Þjóðviljinn - 06.04.1976, Qupperneq 5
Þriðjudagur 6. april 1976. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5
Áhugaleikhús er lífs
máti fyrir marga
Lennart Engström,
varaforrnaður Alþjóða-
sarnbands áhugaleikhús-
ráðsins, og starfsrnaður
Svenska riksteatern var
hér á ferð fyrir helgina,
og ræddi við forystumenn
Bandalags íslenskra leik-
félaga, og ráðarnenn í
rnenntarnálaráðuneytinu,
urn aukna þátttöku
islenskra áhugaleikara í
alþjóðlegu samstarfi á
vegurn Áhugaleikhús-
ráðsins, en i því eru nú 36
lönd. Þjóðviljinn ræddi
við Engström um það
sern efst er á baugi hjá
Alþjóðasarnbandinu, um
Svenska Riksteatern og
ferð hans til islands.
— Við í Alþjóðasambandinu
berum mikla virðingu fyrir
starfsemi áhugaleikhúsa á ís-
landi og samtaka þeirra,
Bandalagi isl. leikfélaga, sem
Helga Hjörvar veitir forstöðu af
miklum myndarskap. Við vilj-
um gjarnan athuga möguleika á
meiri þátttöku islendinga i al-
þjóðlegu starfi okkar, og um það
hef ég t.d. rætt við menntamáia-
ráðherra ykkar og ráðuneytis-
stjórana i menntamálaráðu-
neytinu. Þar hefur fyrst og
fremst verið um að ræða athug-
anir á kostnaðarhliðinni.
— Er eitthvað sérstakt á döf-
inni hjá Alþjóðasambandinu
hvað varðar fsland?
— Við tökum þátt i að skipu-
leggja alþjóðlega leikhúshátið i
Dundalk á Irlandi nú i mai.
Okkur hefur tekist að fá is-
lenska þátttöku þar og erum
mjög ánægðir með það. Skjald-
hamrar Jónasar Árnasonar
verða sýnd þar, og ég er viss um
að það framlag verður mikils
metið, þvi ég fór að sjá leikritið
hér, og þótti mikið til koma.
Þetta er i fyrsta sinn sem is-
lenskt leikrit er sýnt á Bret-
landseyjum og við mætum það
mikils að sem flestir islendingar
legðu leið sina á þessa hátið.
Þeir sem það vilja ættu að snúa
sér til Helgu Hjörvar og BIL og
fá nánari upplýsingar um hátið-
ina.
Rætt við
Lennert
Engström,
varaformann
Alþjóða
áhugaleikhús-
ráðsins
Að öðru leyti hefur komið til
greina að efna til alþjóðlegra
móta hér á landi. Þar er fyrst og
fremst um að ræða árlega æsku-
hátið, sem nefnist Theater
International/Young People.
Slik hátið verður haldin i Finn-
landi i ár og þar hittist ungt fólk
frá fjölmörgum löndum og er
saman i viku við leik og starf.
Nokkrir kunnir leikhúsmenn
taka þátt i störfum með unga
íólkinu. En eins og eðlilegt er
verða heimamenn að taka tals-
verðan þátt i kostnaðinum við
svona hátið.
Svo er þess að geta að 20. júni
kemur hingað fjöldi fólks frá
Norðurlöndum á námskeið um
brúðuleikhús, sem haldið verð-
ur i Reykholti. Áhuginn fyrir að
koma hingað reyndist svo mikill
að visa varð frá mörgum um-
sóknum. Við vonumst einnig til
að isl. hópur verði með á Al-
þjóða áhugaleikhúshátiðinni i
Monaco i ár, en þar verða 22
hópar viðsvegar að úr heimin-
um.
— En hvað um þátttöku is-
lendinga i alþjóðlegu starfi á-
hugaleikhússfólks?
— Norræna áhugamannaleik-
húsráðið, sem er undirdeild i Al-
þjóðasambandinu, efnir til ráð-
stefnu i Falkenberg i Sviþjóð i
lok þessa mánaðar, þar sem
fjallað verður um menntunar-
mál áhugamannaleikhússins.
Gert er ráð fyrir þvi að þar
verði um 6 til 7 islendingar.
Þarna á að reyna að komast að
niðurstöðu um hvað leggja á á-
herslu i framtiðinni i þessum
efnum. Sjálfurætla ég að hreyfa
þeirri hugmynd þarna að stofn-
aður verði norrænn leikrita-
banki, sem nyti stuðnings frá
Norræna menningarsjóðnum til
þýðinga og dreifingar á leikrit-
um.
— Hvernig og að hverju starf-
ar Alþjóða áhugaleikhúsráðið
helst?
— t Alþjóðasambandinu eru
nú 36 riki frá Japan til Banda-
rikjanna og Gambiu til Islands.
Sambandið er fátækt og getur
þvi ekki haft mikið umleikis.
Við reynum þó að skapa mögu-
leika fyrir áhugaleikhúsfólk að
hittast og læra af hvert öðru.
Ahugaleikhúsið hefur ekki bara
listrænt gildi fyrir fólk. Fyrir
mörgum hefur það orðið lifs-
máti. Þessvegna getur áhuga-
leikhúsið orðið leið til þess að
fólk eignist uppbyggilega og
skapandi tilveru.
Um þessar mundir leggjum
við áherslu aðallega á tvennt.
Annarsvegar er það leiktúlkun i
skólum, „drama i skolan”. Enn
hefur ekki verið fundin upp betri
aðferð til þess að kenna börnum
en með leiktúlkun. Með þvi að
gefa þeim kost á að skapa sjálf
út frá og i tengslum við náms-
efnið verða þau virkari þátttak-
endur og ólikt áhugasamari en i
hefðbundnu námi.
Nú nýlega varð Alþjóða leik-
húsráðið aðili að UNESCO og
gefur það færi á að fá styrk til
þess að framkvæma ýmis á-
hugamál.Tildæmis hefur okkur
dottið i hug að senda leikhóp i
fótspor Danilo Dolcis, rithöf-
undarins og umbótamannsins,
sem reynthefur að þróa aðferð-
ir til þess að kenna fátæklingum
á Sikiley að „bjarga sér sjálf-
um”. Hugmyndin er að hópur-
inn deili lifskjörum með þessu
fólki, lifi og starfi og túlki ásamt
heimamönnum lifsbaráttu
þeirra á leikrænan hátt. Þetta
má þó ekki verða á þann veg að
kennslutilhneigingar verði ráð-
andi, heldur er fyrst og fremst
hugsað um vixlverkan og þátt-
töku, sem hugsanlega leiðir af
sér listrænan árangur. Með
þessu móti má setja áhugaleik-
hús i félagslegt samhengi, þar
sem það hefur þýðingu i menn-
ingarlifinu og tilgang. Ég er viss
um að áhugaleikhúsið mun þró-
ast æ meir i þá átt að heimafólk
tekur fyrir sin eigin vandamál
og notar sviðið sem umræðu-
vettvang.
— Sænska rikisleikhúsið er
stundum kallað stærsta leikhús
Evrópu. Segðu okkur að end-
ingu litillega frá þvi.
— Já, Svenska riksteatern er
stærsta leikhús i Evrópu. Það er
umferðarleikhús sem hefur
milli fjögur og fimm þúsund
sýningar árlega og fjölmarga
leikflokka á sinum snærum sem
eru á sifelldu ferðalagi, um allt
landið. Um áttatiu prósent af
sýningunum „framleiðir” leik-
húsið á eigin vegum, en kaupir
afganginn og sér um að koma
þeim á framfæri. Þetta á við um
atvinnuleikhúshliðina á
Svenska riksteatern. Það rekur
þó lika umfangsmikla starfsemi
fyrir áhugahópa. Isamvinnu við
ein tiu fræðslusamtök alþýðu i
Sviþjóð. Þetta er fyrst og fremst
þjónustustarfsemi og er ég á-
byrgur fyrir henni. Höfuðá-
herslan er lögð á menntun leið-
beinenda og allskonar nám-
skeið. önnur þjónusta er lika
veitt. Til dæmis er starfsfólk
Riksteaterns oft lánað til á-
hugaleikhúsa sem leikarar, eða
sem sérfræðingar i einu eða
öðru, og einnig sem kennarar.
Þá gefum við upplýsingar um
leikrit og dreifum þeim. Og
einnig er reynt að útvega leik-
muni og búningi o.s.frv.
— Og lokaorð?
— Ég vil að endingu endur-*
taka þakklæti mitt til BIL fyrir
frábært framlag þess, sérstak-
lega til norrænu samvinnunnar,
og efnahagslegan stuðning við
Alþjóða leikhúsráðið, og ég er
þess fullviss, að starfsemi þess,
eins og hún hefur þróast, mun
visa veginn fyrir aðra innan
okkar sambands. —ekh
Vestur—Þýskaland:
Enn ein ný löggjöf
gegn vinstri sinnum
Eftir áramótin i vetur var i
vestur-þýska sambandsþinginu
einróma samþykkt frumvarp til
laga um bann við þvi að lýsa
ofbeldisathöfnum og annarri
vaidbeitingu i rituðu máli. Nýju
lögin beinast gegn starfsemi
vinstri sinnaðra hópa og útgáfu -
fyrirtækja á þeirra vegum i
Vestur-Þýskalandi. Formaður
rithöfundasambandsins,
jafnaðarmaðurinn Dicter Latt-
mann, fordæmdi lögin harðlega i
þingræðu, en neyddist þó til að
greiða lögunum atkvæði, svo
þungt var á hann lagst i þing
flokki jafnaðarmanna.
I lögunum eru undantekningar-
ákvæði um það að óhegnt megi
lýsa ofbeldi ef það er gert i lista-
verkum og i visindaritum svo og i
blaðamennsku og frásögnum af
daglegum viðburðum. Að öðru
leyti er athæfið refsivert og liggur
við allt að 3ja ára fangelsi.
Bent er á að það er hlutverk
dómstólanna að skera úr um það
hvenær ritað mál telst list og hve-
nærekki. Þetta óttast rithöfundar
og hlakka ekki til að lenda á saka-
mannabekk frammi fyrir dóm-
urum sem setið hafa i embætti
siðan á velmektardögum Hitlers.
Lögin geti þvi hæglega bitnað á
viðurkenndustu höfundum I þvi
sambandi hefur Heinrich Böll
verið nefndur og sú bók sem hann
samdi gegn ofsóknum hægri blað-
anna gegn vinstri hópum,
„Týndur heiður Katrinar
Blúm.”
Vogel dómsmálaráðherra
skýrði lögin svo fyrir þingheimi i
Bonn: Það verður að stemma
stigu gegn ofbeldinu, einnig þeim
undirbúningi sem klæddur er i orð
og verkar sem aðstoð við vald-
beitingu i pólitiskum skoðana-
skiptum Pólitisk barátta án vald-
beitingar er höfuðatriði i
lýðræðislegu réttarriki. Sá sem
leitast við að spilla þessu grund-
vallar samkomulagi i þjóð-
félaginu, færir okkur nær hnefa-
réttinum.
I samræmi við þessa skýringu
dómsmálaráðherrans er það i
þungamiðju laganna að ekki megi
mæla fyrir valdbeitingu. „Mælt -
er fyrir ofbeldisverknaði þegar
honum er lýst sem velkomnum og
óhjákvæmilegum eða þó ekki sé
nema liklegum”.
öll valdbeiting
lögð að jöfnu
Spyrja má hvort nokkuð sé
alvarlegt við það að banna
ofbeldislýsingar, er það nokkuð
óeðlilegt i landi þar sem fólk man
ennþá eftir ofbeldisdýrkun nas-
ista? Og er ekki bara verið að
hnykkja á ákvæðum sem þegar
eru i lögum?
A vissan hátt er þetta rétt. Það
hefur tam. verið bannað siðan i
striðslok að lofsyngja ofbeldi i rit-
verkum. Það var refsivert að lýsa
ofbeldi sem haft væri i frammi
við fólk á ruddalegan og annan
ómannlegan hátt Á sama hátt og
það var ólöglegt að æsa til kyn-
þáttahaturs.
Munurinn er sá að samkvæmt
nýju lögunum eru hinir takmark-
andi þættir numdir úr gildi. Sú
valdbeiting sem nú er refsivert að
lýsa þarf ekki að vera ruddaleg,
og auk þess þarf þessi valdbeiting
ekki að koma fram við fólk,
heldur nægir að annarsvegar séu
dauðir hlutir.
Gegn verkföllum
Þessi útvikkun á valdbeitingar-
hugtakinu hefur i för með sér
miklar hættur. Það verður refsi-
vert að auglýsa rit sem falla
undir ákvæði laganna, refsivert
að dreifa þeim, sýna þau opin-
berlega. versla með þau, jafnvel
einnig að hafa þau á aðgengi-
legum stað i sinni eigin bókahillu!
Lögin geta einnig takmarkað
athafnasvið almannasamtaka og
gert þeim ókleift að vinna að
viðurkenndum markmiðum.
Dæmi er tekið af aðgerðum
þorpsbúa i Whul gegn kjarnorku-
veri sem áformað var að byggja
þar. Þeir gerðu sér litið fyrir og
tóku byggingarsvæðið á sitt vald
svo að ekki væri unnt að hefja
framkvæmdir. Þetta gæti nú vart
endurtekið sig nema með miklum
eftirmálum þvi að nýju lögin
leggja blátt bann við þvi að prent-
aður sé minnsti seðill þar sem
stungið væri upp á þvilikum
aðgerðum eða um þær rætt i
jákvæðum tón.
Hvatning til setuverkfalls getur
á sama hátt orðið ólöglegt ef hægt
er að sýna fram á að af þvi stafaði
eitthvert tjón á munum eða öðru
hlutkenndu. tam. framleiðslu.
Hægri bylgja
Rikisstjórn jafnaðarmanna og
frjálslyndra er að undirbúa sig
undir þingkosningar að hausti
komanda og nú er um að gera að
sýna að hún vilji efla „lög og
rétt”. Þessvegna flytur hún svona
lagafrumvarp. enda lá fyrir
sviðað frumvarp frá kristilegum
sem nú eru i stjórnarandstöðu.
Svo virðist vera sem stóru flokk-
arnir vilji allir láta hægri
strauma halda sér uppi.
Óvissa i efnahagsmálum er
önnur orsök til þess að yfirvöldin
vilja ýta undir imyndanir um
óvini þjóðfélagsins til þess að
Framhald á bls. 14.