Þjóðviljinn - 11.08.1976, Page 6

Þjóðviljinn - 11.08.1976, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 11. ágúst 1976 Blaðað i grein eftir Guðrúnu Helgadóttur deildarstj óra Guörún Helgadóttir deildarstjóri fáa baráttumenn, en sú tiö hljóti að koma að þetta fólk bindist samtökum til verndar rétti slnum. „Hlutverki þessa fólks er siður en svo lokið, a.m.k sýnist vera tals- verður áhugi á þvi á kosninga- dögum og þar ætti gamla fólkið að þekkja vopn sitt. Það getur ráðið þvi, hverjir sitja með stjórnar- taumana i höndunum og þaö á að hugsa vandlega um, hverjir bera hag þess fyrir brjósti, og svara kjaraskerðingum á réttan hátt. 20.000 atkvæði geta ráðið tals- verðu i þjóðfélaginu.” segir Guð- rún i grein sinni. Guðrún fagnar þvi að Alþýöu- sambandið skuli nú lita á sig sem málsvara gamla fólksins, og vitn- ar þar til siðustu kjarasamninga, þar sem sérstök áhersla var lögð á að leiðrétta óréttlátar eftir- launagreiöslur óverðtryggðra lif- eyrissjóða. Telja verði eðlilegt að starfsþrek fari minnkandi þegar TRYGGINGASTO RÍKISINS TRYGGINGASTOFNU N RÍKISINS TRYGGINGASTO RÍKISINS TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS hver er hann? Svarió er að finna i bæklingum okkar. Biöjiö um þá. Tryggingastofnun rikisins hefur nú gefiö út sex upplýsingabæklinga i um rétt fólks til bóta og lifeyris frá stofnuninni. Dvöl á elli- og hjúkrunar- heimilum Leggist ellilifeyrisþegi á sjúkrahús fellur greiðsla hans frá almannatryggingum niður, þegar hann hefur dvalist meira en 4 mánuði á tveim árum og sjúkra- samlagiðgreitt dvölina. Fari hins vegar fólk á hjúkrunar- eða sjúkradeild elliheimilis missir það lifeyri sinn þegar i stað, þar sem sjúkratryggingarnar greiöa dvölina þar. Hafi sjúklingurinn þá alls engar tekjur afgangs, á hann rétt á svonefndum „vasa- peningum” frá Tryggingastofnun rikisins. Nema þeir 4.000 krónum á mánuði. Fari ellili'feyrisþegi aftur á móti til dvalar á elliheimili, en þarf ekki að vera á sjúkra- eða hjúkrunardeild, er þannig gengið frá málum, að Tryggingastofnun rikisins greiðir uppbót á ellilif- eyrinn eins og nauðsynlegt er, til að hann nægi fyrir dvölinni þar. Einnig i þessu tilfelli á vist- maður rétt á vasapeningum, hafi hann engar tekjur. Annast skrif- stofur elliheimilanna um slikar umsóknir. Sé vistmaður með eftirlaun úr lifeyrissjóði minnkar uppbót Tryggingastofnunar og verður jafnvel engin ef eftirlaunin og ellilifeyririnn nægja fyrir vist hans. Þó er séð um að sérhver vistmaður hafi a.m.k. 4.000 krón- ur i vasapeninga. Segir Guörún að mörgum manninum hafi þótt þetta haröir kostir, aö eftirlaunin skuli ganga upp i dvöl á eliiheim- ili. en þarna þurfi lagabreytingu til, ef úr eigi aö bæta. Kjör aldraðra á íslandi Guörún Helgadóttir deildarstjóri í Trygginga- stofnun ríkisins skrifar at- hyglisverða grein í síðasta tölublað Tímarits Hjúkr- unarfélags Islands. Grein- in ber yfirskriftina Kjör aldraðra á íslandi og f jall- ar eins og heitið gefur til kynna um þann aðbúnað sem öldruðu fólki er búinn á íslandi t dag. Guðrún segir i upphafi greinar sinnar að láta muni nærri að um 10% landsmanna séu yfir 67 ára aldri eða um 20.000 manns. Þessi hópur fer stækkandi vegna bættr- ar heilbrigðisþjónustu og jafn- framt geri hann sér i æ rlkari mæli ljóst, aö hann eigi sama rétt til þjóðartekna og aðrir þegnar þjóðfélagsins. Þessi fjöldi eigi sér Þau leiðu mistök urðu i blaðinu i gær.að bíöut féll frétt af bráöa- birgðalögum um aö aldraöir og öryrkjar fái nú afslátt nokkurn frá þeim aukaskatti sem rikis- stjórnin lagöi á sl. vetur og kallaöi sjúkragjald, 1% af út- svarsskyldum tekjum. Or þessum mistökum er bætt meö birtingu fréttarinnar hér á eftir. • Vegna deilna um álagn- ingu 1% sjúkrasamlags- gjalds hefur forseti Is lands að tiliögu heilbrigðis- og tryggingaráðherra gef- ið út bráðabirgðalög þar sem kveðið er skýrt á um aðsveitarfélög skuli leggja á þetta gjald og standa sjúkrasamlögum skil á þvf 67 ára aldri er náð, enda sé hverj- um sem þeim aldri nær sent bréf með upplýsingum um réttindi hans til ellilifeyris og nauðsyn- leg umsóknareyðublöð. Sé ein- staklingurinn i fullri vinnu viö þennan aldur getur hann frestað töku ellilifeyris i allt að 5 ár og hækkar þá mánaðarleg upphæö með hverju ári sem töku lífeyris er frestað. Nefnir Guðrún sem dæmi, að ellilifeyrir sé 18.640 kr. á mánuði við 67 ára aldur, 20.224 við 68 ára aldur. 22.564 við 69 ára, 24.891 við 70 ára aldur, 27.956 við 71 árs aldur og sé ellilifeyrir tek- inn við 72 ára aldur er hann 31.142 krónur. Tekjutrygging greiðist án tillits til hækkunar. Þá getui Guðrún þess, að unnt sé að fá alla upphæðina greidda allt að tveim árum aftur i timann, hafi rétthafinn frestað töku ellilif- eyris. En við slika úttekt nýtur rétthafinn hins vegar ekki hækk- unarinnar. En sá sem nýtur hækkaðs lifeyris heldur honum til auk þess sem álagið er lækkað á elli- og örorkulíf- eyrisþegum, í samræmi við tekjur þeirra. 1 ljós hafði komið að skýr ákvæði vantaði I lögin frá þvi i desember i fyrra, sem skylduöu sveitarfélögin til þess aö inn- heimta 1% álag á gjaldstofn út-. svara og til þess að standa sjúkrasamlögum skil á fyrir- framgreiösiu eöa hlutfallslegri innheimtu þess mánaðarlega. Ekki var ijóst hvaða aðili ætti að leggja gjaldið á og þaö var lagt á tekjulitla elli- og örorkulifeyris- þega, en þaö var ekki tilgangur laganna. Með bráöabirgöarlög- unum er talið að þessum vafaatr- iðum hafi verið kippt i liðinn. Alagið á elli- og örorkulifeyris- þega á að lækka I samræmi við eftirfarandi: dauðadags og maki hans eftir hans dag. Segir Guðrún vart leika vafa á að betra sé að velja hærri mánaðarlegar greiðslur en að fá upphæðina greidda aftur i tim- ann, þar sem gildi upphæðarinnar hefur þá rýrnaö verulega. Tekjutryggingin Guðrún segir i grein sinni að hafi ellilifeyrisþegi ekki yfir 46.380 krónur i árstekjur eigi hann rétt á tekjutryggingu, sem nú sé kr. 15.112 á mánuði fyrir einstakl- ing. Þetta þýðir að einstaklingur sem ekki hefur haft meira en 46. 380 kr. i árstekjur á rétt á 33.752 krónum á mánuði i ellilifeyri og tekjutryggingu. Um hjón gildir sú regla að hafi þau ekki haft yfir 83.460 kr. i árstekjur, eigi þau að hafa 59.099 kr. á mánuði i ellilif- eyri og tekjutryggingu. Þær tekjur sem umfram eru lágmarksupphæðina skerða tekjutrygginguna eftir ákveðnum a. Hjá einstaklingum með tekjur til útsvars kr. 320.000 eða lægri og hjá hjónum með tekjur tii útsvars kr. 570.000 eða lægri skal áiag þetta alveg falla nið- ur. b. Hjá einstaklingum með tekjur til útsvars á bilinu kr. 320.100 til kr. 640.000 skal álag þetta lækk- aö um 1% af þeirri fjárhæð, sem á vantar 640.000 króna tekjumark. c. Hjá hjónum með tekjur til út- svars á bilinu kr. 570.100 til kr. 1.140.000 skal álag þetta lækkaö um 1% af þeirri fjárhæð, sem á vantar 1.140.000 króna tekju- mark. d. Eftirstöðvar álags þessa, sem lækkað hefur verið skv. ákvæö- um b. og c. Iiða skal að lokinni lækkun standa á heiium hundr- uðum króna, þannig að lægri fjárhæð en kr. 100 skal sleppt. reglum, þ.e. 55% umframtekn- anna skerða tekjutrygginguna. Guðrún leggur á þaö áherslu i grein sinni að ellilifeyrisþegar sem hafi litlar tekjur ættu þvi alltaf að kanna rétt sinn á tekju- tryggingum. Til þess þurfi þeir að koma til Tryggingastofnunar rik- isins eða umboða hennar, ef um er að ræöa fólk utan Reykjavíkur. Sjálfur ellilifeyririnn skerðist ekki neitt, eingöngu tekjutrygg- ingin. Uppbót Þriöji bótaflokkurinn er svoköll- uð uppbót á lifeyri, en hana er heimilt að veita bótaþega, geti hann ekki lifaö af ellilifeyri og tekjutryggingu.t slikum tilfellum er tekið tillit til þess ef viökom- andi bótaþegi þarf að greiöa sér- staklega háa húsaleigu eða hefur mikil útgjöld af lyfjakaupum eða læknishjálp. Þá er slik uppbót einnig greidd þeim sem þurfa sérstakrar umönnunar við i heimabúsúm. „Rétt er að taka fram, að þeir sem slikrar uppbótar njóta geta fengið felld niður afnotagjöld af útvarpi og sjónvarpi, ef ekki eru aðrir vinnandi menn á sama heimili. Þá þarf að fá vottorð frá tryggingaumboði um að uppbótin sé fyrir hendi og koma þvi til inn- heimtudeildar útvarps og sjón- varps að Laugavegi 176, Reykja- vik.” Þá segir Guðrún, að hafi ellilif- eyrisþegi, sem hafi litlar eða eng- ar tekjur barn undir 17 ára aldri á framfæri sinu, geti hann sótt um barnalifeyri. Sá lifeyrir er nú kr. 9.539 á mánuði. Fasteigna- og símagjöld 1 grein Guðrúnar segir, aö i lög- um um tekjustofna sveitarfélaga segi, að heimilt sé að lækka fast- eignagjöld tekjulitilla elli- og ör- orkulifeyrisþega. I Reykjavik sé þessi lækkun afgreidd eftir skattaskýrslum, en Guðrún ráö- leggur fólki á öörum stööum á landinu að sækja sérstaklega um slika lækkun til viðkomandi bæj- ar- og sveitarstjórna. Þá segir Guðrún, að mikið sé spurt hvort fyrir dyrum standi að fella niður afnotagjöld af sima sem ellilifeyrisþegar hafi aðgang að. Guðrún segir, að á þingi hafi verið samþykkt heimild til sam- gönguráöherra um að fella þessi gjöld niður, en ráðherra hafi ekki enn notfært sér þá heimild. „Og vissulega má það kostu- legt heita,” segir Guðrún i grein sinni, „að maður sem er á sjúkra- deild og fyrir hann er greitt úr sjúkratryggingum, skuli halda eftirlaunum óskertum, en sá sem dvelst á venjulegri vist skuli missa sin eftirlaun upp i dvölina. En skyringin er sú, að sjúkra- tryggingar greiða dvölina á sjúkradeild að fullu, þar sem clli- lifeyrir fellur þá niður með öllu, en eftirlaun haldast óskert. Væri sannarlega ekki úr vegi að lag- færa þetta.” Hjálpartæki 1 grein Guðrúnar segir, að sam- kvæmt lögum frá 1974 eigi allir lifeyrisþegar að fá greiddan helming af kostnaöi við tannlækn- ingar og gildi hið sama um gervi- tennur. Þá taki Tryggingastofnun rikis- ins einnig þátt i greiðslu margs konar hjálpartækja, en i slikum tilfellum veröi að kanna hverja umsókn fyrir sig. Spyrjisf fyrir! Grein sinni lýkur Guðrún Helgadóttir á þessum orðum: „Eina meginreglu ættu allir ellilifeyrisþegar að hafa, ef þeir eru i minnsta vafa um rétt sinn: að snúa sér til Tryggingastofnun- ar rikisins eða umboða hennar ut- an Reykjavikur. Það er skylda okkar sem þar vinnum að veita allar þær upplýsingar, sem um er beðið, og benda viðskiptavinum okkar á, hvernig mál þeirra verða best afgreidd. Gefnir hafa verið út bæklingar, sem auðvelt á að vera að nálgast, og þar höfum við reynt að upplýsa þessi marg- slungnu mál i sem skýrustu máli. Það mætti skrifa langt mál um kjör aldraðra i landi hér, en i þessu spjalli hef ég reynt að halda mig við það sem lýtur að al- mannatryggingunum. En vita- skuld eru almannatryggingar að- eins einn þáttur i hina mikla fé- lagi okkar allra, þjóðfélaginu, og fjölmörg mál þarfnast rækilegrar endurskoðunar, svo sem húsnæð- ismál hinna öldruðu, dvalarstofn- anir, atvinnumál þeirra og margt fleira. Þvi fyrr sem allir fram- kvæmdaaðilar þessara mála- flokka taka höndum saman um betri kjör hinum öldruðu til handa, þvi betra. Það er til litils sóma, ef við sem nú búum að dagsverki þeirra, reynumst ekki menn til að greiða þeim þau eftir- laun, sem þeir verðskulda.”-hin Sveitarfélögin eiga að leggja sjúkrasamlagsgjaldið á r Alag lækkað á elli- og örorkulífeyrisþegum

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.