Þjóðviljinn - 01.02.1976, Blaðsíða 15
Sunntidagur I. fcbrúar l»7f>.jþJóÐVILJINN — SÍÐA 15
Fétur rakari og Helgi i Demant
DÍNAMÍT
LOFA
GÓÐU
OG
MEGAS
LOFAR
PLÖTU
Herbert rýnir i textann
jafnvel til me6 að veita Paradis
samkeppni.
Á samkomu Dinamit ræddi ég
iauslega viö Magnús Þór Jónsson.
þ.e.a.s. Megas. Hann fræddi mig
m.a. um það. að byrjaö væri að
hugsa til þriðju breiðskifu hans.
Verður hun gefin Ut af Demanti.
en plata þessi á að höfða meira til
almennings en Millilending. en
Megas vildi ekki utskvra það
mikið meira. Hun verður með
efni frá sama tima og efni ..Milli-
lendingar". en i þetta sinn ætlar
Megas sér að nota einstaklinga
fremur en heila hljómsveit.
Kn eftir Herberti hafði ég það
svo þetta sama kvöld. er ég innti
hann um plötumál. að til stæði að
Dinamit léki undir lijá Megasi i
væntanlegum plötuupptökum: en
hvað sem öðru liður. þá óskum
við Herberti alls góðs með Dina-
mit og Megasi með væntanlega
plötu.
Dinamit á lciksviðinu
Á þriðjudagskvöldið hélt hin
nýja hljómsveit Herberts Guð-
mundssonar. Dinamit, kynningu
á þvi sem hUn hafði fram að færa
á jarðhæð KlUbbsins. Var hér um
alísérstæða samkundu að ræða
þar sem mættir voru fulltrUar
allra helstu umboðsaðila hér á
landi annars vegar og hins vegar
poppskrifarar, en auk þessara
voru þarna lika mættir ýmsir
popparar, þ.ám. Change-með-
limir (þ.e.a.s. Icefield-meðlimir),
Icefield sjálfur, Jakob Magg,
Haukameðlimir og Megas. Bauð
Dinamit upp á tvö kokteilglös, en
eftir það var barinn opnaður!
Dinamit hóf leik sinn upp Ur
klukkan niu með laginu T.Bring It
On Home To Me” og lék siðan lög
eins og „Daniel", ,,Cut The
Cake”, ,,Love Is The Drug” og
„Diana" (já, gamla góða Paul
Anka lagið). Hljómsveit stendur
vel að vigi sem danshljómsveit.
þar sem lögin eru vel flutt, þekkt
og i diskótekstil.
Herberti sjálfum hefur raun-
verulega farið mjög mikið fram
sem söngvara, og hlýtur hann að
fara að verða viðurkenndur sem
slikur. Nikulás Róbertsson,
hljómborðsleikari, átti besta leik-
inn þetta kvöldið á rafmagns-
pianóið. en RUnar Þórisson gitar-
leikari lék vel með honum. Saxa-
fónleikarinn Sigurður Long er enn
á efnilega stiginu, ef dæma á eftir
þessu kvöldi. en leikur hans var
fremur' stifur, en aftur á móti
tókst þcim ágætlega i saxafóndU-
ettinum i „Cut the Cake” þeim
Sigurði og Nikulási. Guðjón Þór
Guðjónsson heitir bassaleikari
hljóijisveitarinnar og Svavar Ell-
ertsson trymbillinn.
Hljómsveitin byrjar að leika af
lullum krafti um þessa lielgi og
yrði ég ekki hissa þó að þeir komi
Söngfuglarnir Megas og Engilbert — (Myndir:
Okey).
Tómas Tómasson og Sigurður Árnason við
hljóðstjórn.
ROLLING STONES í MARS
Rolling Stones aðdáendur eru
væntanlega farnir að hlakka til
nýrrar plötu frá þeim, en ný plata
er væntanleg i mars.
1 sumar sem leið tóku Rolling
Stones upp efni sem nægjanlegt
var á eina breiðskifu ef ekki meir,
en miklu af þessu efni virðist hafa
verið ýtt til hliðar. 1 þessum
upptökum tóku þátt nokkrir
þekktir gitarleikarar, svo sem
Jimmy Page, Rory Gallagher,
Harvey Mandel, Ronnie Wood og
Wayne Perkins, en samkvæmt
nýjustu fréttum verða einungis
Wood, Mandel og Perkins með á
plötunni, auk Billy Preston. Er
lika vonandi að þeir láti verða af
þvi að setja „Drift Away” á
plötuna, en það var skilið eftir á
Its Only Rock’n Roll.
t febrUar mánuði verður svo Ur
þvi skorið hvort Ron Wood gerist
fastur meðlimur Rolling Stones,
en hljómsveit Woods Faces hefur
eins og fólk ætti að vita nUna
misst Rod Stewart.
ÞOKKABÓT hljóörita
tvö lög og eru CHANGE
hættir?
Sanikvæmt þeim brcfum sem
borist hafa Klásúlum virðist
öruggt að Þokkabótar-platan
nái sem ein af tiu bestu plötum
ársins. En Þokkabót fer inn i
stúdió nú i janúar og hljóðritaði
tvö lög sem eiga að koma út á
brciðskifu frá Steinum bf.
ásamt efni frá öðrum
listamönnum og hljómsveitum,
en nöfn hafa jafnvel ekki verið
ákveðin enn.
Allt liggur á huldu um
Change, og margar sögusagnir
ganga nU fjöllunum hærra innan
„bisnissins” og utan. Ein er sU
að fyrirtæki þeirra Uti séu að
endurskoða afstöðu sina og
jafnveí bUnir að afneita þeim.
Björgvin Halldórsson, Jóhann
Helgason, Tómas Tómasson,
Birgir Hrafnsson og Sigurður
Karlsson eru allir hérlendis
nUna, og þrir siðast nefndu leika
með Icefield af fullum krafti.
MagnUs Sigmundsson er enn
Uti, og liklega verður málið ekki
hreinsað fyrr en hann kemur
upp, en hann hefur upp á sið-
kastiö verið nokkurskonar tals-
maður hljómsveitarinnar.