Þjóðviljinn - 21.09.1976, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Þriöjudagur 21. september 1976
Elías sigraði
í tugþrautinni
r
en var nokkuð langt frá Islands
meti — ÍR sigraði i bikarkeppninni
í fjölþrautum
Elías Sveinsson úr KR
sigraði í tugþrautar-
keppninni í bikarkeppni
FRÍ í fjölþrautum. Elías
hlaut 7374 stig, sem er hans
besti árangur, en nokkuð
langt frá Islandsmetinu.
Það var dálítið einkenni-
legt hve misjafnlega Elíasi
gekk í þrautinni. ( sumum
greinum náði hann sínum
besta árangri á árinu, eins
og í hástökki, 1,98 m. og í
stangarstökkinu, 4.22 m.
En í öðrum greinum gekk
honum illa. Hefði hann
verið við sitt besta í öllum
greinum, hefði hann sett
glæsilegt (slandsmet.
1 2. sæti varö Friörik Þór
Óskarséon, sem hlaut 5993 stig,
sem er hans besti árangur, og í 3.
sæti varð Asgeir Þór IR með 5542
stig, og árangur þeirra Friðriks
og Asgeirs færði IR sigur i bikar-
keppninni, samtals 11.535 stig.
Stefán Hallgrimsson KR hætti
keppni eftir fyrstu greinina, og
þvi varð KR af sigri i tug-
þrautinni, en af þvi að þetta var
siðasta frjálsiþróttarmót sumars
ins má geta þess, að Stefán Hall-
frimsson hefur aldrei á sumrinu
omist i gegnum tugþrautar-
keppni.
—S.dór.
Elias Sveinsson náöi sinum besta
tugþrautarárangri á sumrinu.
Björgvin Björgvinsson átti ágætan leik meö Vikingum og er hér á leiöinni inn I vitateig Vaismanna.
Handknattleikur:
Óvænt úrslit í fyrstu
umferð Rvíkurmótsins
Valur tapaði fyrir
Armanni9 og Fram
jafntefli gegn KR
Reynslan hefur sýnt
að sjaldan er mikið að
marka fyrstu leikina i
handknattleiknum á
haustin, en eigi að siður
koma úrslit i nokkrum
leikjum Reykjavikur-
Víkingi og
náði aðeins
mótsins i handknattleik i
fyrstu umferð mjög á
óvart. Þau úrslit sem
mest koma á óvart er
tap Vals fyrir Vikingi og
þó alveg sérstaklega Ár-
manni, en Valur varð
sem kunnugt er i 2. sæti
bæði i deild og bikar i
fyrra. Þá máttu framar-
ar þakka fyrir að ná
jafntefli gegn KR, en
menn hafa búist við
miklu af Fram-liðinu i
vetur.
Annars urðu Urslit leikja um
helgina þessi:
Vikingur — Valur 24:23
IR — Armann 25:14 (13:4)
KR — Fram 15:15 (7:7)
Þróttur — Fylkir 21:13 (12:6)
Valur — Armannl5:16
Vikingur — Leiknir 23:19
IR-ingar koma á ðvart með stór-
góðum leik gegn Armanni og 11
marka sigri. Þessi tvö lið skiptu
um sæti i deilunum i fyrra, Ar-
mann fór niður i 2. deild en IR
uppi 1. deild. Þróttur og Vikingur
unnu auðvelda sigra yfir Fylki og
Leikni.
En eins og áður segir, er of
snemmt að draga ályktanir um
styrkleika liðanna af þessum
fyrstu leikjum. Menn hafa oft
. brennt sig á sliku.og verðum við
að biða lengur og sjá til, þvi að
veikari liðin byrja oft betur en
þau sterkari sem siga á hægt og
bitandi, og ótrúlegt er að jafn
sterk lið og Valur og Fram hafi
sýnt það besta sem þau búa yfir I
þessum fyrstu leikjum sinum.
—S.dór
Tottenham mistókst
að
herinn”
65. árið í röð
sigra „Rauða
og Liverpool hefur þar með tekið
góða forystu í 1, deildinni
Liverpool tók um helgina for-
ystu i 1. deildarkeppninni ensku
með þvi að sigra Tottenham 2-0 á
heimaveili. Tottenham átti I vök
að verjast alian timann og þeim
mistókst 65. áriö i röð að bera
siguroröaf „Rauða hernum” svo-
kailaöa. Liðið hefur ekki sigrað
Liverpool i deildakeppninni i
allan þennan tima.og um heigina
byrjaði leikurinn á þvi aö Totten-
ham misnotaöi vitaspyrnu sem
hugsanlega heföi getað gert út um
leikinn.
N-irski landsliðsmarkvörðurinn
Pat Jennings lék þarna sinn 450.
leik á tólf ára ferli sinum og varð
hann tvivegis að sækja knöttinn í
markið eftir gullfalleg mörk
þeirra David Johnson og Steve
Heigway strax i fyrri hálfleik.
Liverpool, sem áður hafði haft
forystuna á markahlutfallinu ein-
göngu tók þar með eins stigs for-
skot i 1. deildinni og byrjar þvi
vörn meistaratitilsins vel.
Middlesbrough, sem hafði deilt
efsta sætinu með Liverpool, fann
sig aldrei i leiknum gegn
Manchester Utd. og tapaði 0-2
eftir mikla hrakninga.
öllu betur gekk hjá Manchester
City, sem ekki hafði sigrað i
deildakeppninni á útivelli siðan i
Framhald á bls. 14.
Stones sigraði
pólverjann af
öryggií
Bandariski heimsmethafinn
i hástökki, Dwight Stones,
hefndi ófaranna á Olympíu-
leikunum er hann tapaði fyrir
pólverjanum Jacek Wszo
nokkuð óvænt. Um helgina
mættust þeir kappar á miklu
frjálsiþróttamóti i Paris og
sigraði Stones þá með þriggja
sentimetra forskoti á hinn
nitján ára gamla pólverja sem
ekki gekk heill til skógar að
þessu sinni.
Stones stökk þó ekki nema
2.26 metra, en hann reyndi þvi
París
næst við nýtt heimsmet, er
hann lét hækka beint upp f 2.33
metra, sem er einum senti-
metra betra en heimsmet
hans. Stones gerði tvær til-
raunir en var langt frá þvi aö
ná árangri.
John Walker frá Nýja-
Sjáiandi sigraði af öryggi I
bæði 1500 og 3000 metra hlaup-
unum, og fékk hann timana
3.55.1 mln. og 7.52.4 min.
1 kringlukasti sigraöi Mac
Wilkins frá Bandaríkjunum að
venju, og kastaði hann 68.28
metra.