Þjóðviljinn - 26.08.1976, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 26. ágúst 1976
Fimintudagur 26. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Einbeitni og ákveðin handtök eru góöir eiginleikar I fiskiöna&i.
Þessi stúlka virtist hafa hvort tveggja til aö bera.
STALDRAÐ
VIÐ A
AKUREYRI
Þaö var verið aö landa úr Kald-
baki EA 301 þegar fréttamaöur
Þjóðviljans rölti niöur að stasjón
Útgerðarfélags Akureyringa.
Togarinn hafði komið af Hala-
miðum um nóttina eftir 11 daga
útivist og hafði innanborðs um 197
tonn af þorski. „Fallegur fiskur,
en nokkuð jafnsmærri en hjá
næsta skipi á undan”, sagði Gisli
Konráðsson framkvæmdastjóri
ÚA þegar við spurðum hann um
aflann.
Fiskurinn er isaður i kassa um
r
Utgerðarfélag Akureyringa:
MIKIL VINNA
OGSTÖÐUG
þegar verið var að mynda þær.
Gisli Konráftsson sagfti okkur
að þannig væri þetta alla daga.
Undantekning ef virkjur dagur
félli niður i vinnu. Einnig væri
stundum unnið eftir kvöldmat, til
klukkan 11, og einstaka laugar-
dagar kæmu einnig inn i dæmið.
Þannig væri óhætt að segja að
atvinna hjá þeim 200 mönnum
sem vinna i landi á vegum
Útgerðarfélags Akureyringa væri
mjög örugg.
—hm.
segir Gísli
Konráðsson
framkvœmda
stjóri
borð i Kaldbak og á hráefnið þvi
að vera mjög gott. Það var verið
að hifa lyftara um borð þegar
okkur bar að og við fengum þá
skýringu að hann væri notaður i
lestinni til að færa fiskikassana
til.
Inni i frystihúsi ÚA var ys og
þys, flökunarvélarnar spýttu út
úr sér hráefninu sem siðan var
ekið til stúiknanna við pökkunar-
borðin. Þær skáru úr bein með
fjallaháan stafla óskorinna þorsk-
flaka kringum sig og litu vart upp
Þessi var aö vinna viö hinn nýja togara dalvikinga, sem veriö er aö
smiöa i Slippstööinni.
Flökunarvélarnar sþýttu út úr sér hráefninu.
Úr móttökunni. Hver kassi er veginn áöur en fiskinum er kastaö á færibandiö sem færir hann til
frekari vinnslu.
Guöinundur RE sigur hér áleiöis I dráttarbraut, en í baksýn sést togari sá sem er I smiöum fyrir Útgeröarfélag Dalvlkinga hf.
Slippstöðin á Akureyri:
TVEIR TOGARAR
ERU í SMÍÐUM
Slippstöðin á Akureyri er með
meiriháttar fyrirtækjum hér á
landi og i sérflokki sem skipa-
smiðastöð. Þegar fréttamaður
gekk þar um hlað var aflaskipið
Guðmundur RE að siga upp i
dráttarbraut i annað sinn á
stuttum tima, en hann hefur
dvalið um nokkra stund hjá
Slippstöðinni. Aft sögn Ingólfs
Sverrissonar hjá Slippstöðinni
er Guðmundur með bilaða
skrúfu, og var hún tekin af fyrir
nokkru, en var settur I sjó aftur
þar sem varahlutir voru ekki
fyrir hendi i landinu. Nú eru
þeir hins vegar komnir og þvi
var Guðmundur á leið upp aftur
og standa vonir til að hann geti
farið að afla gjaldeyris fyrir
þjóðina á ný bráðlega. Ekki
veitir af.
og unnið að
lagfœringum
og endurbótum
í miklum mœli
Pétur Jónsson RE 69 lá við
bryggju á athafnasvæði stöð-
varinnar og voru starfsmenn að
koma fyrir vinnupöllum utan á
honum þegar fréttamann bar
að. Ingólfur sagði okkur að það
sem verið væri að gera viö
Pétur Jónsson væri ekkert
smotteri, hér væri nánast verið
að smiða nýtt skip. t fyrsta lagi
á að lengja skipið, siðan að
byggja ýfir þilfarið, eins og
farið er aö gera i sifelit rikara
mæli á fiskiskipum og loks á að
setja á hann hliðarskrúfu. Auk
þess er svo mikil vinna við
vélina i honum.
Við aðra bryggju þarna á
svæðinu lá tilvonandi 436 tonna
skuttogari sem verift er aft
smiða fyrir Útgerðarfélag Dal-
vikinga hf. Þessi togari er fyrir
venjulegar togveiöar einvörð-
ungu, en inni i húsi voru starfs-
menn að vinna við smfði 490
tonna skuttogara fyrir Þórð
Óskarsson á Akranesi og verður
sá fyrir togveiði, nótaveiði og
flotvörpu. „Hann verður I öllum
aðalatriðum eins og
Guðmundur Jónsson sem
frægastur er orftinn togara fyrir
fullkomleika sakir,” sagði
Ingólfur Sverrisson. —hm,
Þeir voru að setja vinnupalla utan á Pétur
Jónsson RE, þegar fréttamann bar að, og
stendur til að gera hann að nýju og stærra
skipi.
Leikfélag Akureyrar:
60 ára á næsta leikári
Hús Leikfélags Akureyrar við Hafnarstræti.
Verkefni ekki
ákveðin, en
leikrit eftir
Aristofanes
sennilega
afmœlis-
verkefni
Leikfélag Akureyrar hefur und-
ir starfsemi sina skemmtilegt hús
við Hafnarstrætið innanvert. Það
stendur hátt eins og sæmir húsi af
þessu sniði, gamalt timburhús
með turni og fallegum tréskurði.
Þegar inn kom var verið að vinna
viö lagfæringar á húsinu norð-
vestanverðu og veitti vist ekki af.
„Þetta var oröið grautfúið.”
sagöi Jón Kristinsson formaöur
Leikfélags Akureyrar, þegar við
spurðum hann um þessar fram-
kvæmdir. „Viö höfum unnið við
lagfæringar á húsinu svona
smátt og smátt, eftir þvi sem
fjárveitingar hafa leyft undanfar-
in ár. Nú ætlum viö m.a. að flytja
karlasnyrtinguna upp og stækka
kvennasnyrtinguna. Auk þess
verða svo einhverjar breytingar
niðri og á uppganginum.
Ekki sagðist Jón halda aö Leik-
félag Akureyrar myndi nokkru
sinni byggja yfir sig, bæjarfélagið
yrði að sjá um slika hluti. Hins
vegar væri það augljóst að þetta
hús væri þess eftlis, að einn góðan
vefturdag gæti Leikfélagið f'.ullt
eins staöið uppi leikhússlaust
„Þetta hús getur auðvitað dugað
okkur til margra ára til viðbótar.
Þyrfti að visu að stækkast til suö-
urs, þannig aö byggft yrftu
búningsherbergi i þá áttina. Þá
myndi sviöið stækka og gera svií
setningu auðveldari á méiriháttar
verkum. En mig langar ekkert i
einhvern steinkumbalda i stað
þessa húss.” sagöi Jón.
Að sögn Jóns er viöfangsefna-
skráin ekki fullmótuð fyrir næsta
leikár, en telja mætti nokkuð vist,
aö i aprílmánuði yrði sýnt leikrit-
ið Skýin eftir Áristofanes. Það
yrðiaðlikindum afmælisverk LA,
en það veröur einmitt 60 ára þann
19. april. Leikritið er þýtt af Karli
Guömundssyni leikara. Ekki vildi
Jón þó slá þvi föstu að þetta yrði
afmælisve»-k, en taldi það liklegt.
Eyvindur Erlendsson leikhús-
stjóri var eins og Jón tregur til að
gefa uppýsingar um verkefnaval-
ið, þar sem ýmsir möguleikar
væru þar á skrá en enginn fast-
ákveðinn enn sem komið væri.
„Hins vegar er nokkuð ljóst, að
við verðum eins og venjulega með
5 leikrit og þar af eitt barnaleik-
rit” sagði Eyvindur. Við höldum
svo áfram námskeiðahaldi sem
við höfum verið með undangengin
ár og hafa gefift okkur góða raun
með nýjum starfskröftum, sem
þarna hafa fengiö sina fyrstu
reynslu af leiklist og haldið áfram
námi. Nú, svo á að fara að æfa
farsa, sem guðmávita hvað heitir
eða eftir hvern er. Ég er satt að
segja ekki búinn að kynna mér
það, enda hef ég verið sunnan
heiða i allt sumar.”
Fastráðið fólk við Leikfélag
Akureyrar eru 5 leikarar, leik-
hússtjóri, ljósamaður og leik-
sviðsstjóri. en þaðsiðasta er laust
til umsóknar, þar sem Erlingur
Viggósson sem gegndi starfinu sl.
vetur hefur látið af störfum.
—hm.