Þjóðviljinn - 26.08.1976, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 26.08.1976, Qupperneq 13
Fimmtudagur 26. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Athyglisverðar ályktanir NAUST: Átelja miðlun Rarik Aöalfundur NAUST — Náttúru- verndarsamtaka Austurlands — var haldinn á Hallormsstaö dag- ana 21. og 22. ágúst sl. og séttu hann 40 félagsmenn auk margra gesta, er komu á einstaka liöi fundarins. Friðlýsingar. Samtökin hafa sem áður beitt sér fyrir friðlýsingarmálum og skráningu náttúruminja og gert tillögur til Náttútuverndarráðs um þau efni. Sérstakt viðfangs- efni I ár er friðlýsing tveggja verðmætra votlendissvæða á Austurlandi, þ.e. blánna i Hjalta- staðaþinghá og Salthöfðamýra i öræfum. Stærsta friðlýsingar- málið sem nú er að komast i höfn er hins vegar á Lónsöræfum, þar sem um er að ræða viðlent svæði með Stafafellsfjöllum (Innfjöll), Kollumúla og Viðidal, og er feg- urð þess og fjölbreytni rómuð. Landnýtingarskipulag. Vikið var að þvi i skýrslu stjórnar, aö brýnt sé að þoka fram vinnu að landnýtingar- skipulagi, en þar er átt við alhliða . úttekt og kortlagningu á land- kostum og æskilegri nýtingu lands. Náttúruminjaskráning er eitt helsta framlag náttúruvernd- armanna til sllkrar skipulags- vinnu, en nú liggja hjá stjórnvöld- um tillögur um náttúrufræðistof- ur I landshlutunum, er gerðu rannsóknir og gætu unnið að flokkun lands fyrir skipulagsað- ila. Eitt sveitarfélag á Austur- landi hefur nú óskað eftir sliku al- hliða skipulagi, en það er Bú- landshreppur með Djúpavogi, en þar eru i landi hreppsins margar náttúruminjar, sem vernda þarf. Samráð um mannvirkja- gerð. A vegum Náttúruverndarráðs er nú haft samráö við fram- kvæmdaaöila um meiriháttar mannvirkjagerð lögum sam- kvæmt, og rækja það fyrir hönd ráðsins fulltrúar i landsfjórðung- unum. Kom á fundinum fram ánægja með árangur af þvi sam- starfi á ýmsum sviðum á Austur- landi, m.a. varðandi vegagerð, en annað taliö hafa orðið útundan, svo sem samráð um lagningu raf- m/s Hekla fer frá Reykjavik þriðjudag- inn 31. þ.m. austur um land I hringferð. Vörumóttaka: fimmtudag, föstudag og mánudag til Austfjarðahafna, Þórshafnar, Raufarhafnar, Húsavikur og Akureyrar. '.s ^rvt ðggroöurj Verndum land lina I vissum tilvikum og frágang að lagningu lokinni. Að undirbúningi orkumann- virkja er nú staðið betur en áður að þvi er umhverfisáhrif snertir: var vitnað til hönnunar Bessa- staðaárvirkjunar i þvi sambandi, en þar stýrði Náttúrugripasafnið I Neskaupstaö umhverfisrann- sóknum með samningi við RARIK. Hins vegar er nú verið að glima við mistök frá fyrri tið við hönnun Lagarfossvirkjunar, og var um það mál fjallað sérstak- lega á almennum fundi i tengsl- um við aðalfundinn. Starfslitlar nefndir. NAUST hefur átt góð samskipti við Náttúruverndarráð og marg- ar sveitarstjórnir á félagssvæð- inu. Hins vegar var kvartað und- an deyfð i starfi flestra náttúru- verndarnefnda, sem þó er ætlaö talsvert hlutverk lögum sam- kvæmt. Var stjórn samtakanna falið að beita sér fyrir auknu samstarfi við náttúruverndar- nefndir á Austurlandi. Einnig var rætt um æskilegar breytingar i stjórnkerfi og á löggjöf umhverf- ismála, þar sem m.a. ætti að sameina þætti sem nú falla undir ýmsa lagabálka og ráðuneyti, svo sem heilbrigðislöggjöf, náttúru- verndarlög og sundurleit ákvæöi um mengunarvarnir. Hefur NAUST oft áður ályktað um þessi efni og þörfina á myndun um- hverfisráöuneytis. Meginverkefni A næsta starfsári voru ákveðin fræðslustarfsemi með áfram- haldandi útgáfu fréttabréfs, vinna að náttúruminjaskráningu og aðild aö kynningarviku um náttúruvernd I Reykjavik á kom- andi vetri undir merki Sambands Islenskra náttúruverndarfélaga (SIN), sem NAUST er aðili að. Félagar i NAUST eru rösklega 200 talsins og styrktaraðilar um 40. Stjórnarkjör. Hjörleifur Guttormsson var endurkjörinn formaður og með honum I stjórn: Gisli Arason Höfn, Háldan Haraldsson Norð- firði, Július Ingvarsson Eskifirði og Páll Sigbjörnsson Egilsstöð- um. Varamenn i stjórn eru: Sig- urður Hjaltason Höfn, Egill Guð- laugsson Fáskrúðsfirði og Ari Guðjónsson Djúpavogi. Ályktanir. Fundurinn samþykkti auk til- lagna til stjórnar almennar álykt- anir um votlendisvernd og gróð- urvernd i grennd þéttbýlis. Fylgja þær með ásamt ályktun almenns fundar um Lagarfoss- virkjun. Um votlendisvernd Aöalfundur NAUST 1976 hvetur til þess að hraðað veröi úttekt og rannsóknum á votlendi með verndun þess og hagkvæma nýt- ingu að markmiöi. A meðan verði farið hægar en hingað til i fram- ræslu mýra og alls ekki gengið lengra en þörf krefur á hverjum tima. Jafnframt verði unnið að þvi aö friðlýsa þau votlendis- svæði, sem verðmætust eru talin. Telur fundurinn æskilegt að sam- vinna takist með búnaðar- og náttúruverndaraðilum um þessi mál, svipaö og dæmi eru um úr Austur-Skaftafellssýslu, og felur stjórn NAUST að stuðla að þvl að svo verði. Fundurinn bendir á það fjöl- skrúðuga smádýralif, sem dafnar i votlendi og er þar undirstaða fuglalifs. Er sérstök ástæöa til þess fyrir þéttbýlisfólk aö við- halda votlendi sem næst byggð- Hjörleifur Guttormsson, formað- ur NAUST. inni sér til yndisauka og ættu skipulagsaöilar og sveitarstjórnir að gefa þvi gaum. Fundurinn telur að lifkeöja mýranna hafi ekki verið kynnt al- menningi á aðgengilegan hátt og úr þvi þurfi að bæta sem allra fyrst. Um gróðurvernd við þétt- býli Aðalfundur NAUST 1976 hvetur sveitarstjórnir og aöra hlutaðeig- andi til að stuðla að gróðurfriðun og uppgræðslu lands sem viðast i grennd þéttbýlis, meðal annars með tilliti til útivistarnota. Ályktun almenns fundar um Lagarfossvirkjun Almennur fundur um Lagar- fossvirkjun, haldinn á vegum Náttúruverndarsamtaka Austur- lands á Hallormsstað 22. ágúst 1976, lýsir yfir fullum stuðningi við stefnumörkun Náttúruvernd- arráðs og Lagarfljótsnefndar vegna miðlunar i þágu Lagar- fossvirkjunar. Átelur fundurinn þá miðlun, sem Rafmagnsveit- urnar hafa staðið fyrir upp á sitt eindæmi að undanförnu, en með þeim aðgerðum virðist visvitandi unnið gegn samkomulagi um virkjunina, sem vonir hafa staðið til aö tækist. Skorar fundurinn á yfirmenn orkumála að tryggja nauðsynlegan frið um virkjunina á fyrirliggjandi grundvelli og lýs- ir ánægju með að fram hafa kom- ið viðbrögð i þá átt. Þá vekur fundurinn athygli orkuyfirvalda og alþingismanna Austurlands á þeirri alvarlegu stöðu, sem orkumál fjórðungsins eru i að óbreyttu ástandi, og hvet- ur eindregið tii að úr verði bætt til bráðabirgða meö auknu varaafli fyrir næsta vetur svo firra megi stórvandræðum. 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45 Baldur Pálmason les söguna „Sumardaga á Völl- um” eftir Guðrúnu Sveins- dóttur (4). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Viðsjóinnkl. 10.25: Ingólfur Stefánsson sér um þáttinn. Tónleikar. Morguntónieikar kl. 11.00: Zdenék Bruder- hans og Pavel Stépán leika Sónötu nr. 8 I G-dúr fyrir flautu og pianó eftir Haydn/ Nicanor Zabaleta og kamm- ersveit undir stjórn Paul Kuentz leika Konsert fyrir hörpu og hljómsveit nr. 1 i C-dúr eftir Ernst Eichner/ Italski kvartettinn leikur Strengjakvartett i B-dúr (K589) eftir Mozart. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. A frivaktinni. Sigrún Sigurðardóttir kynn- ir óskalög sjómanna. 14.30 Miðdegissagan: „Leikir i fjörunni” eftir Jón óskar. Höfundurinn byrjar lestur- inn. 15.00 Miðdegistónleikar Sinfóniuhljómsveitin i San Francisco leikur „Protée”, sinfóniska svitu nr. 2 eftir Milhaud; Pierre Monteus stjórnar. Sinfóniuhljóm- sveit Lundúna leikur Sin- fóniu nr. 4 I f-moll eftir Vaughan Williams; André Previn stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). Tón- leikar. 16.40 Litli barnatiminn.Sigrún Björnsdóttir hefur umsjón með höndum. 17.00 Tónleikar. 17.30 Færeyska kirkjan, saga og sagnir; — annar hluti. Halldór Stefánsson tók sam- an og flytur ásamt öðrum. Einnig flutt dæmi um fær- eyska kirkjutónlist. 18.00 Tónléikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 í sjónmálLSkafti Harðar- son og Steingrimur Ari Ara- so sjá um þáttinn. 20.00 Gestir i útvarpssal: Aage Kvaibein og Iiarald Bratlie leika saman á selló og pianó: a. Sellósónata i G- dúr eftir Sammartini. b. Sellósónata i d-moll eftir Debussy. 20.20 Leikrit: „Æðikollurinn” eftir Ludvig Holberg (áður útv 13. febrúar 1965). Þýð- andi: Dr. Jakob Benedikts- son. Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Persónur og leik- endur: Vilgeschrei: Valur Gislason. Leonóra dóttir hans: Bryndis Pétursdóttir. Krókarefur: Bessi Bjarna- son. Pernilla: Herdis Þor- valdsdóttir. Magðalóna ráðskona: Inga Þórðardótt- ir. Leandir: Baldvin Hali- dórsson. Leónard bróðir Vilgeschreis: Jón Aöils. Korfits: Gestur Pálsson. Ei- rikur Maðsson: Rúrik Haraldsson: Pétur Eiriks- son: Gisli Halldórsson. Aðr- ir leikendur: Jóhanna Norð- fjörð, Guðmundur Pálsson. Flosi Ólafsson, Helgi Skúla- son, Þorgrimur Einarsson, Ævar R. Kvaran, Valdemar Helgason, Karl Guðmunds- son og Benedikt Arnason. 22.00 Fréttir, 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an; Ævisaga Sigurðar Ingjaidssonar frá Bala- skarðiJndriði G. Þorsteins- son rithöfundur les (2). 22.40 A sumarkvöidi. Guð- mundur Jónsson kynnir tón- list um drauma. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. ISLANDSAFTEN I NORDENS HUS Torsdag den 26, august Filmforevisning Kl. 20:30 Vulkanudbruddet p& Heimaey — film af Osvaldur Knudsen Kl. 22:00 Varme kilder pá Island — film af Osvaldur Knudsen I udstillingslokalerne: Hafliði Hallgrimsson tegninger. Velkommen — malerier — NORRÆNA HÚSIÐ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.