Þjóðviljinn - 23.06.1976, Blaðsíða 4
4 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 23. júni 1976
MOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: Ctgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólavöröust. 19. Simi 17500 (5 Ilnur)
Prentun: Blaöaprent h.f.
FORSETI LAGADEILDAR SEGIR: STJÓRNARSKRÁRRROT
Þjóðviljinn hefur áður bent á þá stað-
reynd að gildistaka Oslóarsamningsins án
samþykktar á alþingi er skýlaust brot á
21. grein stjórnarskrárinnar, en þar segir
orðrétt:
„Forseti lýðveldisins gerir samninga
við önnur riki. Þó getur hann enga slika
samninga gert ef þeir hafa i sér fólgið af-
sal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef
þeir horfa til breytinga á stjórnarhögum
rikisins, nema samþykki alþingis komi
til.”
Sigurður Lindal, prófessor, forseti laga-
deildar Háskóla íslands hefur nú ritað
blaðagrein þar sem hann gagnrýnir form-
lega meðferð Oslóarsamningsins harðlega
og telur að meðferðin sé stjórnarskrár-
brot. En virðingarleysið fyrir settum regl-
um þar á meðal ákvæðum stjórnarskrár-
innar sé orðið þvilikt meðal valdhafa
landsins að ekki þyki taka þvi að láta líta
svo út að farið sé að lögum — hvað þá
heldur meira. Sigurður segir: „Alþingi er
að miklu leyti hætt að skipta máli sem
stofnun í stjórnkerfi landsins og því á ekki
að eyða tima i gagnslausar umræður. Svo
þykir vist eitt stjórnarskrárbrot ekki ýkja
blöskranlegt eftir allt sem á undan er
gengið i vetur...” Forseti lagadeildar
vitnar i grein sinni til tveggja sérfræðinga
i þessum efnum,þeirra Bjarna heitins
Benediktssonar og Ólafs Jóhannessonar
sem báðir hafa verið prófessorar i stjórn-
arfarsrétti við Háskóla Islands. Sigurður
Lindal segir: „Báðum þessum fræði-
mönnum ber saman um að óheimilt sé af
islenskum rikisrétti að staðfesta slika
samninga nema samþykki alþingis sé
fengið, en fyrr taka þeir ekki gildi að is-
lenskum lögum. Staðfesting eftir á er þvi
brot á stjórnskipunarlögum.....”
í grein sinni tekur Sigurður Lindal enn-
fremur til meðferðar „röksemdir” Tim-
ans gegn þeirri gagnrýni sem fram hefur
komið á meðferð samninganna, en i leið-
ara Timans 4. júni var það talin hefð að
þannig mætti fara með fiskveiðisamninga
við aðrar þjóðir. Prófessorinn segir um
þessar „röksemdir” Þórarins Þórarins-
sonar:
„...það getur ekki orðið neinn grundvöll-
ur venjuréttar, þótt um sinn viðgangist að
brjóta lög, og á það jafnt við um alþingi
sem aðra. Alþingi hefur enga heimild til
að teygja ákvæði stjórnarskrárinnar eins
og hrátt skinn eftir þvi sem geðþótti býður
hverju sinni. Dæmin, sem tekin eru i leið-
aranum (Timans, innsk.s.) eru ekki um
það hvernig venjuréttur myndast heldur
hvernig smátt og smátt er verið að um-
turna stjórnskipun landsins. En allur lýsir
leiðarinn glögglega þeim anda, sem unnið
er i: Ef landslög eru brotin hefur óðara
myndast hefð, jafnvel helgur venjuréttur.
Þetta felur einfaldlega i sér að stjórnar-
herrar landsins hafa lögin i hendi sér og
geta þokað þeim til hliðar nánast eftir
geðþótta.” Og niðurstaðan: „Er aug-
Ijóst að við slika stjórnarhætti verður al-
þingi öldungis marklaus stofnun og lög-
gjafarstarf ekki annað en ömurlegur
skripaleikur.”
Hér fer forseti lagadeildar Háskóla Is-
lands með svo alvarlegar og afdráttar-
lausar kærur á hendur stjórnvöldum að
það er lágmarkskrafa að stjórnarherrarn-
ir viðurkenni villur sins vegar i þessu
efni opinberlega og játi yfirsjónir sinar.
Umgengni þeirra við lagabókstafinn
hvetur ekki til löghlýðni eða virðingar af
öðrum landsmönnum: þegar yfirvöldin
umgangast sjálfa stjórnarskrána eins og
forseti lagadeildar hefur lýst er vart unnt
að gera ráð fyrir mikilli virðingu við laga-
bókstafinn af öðrum samfélagshópum.
Geðþóttastjóm eins og sú sem Sigurður
Lindal hefur lýst betur en nokkur annar
býður heim stórfelldum hættum — þó
einkum þeim að óprúttin stjórnarvöld geti
notað sér fordæmið frá Oslóarsamningun-
um til þess að þverbrjóta öll önnur ákvæði
stjórnarskrárinnar. Þannig byggjum við i
landi þar sem væru engin lög i reynd, að-
eins að nafninu til, þar sem vilji stjórn-
valdsins réði, ekki löggjöf sett á fulltrúa-
samkomu þjóðarinnar.
Rikisstjórnin hefur með meðferð Osló-
arsamningsins fótum troðið grundvallar-
lögbók þjóðarinnar. Og ákæra um það efni
hefur nú birst — frá forseta lagadeildar
Háskóla Islands.
— s.
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. JÚNt 1976
Tóku próf í riti Fylkingarinnar:
„Einitilg;
iðþeg;
angurinn að koma okkur í skilning um,
við kæmum út á vinnu markaðinn væri
gert Utið úr okkur og kjör okkar væru ferleg”
ar
• VERKALÝOSBARATTAN. 1. h*Iti. útgalandi Fylkingin. baréttuumtök •óatalisU, nalniat bók. aam á liBngm
vatri var notuB til kannalu I aamfólagsfraallt I framhakladaildum gagnfruBastigaina I Vlghólaskóla I Kópavogi.
ir mótmultu notkun þaaaarar kannalubókar viB skólaatjórann og nokkrir foraldrar namanda biru fram
» afnla viB skólanafndarmann I Kópavogi og var móliB takiB til umraaBu i skólanafndarfundi. i
pBu var móllB aont til mannUmiiariBunaytisina MannUmilaréBharra. Vilhjilmur
'jst, aB uun viBula viB aBila mélsins, vari Ijóst aB mél þatta haf Bi af
i. RiBharra sagBi hins vagar. aB þaB vari
s sam kannsiubók I filagsfrasBilagum
lamaleg . . Þannig hefur myndast Andrés Kristjénsson. fraaBslustjóri
skriffinnskuvaldi, sam um margt er f Kópavogi. sagBi, að máliö hefOi
Ifkt voldi verkalýösaOalsins innan ekki veriO tekiO til umraaOu éj'
ASi . En borgarastéttin verOur ekki nefndarfundum eftir afljj
knúin til þess meO góOu. ÞaO verOur ins hefOu veri0j|
taepast gert nema meO verkfallsaO
gerOum f einhverri mynd. þótt ólóg-
Hvað býr að
baki?
Stór bóla af
litlu tilefni
Morgunblaöiö er nú aö reyna
aö blása út stóra bólu vegna
smámáls i Vighólaskóla i Kópa-
vogi. Kennari einn hefur notast
þar viö kennslugagn i sam-
félagsfræöum sem Fylkingin,
baráttusamtök sósialista, er út-
gefandiaö. Sá sem þennan pistil
skrifar var kennari i nokkur ár i
skóla fyrir vestan þar sem sam-
félagsfræöakennsla var f há-
vegum höfö'. Þar var notast viö
allt tiltækt efni, nemendur látnir
lesa gamla og nýja áróöurspésa
frá stjórnmálaflokkunum is-
lensku þám. Sjálfstæöisflokkn-
um og ennfremur fræöigreinar
eftir hugmyndafræöinga á borö
viö Karl Marx á annan veginn
og Adam Smith á hinn veginn.
Enda voru þessir krakkar
örugglega betur i stakk búnir til
aö vega og meta þjóöfélagiö og
stjórnmálin en margir aörir.
Vera má aö kennarinn i Kópa-
vogi hafi fariö eitthvaö út af
braut hlutlægrar umræðu I
kennslu sinni en þaö hendir alla
einhvern timann og er vart til
þess falliö aö gera aö stórmáli
i blööum. Raunar er þaö
viröingarvert hjá kennara aö
rýna svolitiö ofan I þjóöfélagiö
og reyna aö skilgreina þaö. Hér
áöur fyrr var notaö sem
kennslugagn i samfélags-
fræöum ónýtur bæklingur sem
nefnist Islenska þjóöfélagiö
eftir Pál S. Pálsson meö yfir-
borðsupptalningu á stofnunum
þjóðfélagsins. Að minnst væri
þar á grundvallarhugtök eins og
kapitalisma og sósialisma var
af og frá.
En hvaö býr þá aö baki skrif-
um Morgunblaösins? A laugar-
daginn var ekki nóg meö aö birt
væri striðsæsingafrétt á útsiöu
og heilsiðugrein inn i blaðinu
heldur var allur leiöarinn
lagöuriþetta mál. 1 gær var svo
haldiö áfrarn ofsóknarskrif-
um. Þaö læöist aö manni sá
grunur aö hér sé upphaf aö öör-
um tiöindum og meiri. Undan-
farin ár hefur veriö lagt kapp á
aö Qæma kennara meö róttækar
skoöanir úr skólum i Þýska-
landi, Danmörku og viðar og
hafa hægri blööin þar hamast
gegnþessu fólki.Nú ersvo kom-
iö I Þýskalandi aö nýútskrifaöir
kennarar fá ekki vinnu ef þeir
hafa veriö bendlaöir viö vinstri
pólitlk. Þaö skyldi þó ekki vera
aö Morgunblaöiö væri búiö aö
meötaka li'nuna þaöan?
Að svœfa
þjóðfélags-
vitundina
Auövitaö er þaö skiljanlegt aö
Mogginn vill sem minnsta sam-
félagskennslu I þjóöfélaginu.
Hann er málgagn hinna fáu og
riku sem hagnast á hinum
mörgu og snauðu. Þvi er þaö
nauösynlegt aö halda uppi mikl-
um áróðri tii aö svæfa þjóð-
félagsvitund fjöidans. Eins og
bent var á I Þjóðviljanum um
daginn er blaöakostur
auövaldsins 100 þús. eintök á
dag, ef marka má þeirra eigin
tölur, á móti 10 þús. eintökum
af Þjóöviljanum. Góö grund-
vallarkennsla i samfélags-
fræöum I skólakerfi landsins
hlýtur þvi aö slæva nokkuö
áróöursmátt auövaldspressunn-
ar. í ljósi þessa veröa niöurlags-
orö I leiöara Morgunblaösins á
laugardaginn auöskilin
hverjum manni:
„Jafnframt þvi, sem þeir
aöilar, sem hér hafa komiö viö
sögu, hljóta aö veröa aö standa
reikningsskil geröa sinna, vakn-
ar sú spurning, hvort hugsan-
legt sé, aö um frekarí misnotk-
un aöstööu af þessu tagi geti
veriö aö ræöa i skólakerfi okkar
Kennsla I svonefndum þjóö-
félagsfræöum eða samfélags-
fræöum, en hér er raunar um
svipað eða sama námsefni að
ræða, sem gengur undir mis-
munandi heitum, hefur rutt sér
til rúms á flestum skólastigum á
undanförnum árum. Ljóst er aö
þetta námsefni gefur tækifæri
til misnotkunar aöstööu i þvi
skyniaö hafa áhrif á þjóöfélags-
skoöanir nemenda, ýmist meö
vali kennslugagna eins og i
þessu tilviki eöa I munnlegri
kennslu. Eru fleiri tilvik af
svipuöu tagi og þvi, sem hér
hefur verið gert aö umtalsefni?
Dæmiö úr Vighólaskóla gefur
tilefni til aö þaö veröi rannsakaö
ofan í kjölinn. Þaö er auövitað
algjörlega óþolandi ef einstakir
kennarar gera tilraun til þess að
hafa áhrif á þjóöfélagsskoðanir
nemenda meö einum eöa öörum
hætti.”
Morgunblaöiö krefst þess sem
sagt að hætt veröi aö rýna ofan i
þjóöfélagið i skólum landsins.
Þaö á að taka upp tslenska þjóö-
félagið eftir Pál. S. Pálsson sem
aðalkennslugagn á ný.
—GFr
:röur Páll S. Pálsson hafinn til
gs og virðingar á ný I sam-
lagsfræðikennslu i skólum
ídsins?
Fyrirsögn aöheilsiöugrein Moggans á laugardag. Eitur íbeinum hans.