Þjóðviljinn - 17.06.1976, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 17. júni 1976 ÞJÓÐVILJINN — StDA 21
Föstudagur
18. júní
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Þjóðhátlðarávarp (or-
sætisráðherra, Geirs Hall-
grlmssonar
20.50 Halldór Laxness og
skáldsögur hans Margar
bækur hafa verið ritaðar um
Halldór Laxness og verk
hans, erindaflokkar fluttir
og ritgerðir birst i bók-
menntaritum og blööum
viða um lönd. En hvað segir
hann sjálfur um verk sin,
um tildrög þeirra og tilurð,
þegar hann litur yfir farinn
veg? Sjónvarpið er að láta
gera sex viðræöuþætti, þar
sem rætt er við Halldór
Laxness um nokkrar helstu
skáldsögur hans, og fléttast
ýmsar æviminningar hans
eölilega inn I þessi viðtöl,
sem eru fremur heimildar-
legs eðlis en bókmenntalegs
I þröngri merkingu. Við-
mælendur eru Magnús Torfi
Ölafsson, dr. Jakob Bene-
diktsson, Eiður Guðnason,
Vésteinn ölason, Dagný
Kristjánsdóttir og Helga
Kress, sem ræða við skáldið
á heimili hans I Reykjavik. I
fyrsta þætti ræðir Halldór
við Magnús Torfa Olafsson
um sóslölsku skáldsögurnar
Annað kvöld kl. 20.50 verður fluttur I sjónvarpi fyrsti viðtalsþáttur
af sex, þar sem Halldór Laxness er krufinn sagna um verk sln.til-
drög þeirra og tilurð. Hér sést þegar verið var að faröa rithöfundinn
fyrir upptöku.
Sölku Völku og Sjálfstætt
fólk. Tveir fyrstu viöræðu-
þættirnir veröa sýndir í
júni, en hinir væntanlega
síösumars. Stjórn URitöku
Siguröur Sverrir Pálsson.
21.35 Herfangiö (A Prize of
Arms) Bresk blómynd frá
árinu 1964. Aöalhlutverk
Stanley Baker, Helmut
Schmid ogTom Bell. Mynd-
in gerist I Bretlandi I seinni
heimsstyrjöldinni. Verið er
að undirbúa innrás á megin-
landið og mikiö reiðufé
geymt I fjárhirslum hersins.
Þrlr félagar, Turpin, Fenn-
er og Pólverjinn Swavek,
hyggjast láta greipar sópa
um hirslurnar. Þýðandi Ell-
ert Sigurbjörnsson. Myndin
er ekki við hæfi ungra
barna.
23.15 Dagskrárlok
útvarp
17.júni
Þjóðhátíðardagur
Islendinga
8.00 Morgunbæn. Séra Jón
Auðuns fyrrum dómprófast-
ur flytur.
8.05 lslensk hátiðartónlist,
sungin og leikin.
9.00 Fréttir. (Jtdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar Al-
þingishátiðarkantata eftir
Pál Isólfsson, við ljóö
Daviös Stefánssonar frá
Fagraskógi. Flytjendur:
Karlakórinn Fóstbræður,
Söngsveitin Filharmonia og
Sinfóniuhljómsveit tslands.
Stjórnandi: Dr. Róbert A.
Ottósson.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Frá þjóðhátið I Reykja-
vik. a. Hátiðarathöfn á
Austurvelli. Már Gunnars-
son formaður þjóöhátiðar-
nefndar setur hátíðina. For-
seti tslands, dr. Kristján
Eldjárn, leggur blómsveig
að fótstalla Jóns Sigurðs-
sonar. Geir Hallgrimsson
forsætisráðherra flytur á-
varp. Avarp fjallkonunnar.
Lúðrasveit verkalýðsins og
Karlakórinn Fóstbræður
leika og syngja ættjarðar-
lög, þ.á.m. þjóðsönginn.
Stjórnendur: Ólafur L.
Kristjánsson og Jónas Ingi-
mundarson. Kynnir: ólafur
Ragnarsson. b. 11.15 Guðs-
þjónusta i Dómkirkjunni.
Séra Clfar Guðmundsson
biskupsritari messar. Guð-
mundur Jónsson og Dóm-
kórinn syngja. Organleik-
ari: Ragnar Björnsson.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 Kórsöngur I útvarpssal:
Skagfirska söngsveitin
syngur islcnsk og erlend
lög. Söngstjóri: Snæbjörg
Snæbjarnardóttir. Ein-
söngvarar: Þorbergur
Jósefsson, Hjálmtýr Hjálm-
týsson og Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir. Tvisöngvar-
ar: Kamma Karlsdóttir og
Margrét Matthiasdóttir.
14.00 Svipmyndir úr sjálf
stæðisbaráttu islendinga á
19. öld. Einar Laxness cand.
mag. tekur saman dag-
skrána.
15.00 Létt tónlist frá útvarp-
inu i Weliington á Nýja-Sjá-
landi. Stanley Black og Os-
wald Chessman stjórna
hljómsveitunum, sem leika.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir
16.25 tslandsljóð eftir Einar
Benediktsson Elln Guðjóns-
dóttir les.
16.40 Barnatimi a. Sigrún
Björnsdóttir sér um stund
fyrir ungu börnin, litla
barnatlmann. b. Gunnar
Valdimarsson stjórnar
þætti fyrir stálpaðri börn,
þar sem fjallað veröur um
iistsköpun á tslandi fyrr og
siðar.
17.30 „Eitthvað til aö lifa fyr-
ir” eftir Victor E. Frankl.
Hólmfriður Gunnarsdóttir
les þýðingu sina á bók eftir
austurriskan geðlækni (4).
18.00 Stundarkorn með Rögn-
valdi Sigurjónssyni planó-
leikara. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 t sjónmáli. Skafti Harð-
arson og Steingrimur Ari
Arason sjá um þáttinn.
20.00 Einsöngur I útvarpssal:
Elisabet Erlingsdóttir syng-
ur lög eftir Jórunni Viðar.
Höfundurinn leikur á pianó.
20.25 Leikrit: „Happið”,
gamanleikur eftir Pál J. Ar-
dal. Leikstjóri: Baldvin
Halldórsson...Persónur og
leikendur: Hallur hrepp-
stjóri... Valdimar Helgason,
Valgerður dóttir hans...
Ragnheiður Steindórsdóttir,
Helgi ráðsmaður... Bessi
Bjarnason, Grima móðir
hans... Guðrún Stephensen,
Kristin ráðskona... Sigriður
Hagalin, Gunnar kennari....
Jón Gunnarsson, Sigga
vetrarstúlka... Lilja Þóris-
dóttir.
21.40 Lúörasveitin Svanur
leikur Stjórnandi: Sæbjörn
Jónsson.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Danslög af
hljómpiötum. Þ.á.m. leikur
og syngur hljómsveit Hauks
Morthens i hálfa klukku-
stund. (23.55 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
18. júni
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. -
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Mynd-
in af Dorian Grey” eftir
Oscar Wilde. Valdimar
Lárusson les þýðingu Sig-
urðar Einarssonar (16).
15.00 Miðdegistónleikar.
Nicanor Zabaleta og Sin-
fóniuhljómsveit Berlinarút-
varpsins leika Konsert-
serenööu fyrir hörpu og
hljómsveit eftir Joaquin
Rodrigo, Ernst Marzendorf-
erstjórnar. Jascha Heifetz,
Willia, Primrose og RCA
Victor hljómsveitin leika
Römantiska fantasiu fyrir ,
fiðlu, lágfiölu og hljómsveit
eftir Arthur Benjamin; Isler
Solomon stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.30 Eruð þið samferða . til
Afriku? Ferðaþættir eftir
norskan útvarpsmann,
Lauritz Johnson. Baldur
Pálmason les þýðingu sina
(3).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Frásögn frá þingi kven-
sjúkdómalækna Norður-
landa. Dr.Gunnlaugur Snæ-
dal flytur.
20.05 Sinfóniuhljómsveit ts-
lands leikur I útvarpssal.
Einleikari: Deborah Davis.
Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
a. Tilbreytni fyrir hljóm-
sveit eftir Herbert H.
Agústsson. b. Sellókonsert i
B-dúr eftir Luigi Boccher-
ini.
20.45 Sp.jall frá Noregi. Ing-
ólfur Margeirsson sér um
þáttinn.
21.10 Tónlist eftir Heitor Villa-
Lobos. Nelson Freire leikur
á planó.
21.30 (Jtvarpsagan: „Slöasta
freistingin” eftir Nikos
Kazantzakis. Sigurður A.
Magnússon les þýðingu
Kristins Björnssonar (41).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. tþróttir.
Umsjón: Jón Asgeirsson.
22.40 Afangar. Tónlistarþátt-
ur I umsjá Asmundar Jóns-
sonar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Auglýsing frá Mennta
málaráðuneytinu
Sjúkra- og endurtökupróf i samræmdum greinum lands-
og gagnfræðaprófs vorið 1976 veröa haldin sem hér segir:
Mánudaginn 21. júni kl. 9—11.30: tslenska
Þriðjudaginn 22. júni kl. 9—11.30; Danska
Miðvikudaginn 23. júni kl. 9—11.30: Enska
Fimmtudaginn 24. júnl kl. 9—11.30: Stærðíræði
Próf I áðurnefndum greinum verða haldin á eftirtöldum
stöðum:
Gagnfræðaskóla tsafjarðar
Gagnfræðaskóla Akureyrar
Alþýðuskólanum Eiðum
Gagnfræöaskóla Vestmannaeyja
Vöröuskólanum Reykjavik.
Nemendur þurfa að hafa skilað staðfestum umsóknum
áöur en þeir ganga til prófs. Hafi umsóknum ekki verið
svarað eru þær samþykktar.
Prófanefnd.
sf^Blómabúðin MÍRA
Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430
Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590
Blóm og gjafavörur i úrvali
Aðalfundur
Prentsmiðju Þjóðviljans hf.
vegna áranna 1972 til 1975 verður haldinn
að Grettisgötu 3 miðvikud. 30. júni n.k. kl.
20.30, þar sem áður boðaður aðalfundur
14. júni reyndist ólögmætur.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. sam-
þykktum félagsins.
2. Framtið hlutafélagsins.
STJÓRNIN
Auglýsing
um umsóknir um starfslaun
rithöfunda
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun úr Launa-
sjóði rithöfunda samkvæmt lögum nr. 29/1975 og reglu-
gerö gefinni út af menntamálaráðuneytinu 9. júni 1976.
Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa islenskir rithöfundar og
höfundar fræðirita. Heimilt er og að greiöa laun úr sjóðn-
um fyrir þýðingar á islensku.
Starfslaun eru veitt samkvæmt 26. launaflokki opinberra
starfsmanna (byrjunarþrepi) skemmst til tveggja og
lengst til niu mánaða i senn.
Höfundur, sem sækir um og hlýtur starfslaun þrjá mánuði
eða lengur, skuldbindur sig til að gegna ekki fastlaunuðu
starfi meðan hann nýtur starfslauna. Slik kvöð fylgir ekki
tveggja mánaða starfslaunum, enda skulu þau ein-
vörðungu veitt vegna verka sem birst hafa næsta al-
manaksár á undan.
Skrá um birt ritverk höfundar siðastliðin fimm ár og verk,
sem hann vinnur nú að, skal fylgja umsókninni. Þeim,
sem sækja um starfslaun vegna fræöirita, ber að geta
styrkja sem þeir hafa hlotið til verksins.
Umsóknarfrestur að þessu sinni er til 15. júli 1976.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráöuneytinu.Hverfis-
götu 6, Reykjavik.
Reykjavik, 15. júni 1976.
Stjórn Launasjóðs rithöfunda.
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi
Háskólahverfi Tómasarhaga
og viðar i vesturbœinn.
Ennfremur vantar blaðbera víðsvegar um
bæinn til afleysinga.
Vinsamlegast haf ið samband við afgreiðsluna
— sími 17500.
ÞJÓÐVILJINN