Þjóðviljinn - 21.09.1976, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 21.09.1976, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 21. september 1976 Karvel bankar upp á hjá Gylfa: Endalok Samtaka frjálslyndra virðast nú fyrirsjáanleg Á sunnudaginn var héldu Samtök frjálslyndra og vinstri manna á Vestfjörðum kjördæmisráðstefnu, og var þar kosin nefnd til að ræða við Alþýðuflokk- inn og ,,fá úr þvi skorið, hvort Alþýðuflokkurinn i heild, eða i einstökum kjördæmum er reiðubúinn til samstarfs við Samtökin fyrir næstu kosningar”, eins og segir i samþykktinni. Ennfremur segir i samþykktinni, að Samtökin standi nú á timamótum, og það hljóti að vera verk- efni landsfundar þeirra i næsta mánuði, að taka af- stöðu til þess ,,hvort halda beri áfram starfi Sam- takanna”. Hér virðist tæplega fara á milli mála, að forystulið Samtakanna I þvi eina kjördæmi, þar sem þau fengu mann kosinn i siðustu al- þingiskosningum, hefur nú tekiö stefnu á það, að leggja flokkinn niöur, en leita I staðinn inngöngu I Alþýðuflokkinn, ef til vill þó að vissum skilyrðum uppfylltum, sem menn verða að geta sér tií hver eru. Flest viröist þvi benda til að dagar Samtaka frjálslyndra sem stjórnmálasamtaka á landsmæli- kvarða séu brátt taldir, og það þóttsvokunniaöfara.aðGylfa Þ. Gislasyni og félögum hans takist ekki að opna gættina hjá Alþýöu- flokknum svo Karvel Pálmason smjúgi þar innfyrir án þess að tapa nokkru i mannvirðingum. Þjóðviljinn birtir hér sam- þykktina, sem gerð var á kjör- dæmisráðstefnu Samtaka frjáls- lyndra á Vestfjöröum, og er hún á þessa leið: Þetta er samþykktin „Kjördæmisráðstefna Samtaka frjálslyndra og vinstri manna á Vestfjöröum haldin að Núpi I Dýrafirði þann 19. september 1976 minnir á það upprunalega mark- mið Samtakanna að sameina alla lýðræðissinnaða jafnaðar- og samvinnumenn i einum flokki. Allt frá stofnun 1969 hefur þetta verið grundvallað i stefnuskrá Samtakanna. Með þeim grundvelli, sem sam- þykktur var á stofnfundinum I nóvember 1969 var þvi slegiö föstu, aö Samtökin ættu ekki að vera til langframa fimmti stjórn- málaflokkurinn 1 landinu, heldur tæki I baráttu fyrir sameiningu vinstri aflanna, Kjördæmisráðstefnan telur að I ljósi þeirrar þróunar, sem orðið hefur I Islenskum stjórnmálum á undanförnum árum standi Sam- tökin nú á timamótum varðandi starf sitt og hlutverk. Þaö hlýtur þvi að verða verkefni landsfundar Samtakanna I október n.k. að taka afstöðu til þess, hvort halda beri áfram starfi Samtakanna, eða leita nýrra leiða. Samtökin á Vestfjöröum itreka fyrri samþykktir sinar um nauö- syn sameiningar lýöræðisjafnaö- armanna i einum flokki og vilja fá úr þvi skorið, hvort Alþýðuflokk- urinn I heild, eða I einstökum kjördæmum er reiðubúinn til samstarfs við Samtökin fyrir næstu kosningar”. Magnús Torfi Karvel Pálmason Ólafur Ragnar Þá snéri Þjóöviljinn sér til fjög- urra manna úr Samtökum frjáls- lyndra og úr Alþýðuflokknum, og spuröi þá álits á þessum niður- stöðum ráöstefnu Samtakanna á Vestfjörðum. Ætlunin var að ræða við formann Alþýðuflokks- ins, en þar sem hann dvelur er- lendis var rætt við varaformann Alþýðuflokksins og ennfremur við formann kjördæmisráös Alþýðu- flokksins á Vestfjörðum. Þá var einnig rætt við Magnús Torfa ólafsson, formann Samtaka frjálslyndra og vinstri manna og við Ölaf Ragnar Grlmsson for- mann framkvæmdastjórnar Samtaka frjálslyndra. Fara svör allra þessara manna hér á eftir. Magnús Torfi: Hugað að tilverurétti Magnús Torfi ólafsson, for- maður Samtaka frjálslyndra og vinstri manna sagöi: „Það er ekki nýtilkomið, heldur hefur verið svo frá upphafi Sam- takanna, að liðsmenn þeirra á Vestfjörðum hafa margir haft til- hneigingu til að llta svo á samein- ingarmálið, að það snúist fyrst og fremst, ef ekki einvörðungu um að ná höndum saman við Alþýðu- flokkinn. Nýgerð samþykkt kjör- dæmisþings Samtakanna á Vest- fjörðum sætir þvi engum sérstök- um tiðindum. Það liggur i hlutarins eöli, að ungur og smár stjórnmálaflokkur hlýtur að huga að starfsgrund- velli sinum og tilverurétti frekar en þeir sem eldri eru og öflugri. Samtakafólk mun á sinum tima fjalla um þau atriði, sem ályktaö er um i samþykkt vestfirðing- anna, og taka þá ákvöröun, sem að athuguðu máli þykir i þeim hópi I bestu samræmi við yfir- lýsta grundvallarstefnu Samtak- anna, að sameina islenska jafn- aðar- og samvinnumenn i einni öflugri stjórnmálahreyfingu.” Ólafur Ragnar: Samleið með stefnu Alþýðu- bandalagsins ólafur Ragnar Grimsson, for- maður framkvæmdastjórnar Samtakanna sagði: „Afstaöa samtakamanna á Vestfjörðum kemur mér ekki á óvart. Ymsir forystumenn þeirra hafa lengi verið þeirrar skoöunar, að endurmeta þyrfti tilveru- grundvöll flokksins. Raunsæ at- hugun sýnir, að markmiðum þeirra, sem að Samtökunum standa, má þjóna með ýmsu öðru móti en áframhaldandi starfsemi flokksins. Einnig er vafalaust rétt hjá þeim á Vestfjörðum, að æski- legt sé, að hver einstakur hópur flokksmanna hafi sem mest frjálsræði til aö ákveöa sina framtlð. 1 samræmi viö aöstæður á Vestfjöröum vilja þeir taka upp viðræöur við Alþýðuflokkinn i þvl kjördæmi og hafa kosið sérstaka nefnd I þessu skyni. Hins vegar er ljóst, aö mikill fjöldi Samtakafólks telur sig eiga mun meiri samleið með stefnu Alþýðubandalagsins, og myndi þvi vilja efla þann flokk, sem breiöa fylkingu vinstri manna á grundvelli markmiða sósialisma og þjóðfrelsis og hagsmuna verkalýðsstéttarinnar. Þótt þeir, sem staöiö hafa aö Samtökunum, hafi þannig mis- munandi viðhorf til Alþýöuflokks- ins og Alþýðubandalagsins, þá eru allir sammála um, að aukið samstarf þessara flokka, einkum i verkalýðshreyfingunni, sé með- al mikilvægustu verkefna I Is- lenskum stjórnmálum.” Fámálir foringjar Kjartar Jóhannsson, varafor- maður Alþýðuflokksins sagöi: „Ég sé á samþykktinni, að þetta eru mikil tiðindi, en ég vil ekkert um málið segja frekar á þessu stigi, fyrr en við höfum kynnt okkur samþykktina.” Agúst H. Pétursson, Patreks- firði, formaður kjördæmisráðs Alþýðuflokksins á Vestfjöröum sagði: „Ég hef ekki heyrt orð um þetta. Hef veriö fyrir sunnan og ekkert frétt af fundi Samtaka- manna á Núpi. Ég get þvi hreint ekkert um málið sagt, nema hvaö ég geri ráð fyrir að kæmi form- lega beiöni um viðræöur við Al- þýðuflokkinn meö samstarf i kosningum fyrir augum til kjör- dæmisráðsins yrði hún tekin til afgreiðslu með venjuiegum hætti en um niöurstöðuna — guö minn almáttugur — hvernig ætti ég geta sagt fyrir um hana.” — Nú hlýtur að hafa veriö rætt talsvert um þessi mál fyrir vest- an að undanförnu? Hvernig held- ur þú að Alþýðuflokksmenn á Vestfjörðum myndu taka sam- vinnutilboði frá Karvel og hans mönnum? Framhald á bls. 14. Taimanov kemur í næsta mánuði og mun sovéski stórmeistarinn þá strax taka við þjálfun sterkustu skákmanna íslands Um helgina barst loksins á- kveðið svar frá sovéska sendi- ráðinu I Reykjavik til taflfélags- ins Mjölnis um það, að sovéski stórmeistarinn Taimanov kæmi hingað til landsins til þess að þjálfa isienska skákmenn I vet- ur. Eins og Þjv. skýrði frá fyrir alllöngu siðan var beðið um sovéskan stórmeistara til starfa á lslandi og þótt Taimanov hafi verið nefndur manna á milli undanfarið var það fyrst um helgina að ráðning hans fékkst staðfest, en fram til þessa hafði ekki verið látið uppi hver af hin- um mörgu skáksnillingum Sovétrikjanna myndi koma. Að sögn Friðriks ólafssonar, sem öörum fremur hefur unniö að þessu máli ásamt formanni Mjölnis, Þorsteini Guölaugs- syni, er gert ráð fyrir þvi að Taimanov taki aö sér þjálfun allra sterkustu skákmanna landsins en muni hins vegar eðlilega ekki skipta sér mikið af þeim sem skemmra eru komnir. — SHkt væri nú einfaldlega sóun á stórkostlegri þekkingu og Taimanov hæfileikum, sagði Friðrik og sagöist þess fullviss aö koma sovétmannsins ætti eftir að hafa mikil og góð áhrif á islenska skákmenn. Þetta er I fyrsta sinn sem útlenskur skákþjálfari kemur til landsins. —gsp Trúnaðarmannaráð Verkalýðsfélags Akraness um vinnumálalöggjöfina: Engar breytingar án sanu*áðs við ASI Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Akraness kom saman til fundar sl. fimmtudag, 16. sept. og ræddi einkum þrjú mál, sem öll eiga það sammerkt að snúa að rfkisstjórn- inni og aðgerðum hennar gegn verkalýðsstéttinni. Fundurinn gerði þrjá ályktanir þar sem drögum rikisstjórnarinnar að nýrri vinnumálalöggjöf, búvöru- hækkun og bráðabirgðalögunum á sjómenn var mótmælt harðlega. Alyktanir trúnaðarmannaráðs Verkalýðsfélagsins á Akranesi fara hér á eftir. Þær voru allar samþykktar samhljóða. Réttindaskeröing Fundur I trúnaðarráöi Verka- lýösfélags Akraness, haldinn 16. september, 1976, visar á bug öll- um tilraunum til breytinga á nú- verandi vinnulöggjöf án aðildar verkalýössamtakanna I landinu. Fundurinn fordæmir þau drög að frumvarpi sem samin hafa verið og augljóslega skeröa viður- kenndan rétt vinnandi fólks. Væntir fundurinn þess að sllkt frumvarp komi ekki fyrir Alþingi, Búvöruhækkun mótmælt Fundurinn mótmælir þeim bú- vöruhækkunum sem sexmanna- nefndin hefur nú ákveöið. Þessar miklu hækkanir sýna svo aö ekki verður um villst að endurskoðun kerfisinser nauðsynleg. Nefnd sú til endurskoðunar á verðlagskerfi landbúnaöarafuröa og fl. sem landbúnaðarráðherra skipaöi sl. vor eftir itrekuð loforð til aöila vinnumarkaðarins, hefur enn ekki verið kölluð saman. Fundur- inn skorar á landbúnaðarráð- herra aö hlutast til um aö nefnd þessi taki nú þegar til starfa. Þræla lögin Fundurinn mótmælir þvi ger- ræði rikisstjórnarinnar að lög- binda kjör sjómanna og afnema gilda samninga, án þess aö nokk- urt félag hafi boöað verkfall. Fundurinn mótmælir þvl óheilla- verki að vega að sjómannastétt- inni, sem islendingar eiga öðrum fremur tilveru sina undir, sem efnahagslega sjálfstæð þjóð. Aö taka réttinn af mönnum til sjálf- stæðrar ihlutunar um kaup sitt og kjör, er tilræði við frelsi manna og ef verkalýðshreyfingin á að vera frjáls á Islandi, hljóta sjómenn að brjóta þessi þrælalög á bak aftur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.