Þjóðviljinn - 25.04.1976, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.04.1976, Blaðsíða 5
Sunnudagur 25. aprn 1976 þjóÐVILJINN — SIÐA 5 Seinni hlutinn af Emanueile auglýstur i Paris — Giscard fann upp auðlindaskatt. Sigurför klámsins Kláingata i San Fransisco; áður var hneykslast á hinni sósial- demókratisku spiliingu á Norðurlöndum. Mótmælafundur gegn klámi i Los Angeles Mafian átti fatafellustaðina, nú leggur hún undir sig klámkvik- myndirnar. Þeim borgum og löndum hefur fjölgað mjög ört á undanförnum árum þar sem klám ýmislegt er leyft: í prentaðri frásögn fyrst, þá á Ijósmyndum, síðan kvikmyndum og „lif- andi sýningum", m.ö.o. opinberum samförum i þar til innréttuðum klúbbum. Og um leið og ein bann- helgi eftir aðra hefur verið brotin niður, hafa margir gerst langleitari, jafnvel þeir sem telja að klám sé í sjálfu sér ósköp meinlaust til einkabrúks eru orðnir leiðir á því að fá ekki að vera í friði fyrir klámi. Sem sagt: liðnir eru þeir dagar þegar Kaupmannahöfn og Amsterdam voru taldar mjög freistandi borgir fyrir klámfúsa ferðalanga úr Ameriku eða úr hinni kaþólsku Suður-Evrópu. Eitt af þvi sem Giscard forseti gerði i Frakklandi var að aflétta banni á klámmyndum — um leið og hann fann það snjallræði að leggja sérstakan skatt á slikar kvikmyndir. Gárungar segja, að þar hafi frakklandsforseti fundið þann auðlindaskatt sem aldrei bregðist. Hin bandariska bylting Ekki sist hafa róttækar breytingar orðið i Bandarikjun- um. Þar voru lengi i gildi lög og samþykktir, runnin undan rifjum kvenfélaga og trúfélaga margs- konar, sem var ekki aðeins stefnt gegn þvi sem almennt telst klám. heldur fyrirskipuðu þessar reglur beinlinis margskonar tepruskap og hræsni i meðferð ástamála. Menn muna vel þá tiö, þegar ekki var i Hollywoodkvik- myndum leyft aö sýna karl og konu i svefnherbergi (jafnvel þótt þau ættu að heita gift) nema að náttborð væri á milli rúma þeirra. Þetta var allt að fyrir- skipan siðgæðisvarða. Það var af sömu sökum, að merkar skáld- og bakþankar um skaðsemi þessa mesta gróðavegar viöskiptalífsins, klámiðnaðarins sögur eftir D.H. Lawrence og James Joyce komust ekki inn i Bandarikin, nema þá sem smygl- varningur. En nú er semsagt önnur öld. Allar meiriháttar borgir eiga sér nú götur og hverfi þar sem úir og grúir af útsölustöðum klám- iðnaðarins, og i mörgum tilvikum leitar þessi sölumennska út fyrir „rauða” hverfið og reynir að koma sér fyrir út um allar trissur rétt eins og bakarl eða tóbak- sjoppur. 780 kvikmyndahús. sum stór og glæsileg, gera ekkert annað en að sýna „harðar” klám- myndir allan ársins hring. Til dæmis um „félagslegan móttæki- leika” klámsins er það nefnt, að sumir þeir folar sem þykja bera af i leik i klámmyndum eiga sér tugi aðdáendaklúbba um allt land, rétt eins og áður höfðu hollywoodstjörnur eða poppkóng- ar. Firnalegur gróði Þetta hefur gerst vegna þess að lög hafa verið rýmkuð aðimiklum mun, og þau lagaákvæði sem enn mætti beita til að hefta klámið að nokkru eru svo óljós, að flest mál sem höfðuð eru, daga einhvers staðar uppi. En að sjálfsögðu flýt- ir það mest fyrir útbreiðslunni að gróðinn af klámiðnaðinum er gifurlegur, og er hann talinn vera núna a.m.k. 2.000 miljónir dollara. Átta millimetra klámkvik- myndir, sem kostar einn til tvo dollara að framleiða (eintakið) eru siðan seldar á 16 dali, og getur hver sem er reiknað út ágóðapró- sentuna. Gægjumaskiria', sem sýnir þeim forvitna tvær minútur af klámi fyrir 25 sent, eða tólf minútur fyrir 1,50 dollara, getur skilað 10 þúsundum dollara á ári (1,7 miljónum króna) — og i flest- um klámsjoppum eru nokkur stykki af slikum vélum. Lengri klámmynd til sýninga i kvik- myndáhúsi er hægt að gera fyrir 15—50 þúsundir dollara, en hagnaður getur skipt miljónum. Og iðnaðurinn vex og vex. Feðg- ar, sem stofnuðu litla fabrikku fyrir tiu árum, sem framleiðir gervityppi allskonar, hafa nú framleitt um fimm miljónir stykkja og salan á þeim og öðrum kynferðisvarningi hefur aukist um 27% á hverju ári. Og nú er farið að leggja miklu meira i leiknar klámmyndir en fyrr, hálf miljón dala var t.d. lögð i mynd sem heitir.náttúrlega, Sódóma og Gómorra Eins og að likum lætur er Mafi- an komin i þetta spil. Hún átti hér áður fyrr nektardansstaði og nuddstofur, en er komin á kaf i klámkvikmyndirnar, eins og bú- ast mátti við þegar um svo arð- vænlega iðngrein er að ræða. Gagnsemi kláms? Um leið og þessu öllu fer fram harðna mjög kappræður um það, hver séu eiginleg áhrif kláms á neytendur þess. Lagagreinár ýmsar hafa verið mildaðar, m.a. vegna umsagna sálfræðinga og annarra sérfræðinga, sem telja klám skaðlaust til privatbrúks, og jafnvel gagnlegt að vissu marki. Það er t.d. um það talað, að klám geti verið einskonar öryggisventill á hættulegar til- hneigingar, og uppbót fyrir þá sem eru dæmdir til að „tapa i kynferðisleiknum” — þá sem feimnir eru, ófriðir, örkumla osfrv. Ýmsir þeirra, sem. hafa þann starfa að veita fólkí ráð- leggingar um kynferðismál, segj- ast hafa hjálpað mörgum hjónum sem áttu i erfiðleikum, vegna þess að hún eða hann voru hrædd við kynferðislifið, með þvi að syna þeim klámmyndir. Þær brytu niður ýmsar hömlur og sannfærðu fólkið um að fleira væri eðlilegt og sjálfsagt i kynlifi en það hafði áður talið. Kvalalosti En nú kemur að andófi gegn klámi. Margir benda á það, að eftir þvi sem klámiðnaðurinn brýtur niður fleiri bönn, eftir þvi verði áherslur allar ógeðfelldari og háskalegri. Sifellt fer fjölgandi kvikmyndum og blöðum, sem sýna samfarir við dýr, eða þá börn, en einkum og sérilagi magnast það klám, sem tengir kynhvötina ofbeldi, kvalakosta. Margir þeirra sem fylgjast með þróuninni telja, að klámiðnaður- inn sýni i vaxandi mæli og magni fjandskap aðila kynferðislegs sambands. Þetta kemur einkum og sérilagi fram i kvikmyndum þar sem karlar, oft hópum saman, nauðga og misþyrma konum á ýmsan hátt, og kannski lýkur þeirri undarlegu skemmtan með þvi, aö konan er brytjuð i spað með ferlegasta hætti. Það bætir gráu ofan á svart, segir jafn- réttisfólk, að jafnan er svo látið i þessum kvikmyndum sem konur hafi alveg sérstaka ánægju af þvi að vera pindar og auðmýktar. Og menn halda áfram að spyrja: ef „venjulegar” klám- myndir geta hjálpað hversdags- fólki til að viðurkenna kynhvöt sina og telja hana sjálfsagða — „Nú þurfum við ekki lengur að geta kvalalostamyndirnar þá ekki allt eins (i staðinn fyrir að vera öryggisventill á þá sem hafa tilhneigingar i þá átt) orðið eins- konar hvati á þá? Sannfært þá um að þeirra tilhneigingar séu einnig sjálfsagðar til framkvæmdar? Þaö kann að reynast erfitt að sanna eitthvað óumdeilanlega i þessum efnum. En hitt vita menn, að þegar t.d. mikið er sagt i blöðum frá lostamorði sem framið hefur verið, er eins liklegt að runakomi af svipuðum glæpum eða tiiraunum til að fremja þá; það er sem eitt atvik leysi hömlur af öðru. í friöi fyrir klámi Hér við bætist að sjálfsögðu gagnrýni. sem segir að klám sé dæmi um upplausn siðferðilegra verðmæta, niðurlægingu manns- fara til Amsterdam". ins. Enn aðrir segja. að klám sé að þvi leyti skaðlegt fyrir ung- linga, að þar eð lýst eða sýnd eru svo feiknaleg afköst i samförum. að óreyndir táningar fái af öllu saman rammfalsaða mynd af raunveruleika ástalifsins og verði fyrir miklum vonbrigðum með sjálfa sig og mótaðilann þegar tii ieiksins kemur. Það má þá heldur ekki gleyma þeim andbárum. að jafnvel þótt menn viðurkenni rétt annarra til að nota klámvarning heima hjá sér, þá hafi aðrir rétt til að vera i friði fyrir klámi. Hér er átt við að sölumennskan gerist æ áleitnari og frekari i útstillingum sinum; það er ekkert spaug, segja menn, ef menn geta ekki spásserað um með afkvæmi sin án þess að við blasi úr hverjum blaðsölustað feiknarlegar stóðlifsmyndir i lit- um. (ab tók samati)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.