Þjóðviljinn - 11.08.1976, Page 7
Miövikudagur 11. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Árni Ingvarsson, sjómaður rifjar upp nokkrar
minningar frá því að hann réri frá Ögurnesi 1928
Arni Ingvarsson við tóftir þær sem uppi standa á ögurnesi og minna á gamla og góöa útgeröardaga frá þeim stað. Héðan réri Arni fyrir hart
nær hálfri öld.
Á Ögurnesi við isaf jarð-
ardjúp gefur að líta tófta-
brot og nokkrar aðrar
minjar, frá þeim tíma er
þarna var útgerðarstöð. i
ferð alþýðubandalags-
manna af Vesturlandi var
þessi staður skoðaður,
enda fróðlegur mjög og
saga hans ekki ómerk. Það
kom í Ijós að einn maður í
ferðinni, sá aldni sjógarp-
ur Árni Ingvarsson, sem
um áratuga skeið hefur
búið á Akranesi, en fæddur
er vestur á Isafirði, réri
frá þessum stað á ögur-
nesinu þegar hann var
ungur maður, árið 1928.
Arni sagðist muna vel eftir
þessum stað, sem hefði staðið i
blóma það ár sem hann réri það-
an og hefði staðið eitthvað fram á
fjórða áratug þessarar aldar.
— Þegar ég réri héðan munu
hafa búið hér á milli 40 og 50
manns,- þetta var eiginlega litið
þorp. Og héðan var róið á vorver-
tið og haustvertið. Yfir sumarið
var farið á sild. Vorvertið hófst
vanalega skömmu eftir páska og
stóð fram til 24. júni og haustver-
Réri frá
• •
Ogurnesi
fyrir
hálfri öld
tiðin þegar menn komu af sild.
Róið var á smábátum trillum og
litlum dekkbátum. Sá bátur sem
ég réri á héðan var eitthvað um
fjögur eða fimm tonn. Það var
stutt að fara á miðin, bara hér
rétt útfyrir.
— Þú sérð þennan stóra haug
af skeljabrotum á fjörukambin-
um. Þetta eru leifar kúfiskskelja,
sem hingað voru fluttar, en kú-
fiskurinn var notaður til beitu.
Sumir halda að þetta séu skelja-
brot sem sjórinn hefur skolað á
land, en það er ekki rétt; hér er
enginn skelfiskur fyrir framan,
hann var allur fluttur hingað og
notaður i beitu.
— Þegar ég var hér, var búið i
timburhúsum, en þessir tort- og
grjótkofar, sem við sjáum nú tóft-
irnar af, voru notaðir við fisk-
verkunina. Við sjómennirnir
hausuðum og slógdrógum fiskinn,
en menn i landi flöttu hann og
söltuðu. Siðan var hann sóttur á
bátum og fluttur til Isafjarðar.
— Héðan gerði út Hermann
Hermannsson, faðir Sverris Her-
mannssonar alþingismanns og
þeirra bræðra og héðan eru kom-
in nöfnin á togarana þeirra, ögri
og Vigri. Ég man vel eftir Her-
manni, hann var með útgerð þeg-
ar ég réri héðan.
Árni sagði að þarna á nesinu
hefði oft verið lif og fjör þegar vel
veiddist og vel lá á mönnum. Nú
eru þarna rústir einar eftir, minj-
ar um fornan en merkan útgerð-
arstað. Ekki leyndi það sér hve
mikla ánægju Árni hafði af þvi að
koma þarna einu sinni enn; þarna
þekkti hann hvern stein og hól og
miðin fyrir utan, sem einu sinni
voru svo fengsæl að upp reis þorp
á nesinu þaðan sem styst var að
sækja á þau.
— S.i
Herrarnir og þjónar
þeirra í skattskrá
Skattskráin er full af ævintýr-
um. Þar má ma. lesa sögur um
herra og þjóna þeirra: hversu
hsrrarnir berjast I bökkum en
þjónarnir lifa i vellystingum
praktuglega þvf svo gifurlegt
arörán á sér staö af þjónanna
háifu, aö herrarnir sitja eftir
sem tekjulausir bónbjargar-
menn.
Þar má lesa söguna af hótel-
eigandanum, flugfélagseigand-
anum, veiðiáaeigandanum og
lögmanninum, sem greiöir enga
krónu I tekjuskatt, en til viðbót-
ar þeim eignum, sem upp eru
taldar á hann að sjálfsögðu 3ja
miljón króna bil og 25 miljón
króna hús.
Sá sem sér um aö færa honum
póstinn hvern dag, póstþjónn-
inn, eigandi skellinöðru og
þriggja herbergja kjailaraibúö-
ar i vesturbænum greiðir hins
vegar 112 þúsund krónur i
tekjuskatt til rikissjóös.
Þá má i skattskránni lesa um
fasteignasalann, sem hefur tvo
lögfræöinga i vinnu og þrjá sölu-
menn við að selja fasteignir, og
á siðan sjálfur hús og bil, fyrir-
tæki sem selur vinsælar ijós-
myndavörur auk eins og
annars, sem almenningi er
ekki kunnugt um; hann greiðir
ekki tekjuskatt.
Hins vegar greiöir einstæð
móðir i tveggja herbergja fram-
kvæmdanefndaribúð tekjuskatt.
Hennar vinna er sú aö þvo gólf á
skrifstofum, ma. gæti hún þveg-
iö gólfið á fasteigna- og lög-
mannsstofu fyrrgreinds herra.
Tekjuskattur hennar er 84
þúsund krónur.
Og enn má lesa af útgerðar-
manninum sem hófst af engu,
eða sjálfum sér ef menn vilja
vera illkvitnir. Hann á einn og
hálfan togara, tvo minni báta og
leigir auk þess nokkra minni
báta yfir veturinn Hann á
stærsta og fullkomnasta frysti-
hús sunnan Straums, tvo nokk-
urra miljón króna bila og ein-
býlishús i vesturbænum, san aö
söluverðmæti er ekki undir 35
miljónum króna i dag. Þessi
herra greiðir ekki tekjuskatt til
rikissjóða
Sjómaöur einn, sem á einu
fleyja hansstarfar, og á ibúðar-
hæð suður meö sjó, skódabil og
Framhald á bls. 14 .
Hagstofu-
stjóri og
ar þinga
I dag lýkur I Reykjavík fundi
norrænna hagstofustjóra og aö-
stoöarmanna þeirra. Hagstofu-
stjórar á Noröurlöndum koma
saman árlega, en meiri háttar
fundur er haldinn þriöja hvert ár.
Hagstofan hefur veriö aöili aö
þessu samstarfi siðan 1921, en aö-
eins tekiö þátt I fundum þriöja
hvert ár. Hagstofustjórar
Noröurlanda hafa tvisvar áöur
haldið fund i Reykjavik, áriö 1948
og áriö 1963.
Þetta samstarf hagstofa
Norðurlanda, sem er mjög við-
tækt og f jölþætt, hófst árið 1889 og
hefur staðið óslitið siðan, þó ekki
á styrjaldarárunum.
A morgun hefst svo þriggja
daga almennt mót tölfræðinga á
Norðurlöndum. Taka þátt i þvi
um 115 tölfræðingar frá fimm
Norðurlöndum, en að meðtöldum
mökum er tala gesta alls um 170.
islenskir þátttakendur eru rúm-
lega 20 að tölu.
Norræn tölfræðingamót hafa
verið haldin þriðja hvert ár siðan
1927, en þetta er fyrsta mótið,
sem haldið er á Islandi.
Viðfangsefni þessa fundar er:
„Statistikin og þjóöféiagiö —
hvernig orkar hún á þjóöfélagiö
og þaö á hana?”
Skipverji á
Dagnýju
drukknaði
Páll Reynir Kristjánsson, 22
ára gamall skipverji á skuttogar-
anum Dagnýju frá Siglufirði, féll
útbyrðis og drukknaði er skipið
var að veiðum á Strandagrunni
siðdegis á laugardag. Páll var
sonur Lilju Jóelsdóttur og
Kristjáns Rögnvaldssonar, skip-
stjóra á Dagnýju. Hann var við
nám i Háskóla Islands. Hann var
ókvæntur.
Páll Reynir Kristjánsson.
Páll heitinn var að vinna við
troll á dekki þegar hann féll út-
byrðis. Ráðstafanir til þess að ná
honum úr sjónum voru strax
gerðar en reyndust árangurslaus-
ar. Lik hans fannst ekkí.
'__Æf
SKIPAUTC.CRB RiKISINS
M/s Esja
fer frá Reykjavík föstu-
daginn 13. þ.m. austur um
land i hringferð.
Vörumóttaka:
þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag til Vestfjarða-
hafna, Norðurfjarðar, Siglu-
fjarðar. óla f s f ja r ða r,
Akureyrar, Húsavikur,
Raufarhafnar, Þórshafnar
I og Vopnafjarðar.