Þjóðviljinn - 06.04.1976, Síða 7
Þriðjudagur 6. april 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Athugasemd frá BHM:
Enginn endnrskoðun
arréttur fylgi sanrn-
ingsrétti BSRB
Vegna takmarkaðs frétta-
flutnings rikisfjölmiðlanna
undanfarið um samninga-
viðræður opinberra starfsmanna
og rikisins um samningsrétt,
telur Bandalag háskólamanna
nauðsynlegt, að eftirfarandi komi
fram:
BHM hefur frá þvi i nóvember
s.l. átt viðræður við samnings-
réttarnefnd rikisins um
samningsrétt opinberra starfs-
manna. Slitnað hefur upp úr
þessum viðræðum. Meginorsök
þess er sú, að BHM telur að drög
þau, sem samkomulag hefur
orðið um milli BSRB og rikisins
séu óaðgengileg og feli i heild ekki
i sér framför frá núgildandi
lögum.
Helstu gallar þessa samkomu-
lags eru eftirfarandi:
Samningstimi er lögbundinn.
Gert er ráð fyrir, að hann verði
mjög langur eða tvö ár og er aug-
ljóst, ef litið er á þróun siðustu
árin, að slikt er nánast ófram-
kvæmanlegt nema tryggður sé
einhver endurskoðunarréttur á
samningstimabilinu, Slikan
endurskoðunarrétt hafði
samningsréttarnefnd rikisins
boðið, en féll siðan frá þvi tilboði
á siðustu stundu.
Þá var gert ráð fyrir, að mjög
fjölmennur hópur hefði ekki verk-
fallsrétt og auk þess heimilt að
svipta enn fleiri þeim rétti, ef
þurfa þætti. Hefðu þannig heil
félög innan BHM nánast verið án
þeirra réttinda, sem um var verið
að semja.
Enn eb i samkomulaginu gert
ráð fyrir skerðingu á lifeyrissjóði
opinberra starfsmanna.
Loks er endurskoðun laga um
réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna frestað, en það er
eindregin skoðun BHM, að nauð-
synlegt sé að endurskoða þau lög
um leið og lög um kjara-
samninga.
Núgildandi lög um kjara-
samninga opinberra starfsmanna
munu þvi fyrst um sinn gilda um
félagsmenn BHM, en samninga-
viðræður um lagasetningu um
samningsrétt þeirra verða
væntanlega teknar upp fljótlega.
Öryrkja banda-
lagið veitir
lögfrœðilega
þjónustu
öryrkjabandalagið hefur opnað
skrifstofu á 1. hæð i tollhúsinu við
Tryggvagötu i Reykjavik.
Skrifstofunni er ætlað að veita
öryrkjum aðstoð i lögfræðilegum
efnum og verður fyrst um sinn
opið kl. 10—12 fyrir hádegi.
Halldór S. Rafnar veitir umrædda
þjónustu.
Ráðleggingar og smærri fyrir-
greiðslur eru veittar ókeypis, en
ef um málarekstur fyrir dóm-
stólum verður að ræða þarf að
semja við Halldór um greiðslur.
Simi skrifstofunnar er 26405.
Umboðsmenn Þjóðviljans sjá um að dreifa blaðinu hver i sinni byggð, annast innheimtu áskriftargjalda, gera upp við blaðsölu- staði. Nýir áskrifendur gjöri svo vel aðsnúa sér til þeirra. UMBOÐSMENN ÞJÓÐVILJANS Umboðsmenn Þjóðviljans á Norðurlandi vestra BLÖNDUÓS Sævar Snorrason Hliðarbraut 1 s. 4122,4270 HOFSóSGisli Kristjánss. Kárastig 16 s. 6341 SAUDAIÍKRóKURHrefna Jóhannesd. Freyjugötu 21 s. 5174 SIGLUFJöRÐURHlöðver Sigurðss. Suðurgötu 91 s. 71143 Umboðsmenn Þjóðviljans á Norðurlandi eystra AKUREYRiHaraldur Bogason Norðurgötu 36 s. 11079 DALVIK Hjörleifur Jóhannss. Stórhólsv. 3 s. 61237 HRÍSEY Vilhjálmur K. Guðjónss. Sólvallag. 3 s. 61739 HÚSAVIK Sigmundur Eiriksson Uppsalav. 30 s. 41572 óLAFSFJöRÐURAgnar Viglundss. Kirkjuv. 18 s. 62297, 62168 RAUí'ARHöFNAngantýrEinarss. skólastj. s. 51125
GESTIR
Hvað, sagöi ég ekki? Þau eru Það erum bara viö, mamma. Alfred vildi koma með á endanum.
reið okkur cnn.
Jú, vist höfum við sést áður, ég gleymi aldrei kjól sem ég sé einu Þetta var rétt hjá þér, mamma,
sinni. hún er ekki enn búinn að búa um
rúmin...
Forritun
Skýrsluvéladeild Sambandsins óskar
eftir að ráða starfsmann til forritunar-
starfa. Fjölbreytt viðfangsefni á sviði
nútima tölvuvinnslu. Þekking á ein-
hverju eftirtalinna forritunarmála
æskileg:
RPGII — COROL — Assembler.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra
fyrir 10. april n.k. og verður farið með
þær sem trúnaðarmál.
Starfsmannahald
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
L-____________-_____________________Lá
F ramreiðslumenn
Aðalfundur félags framreiðslumanna
verður haldinn á morgun, miðvikudaginn
7. april kl. 14.30 að Óðinsgötu 7.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál.
Stjórnin
Sjúkraliðar
Aðalfundur Sjúkraliðafélags íslands
(SLFÍ) verður haldinn miðvikudaginn 7.
april 1976 i Lindarbæ.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreytingar
3. önnur mál.
Mætið öll vel.
Stjórnin
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i að byggja og gera fokhelt
dvalarheimili aldraðra á Dalvik
(Rúmmál fyrsta áfanga er ca. 7000 rúm-
metrar). Útboðsgögn verða afhent hjá
undirrituðum og á teiknistofu Karls-Erik
Rocksén Skipholti 1, Reykjavik gegn
20.000 kr skilatryggingu. Tilboð verða
opnuð hjá undirrituðum fimmtudaginn 29.
april kl. 14.00
Verkfræðistofa Daviðs Arnljótssonar
Stórhólsvegi 4, Dalvik,
simi 96-61334
* 1
Innilegar þakkir vottum við öllum þeim
sem sýnt hafa samúð og vinarhug i veik-
indum og við fráfall
Jóhanns Ó. Eliassonar
húsgagnabólstara
Hulda Guðmundsdóttir
og fjölskylda.
——■■ i