Þjóðviljinn - 25.04.1976, Blaðsíða 9
Sunnudagur 25. aprn 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 9
Skipiii eru oft aö hálfu mönhuö meö bengölum og afrfkumönnum, sem fá þriöjung af kaupi hinna hvitu
eöa minna. Andrúmsloftiö er lævi blandiö.
er
Rómantíkin
gufuð
upp
Líf farmanna
verður æ
leiðinlegra og
ömurlegra
Hcr áður fyrr var það mjög eft-
irsótt aö komast i siglingar.
Mörgum var það eina leiöin tii aö
sjá sig um i heiminum eins og þáö
heitir. Fullnægja ævintýrahvöt-
um. Auk þess var oft ekki margra
kosta völ fyrir unga menn á at-
vinnuleysistimum — kannski var
reynandi að biöa af sér kreppuna
á sjó.
Harka og djÖfulskapur — einnig þegar veriö er aö „skfra ” nýliöa sem
fer yfir miöjaröarlinuna.
Þriðji hver
þeldökkur
En nú er öll rómantik farin af
farmennskunni og ber margt til.
Svo að dæmi sé tekið af Vestur-
Þýskalandi (en ástandið er svip-
að i fleiri löndum), þá er þriðji
hver maður um borð i þýskum
farskipum nú útlendingur. Og i
mörgum tilvikurh eru tveir af
hverjum þrem undirmönnum út-
lendingar. Og þetta gerist, vel á
minnst, meðan 130 þúsund þýskir
ungir menn innan við tvitugt
ganga atvinnulausir. Nýjasta úr-
ræði þýskra skipafélaga er að
reka sjómannaskóla i fátæktar-
bælum eins og Bangladesh eða
Gilberteyjum, sem eru bresk ný-
lenda i Kyrrahafi. Þessi skóla-
rekstur reynist mjög hagkvæmur
útgerðinni eins og siðar mun rak-
ið.
En áður en lengra er haldið: af
hverju er farmennskan svona ó-
vinsæl. Af hverju vilja menii
heldur hanga á atvinnuleysis-
styrk i landi en fara til sjós? Af
hverju eru meira að segja yfir-
menn á verslunarflotanum á bið-
lista i Hamborg eftir tollþjóna-
störfum o.s.frv.?
Enginn tími
í kærustur
t fyrsta lagi er útivistin löng frá
fjölskyldu og vinum — og hún hef-
ur lengst. Það er ekki lengur timi
fyrirhina margrómuðu „kærustu
i hverri höfn” vegna þess að
tæknibúnaði hafna og skipa fleyg-
ir fram; það tekur kannski ekki
nema svosem einn dag að dæla
upp úr oliuskipi eða losa gámu-
skip. Þessi vandi hefur ýmsar
hliðar: fyrir skömmu barst borg-
arstjórninni i Bremen kvörtun
sár frá gleðikonum þar i bæ, sem
töldu sig hafa orðið fyrir mikilli
kjararýrnun vegna styttri við-
dvalar erlendra skipa.
t öðru lagi eru laun tiltölulega
lág. Háseti vinnur (aftur er miðað
við þýsk skip) fyrir álika háu
kaupi og ófaglærður verkamaður
i landi — að visu hefur hann þá
fritt fæði og húsnæði að auki.
Yfirmenn telja sig einnig afskipta
miðað við hliðstæðar starfsgrein-
ar i landi.
Derringur og
brennivín
Þá er mjög kvartað yfir afleitu
andrúmslofti um borð. Þvi á tim
um þegar rafeindatækni og sjálf-
virkni eru sjálfsagður hlutur,
rikja einatt um borð hinir grófu
siðir seglskipaaldar — sem menn
fengu nokkurn smjörþef af i hin-
um endalausu þáttum um
Onedinfjölskylduna. Sem fyrr er
mikiö djúp staðfest milli yfir- og
undirmanna, i matsal sem ann-
arsstaðar. Skipstjórarnir eru aö
visu ekki eins almáttugir og þeir
áður voru, en mjög algengt er að
þeir hagi sér i brúnni eins og
vasaútgáfur af guði almáttugum.
Vegna þeirrar trúar sinnar að
,,mynd” þeirra muni biða hnekki
ef að þeir láti svo litið sem tala
við undirmenn eins og jafningja. t
blaðinu Stern, en þaðan eru þess-
ar upplýsingar flestar teknar,
fylgir saga af þvi, að fimm háset-
ar höfðu einhverju sinni splæst i
jólagjöf handa „kallinum”, en jól
hélt skipshöfnin i hafi. Skipstjóri
lét hinsvegar ekki svo litið að
sýna sig áhöfninni á jólum. I
næstu höfn fóru þeir fimmmenn-
ingar allir af skipinu.
Misréttið um borð, þrengslin,
andrúmsloftið, skammirnar —
allt þetta brýst fram i feiknalegri
brennivinsdrykkju. Bæði hjá yfir-
og undirmönnum. Sjóslys nú á
dögum eru liklega enn meira
tengd ölvun en bilslys. Sagt er
dæmi af þvi að fyrir sjórétt i
Hamborg einni hafi á sl. 10 árum
komið 60 mál — strönd, árekstr-
ar, ikveikjur og manndráp, sem
öll voru tengd stórtækum fylliri-
um. Tilbreytingaleysið um borð
veldur þvi oft, að hvaða smámun-
ir sem er geta snúist upp i hörku-
slagsmál með misþyrmingum.
Unglingar sem koma um borð
sem hjálparkokkar o.þ.h- lenda
stundum i þeim skelfingum að
þeir gripa til örþrifaráða. 17 ára
unglingur frá Bremen kveið svo
fyrir þvi að fara út aftur með
þeim jöxlum sem voru honum
Framhald á bls. 18.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
KLEPPSSPÍTALINN
SÉRFRÆÐINGUR i geðlækning-
um óskast til starfa á spitalann frá
1. júni n.k.
Umsóknir, er greini aldur, náms-
feril og fyrri störf, ber að senda
stjórnarnefnd rikisspitalann,
Eiriksgötu 5, fyrir 20. mai n.k.
LANDSPÍTALINN
AÐSTOÐARMATRAÐSKONA ósk-
ast til afleysinga i sumar. Próf frá
húsmæðrakennaraskóla nauðsyn-
legt. Vinna hluta úr fullu starfi
* kemur til greina. Upplýsingar veit-
ir yfirmatráðskonan, simi: 24160.
LJÓSMÆÐUR óskast til afleysinga
i sumar á fæðingargang fæðingar-
deildar. Nánari upplýsingar veitir
yfirljósmóðirin.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR ósk-
ast til afleysinga i sumar á hinar
ýmsu deildir. Vinna hluta úr fullu
starfi kemur til greina. Upplýsing-
ar veitir forstöðukonan, simi:
24160.
SJÚKRALIÐAR óskast til sumar-
afleysinga á hinar ýmsu deildir.
Nánari upplýsingar veitir for-
stöðukonan, simi: 24160.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR ósk-
ast nú þegar eða eftir samkomu-
lagi á Geðdeild Barnaspitala
Hringsins. Upplýsingar veitir
hjúkrunarstjórinn, simi: 84011.
FóSTRA óskast nú þegar eða eftir
samkomulagi á Geðdeild Barna-
spitala Hringsins. Upplýsingar
veitir hjúkrunarstjórinn, simi:
84011.
KÓPAVOGSHÆLIÐ
VINNUMAÐUR óskast til starfa á
lóð hælisins i sumar. Nauðsynlegt
er að viðkomandi sé vanur algeng-
um bústörfum svo og vinnuvélum
og geti hafið störf helst 1. mai n.k.
Nánari upplýsingar veitir
bústjórinn i sima 42055 kl. 7—8
næstu kvöld.
Reykjavik, 23. april 1976.
SKRIFSTOFA
RlKISSPlTALANNA
EIRlKSGÖTU 5, SÍM111765
Frá barnaskólum
Reykjavíkur
Innritun 6 ára barna (þ.e. barna, sem
fædd eru á árinu 1970) fer fram i barna-
skólum borgarinnar mánudaginn 26. og
þriðjudaginn 27. april n.k., kl. 17—18 báða
dagana.
A sama tima þriðjudaginn 27. april fer
einnig fram i skólunum innritun þeirra
barna og unglinga, sem flytjast milli
skóla.
Fræðslustjóri.