöðu og virkum
aðgerðum getur þjóðin hindrað
slik svik.
Ólafur Jóhannesson, dómsmálaráðherra:
Engin breytt fyrir-
mæli til gæslunnar
Fyrirmæli okkar tii land-
helgisgæslunnar verða i engu
breytt, þótt bresku herskipin
fari út fyrir 200 mílurnar. Ég
heyrði sjálfur Geir, forsætisráð-
herra, segja það að islenskum
lögum yrði haldið uppi í 200
milna lögsögunni sem áður.
Luns, framkvædastjóri Atlants-
hafsbandalagsins, hefur afrit af
öilum plöggum sem farið hafa á
milli forsætis- og dómsmála-
ráðuneytisins um þetta mál,
þannig að hann ætti ekki að vera
i vafa um afstöðu stjórnarinn-
ar.”
Þetta sagði ólafur Jóhannes-
son, dómsmálaráðherra í gær,
þegar hann var spurður álits á
þeim ummælum Callaghans, að
hönum hefði skilist eftir sima-
viðtal Luns við Geir Hallgrims-
son, að islendingar myndu
hætta að áreita breska togara,
ef bretar drægju herskipin út
fyrir 200 milur. Minna má á orð
Geirs Hallgrimssonar á blaða-
mannafundinum sl. föstudag, en
þá sagðist hann „vonast til að
friðvænlegra yrði á miðunum
eftir að herskipin væru farin
þaðan”.
Bíða við 200
mílna mörkin
Uli Schmetzer fréttaritari
Rauters um borð I bresku freigát-
unni Bacchante sendi frá sér þá
frétt um sjöleytið i gærkvöld að
breski flotinn væri allur á leið út
fyrir 200 milna mörkin austur af
tslandi.
Schmetzer sagði að heimsigl-
ingin hefði hafist i dögun i gær. Þá
hafi skipið tekið stefnu út fyrir
landhelgina á fullri ferð en siðan
staðnæmst i um 80 milna fjarlægð
frá veiðisvæði þvi sem bresku
togararnir halda sig á. Undir
kvöld kom svo skipun um að flot-
Sáttanefnd var tilkynnt á
samningafundi 'ASf og atvinnu-
rekenda siðdegis i gær. I nefnd-
inni eru: Guðlaugur Þorvaldsson,
háskólarektor, Björn Hermanns-
son, tollstjóri, Jon Þorsteinsson,
hrl. og Geir Gunnarsson alþiugis-
maður.
inn ætti allur að fara út íyrir 200
milna mörkin. Bjóst hann við að
skipin yrðu komin út fyrir i nótt.
Freigátan Bacchante fer beint
til Bretlands en hin skipin —
freigáturnar Naiad og Falmouth,
birgðaskipið Alwen og dráttar-
báturinn Rollicker — biða átekta
rétt utan við 200 mílna mörkin,
reiðubúin að sigla inn fyrir þau
aftur ef bresku togurunum verður
sýnd áreitni.
Bresku togurunum sem eru 45
talsins var fyrirskipað að halda
sig i hóp á afmörkuðu svæði und-
an suðausturströndinni.
Er nú gert ráð fyrir þvi að loks
fari eitthvað að hreyfast i samn-
ingunum, en litið hefur gerst til
þessa.
Fyrsti fundur með sáttanefnd
verður á fimmtudaginn.
Atli Heimir
hlaut tón-
listarverð-
laun Norð-
urlandaráðs
Sjá baksíðu
Sáttanefnd skipuð
Sjá baksíðu
Ekkert um
að semja
við breta
Viðtal við
Lúðvík
Jósepsson
viljanum
1 dag byrjar Þjóðviljinn að
birta teikningar Mogens Juhl,
sem hann hefur gert við hina
sigildu unglingasögu Mark
Twains um ævintýri Tuma litla.
Sagan um Tuma litla verður i
Þjóðviljanum næstu fjóra mán-
uði. Fylgist með frá byrjun.
Það er eins gott að vera vel búinn þessa daana; vetur konungur sýnir
okkur veldi sitt af miklum myndarskap. Og það er heldur ekki amalegt
að hafa skjól af henni mömmu sinni, hvað þá þegar maður fær lika að
hvila lúin bein. (Ljósm. S.dór.)
Sagan af Tuma
litla í Þjóð-
COPENHAGfN