Þjóðviljinn - 26.08.1976, Side 7

Þjóðviljinn - 26.08.1976, Side 7
Fimmtudagur 26. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 Jón Múli Arnason skrifar sinnum tveir Ein af stærstu stundum i lifi' hvers íslendings rennur upp þegar honum er i frumbernsku sýnt fram á me6 óyggjandi rök- um að tvisvar tveir séu fjórir. Þessi reikningskúnst dugar flestum vel i lifinu og láta marg- ir nægja til æviloka. Einstaka afburöamenn vilja þó læra rrieira i faginu, og nokkrir ná svo langt aö engin rikisstjórn getur án þeirra verið þegar þarf aö reikna út þjóðarhag. Þá eru þessir talnameistarar skipaöir i æöstu embætti og sitja siðan meö sveittan skallann frá morgni til kvölds ár og síö og alla tið og reikna, leggja saman, draga frá, margfalda og deila, og þjóökjörnir fulltrúar á Al- þingi samþykkja niöurstööurn- ar, — og gildir einu hvort situr viö völd hægri stjórn eöa vinstri stjórn. Almúginn sem veit aö tvisvar tveir eru fjórir fylgist undrandi meö útkomunum hverju sinni, — hann kemst ekki hjá því, — útreikningaforingj- arnir nota hvert tækifæri sem býöst aö flytja hástemmdar ræöur um afrek sin á fundum og mannamótum, — f ríkisfjöl- miölum og visindalegum rit- gjöröum i blööum og timaritum, — og alltaf reynist öll spekin jafnvitlaus, — og alltaf eru spekingarnir hinir sömu. ögn lægra settir I mannvirð- ingastiganum eru svo þeir sem reikna út mannabyggö á Is- landi. Þeim finnst mest um vert aö skipuleggja visindalega „þéttbýliskjarna” meö reglu- stikum og sirklum á teiknistof- um sinum og rikisins, og gæta þess vandlega aö lita aldrei upp úr kortageröinni, aö eigi veröi náttúra Islands eöa útsýni þeim til trafala viö listaverkin. Eftir áralangt streö og kúnstnerisk heilabrot stendur svo allt klárt aö lokum, — fullkominn arki- tektúr sem bara á eftir aö risa af grunni. Þá má rétt imynda sér vonbrigöi aumingja mann- anna þegar almúginn i „þétt- býliskjarnanum” Reykjavik fer i mótmælagöngu og neitar aö láta smiöa steinsteypubákn fyr- ir framan Esjuna. Þetta fólk sem veit bara aö tvisvar sinnum tveir eru fjórir fer nú aö veröa dálitiö þreytt á seölabankahol- unni i Arnarhólnum, — og væri verðugt verkefni fyrir snjalla arkitekta aö fara að drifa I þvi aö flytja gatiö burt á einhvern viðeigandi staö, — og beita viö tilfæringarnar nútimatækni og visindalegum aöferöum. Nýlega var „árskýrin” reikn- uö út og sagt frá henni i útvarp- inu. Þótti þá ýmsum sem lærðu um húsdýr á Isiandi um svipað leyti og tvisvar tveir eru fjórir aö nú væru stærðfræöingar Landbúnaöarráöuneytisins komnir út fyrir verksviö sitt, — og væri nær aö halda áfram aö teikna linurit um afurðir „árs- kýrinnar” og markað fyrir þær i verslunum Reykjavikur. Þar hafa snillingarnir nefnilega komist aö há-visindalegri niöur- stööu, — „timamótamarkandi” eins og þaö heitir á fegursta máli „opinberra aðila”. Það á bara aö loka mjólkurbúöunum. Svona er þetta einfalt. Haft var eftir einum æösta embættismanni Mjólkursam- sölunnar aö „gamalt fólk neytti svo litillar mjólkur aö ekkert geröi til þótt mjólkurbúöirnar hyrfu úr gömlu hverfunum.” — Skitt meö gamla fólkiö — og gömlu hverfin. Og unga fólkið sem þar hýrist innan um, — aö maður tali nú ekki um krakkana þess. Svona fólki hefur haldist allt of lengi uppi aö njóta lifsins i þessum borgarhverfum, — allt frá Noröurmýri og vestur á Seltjarnarnes. Þaö getur bara reynt aö koma sér burt, — þetta er einmitt ákjósanlegasti staöur á öllu islandi fyrir glæsileg verslunarhverfi, meö hugguleg- um veitingahúsum, stjórnar- ráösbyggingum og Seðlabönk- nm, — og hverskyns verksmiöj- um til aö prýöa umhverfið og reka með stórtapi, eigendum þeirra til skattfrjáls ágóöa. Hvaða máli skiptir þótt nokk- ur hundruð konur hrekist úr ævistarfi sinu i gömlu mjólkur- búöunum. Þær eru búnar aö sýna ágæti sitt á undanförnum áratugum, og viöskiptavinir þeirra búnir aö njóta ánægjunn- ar af heimsóknum til þeirra kvölds og morgna og um miðjan dag alveg nógu lengi. Það er heldur alls ekki vist aö verslun- arviöskipti eigi að byggjast á mannlegum samskiptum, — hver er kominn til að segja aö krakkarnir sem skreppa nokkr- um sinnum á dag út í mjólkur- búö eigi aö mæta þar hlýlegu viömóti og vingjarnlegu hjali, — er nokkur ástæöa til aö vinkonur okkar i gömlu mjólkurbúöunum haldi áfram aö þekkja okkur lengur og rabba viö okkur um daginn og veginn upp á gamlan kunningsskap? Samt er þaö svo aö almúginn i Reykjavik, — sem að sjálfsögöu er ekki eins læröur i reiknings- listinni og embættismenn og sjálfskipaöir leiðtogar i háum embættum, — hefur þrátt fyrir allt fengiö i vöggugjöf ýmsa þekkingu sem ekki veröur teiknuö meö sirklum, né dregin upp á linurit hagfræöinga. Og þegar lýkur undirskriftasöfnun gegn lokun Mjólkurbúöanna i Reykjavik, þá mega hinir háu herrar sem alltaf vilja vera aö stjórna okkur almúganum sjá svart á hvitu, aö enn einu sinni hafa þeir beöiö ósigur, — þaö er eins vist og tvisvar tveir eru fjórir. JMA. Svava Jakobsdóttir Jökull Jakobsson Birgir Sigurösson Kjartan Ragnarsson Leikfélag Reykjavíkur: Mörg íslensk leikrit í vetur Áfjölunum i lönó i vetur konnir margra nýrra grasa úr hinni íslensku leikrita- flóru. Amk. 4 ný leikrit verða sýnd eftir þau Svövu Jakobsdóttur, Kjartan Ragnarsson# Birgi Sigurösson og Jökul Jakobsson. Ennfremur verður Shakespeare og ungverskt leikrit á boðstól- um. Fyrsta frumsýningin á þessu 80. leikári Leikfélags Reykjavik- ur er ádeiluverk eftir ungverska höfundinn Ferent Molnát, nefnist þaö Stórlaxar og er ádeila i létt- um dúr á brask og bankamál. Fellur það vafalaust i góöan jarö- veg nú á dögum hinna miklu svindlarahringa. Verið er aö æfa Húsráðandann eftir Svövu Jakobsdóttur og verö- ur þaö leikrit frumsýnt i október. Einnig veröur frumsýnt i vetur leikritið Týnda teskeiðin eftir Kjartan Ragnarsson, ádeiluverk á islenskt þjóöfélag. Gerist nú skammt stórra högga á milli hjá Kjartani en annaö leikrit eftir hann mun vera á dagskrá i Þjóö- leikhúsinu. Þá munu þeir Jökull Jakobsson og Birgir Sigurösson vera aö skrifa leikrit sem tekin verða til sýninga i Iönó i vetur. 1 tilefni af 80 ára afmæli Leik- félags Reykjavikur verður Macbeth, hiö klassiska verk Shakespeare, fært upp um jóla- leytið. Nú þessa dagana er hópur leik- ara i Færeyjum og sýnir þar Skjaldhamra eftir Jónas Arnason i tilefni af 50 ára afmæli Sjón- leikafélags Færeyja. —GFr. Hjúkrunarfræðingar Iljúkrunarfræðingar óskast nú þegar að sjúkrahúsinu á Selfossi. Hlutavinna kemur einnig til greina. Upplýsingar gefur forstöðukona sjúkra- hússins i sima 99-1300. Sjúkrahússtjórn. ^BIómabuðin MÍRA Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430 Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590 Blóm og gjafavörur i úrvali

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.