Þjóðviljinn - 17.02.1976, Síða 13
Þriðjudagur 17. febrúar 1976 •■.) oDVILJlf'i.N — SIÐA 13
Joseph Luns, einn helsti talsmaður evrópsks hernaðarsamstarfs og áframhaldandi herbúnaðar
kapphlaups, þegar hann átti hér viðkomu fyrir sfðustu áramót. A myndinni sést Luns (i miðið) leggja
áherslu á mikilvægi „vestrænnar samvinnu”, og er ekki að sjá vantrúnaðarsvip á embættismönnunum
umhverfis hann.
„Vinir vorir” í Nato
Gunnar G. Schram, fyrrum
Vis isritstjóri, mun i kvöld leiða
umræður i þættinum Utan úr
heimi.en umræðuefnið verður:
Ifvers virði er NATÓ i veröld-
inni i dag?
Meðal þátttakenda verður
Einar Agústsson, utanrikisráð-
herra, en ekki hafði verið til-
kynnt um fleiri jafnfrómar sálir
i gær, er þetta var ritað. Það er
út af fyrir sig athyglisvert að
ihaldsmaðurinn Gunnar G.
Schram skulinú vera fenginn til
að stjórna umræðuþætti um
NATO, þegar fiskveiðideilan við
breta er á viðkvæmu stigi og of-
beldi þeirra á miðunum við
ísland getur á hverri stundu
haft hinar háskalegustu af-
leiðingar fyrir varðskipsmenn
okkar eða jafnvel fiskimenn.
Mönnum er nú orðið ljóst, að
verstu fjandmenn okkar er að
finna meðal okkar eigin banda-
manna, að vera okkar i NATO
hefur ekki orðið okkur að liði i
baráttunni fyrir okkar málstað,
nema siður væri.
Joseph Luns, agent Efna-
hagsbandalagsins og NATO,
mun þvi verða að brýna snata
sina hérlendis á þvi, að halda
islendingum vel að fóörum, i
sambandi við blekkingaráróður
um vaxandi flotastyrk rússa.
Útvarp síðdegis:
Merkar konur
Elinborg Lárusdóttir hefur
tekið saman frásöguþætti, sem
nefnast Merkar konur, og mun
Jóna Rúna Kvaran, leikkona,
lesa þrjá þeirra i útvarp og
verður fyrsti lesturinn kl. 14.30 i
dag. Segir þá frá Sólveigu
Sveinsdóttur frá Bjarnastöðum
i Bárðardal, en hún var af
merkum bændaættum i Þing-
eyjarsýslu, og flutti til Kanada
með foreldrum sinum fyrir sið-
ustu aldamót, þá aðeins fimm
ára gömul. Sólveig var eins og
hennar fólk opin fyrir þróun og
sá aldrei annað en sólskin og
bliðu á leið sinni. Hún giftist i
Vesturheimi Simoni Svéinssyni,
náfrænda Einars Benediktsson-
ar, og fluttist með honum til
Chicago. Þau eignuðust fjögur
börn saman og voru alla sina tið
fátæk en sjálfstæð.
Næsti lestur verður á fimmtu-
dagskvöld og verður þá sagt frá
Jóninu Stefánsdóttur, en þriðji
og siðasti frásöguþátturinn sem
fluttur verður eftir helgi fjallar
um Jóninu Lindal, frá Lækjar-
móti i A-Hún.
Elinborg Lárusdóttir
Skáldakynslóð
kalda stríðsins
Jón Óskar skáld mun i kvöld
lesa kafla úr nýrri bók sinni i út-
varp, og nefnist sá dagskrár-
liður Kynslóð kalda striðsinsog
hefst kl. 19.35. En Jón Óskar
tilheyrir einmitt þeim hópi
skálda, sem stundum hefur
verið nefnd „skáldakynslóð
kalda striðsins”.
Jón Óskar er fæddur árið 1921
á Akranesi. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá M.R. 1940 og
lagði eftir það um tima stund á
tónlistarnám, en stúderaði eftir
það frönsku og franskar
bókmenntif.
1 kaflanum sem lesinn verður
i kvöld, er sagt frá heimsókn
höfundar að Syðri-Rauðalæk og
áliti bóndansþar á menningunni
i henni Reykjavik.
Jón Óskar
v - ' . • *■; -
Erindi sem erfiði?
1 fyrrakvöld var frumsýnt i
sjónvarpi nýtt leikrit eftir
Matthias Johannessen. Við-
fangsefni skáldsins var að þessu
sinni spurningin um eilift lif, og
hin áleitna spurning höfundar-
ins um það hvort höfundurinn
lifi áfram i verkum sinum eins
og sagt er, eða hvort sögu-
hetjurnar lifi ef til vill höfund
sinn og skapara.
Til að svara þessari spurn-
ingu kallaði hann saman i sjón-
varpssal þau Ófeiiu og Hamlet,
ásamt skapara þeirra William
Shakespeare. Ekki er hæ^t að
segja að spurningunni hafi þar
verið svarað, en hún var alla
vega sett fram, þótt það kunni
að hafa farið fram hjá einhverj-
um sjónvarpsáhorfenda, vegna
þess hvað framsetningin var
leiðinleg og þunglamaleg.
Holdgervingar elskendanna
Hamlets og Ófeliu, sem orðin
eru hjón handan við skil lifs og
dauða i leiknum, voru i höndum
Þorsteins Gunnarssonar og
Helgu Bachmann. Reyndu þau
eftir mætti að skila hlutverkum
sinum á þann hátt að gera per-
sónurnar trúverðugar, og tókst
það eftir atvikum. Jón Sigur-
björnsson skilaði og af sér hlut-
verki Shakespears, án teljandi
áreynslu.
Leikstjórinn Helgi Skúlason
hafði með höndum vandasamt
og vanþakklátt hlutverk, ef hon-
um hefur verið ætlað að gera
eftirminnilegan ieik úr þvi efni
sem honum var búið i hendur.
Það hlutverk leysti hann að
sama skapi áreynslulitið, án
þess að leggja sig sérlega i
framkróka um að lifga upp á
dauðyflislegan og flatan texta
Matthiasar. Leikmyndin var
plastheimur og hæfði vel verk-
inu, en Snorri Sveinn Friðriks-
son, leikmyndateiknari sjón-
varpsins sá um hana.
Ekki verður séð að spurning
Matthiasar hafi átt sérstakt er-
indi til áhorfenda og ekki bætti
tónlist Jóns Þórarinssonar, yfir-
manns lista- og skemmtideildar
Sjónvarps neitt þar um. Leikur-
inn var innihaldslaus. Tilgangs-
leysi: tilverunnar, það sem átti
Jón Sigurbjörnsson i hlutverki
Shakespeare.
að vera burðarstoð leiksins,
endurspeglaði einungis borg-
aralegan lifsleiða, án þeSs að
höfundurinn hefði heiðarleika
og áræði til að ráðast að honum
beint.
Flestum sjónvarpsáhorfend-
um hefur þvi vafalitið fundist
tima sinum illa varið þann hálf-
tima sem þeir urðu andagiftar
Matthiasar Johannessens að-
njótandi á sunnudagskvöld.
Mörgum þeirra sem ég hef
spurt álits á leiknum fannst
hálftiminn heil eilifð, vegna
þess hve textinn var leiðinlegur
og höfðaði litið til þeirra. Að þvi
leyti hefur Matthiasi sannan-
lega tekist það sem hann hefur
ætlað sér með leiknum: Að vera
eilifur smástund.
Þorsteinn Gunnarsson og Helga Bachmann i hlutverkum sinum
Ófeliu Matthiasar.
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (of
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigurður Gunnarsson
flytur sögu sina „Frændi
segir frá” (2). Tilkynningar
kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45.
Létt lög milli atriða. Fiski-
spjall kl. 10.05: Asgeir
Jakobssonflytur. Hingömlu
kynni kl. 10.25: Valborg
Bentsdóttir sér um þáttinn.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Bruxelles-trióið leikur Trió
op. 70 nr. 1 i D-dúr fyrir
pianó, fiðlu og selló eftir
Beethoven / Vinaroktett-
inn leikur Tvöfaldan
strengjakvartett i e-moll op.
87 eftir Spohr.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Merkar konur, fyrsti frá-
söguþáttur Eiinborgar Lár-
usdóttur. Jóna Rúna Kvar-
an leikkona les.
15.00 M iðdeg is tó nleik a r.
Betty-Jean Hagen og John
Newmark leika á fiðlu og
pianó Noktúrnu og Taran-
tellu eftir Szymanowsky.
Ronald Smith leikur Pianó-
sónötu i b-moll eftir Bala-
kireff. Ida Haendel og Sin-
fóniuhljómsveitin i Prag
leika Fiðlukonsert i a-moll
op. 82 eftir Glazúnoff; Vac-
lav Smetácek stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynnignar.
(16.15) Veðurfregnir).
Tónleikar.
16.40 Litli barnatiminn. Finn-
borg Scheving stjórnar.
17.00 Lagið mitt. Berglind
Bjarnadóttir sér um oska-
lagaþátt fyrir börn yngri en
tólf ára.
17.30 Framburðarkennsia i
spænsku og þýzku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Kynslóð kalda striðsins.
Jón Óskar rithöfundur les
kafla úr nýrri bók sinni.
19.55 Lög unga fólksins. Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
20.50 Aö skoða og skilgreina.
Kristján Guðmundsson sér
um þátt fyrir unglinga.
21.30 Samleikur á selló og
pianó. Christina Walevska
og Zdenek Közina leika verk
eftir Chopin og Debussy.
21.50 Sænsk Ijóð I þýðingu
Þórarins frá Steintúni.
Guðrún A. Thorlacíus les úr
nýútkominni bók.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (2).
22.25 Kvöidsagan: „1 verum",
sjálfsævisaga Theódórs
Friðrikssonar. Gils Guð-
mundssonar les siðara bindi
(19).
2 2.45 H a r m o n i k u 1 ö g .
Harmonikuklúbburinn i
Fagersta leikur.
23.00 A hljóðbergi. „Slikt gæti
ekki gerst hér!” Babbitt i
Hvita húsinu eftir Sinclair
Lewis. Sonur höfundar,
Micheal Lewis, les. Handrit
og stjórn: Barbara Hold-
ridge.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglysingar.
20.40 Frá vetrarólympiuleik-
utium i Innsbruck. Kynnir
Óm ar Ragnarsson.
20.55 Þjóðarskútan. Þáttur um
störf alþingis. Umsjónar-
menn Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson.
21.25 McCloud. Bandariskur
sakamálamynaaflokkur.
Þyðandi Kristmann Eiðs-
son.
22.40 Utan úr heimi.Umræðu-
þáttur um erlend málefni.
Hvers virði er NATO i
veröldinni i dag? Meðal
þátttakenda er Einar
Ágústsson utanrikisráð-
herra. Stjórnandi Gunnar
G. Schram.
23.10 Dagskrárlok.