Þjóðviljinn - 26.07.1979, Side 12

Þjóðviljinn - 26.07.1979, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 26. júll 1979. vor Umsjón: Magnús H. Gíslason Búast má viö aö dilkar komi venju fremur misjafnir af fjalli I haust. r Utkoman er best þar sem votheysgjöfin er hvað mest segir Brynjólfur Sœnumdsson, ráöunautur á Hólmavík — Hér eru heyskaparhorfur hreint ekki gó&ar. Satt aö segja eru þær blatt áfram Iskyggilegar en þannig fórust Brynjólfi Sæ- mundssyni, ráöunaut á Hólmavik orö i viðtali viö Landpóst nú i byrjun vikunnar. Ekki hægt aö biöa enda laust — Mér sýnist nú raunar aö úr þessu geti ekkert bjargaö frá verulegum niöurskuröi i haust, sagöi Brynjólfur. — Spurningin er bara hvaö hann veröur mikill og fer þaö eftir þvi hversu úr rætist með sprettu svona á næstu þrem vikum. í fyrri nótt var hér frost, bilar voru t.d. hélaðir eftir nóttina. En siðustu þrir dagar hafa veriö sól- rikir og góöir en þó fremur and- kalt. Sprettuhorfur eru náttúrlega dálitiö misjafnar. Þeir blettir eru heldur skárri, sem ekki hafa ver- iö beittir i vor. Og I suðurhluta sýslunnar er grasvöxtur eitthvaö betur á vegi staddur. Þaö kann aö vera, aö einhverjir blettir inni I Hrútafirði veröi slegnir eftir vikutima eða svo. Hinsvegar sýn- ast mér engar horfur á þvi aö sláttur byrji almennt hér fyrr en i ágúst. Nú en lengur en fram i tniöjan þann mánuö veröur auö- vitaö ekki beöiö, þaö veröur þá aö taka þaö, sem komið veröur, þótt litiö veröi. Litiö er hér um kal en klaki er naumast alveg farinn úr jörö. Býst viö lægri fallþunga Fénaöarhöld voru hér góö meö- an féö var i húsi, svona miöaö viö aöstæöur. Hinsvegar uröu nokkur vanhöld á lömbum og jafnvel ám eftir aö fé var sleppt. Dálitiö bar t.d. á júgurbólgu i ám. Þegar fé er lengi i húsi og lömbin oröin stór ganga þau nærri ánum, geta sært spenana og svo komast óhreinindi I sárin. Var eitthvað um þaö, aö ær drápust af þessum ástæöum. Nú svo geta júgrin orðið ónýt og ærnar mjólka ekki þegar ekki næst i þær I tima til þess aö draga þetta niöur og þá fara lömbin undan þessum ám auövitaö illa. Og svo sér maður þaö lika, sem ég hefi ekki séö hér áöur, aö þó- nokkuö af lömbum er meö skitu. Þarkemur náttúrlega kuldinn til. Þaö mætti segja mér aö dilkar yröu venju fremur misjafnir i haust. Ég á þess alla von, aö meö- alfallþungi þeirra hér um slóöir veröi lægri en áöur. Nokkuð er um bygginga- framkvæmdir Ekki get eg sagt, aö litiö sé um byggingaframkvæmdir enda kannski litiö annaö að gera þegar ekki er hægt aö slá. Búnaöarsam- bandiö er meö vinnuflokk á sinum vegum, sem feröast um meö steypumót og eru þaö einar átta eöa niu byggingar, sem ætlast er til aö þessi flokkur sjái um. Meiri hlutinn af þessum byggingum eru flatgryfjur en eitthvað er og um fjárhús. Heita má aö þær votheys- geymslur, sem menn byggja hér núoröiö séu svo til eingöngu flat- gryfjiir. Þær þykja þægilegri og menn eru alveg aö hverfa frá ööru byggingaformi á votheys- geymslum. Siöastliöiö sumar voru 75% af heyfeng hér i Strandasýslu verk- uö i vothey. Hefur þaö alltaf fariö vaxandi og á sjálfsagt enn eftir aö aukast. Menn eru að halla sér meira aö sauöfjárrækt og þaö fer i vöxt, aö bændur gefi sauöfé ein- göngu vothey. Gefst þaö vel og út- koman raunar best þar sem vot- heysgjöfin er mest. bs/mhg F reðmýrakenningin Svo nefnist forystugrein i nýút- komnum Frey. Landbúnaöarmál eru nú mjög til umræðu og skortir . ekki stóryröi og fullyröingar. Er öllu stórskotaliði skammsýninnar beint aö bændum. Þar eru i farar- broddi menn eins og Reynir Hugason, Jónas Bjarnason, Jónas Kristjánsson, jafnvel „barnið mitt Brútus” Jónas stýrimaöur og aðrir slikir, sem telja sig betur kunna til búskapar á Islandi en annaö fólk. Freyr er fyrst og fremst bændablaö, kannski litiö keyptur af öörum en þeim. Landpóstur væntir þess hinsvegar, aö þaö valdi engum varanlegu sálartjóni aö kynnast þvi hvernig Freyr litur á „Freömýrakenninguna” og leyfir sér þvi aö birta þessa grein: Fullyrðingar en fátt um rök Hvaða rök hafa þeir, sem mest gagnrýna islenskan landbúnaö? Þvi hefur vægðarlaust og i slbylju veriö haldiö fram, að islenskur landbúnaöur væri óaröbær og baggi á þjóðfélaginu. Óteljandi eru þær útgáfur af þessari kenn- ingu, sem settar hafa veriö fram, og ógerningur væri aö svara öll- um þeim rangfærslum og mis- túlkunum, sem beitt hefur verið til aö reyna að renna stoðum undir þessar kenningar. En ef svo væri, aö landbúnaöur- inn væri óaröbær og lélegur at- vinnuvegur, hverjar gætu þá veriö orsakir þess? Eru bændur hér lélegir til starfa, afkastalitlir og ábyrgðar- lausir, boriö saman viö aðrar stettir eða bændur annarra þjóöa? Varla er þetta ástæðan. Allir réttsýnir menn munu viöur- kenna, að bændur eru eljusöm stétt, samviskusemi og ábyrgðar- tilfinning einkennir þá. Enda sjá þeir og finna glöggt tengslin milli eigin afkomu og ráðdeildar og at- orku viö búskapinn. Launþeginn getur slegiö slöku við án þess að þaö bitni á launum hans, og at- vinnurekendur geta hugsaö sem svo, aö það muni ekki miklu i rekstrinum þó að þeir taki meira eða minna til sin og fjölskylna sinna. Er búskapur hér rekinn af minni þekkingu og meö minni tækni en annarsstaðar gerist? Stöndum við öörum landbúnaðar- þjóöum aö baki i faglegu tilliti? Höfum viö t.d. léleg búfjárkyn, sem skila litlum arði? Hér er kannski erfitt um samanburö. En varla væru aörar þjóöir aö leita hingaö fróöleiks og fyrirmynda, t.d. um sauöfjár- rækt, ef svo væri. Þeir, sem vel þekkja til islensks landbúnaöar og hafa haft aöstööu til að kynnast búskap annarra þjóöa, munu treysta sér til aö fullyröa, að I þessu tilliti stöndum viö ekki illa aö vigi, þó aö alltaf megi betur gera. Eru búin hér of litil og afköstin á hvern vinnandi mann þar af leiöandi minni en hægt væri að gera kröfur til? Þessu hefur oft verið haldiö fram, bæöi af and- skotum landbúönaöarins og eins af sumum, sem vilja veg hans mikinn. Hér er erfitt aö gera nákvæman samanburö. Viöa er búskapur rekinn meö allt ööru sniði en hér, samyrkjubú i austantjaldslönd- unum, og sérhæföur stórbúskap- ur, oft meö verksmiðjusniöi með miklum aðkeyptum föngum og vinnuafli er viöa, einkum I „nýja heiminum”. Viö verðum aö miöa við þau lönd, sem eru næst okkur og skyldust og þar, sem fjölskyldu- búskapur er yfirgnæfandi. Þar stöndumst við stæröarsaman- buröinn fyllilega, hvort sem litiö er á stærö jaröa, búfjárfjölda á búi eöa framleiöslu á mann. óþarft er aö tilgreina tölur þessu til rökstuönings, þær hafa viöa komiö fram. Fjölskyldubúskapur hent- ar best Eitt hafa islenskir bændur fram yfir stéttarbræöur sina i þessum löndum, en þaö er land- rýmiö. Þeir hafa flestir mögu- leika til þess að stækka búin og auka framleiðsluna, þegar þaö þykirhenta. 1 „gömlu löndunum” er viða oröiö svo þröngt um, að þaö háir eðlilegri hagræöingu, og bústækkun næst ekki nema meö sameiningu jarða. Hitt er svo annað mál, að i þeim löndum þar sem fjölskyldubú- skapur er og hefur veriö rikjandi, þykir það nú úrelt stefna aö hverfa frá honum til einhæfs bú- skapar eöa verksmiðjurekstrar. Nægir i þvi efni aö vitna til Svia, sem af fenginni reynslu hafa nú markaö þá stefnu aö styöja viö fjölskyldubúskapinn og sporna gegn þróun I átt til verksmiðju- búskapar. Fjölmörg lönd hafa með löggjöf sett skorður viö þvi, aö alifugla- og svinaverksmiðjur þrengi smærri framleiðendum út. Þaö hefur svo einnig komið fram af niöurstööum búreikninga hér, að þaö er ekki bústærðin, sem ræður arðseminni. Meira er um þaö vert, að hver gripur skili sem bestum afuröum og að Hvort skyldi nú þjóöinni þarfara: Kýrnar þarna á mörkum „freð- mýrarbeltisins” eöa Dagblaösrit- stjórinn? skynsamlega sé staðið að þvi að nota aökeypt föng til framleiösl- unnar. Hið freðna hugarfar Það hefur svo smám saman verið aö koma i ljós i öllum þeim miklu umræðum um islenskan landbúnað á undanförnum árum, aöandstæöingar landbúnaöarins, sem telja hann óalandi og óferj- andi, hafa ekki treyst sér til að telja neitt af þvi, sem aö framan er taliö eöa annað þvi skylt, vera ástæöuna fyrir þvi, aö islenskur landbúnaöur sé svo óhagkvæmur, sem þeir hafa viljaö aö vera láta. 1 rökþrotum sinum hafa þeir hrakist til að halda fram „freö- mýrakenningunni”. Gagnvart bændum þora þeir ekki að halda þvi fram, aö bænd- ur séu latir, kunni illa til verka, tæknin sé of litil, búin of smá o.s.frv. Nei, nú er þaö landiö sem er svona vont. Þetta hefur viöa komið fram en kannski hvergi svo skýrt og skor- inort sem i leiðara Dagblaösins 30. april s.l., undir hinni spá- mannlegu fyrirsögn: „Rányrkja freömýranna”. Vinsmakkari menningarblaös- ins Vikunnar viröist ekki hafa haft gott bragð i munni, senni- lega lent á vondri tegund og verið illur i skapi, þegar hann hóf þessi skrif sin á þvi aö argast út i vorkomu með aur á vegum. Siöan segir hann: „Þetta viökvæma timabil er eitt af sérkennum islenskrar náttúru, alveg eins og þúfurnar. Hvorttveggja er ein- kenni lands á mörkum freömýra- beltisins, einkenni lands, sem olir ekkert álag”. Siöar i þessari merkilegu grein er dómurinn yfir landbúnaöinum endanlega felldur: „A þessari ellefu alda göngu hefði þjóðin falliö úr hor, ef fisk- veiðar heföu ekki fljótlega tekiö við af landbúnaöi sem hornsteinn atvinnulifsins. Auðlindirnar viö strendur landsins gerðu þjóöinni kleift að skrimta á mörkum ferö- mýrabeltisins. Ný tækni kom til sögunnnar um og eftir siöustu aldamót, fyrst linuveiöarar, siöan togarar. Þá gátu íslendingar rétt úr kútnum og oröiö rikir á auðæfum hafsins. Striðsgróði og hermang hjálpaöi nokku. En velsæld þjóöarinnar byggist þó fyrst og fremst á sjáv- arútveginum. Landbúnaðurinn á engan þátt iendurreisn þjóðarinnar. Hann er og hefur ailtaf verið baggi á landi og þjóð. Hann var og er rányrkja, sein menn hafa stundað, af þvi að þeir áttu ekki annarra kosta völ. Hann er versti atvinnuvegur, sem unnt er að stunda á mörkum freð- mýrabeltisins”. Er nokkur furöa, þó að menn, sem þessu trúa, reyni aö bjarga sinni vesölu þjóö frá þvi að stunda þennan vonda atvinnuveg? Er það furða, þó að ritstjóri Dag- blaösins vilji foröa þessu arma fólki frá þvi að hýrast úti á ferðmýrunum og leggi nokkuð aö sér til að kynna þvi lystisemdir „lifsins i borginni?”.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.