Þjóðviljinn - 17.02.1976, Side 1
UOÐVIUINN
Þriðjudagur 17. febrúar 19.'6 —41. árg.'39, tbi.
VIÐTAL VIÐ
HÚSKULD
SKIPHERRA
Á 9. SÍÐU
BLAÐSINS
Allshfírjnrvprkfall skall á á
miðnœtti í nótt:
Ríkisstj órnin ber sökina
Samninganefndarmenn á Loftleiðahóteli talið frá vinstri: Björn Þórhallsson, Einar ögmundsson,
jGuöjón Jónsson, Bóas Hallgrimsson, Guðmundur J. Guðmundsson og Magnús Geirsson. (Ljósmynd:
Ari)
Björn Jónsson, forseti ASl:
Með samstöðu
nœst árangur
Eitt við-
tœkasta
verkfall
sem hér
hefurorðið
Enn einu sinni hafa
íslenskir launamenn orðið
að gripa til verkfalls-
vopnsins. Allsherjarverk-
fallið, sem hófst á mið-
nætti sl. er eitt viðtækasta
verkfall sem efnt hefur
verið til hér á landi. Verk-
fallið nær til níu af hverj-
um tíu félagsmönnum í Al-
þýðusambandi islands, en
það þýðir að um 35,000
manns eru í verkfalli.
Þetta verkfall er gert til þess að
knýja fram kjarabætur til handa
verkafólki i landinu eftir lang-
vinna kjararánsherferð auðstétt-
anna og rikisstjórnarinnar. Nú er
langlundargeð launamanna á
þrotum og nú sést um allt Island
svo vel að jafnvel rikisstjórnin
ætti að skilja það að forsenda og
undirstaða alls efnahagslifs i
landinu er vinnuafl fólksins.
Samingaþófið sem staðið hefur
i nokkra mánuði hefur engan
árangur haft i för með sér til
þessa.Sáttanefnd hefur boriö fram
tilögu en hún er þannig að hún
felur i rauninni i sér kauplækkun.
t öndverðum samningaviðræðun-
um lagði Alþýðusamband tslands
fram ákveðnar kröfur um að-
gerðir i efnahagsmálum; þessum
kröfum hefur rikisstj. hafnað
lið fyrir lið ýmist beint eða óbeint
með þeim aðgerðum sem hún lét
samþykkja á alþingi siðustu dag-
ana fyrir jól en þær fela i sér mil-
jarðaálögur á launamenn i land-
inu. Þannig hefur rikisstjórnin i
fyrsta lagi hunsað kröfur verka-
lýðssamtakanna og hún hefur i
öðru lagi ekkert gert til þess að
leysa deiluna nú á siðustu dögum,
enda hefur aðalmálgagn rikis-
Framhald á 14. siðu
„Við eigum ekki um
neitt annað velja til þess
að reyna að ná fram rétti
umbjóðenda okkar en
fara i verkfall. Bregðist
ekki þær vonir, sem
bundnar eru við samstöðu
i verkfallinu munum við
á árangri," sagði Björn
Jónsson, forseti ASi
þegar blaðamaður hitti
hann að máli á samninga-
fundi í gær.
„Við höfum ekki fengið boð
um atriði, sem neinu verulegu
máli skipta, hvorki frá atvinnu-
rekendum né ríkisstjórn.
Þegar Alþýðusambandið
skýrði rikisstjórninni frá hinum
svokölluðu 14 punktum, fengum
við þær móttökur hjá henni, að
við yrðum að ná samstöðu meö
vinnuveitendum um þessa
punkta til þess að rikisstjórnin
gæti beitt sér fyrir framkvæmd
þeirra. ASt og VI hafa náð
samkomulagi um 15 atriði. En
það hefur komið á daginn, að
það hefur ekki skipt neinu máii;
rikisstjórnin hefur ekki sýnt sig
i að vera jákvæð gagnvart neinu
þeirra.”
— Hafið þið ekkert fengið i
hendur frá vinnuveitendum?
„Nei. Þeir hafa heldur ekki
játað sáttatilboði þvi sern frarn
korn á dögunurn, og þó svo þeir
játtu þvi nú, gæti það ekki leyst
þessa deilu.”
— Hefur samninganefnd ASI
svarað sáttatilboðinu?
„Við svöruðurn þvi sarndæg-
urs og hvernig það þyrfti að
breytast til þess að það gæti orð-
ið grundvöllur að lausn fyrir
okkur.”
— Er mikið um undanþágu-
beiðnir?
„Nei. Nefndinni hefur borist
bréf frá Sildarverksmiðjum
rikisins vegna loðnubræðslu svo
og frá sjúkrahúsum. Viö mælum
ekki með neinni undanþágu
varðandi fiskvinnslu, en reyn-
um að sjálfsögðu að sjá til þess,
að lifi og heilsu manna stafi ekki
hætta af verkfallinu.”
— Hvaða likur eru á frestun
verkfallsins?
„Frestun hefur ekki verið á
dagskrá. Hún kemur yfirleitt
ekki til álita nema þegar eitt-
hvað örlitið er eftir að gera til
þess að endar nái saman. Það
stendur ekki þannig á nú, þar
sem stærstu atriði samninganna
eru enn eftir. Eftir að verkfall
skellur á veröur þvi ekki afiétt
fyrr en endanlegur samningur
liggur fyrir.”
— Hvað hefur gerst i samn-
ingamálum i dag? (Spurt um kl.
5)
„Ekkert.Það sem gerst hefur
til þessa er, að undirritaður hef-
ur verið samningur um kaup-
tryggingarmál fólks i fisk-
vinnslu. Nokkur smáatriði eru
frágengin efnislega. Þá má og
geta þess, að nokkuð hefur mið-
að i viðræðum um lifeyrissjóða-
mál til þessa, en i dag hafa at-
Framhald á 14. siðu
Bifreiða-
umboð í
skatt-
rannsókn
Þjóðviljinn hefur áreiðanlegar
heimildir fyrir þvi, að bókhald
þriggja bifreiðaumboða, sem öll
eru nokkuð stór i sniðum, sé i
rannsókn hjá skattrannsóknar-
stjóra. Fulltrúi i skattrann-
sóknardeild, sem Þjóðviijinn
hafði samband við i gær, viidi
•hvorki játa né neita að þetta væri
rétt-, sagði hann að embættið gæfi
ekki upp við fjöliniðla hvaða
fyrirtæki eða einstaklingar væru
undir smásjánni hjá deildinni.
Þjóðviljinn hcfur einnig sann-
frétt, að hjá öilum þessum bif-
reiðaumboðum sé um að ræða
söluskattssvik. Að svo komnu
máli munuin við ekki birta nöfn
þcssara fyrirtækja, nema skatt-
rannsóknarstjóri gefi þau upp, en
i liann náðist ekki i gær.
—S.dór
Einn fund-
ur hjá flug-
freyjum
„Fyrsti fundur okkar og at-
vinnurekenda með sáttasemj-
ara var i morgun,” sagði Erla
liartiemark, form. Flug-
freyjufél. er við hittum hana
að máli i gær.
Flugfreyjur hafa ekki boðað
verkfall enn sem komið er, en
samningar þeirra voru lausir
frá og með 1. febrúar.
Fyrir þennan fyrsta fund
hjá sáttasemjara höfðu flug-
freyjurnar átt einn fund með
forráðamönnum flugfélag-
anna.
Ekkert hefur enn gerst i
málum freyjanna annað en
það, að aðilar hafa kynnt sin
sjónarmið hvor fyrir öðrum.
—úþ
Nær til yfir 90% félaga ASÍ
Engar ákvarðanir um undanþágur í verkfallinu teknar í gærdag
Að sögn ólafs Hannibaissonar,
skrifstofustjóra ASÍ mun verk-
fallið, sem skall á á miðnætti sl.
ná tii yfir 90% félaga í Alþýðu-
sambandi islands þegar i dag, en
aukast verulega næstu daga, þar
scm nokkur verkalýðsfélög munu
ekki fara i verkfall fyrr en 20. til
25. febrúar nk. m.a. flest verka-
lýösfélögin á Austfjörðum.
Nokkur litil félög á Reykjavik-
ursvæðinu hafa enn ekki boðað
verkfall, má þar nefna starfsfólk
á veitingastöðum, kvikmynda-
sýningamenn, bókageröarfélögin
hafa ekki enn boðaö verkfall,
fiugvirkjar, sem eru með annan
samningatima, en að öðru leyti
má verkfallið heita algert á stór-
Reykjavikursvæðinu.
Úti á landi eru nokkur litil félög
sem ekki hafa boðað verkfall, að
sögn ólafs, og nefndi hann sem
dæmi verkalýðsfélagið á Suður-
eyri, Hólmavik, Drangsnesi, Hvöt
á Hvammstanga, Kópaskeri,
Bakkafirði, Fijótsdalshéraði,
Búðardal, Raufarhöfn, Breið-
dalsvik og á Þórshöfn og Borgar-
firði eystra, en þar er svo mikið
atvinnuleysi að það þjónar engum
tilgangi að boða verkfall. Auk
þess munu svo nokkur minnstu
verslunarmannafélögin úti á
landi ekki hafa boðað verkfall.
Taldi Ólafur að sum þessara fé-
laga sem ekki hafa boðað verk-
fall, séu vart starfandi nema að
nafninu til.
Þjóðviljinn hafði i gær sam-
band við Halldór Björnsson,
starfsmann Dagsbrúnar i
Reykjavik og spurðist fyrir um
undanþágur i verkfallinu. Halldór
sagði að öryggisþjónusta fengi
eins og vant er undanþágur, en að
öðru leyti sagði hann engar á-
kvarðanir hafa veriö teknar um
undanþágur. Hjá starfsstúlkna-
fél. Sókn átti að halda stjórnar-
fund seint i gærkveldi og þar átti
að taka fyrir hugsanlegar undan-
þágur. A Selfossi hafði engin
ákvörðun veriö tekin um undan-
þágur varðandi mjólkurflutninga
eða annað.
Menn voru sammála um að það
væri of smemrnt að ræöa um hugs-
anlegar undanþágur, afstaða til
þeirra yrði tekin jafnóðum og
umsóknir um þær bærust. Þó má
geta þess að dagblöðin hafa feng-
iö undanþágu hjá VR og koma þvi
út meðan prentarar fara ekki i
verkfall. -S.dór