Þjóðviljinn - 26.08.1976, Page 11

Þjóðviljinn - 26.08.1976, Page 11
Fimmtudagur 26. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Skíðamót um næstu helgi í Kerlingar- fjöllunum Um næstu helgi, laugardag 28. ág. og sunnudag 29. ág. lýkur starfsemi Skiðaskólans i Kerling- arfjöllum i sumar með árlegu skiðamóti skólans i svigi i öllum aldursflokkum. Einnig verður svonefnt Fannborgarmót fyrir 15 ára og eldri ef timi endist til og veður leyfir. Austurrikismaður- inn Helmut Maier verður meðal keppenda en hann er nú við þjálf- un keppnisfólks i Kerlingarfjöll- um á námskeiði sem skólinn efnir til i sambandi við skiðamótið. Nú þegar eru um 70 þátttak- endur á þjálfunarnámskeiðinu i Kerlingarfjöllum og má búast við fjölda skiðafólks þar efra um helgina. Nafnakall veröur i Fann- borgarskála kl. 12, laugardaginn 28. ágúst. Keppnisgjald er sem i öðrum mótum og verða veitt þrenn verölaun i hverjum aldurs- flokki. Sigurvegari I Fannborgar- mótinu hlýtur veglega styttu i verðlaun. Ennþá I fullu fjöri þessir fimm sem fyrir niu árum síðan voru i Valsliðinu sem þá sigraði i Islandsmótinu. Frá vinstri eru Hermann Gunnarsson, Sigurður Dagsson, Halldór Einarsson, Bergsveinn Alfonsson og Alexander Jóhannsson. Níu ára baráttu fimm- meimmganna lokið Þessir fimm harðsnúnu Valsarar hafa i nfu ár barist i rauðu peysunum fyrir islandsmeistaratitli, en þeir veru allir i liði Vals sem sigr- aði I islandsmótinu eftir auka- leik við Fram um islands- meistaratitilinn. Sigur Vals i islandsmótinu i ár var svo sannarlega orðinn langþráður og var fögnuður þeirra mikill að leik ioknum. Ekki verður haldið upp á árangurinn með sérstakri við- höfn i ár en ekki er ótrúlegt að úr þátttöku þeirra i Evrópu- keppni meistaraliða á næsta ári veröi gerð hin myndarieg- asta reisa. Valur sigraði I þessu móti á einni glæsilegustu markatölu sem nokkurt lið hefur státað sig af og svo sannarlega hafa leikmenn liðsins sýnt það i sumar að þeir verðskulduðu titilinn öllum öðrum félagslið- um fremur. Til hamingju Valsmenn meö glæsilegan árangur i sumar! gsp Br eið abliksmenn komnir í stóran hóp „mótmælenda” Breiðabliksmenn hafa nú skipað sér á bekk með öllum þeim fjölda knattspyrnu- manna sem á einn eða annan hátt á bágt með að sætta sig við þau vinnubrögð sem við- höfð eru i herbúöum KSl. t Þjv. igær birtíst langt bréf frá knattspyrnumönnum Austra sem telja sig hlunnfarna og i sumar hafa hvað eftir annað blossað upp reiðar raddir sem ásakað hafa stjórn KSt og hennar nefndir fyrir óeðlileg vinnubrögð og jafnvel gróf- lega mismunun. Ástæðan fyrir óánægju Breiðabliksmanna er sú, að þeir telja sig hafa verið rang- læti beitta i sambandi við bik- arkeppni KSt og átta liða úr- slitin i henni, en andstæðingar þeirra voru KH-ingar. Sagan er i stuttu máli þannig: Aukaleikur Breiðabliks i 8- liða úrslitunum gegn KR var settur á með góöum fyrirvara kvöldiö fyrir leik islands gegn Luxemborg. Þaö var föstu- dagskvöld 19. ágúst en tveim- ur dögum fyrr átti Breiðablik þýðingarlitinn leik gegn Þrótti. Þangað var stefnt al- gjöru B-liði Breiðabliks til þess að spara mannskapinn fyrir leikinn gegn KR i 8-liða úrslitum. Rétt áður en mið- vikudagsleikurinn gegn Þrótti eru argir og reiðir út i stjórn KSI og nefndir sem henni viðkoma hófst tilkynnti KSÍ um frestun bikarleiksins gegn KR. Vara- lið Breiðabliks var engu að siður látið spila eins og ákveð- ið hafði verið. Breiðabliks- menn tóku þessu þegjandi, ekki orði hreyft til að mót- mæla. Liður og biður. Leik KR- Breiðabliks er frestað til kvöldsins i kvöld. Tveir leik- menn KR, Halldór Björnsson og Haukur Ottesen voru i leik- banni, sem var heldur betur bagalegt enda yfirlýst af KR- ingum að þeir ætluðu sér að leggja allt I sölurnar fyrir góð- an árangur i bikarkeppninni, ekki sist eftir að hafa misst niður fyllilega verðskuldaðan sigur yfir Breiðablik I fyrri lcik liðanna i 8-liða úrslitun- um. Aganefnd KSI hefur i allt sumar komið reglulega saman á ÞRIÐJUDÖGUM. Vitaö var að á fundi hennar i þessari viku yrðu þeir félagar úr KR dæindir i keppnisbann. Sann- arlega bagalcgt fyrir KR vegna hins mikilvæga leiks sem framundan var. En viti menn.... fundi aga- nefndar er allt i einu flýtt! t stað þess að koma saman á þriöjudegi kl. fimm er nefndin kölluð saman kl. þrjú sl. mánudag, fundur haldinn i skyndi og KR-ingarnir dæmd- ir umsvifalaust i eins leiks bann. Um kvöldið lék sið- aii KR þýðingartausan leik gegn tBK og tefldi fram vara- liði sinu. Það var verið aö spara mennina fyrir leikinn gegn Breiðablik og aðeins tveir fastamenn í A-liðinu voru með. Magnús Guð- mundsson markvörður meira segja hafður fyrir utan völl. Haukur og Halldór tóku þar út sitt leikbann. Astæðan fyrir frestun þessa umtalaða leiks var á sinum tima sú, að Knapp landsliös- þjálfari var sagður á móti þvi að láta leikmennina spila kvöldiö fyrir landsleik og er skýringin eðlileg og réttmæt. Hins vegar var hann sjálfur viðstaddur blm.fund þar sem einmitt var spurt um þennan leik og var þá talið i lagi að hafa þennan leik á umræddu kvöldi vegna þess hve sérstak- lega stóð á. Þeirri ákvörðun Framhald á bls. 14. Breiöablik og KR verða að leika að nýju i kvöld en f fyrri leik liðanna varð jafnt 1-1 eftir mikla óheppni vesturbæjarliösins. Myndin er tekin I þeim leik og sést nýja áhorfendastúkan i Kópavogi I smiðum. Tveir leikir í bikarkeppn- inni í kvöld! 1 kvöld fara fram tveir leikir i Bikarkeppni KSI. Breiðablik leik- ur aukaleik við KR i 8-liða úrslit- unum og fer leikurinn fram á Laugardalsvelli. Fyrri leik lið- anna lauk með 1-1 jafntefli eftir framlengdan leik en á siðustu minútum framlengingarinnar jafnaði Haukur Ottesen fyrir Breiðablik með sjálfsmarki. KR- ingar voru i meira lagi óheppnir i þessum leik og töpuðu niður vinn- ingi sem fvlliiega hefði veriö verðskuldaður ef tekið er mið af gangi leiksins og marktækifær- um. Er ekki að efa að i kvöld á að hefna ófaranna i Kópavogi i fyrri leik liðanna. Bæði liðin hafa undirbúið sig vel fyrir leikinn, hvilt sina bestu menn o.s.frv. Hinn leikurinn fer fram i Hafnarfirði og hefst kl. 18.30. Þar leika i f jögurra liða úrslitunum lið FH og skagamanna. Sigurvegar- inn fær siðan rétt til að leika úrslitaleikinn i mótinu. FH sigr- aði Þrótt Neskaupstað eftir mikinn barning með 2-0 i 8-liða úrslitunum og komu norðfiröing- ar skemmtilega á óvart með góðri frammistöðu sinni og óbil- andi baráttuvilja i þeim leik. Höfðu þeir i fullu tré við hafnfirö- ingana þar til i lokin að úthaldið brast og heimamenn skoruðu mörkin sin tvö. Skagamenn sigr- uðu keflvikinga auöveldlega 3-1 i 8-liða úrslitunum og eru óneitan- lega sigurstranglegir i kvöld. En einu sinni enn...i bikarkeppni get- ur allt gerst. —gsp

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.