Þjóðviljinn - 17.06.1976, Page 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. júni 1976
t þessu húsi hefur hreinsunar-
deild Reykjavikurborgar ahstöhu
og sjáift umhverfiö.
Sennilega myndi hreinsunar-
deildin skipa öllum öörum en
sjálfri sér aö hreinsa til I sliku
umhverfi.
...rusl, rusl
....og meira rusl
\
„Maður
líttu
þér
nœr”
17JUNI 1976
Þjóöhátíb Reykjavíkur
DAGSKRA
I. DAGSKRAIN HEFST:
Kl. 09.55 Samhljómur kirkjuklukkna I Reykjavik
Kl. 10.00 Ólafur B. Thors, forseti borgarstjórnar leggur blómsveig
frá Reykvlkingum á leiöi Jóns Sigurössonar I kirkju-
garöinum v/Suöurgötu. Lúörasveit verkalýösins leikur:
Sjá roöann á hnjúkunum háu. Stjórnandi Ólafur L.
Kristjánsson.
II. VIÐ AUSTURVÖLL:
Kl. 10.30 Lúörasveit verkalýösins leikur ættjaröarlög á Austurvelli.
KI. 10.40 Hátlöin sett: Már Gunnarsson, formaöur þjóöhátföar-
nefndar
Karlakórinn Fóstbræöur syngur: Yfir voru ættarlandi.
Söngstjóri Jónas Ingimundarson.
Forseti tslands, dr. Kristján Eldjárn, leggur blómsveig
frá Islensku þjóöinni aö minnisvaröa Jóns Sigurössonar á
Austurvelli.
Karlakórinn Fóstbræöur syngur þjóösönginn.
Ávarp forsætisráöherra, Geirs Hallgrlmssonar.
Karlakórinn Fóstbræöur syngur: tsland ögrum skoriö.
Avarp fjallkonunnar.
Lúörasveit verkalýösins leikur: Ég vil elska mitt land.
Kynnir: ólafur Ragnarsson.
KI. 11.15 Guöþjónusta I Dómkirkjunni. Prestur séra Clfar Guö-
mundsson. Dómkórinn syngur, Ragnar Björnsson leikur á
orgel. Einsöngvari: Guömundur Jónsson.
III. LEIKUR LUÐRASVEITA:
Kl. 10.00 Viö Hrafnistu.
Kl. 10.45 Viö Elliheimiliö Grund.
Barna- og unglingalúörasveit Reykjavíkur leikur. Stjórn-
endur: Páll Pampichler og Stefán Stephensen.
IV. SKRUÐGÖNGUR
Kl. 14.15 Safnastsaman á Hlemmtorgi, Miklatorgi og viö Melaskól-
ann.
Frá Hlemmtorgi veröur gengiö um Laugaveg og Banka-
stræti á Lækjartorg. Lúörasveit verkalýösins leikur undir
stjórn Ólafs L. Kristjánssonar.
Frá Miklatorgi veröur gengiö um Hringbraut, Sóleyjar-
götu, Frlkirkjuveg og Lækjargötu á Lækjartorg. Lúöra-
sveit Reykjavlkur leikur undir stjórn Björns R. Einars-
sonar.
Frá Melaskóla veröur gengiö um Birkimel, Hringbraut,
Skothúsveg, Tjarnargötu, Aöalstræti og Austurstræti á
Lækjartorg. Lúörasveitin Svanur leikur undir stjórn Sæ-
björns Jónssonar.
Skátar ganga undir fánum fyrir skrúögöngunum og
stjórna þeim.
V. BARNASKEMMTUN A LÆKJARTORGI:
Kl. 14.50 Lúörasveitin Svanur leikur.
Kl. 15.00 Samfelld dagskrá:
Stjórnandi Klemenz Jónsson, kynnir GIsli Rúnar Jónsson.
Gunna og Nonni, gamanþáttur, leikendur: Guörún As-
mundsdóttir og Jón Hjartason.
Diabolus In Musica, skemmta meö söng og hljóöfæraleik.
Töfrabrögö og fleira, sýnendur Baldur Brjánsson og Glsli
Rúnar Jónsson.
Tóti trúöur skemmtir, (Ketill Larsen).
Gvendur fer I sveit, gamanþáttur, leikendur: Róbert Arn-
finnsson, Guörún Stephensen og GIsli Alfreösson.
VI. SÍÐDEGISSKEMMTUN A LÆKJARTORGI:
KI. 16.15 Kynnir Gunnar Eyjólfsson.
Kór Menntaskólans I Ilamrahliö syngur. Stjórnandi: Þor-
geröur Ingólfsdóttir.
Dixflandhljómsveit Arna ísleifssonar, ásamt söngkonunni
Lindu Walker skemmta.
Diabolus In Musica flytur nokkur lög.
Hljómsveitin Paradls leikur.
VII. LAUGARDALSSUNDLAUG:
Kl. 15.30 Sundmót.
VIII. MELAVÖLLUR:
Kl. 16.00 17. júnlmótiö I frjálsum Iþróttum.
IX. KVÖLDSKEMMTANIR:
Kl. 21.00 Dansaö veröur á sex stööum I borginni, viö Austurbæjar-
skóla, Breiöholtsskóla, Langholtsskóla, Melaskóla. Ar-
bæjarskóla og Fellaskóla. Skemmtununum lýkur kl. 24.00.
X. HATÍÐARHÖLD I ARBÆJARHVERFI:
Kl. 13.00 Skrúöganga ieggur af staö frá Arbæjarskóla, eftir Rofabæ
aö Arbæjarsafni. Barna- og unglingalúörasveit Reykja-
vfkur leikur undir stjórn ólafs L. Kristjánssonar. Fyrir
göngunni fara skátar, iþróttafólk og hestvagnar.
Kl. 13.30 Samfelld dagskrá:
Formaöur Kvenfélags Arbæjar setur skemmtunina.
Sóknarpresturinn flytur ávarp.
Avarp fjallkonunnar.
Danssýning (táningadansar)
Grinþáttur.
Þjóödansar.
Gvendur fer I sveit, gamanþáttur, leikendur: Róbert Arn-
finnsson, Guörún Stephensen og GIsii Alfreösson.
Tóti trúöur. (Ketill Larsen)
Kl. 21.00
Hestaleiga veröur fyrir börn aö deginum.
Dansaö viö Arbæjarskóla til kl. 24.00.
XI. HATIÐAHÖLD i BREIÐHOLTSHVERFUM:
Kl. 12.45 Skrúögöngur:
Safnast saman viö Stöng I Breiöholti I, gengiö um Breiö-
holtsbraut, Noröurfell og Austurberg aö íþróttavelli
Leiknis. Lúörasveitin Svanur leikur fyrir göngunni undir
stjórn Sæbjörns Jónssonar.
Safnast saman viö Vesturberg 78, gengiö um Vesturberg,
Suöurhóla og Austurberg aö íþróttavelli Leiknis. Lúöra-
sveit Reykjavíkur fer fyrir göngunni undir stjórn Björns
R. Einarssonar.
Skátar, Iþróttafólk ásamt sveit unglinga á vélhjólum, úr
Vélhjólaklúbbnum Svarti örninn fara fyrir göngunni.
Dagskrá á íþróttavelli Leiknis:
Hátiöin sett af séra Hreini Hjartasyni.
Knattspyrnukeppni milli frjálsra félaga I Breiöholti 1 og 3.
17. júnlmót Breiöholts I frjálsum Iþróttum.
Félagar úr Vélhjólaklúbbnum Svarti örninn sýna hæfnis-
þrautir á vélhjólum.
Dagskrá viö Fellaskóla:
Kynnir Þórunn Siguröardóttir.
Skátatlvoll á vegum skátafélaganna Uröarkettir og Haf-
ernir.
Brúöuleikhús Fellahellis sýnir brúöuleikritiö Rebbi.
Skemmtiatriöi frá skátafélugunum Hafernir og Uröar-
kettir.
Gunna og Nonni, gamanþáttur, leikendur: Guörún As-
mundsdóttir og Jón Hjartason.
Töfrabrögö og grln, flytjendur: GIsli Rúnar Jónsson og
Baldur Brjánsson.
Táningadansar, pör frá dansskólum Sigvalda og Heiöars
Astvaldssonar sýna.
Gamanþáttur, flytjandi: Jörundur Guömundsson
Diskótek, plötusnúöur Skúli Björnsson.
KI. 21.00 Kvöldkemmtanir:
Dansaö viö Breiöholts- og Fellaskóla. Skemmtuninni lýk-
ur kl. 24.00.
Kl. 13.30
KI. 14.30
Fyrir skömmu var sagt frá við-
skiptum garðeiganda i vestur-
bænum við hreinsunardeild
Reykjavikurborgar og vakti
framkoma þessarar stofnunar
furðu, sem eðlilegt er. En það er
ekki alltaf nóg að horfa vítt og
vera strangur á að aðrir haldi
boðorðin; máltækið segir ,,maður
littu þér nær” og það sannast vel
á hreinsunardeild borgarinnar.
Þessar myndir sem hér fylgja eru
teknar fyrir nokkrum dögum hjá
hreinsunardeildinni sjálfri,og við
skulum ekki hafa þennan texta
lengri, en láta myndirnar tala.
Músik-
dagar
hefjast
Á morgun veröa opnunartón-
leikar Norrænna músikdaga 1976,
haldnir kl. 21 í Háskólabiói. Veröa
þar flutt sex verk eftir höfunda
frá öllum Noröurlöndunum fimm.
Allt eru þetta kammerverk sem
hljóöfæraleikarar úr Sinfónlu-
hljómsveit íslands flytja. Þá
munu einnig koma fram söng-
konurnar Sigrlöur E. Magnús-
dóttir, Ruth L. Magnússon og
Elisabet Erlingsdóttir.
Flutt veröa verk eftir þrjú tón-
skáld sem hlotið hafa tónskálda-
verölaun Noröurlandaráös, þá
Joonas Kokkonen frá Finnlandi,
Per Nörgárd frá Danmörku og
Atla Heimi Sveinsson.
Fluttur veröur blásarakvintett
eftir Kokkonen, sem Bernard
Wilkinsin, Kristján Stephensen,
Siguröur Snorrason Christina
Tryk og Hafsteinn Guömundsson
flytja. Þá Veröur flutt trió eftir
Per NfJrgárd sem hann nefnir
Spell og er þaö flutt af Gunnari
Egilson, Pétri Þorvaldssyni og
Halldóri Haraldssyni.
,,I call it” heitir verk Atla
Heimis Sveinssonar og Ruth L.
Magnússon syngur það. Meö
henni leika Pétur Þorvaldsson,
Jónas Ingimundarson, Reynir
Sigurösson og Arni Scheving.
Verkiö var samiö fyrir Rikisút-
varpiö áriö 1974, lagt fram á
Rostrum of Composers i Paris og
hefur veriö flutt i útvarpsstöövum
vlöa um lönd. Fyrr á þessu ári
var verkiö flutt á tónleikum
kammersveitar Reykjavlkur.
Tónleikarnir hefjast á Söngvum
hjartans eftir Gunnar de
Frumerie. Hann er eitt virtasta
tónskáld svla af eldri kynslóöinni.
Sigrlöur E. Magnúsdóttir syngur
meö undirleik Ölafs V. Alberts-
sonar. Magne Hegdal er eitt
efnislegasta tónskáld norömanna,
oghafa verkhans verið vlöa flutt.
Hann er einnig ágætur pianóleik-
ari og leikur sjálfur verk sitt
Monolog eöa Eintal.
Á þessum tónleikum veröur
frumflutt islenskt verk: Inn-
gangurog gálgaljóö eftir Herbert
H. Ágústsson viö ljóð eftir þýska
skáldiö Christian Morgenstern,
sem er einn sérkennilegasti
húmoristi þýskra bókmennta.
Ellsabet Erlingsdóttir syngur og
meö henni leika: Bernard Wilkin-
son, Siguröur Snorrason,
Christina Tryk og Hafsteinn Guö-
mundsson.-Höfundurinn stjórnar
frumflutningi verksins.