Þjóðviljinn - 06.04.1976, Side 6
« StÐA — ÞJÓDVILJÍN'N Þriðjudagur 6. april 1976.
Kambodja
Síhanúk segir af
Seni Pramoj bar sigurorð af
bróður sinum Kukrit i kosn-
ingunum i Thailandi og vcrður
væntanlega arftaki hans i
stjórnar-forys tu.
Thailand
Stjórnin
féll í
kosn-
ingum
Bangkok 5/4 reuter — Þing-
kosningar fóru fram um helgina i
Thailandi. Þar urðu þau óvæntu
úrslit aö forsætisráðherra
landsins, Kukrit Pramoj féll i
kjördæmi sinu og komst þvi ekki
aftur á þing.
Ötviræður1 sigurvegari kosning-
anna var eldri bróðir forsætis-
ráðherrans, Suni Pramoj, en
flokkur hans sem var stærstur
flokka á þingi jók forystu sina.
Hlaut flokkur Sunis, Sósialdemó-
kratar, 115 sæti af 279 á þinginu.
Þrátt fyrir nafnið segir i frétta-
skeytum að fiokkurinn sé ,,hóf-
samur ihaldsflokkur”
Hangkok 5/4 rcuter — Norodom
Sihanúk prins i Kambodju hefur
sagt af sér embætti sem þjóðar-
leiðtogi lands sins. Þetta var til-
kynnt i útvarpssendingu frá
Pnom Penh þar sem prinsinn og
Khieu Samphan aðstoðarfor-
sætisráðherra ávörpuðu þjóðina.
Samphan sagði að Sihanúk
hefði beðiðum lausn frá embætti
„til þess að helga tima sinn fjöl-
skyldulifinu”. Hefði rikisstjórnin
orðið við beiðni hans með harm i
huga. Sihanúk fengi 8 þúsund
dollara á mánuði i lifeyri frá
rikinu og myndi lifa eins og aldr-
aður leiðtogi sem hefur dregið sig
i hlé.
Sihanúk sagðist hafa ákveðið
það fyrir sex árum eftir að honum
var steypt af stóli af leppum
bandarikjastjórnar að „draga sig
algerlega og endanlega i hlé frá
stjórnmálum” þegar valda-
ræningjunum hefði verið ýtt i
burtu og nýtt byltingarskeið hafið
i landinu. Kvað hann allar óskir
sinar hafa ræst þegar hersveitir
Norodom Kihunúk fyrrum þjóðar-
leiðtogi Kambodju.
sér
rauðu khmeranna báru sigurorð
af leppstjórn Lon Nols fyrir ári.
SJhanúk kvaðst myndu verja
Kambodju og málstað þess hvar
sem væri og fyrir hvers kyns
árásum.
Afsögn Sihanúks verður tveim
vikum eftir að kosið var til
fuiltrúaþings alþýðunnar i Kam-
bodju. Vestrænir fréttamenn
búast við þvi að i kjölfar hennar
muni fylgja mikilvægar ákvarð-
anir, þám. að þingið skipi nýja
stjórnog forsætisráð sem taki við
hlutverki Sihanúks.
Fylkiskosningar í Vestur-Þýskalandi
Hægriöflin unnu á
Bonn 5/4 reuter — Um helgina
var kosið til fylkisþings i
Baden-VVurtemberg i
Vestur-Þúskalandi. Kristilegir
demókratar höfðu fyrir hreinan
meirihluta á þinginu en juku
samt við hann i kosningunum.
Stjórnarflokkarnir töpuðu báðir
fylgi-
Endanleg úrslit kosninganna
urðu þessi (tölur frá
kosningunum 1972 i svigum):
Kristilegir demókratar 56.7%
atkvæða (52.9%) og 71 þingsæti
(65), Sósialdemókratar 33.3%
(37.6%) og 41 þingsæti (45),
Frjálsir demókratar 8.9%
(7.8%) og 9 þingsæti (10).
Kristilegir unnu þvi 3.8% en
stjórnarflokkarnir töpuðu 5.4%
samanlagt. Niu flokkar til við-
bótar buðu fram en engum
þeirra tókst að ná þvi eina
prósenti sem þarf til að koma
manni að.
Þessi kosningaúrslit eru
mikið áfall fyrir stjórn Helmuts
Schmid. Kosningar verða til
sambandsþingsins i Bonn 3.
október nk. og ef þróunin verður
svipuð og i þessum kosningum
tapar hún meirihluta og kristi-
legir taka við stjórnar-
taumunum.
Fyrirfram var talið að þessar
kosningar gæfu skýra vis-
bendinguum úrslit kosninganna
ihaust. Þær fóru fram i skugga
efnahagslegs samdráttar og
mikils atvinnuleysis.
Baden-Wurtemberg er mikið
iðnaðarhérað og þvi má ætla að
verkalýðsfylgi sósialdemókrata
hafi hrökklast frá þeim vegna
ástandsins. Enda töpuðu þeir
fylgi i mörgum borgum sem
þeir stóðu traustum íótum 1972.
Þær raddir hafa einnig orðið
æ háværari innan miðflokksins
Frjálsir demókratar um að
samstarfið við sósialdemókrata
sé orðið flokknum fjötur um fót
og nær væri fyrir hann að opna
þá glugga sem snúa til hægri.
Eftir þessi úrslit má búast við
að þessum öflum vaxi fiskur
um hrygg innan FDP.
Bretland
Callaghan forsætisráðherra
Talið er vist að Suni Pramoj
verði falið að mynda nýja stjórn.
Mun hann eflaust leita til annarra
ihaldsflokka ogeru Þjóðarflokkur
Thailands (Chart Thai) með 56
þingsæti og Félagslegi réttlætis-
fiokkurinn með 28 þingsæti taldir
liklegastir til samstarfs.
Kosningarnar eru mikið áfall
fyrir Félagslega framkvæmda-
flokkinn sem Kukrit er formaður
fyrir. Hann tapaði stjórnarforyst-
unni, nokkrum þingsætum og
sennilega formanninum þvi
Kukrit kvaðst hafa það til alvar-
legrar ihugunar að draga sig
alveg i hlé frá stjórnmálunum.
Stjórn hans var samsteypu-
stjórn sjö flokka og gekk sam-
starfið heldur stirðlega, einkum
upp á siðkastið. Vegna óeiningar-
innar innan stjórnarinnar ákvað
Kukrit að slita störfum þingsins
og efna til nýrra kosninga þótt að-
eins 15 mánuðir hafi verið liðnir
af kjörtimabili hans.
Ástæðan fyrir falli Kukrits er
talin vera óánægja hersins og
hægri aflanna með samninga
hans við Bandarikin um að þau
verði á brott með allan sinn her-
styrk úr landinu og svo sundur-
lyndið innan stjórnarinnar sem
gerði honum oft erfitt fyrir.
London 5/4 reuter — Eins
og viö hafði verið búist
varð James Callaghan
utanrikisráðherra hlut-
skarpastur í kosningum
Verkamannaflokksins um
formann og um leið for-
sætisráðherra. Hann hlaut
176 atkvæði í þriðju og síð-
ustu umferð kosninganna
en Michael Foot atvinnu-
málaráðherra hlaut 137.
Sigur Callaghan varð meiri en
menn höfðu ætlað. Hann bætti við
sig 35 atkvæðum frá annarri um-
ferð en Foot aðeins fjórum. Samt
sem áður er litið á árangur þess
siðarnefnda sem áþreifanlegan
vott um það hve öflugur vinstri-
armur flokksins er orðinn. Með
honum hefur Foot tryggt sér mik-
il áhrif á stefnu flokksins í fram-
tiðinni.
Að úrslitunum fengnum til-
kynnti Callaghan að hann færi
þess á leit við Denis Healey að
hann fari áfram með embætti
fjármálaráðherra með „fullt um-
boð til að ganga að verðbólgunni
dauðri.” Healey hefur verið harð-
lega gagnrýndur af vinstrimönn-
um i flokknum. A morgun, þriðju-
dag, á hann að leggja fram á
þingi frumvarp til nýrra fjárlaga.
Callaghan hvatti flokksmenn
Lissabon 5/4 reuter — Hiti er nú
farinn að færast i kosningabarátt-
una i Portúgai en þær eiga að fara
fram 25. april nk. þegar tvö ár
vcrða liðin frá þvi herinn tók
völdin í landinu.
sina til að standa saman og átaldi
jafnframt „klikumyndanir” inn-
an flokksins. Þar á hann við Tri-
bune-hópinn sem/«r mjög áhrifa-
rikur á vinstri kantinum og sam-
tök hægrimanna sem nefna sig
Manifestohópinn.
Það er ekki glæsilegt þjóðfé-
lagsástand sem blasir við hinum
nýja forsætisráðherra, þeim 50. i
sögu Bretlands. Sterlingspundið
Til átaka kom á eynni Madeira i
gærkvöldi og særðust tveir menn
skotsárum. Lögreglan beitti tára-
gasi þegar mannfjöldi réðst með
grjótkasti á útifund sem hinn
ihaldssami Miðdemókrataflokkur
hefur aldrei lotið lægra á gengis-
töflum, verðbólgan hamast, at-
vinnuleysi er meira nú en um
áratugaskeið og iðnaðurinn er i
miklum öldudal.
Callaghan var samt bjartsýnn i
dag og sagði að ef flokkurinnstæði
einhuga að baki stjórn hans væri
engin þörf á að efna til nýrra
kosninga fyrr en árið 1979 þegar
kjörtimabilið rennur út.
efndi til. Einnig særðust margir i
átökum sem urðu viðsvegar um
meginlandið um helgina.
Allir flokkarnir sem bjóða fram
til þings — 14 að tölu — hugðust
efna til kosningafunda hér og þar
um landið i kvöld og óttuðust
menn að til átaka kæmi.
Costa Gomes forseti lýsti þvi
yfir sl. föstudag fyrir hönd bylt-
ingarráðs hersins að kosninga-
baráttan væri formlega hafin.
Kvað hann kosningarnar eiga að
vera algerlega frjálsar og myndi
hernum verða beitt til að tryggja
það.
Það hefur farið i taugarnar á
mið- og hægriöflum landsins að i
stjórnarskrá sem landinu var sett
á föstudaginn segir að Portúgal
skuli verða sósialiskt riki og völd
verkalýðs tryggð. Óttast ýmsir
vinstrimenn að hægrimenn hyggi
á aðför að stjórn landsins i þvi
skyni að ,,má burt orðið sósial-
ismi” eins og einn komst að orði.
1 kosningunum bitast 14fIokkar
um 250þingsæti. 1 skoðanakönnun
sem birt var i Lissabon i gær er
þvi spáð að sósialistar hljóti mest
fylgi, fast á hæla þeirra komi lýð-
demókratar, þá miðdemókratar
og að kommúnistaflokkurinn
verði sá fjórði stærsti i landinu.
Fréttaritið TIME:
ísrael á kjarnasprengjur
Washington 5/4 reuter ntb —
Bandariska vikuritið Time
skýrir frá þvi í dag að israelar
liafi i upphafi oktöberstriðsins
1973 haft til reiðu 13 kjarnorku-
sprengjur svipaðar að stærð og
þær sem grönduðu japönsku
borgunum Hiroshima og Naga-
saki árið 1945.
Að sögn blaðsins voru
sprengjurnar settar saman á
fyrstu 78 klukkustundum striðs-
ins i miklum flýti. Þá höfðu
egyptar komið israelska
hernum i opna skjöldu við Súes-
skurð og sýrlendingar sóttu af
miklum þunga niður hliðar
Gólanhæða.
Fyrstu dagana biðu israelar
mikið afhroð i striðinu og að
sögn blaðsins gaf Golda Meir
þáverandi forsætisráöherra
skipun um samsetninguna eftir
að Moshe Dayan þáverandi
varnarmálaráðherra hafði gefið
henni skýrslu um dapurlegt
ástand á vigstöðvunum.
Að sögn Time voru sprengj-
urnar settar um borð i flugvélar
sem biðu þess albúnar að fara
með þæri loftið og varpa þeim á
óvinaherina. Aður en til þess
kom tókst israelum að rétta hlut
sinn á vigstöðvunum og stöðva
sókn óvinaherjanna.
— Þá voru sprengjurnar 13
flutlar i vopnabúr i Sinaieyði-
mörkinni þar sem þær eru enn i
dag tilbúnar til notkunar, segir
Time. Þeirra erstranglega gætt
ogað sögn blaðsins reyndu isra-
elar eitt sinn að skjóta niður
bandariska njósnaflugvél sem
nálgaðist geymslusvæðið.
Sprengjunum má skjóta frá
orrustuþotum af gerðunum
Phantom og Kfir og einnig má
koma þeim fyrir i Jerico eld-
flaugum sem israelar smiða.
Israelsir embættismenn
visuðu frétt blaðsins á bug i dag
og kváðu hana vera hugarburð,
tsrael væri ekki kjarnorkuriki
og myndi aldrei verða fyrst til
að beita slikum vopnum i striði.
Þetta er þó ekki i fyrsta sinn
sem fréttir berast af israelskum
kjarnorkuvopnum þvi i fyrra
báru CIA-agentar það við yfir-
heyrslur að israelar ættu 10-20
slikar sprengjur i fórum sinum.
Portúgal
Kosningabaráttan hafin