Þjóðviljinn - 29.10.1976, Síða 16

Þjóðviljinn - 29.10.1976, Síða 16
PWÐVIUINN Föstudagur 29. október 1976 Flugleiðir flytja 10 þúsund pílagríma Á mánudaginn byrja Flugleiðir að flytja pilagrima milli Kano i Nigeriu og Jeddah i Saudi-Ara- biu. Alls verða fluttir um 10 þús- und pilagrimar og verða notaðar tvær DC-8-63 þotur til flutning- anna. Gert er ráð fyrir að það taki um 16 sólarhringa að flytja allan hópinn til Jeddah. Siðan hefjast flutningar þaðan aftur til Nigeriu 5. desember og standa fram undir jól. Alls munu 109 manns taka þátt i flutningunum, áhafnir Loft- leiða og afgreiðslufólk Flugleiða, og leyfir ekki af að það nái heim i jólasteikina. Yfirstiórnandi flutninganna verður Þórarinn Jónsson, yfir- maður flugliðs, Guðlaugur Helga- son, yfirflugfreyja Erla Agústs- dóttir, rekstrarstjóri Baldur Mariusson, stöðvarstjóri i Jeddah, Jón Óskarsson og yfir- flugvirki, Jóhannes Jónsson. Ahafnir munu hafa aðsetur i Jeddah, en afgreiðslufólk verður einnig i Kano. Milli þessara staða eru 2000 sjómilur og fjögurra og hálfrar stundar flúg. Kjördæmis- ráðsfundur Kjördæmisráðsfundur Alþýðubanda lagsins i Vesturlandskjördæmi verður haldinn á sunnu- daginn 31. október kl. 14 í Hótel Borgarnesi. Guðbjörg Guðnadóttir við afgreiðslu f mjólkurbúðinni að Laugateig 24. Hún er búin að vinna við þetta starf I 12-13 ár en hefur nú verið sagt upp (Ljósm.: Eik) Lilja Kristjánsdóttir: Lilja Kristjánsdóttir, forsvars- maður afgreiðslustúlkna I mjólkurbúðum með uppsagnar- bréfið sem hún hafði fengið um morguninn (Ljósm.: Eik) Veittur verði 5 ára aðlögunartími í stað þess að loka 57 mjólkurbúðum á eiuu bretti Við berjumst aðallega fyrir eldri konurnar en yfir 90 afgreiðslustúlkur i mjólkurbúö- um eru komnar yfir fimmtugt og fyrir þær verður mjög erfitt að fá vinnu á ný. Ég hef alls ekki gefið upp vonina að okkur verði veittur lengri aðlögunartimi. Ég væri mjög ánægð ef breyting- arnar gengju yfir á 5 árum. bessi orð sagði Lilja Kristjáns- dóttir afgreiðslustúlka I mjólkurbúðinni aö Laugateigi 24 i viðtali við bjóðviljann. Hún er formaður nefndar sem kosinn var á félagsfundi til að ræða við aðila mjólkursölumálsins. Enn- fremur sigraði listi hennar I ný- afstöðnum kosningum til Alþýðusambandsþings. Hún fékk uppsagnarbréf sitt i gær- morgun. Þetta er mjög alvarlegt vandamál, sagði Lilja. Það á að loka 57 búðum i Reykjavik og nágrenni á timabilinu 1. febrú- ar. Konur sem eru búnar að vinna við þetta starf i 25-30 ár og eru komnar yfir fimmtugt- geta brotnað saman ef þær missa vinnuna á þennan hátt. Margar þeirra eru einhleypar og hafa etv. staðið i þvi að koma yfir sig húsnæði á fullorðinsaldri en til þess hafa þær getað fengið góð lifeyrislán. Það gefur auga leið að þær verða að fá sér vinnu á ný og það er ekki svogottnúna. Ungar súlkur eiga meira að segja erfitt með að fá vinnu. Ég vil lika benda á að þessar konur eiga eftir aö borga fulla skatta fyrir árið 1976 og geta af þeim ástæðum tæplega hætt svona fyrirvaralaust. Það hefur verið vitlaust unnið að þessum framkvæmdum, seg- ir Lilja, og margir kaupmenn hafa alls ekki viljað fara svona hratt í þetta. Sumir þeirra eru ekki tilbúnir fjárhagslega til að taka mjólkurverslanir yfir. Við vorum siðast á fundum með kaupmönnum i gær, Þeir telja sig geta tekið nær 60 nýja starfs- krafta og auðvitað sækjast þeir eftir vönum stúlkum til að af- greiða mjólkina. En við leggjum sem sagt aðaláhersluna á að fá frest á lokunina, segir Lilja að lokum. —GFr Fær rit- ara og dómssal 6. hvern Það er ekki ofsögum sagt af starfsaðstöðu manna við Saka- dóm Reykjavikur. Ingi R. Helga- son, lögfræðingur Alþýðubankans sagði á blm. fundi i gær að rann- sokn sú á viðskiptum 11 ákveð- inna aðila við Alþýðubankann, sem bankaráð hans hefði á sinum tima óskað eftir (við 3 aðila, sak- sóknara bætti 8 aðilum við) gangi afar hægt og meðan hún stæði yfir, liði bankinn sem stofnun fyrir. Ingi sagði sem dæmi um að- stöðu þess mans, sem sannrókn- ina annast, að hann fengi dómssal og ritara aðeins 6. hvern dag, en aðeins þá gætu yfirheyrslur farið fram. Aðra daga verður hann að vinna algerlega einn að allri rannsókninni. Og það væri ekki einu sinni svo gott að þessi maöur vinni alfarið að þessari rannsókn, nei, hann hefur fjölmörg önnur mál til meðferðar og verður að nota ritarann og dómsalinn einnig til þeirra mala. Ingi sagðist vonast til að rann- sókninni yrði lokiö innan 6 mán- aða, en hann sagðist auðvitað ekkert geta fullyrt um það. Honum var þá bent á það að ef það tækist mætti segja að þetta mál hefði forgangshraða og bent á Friðriks Jörgensen-málið þvi til sönnunar. —S.dór. J árniðnaðarmenn hætta hjá 3 fyrir- tækjum við Kröflu Vonandi bregðast aðrir járniðnaðarmenn stéttarlega við þessu, segir Guðjón Jónsson Að undanförnu hefur staöið yfir vinnudeila milli járniðnaðar- manna og þriggja verktakafyrir- tækja við Kröflu með þeim afleið- ingum að undanfarna daga hafa járniðnaðarmenn ekki verið að störfum nyrðra íþeim verkefnum sem þessi þrjú fyrirtæki eiga aö ljúka þar. Einn þeirra manna sem þarna eiga hlut að máli kom að máli viö Þjóöviljann i gær og geröi svolát- andi grein fyrir stöðu þessara mála: A vegum þriggja fyrirtækja, Héðins, Stálsmiðjunnar og Hamars hafa verið 25 járniðn- aðarmenn að störfum við Kröflu- virkjun. Grundvöllur þeirra kjara sem við höfum unnið eftir eru kjara- samningar járniðnaðarmanna og samningar félaga í Suður-Þing- eyjarsýslu og sérgreinasamband- anna frá 13. júlí s.l. Þarna er fjöldi verktakafyrir- tækja með verkefni eins og Mið- fell, Rafafl, Slippstöðin á Akur- eyfi, Stjörnustál (samsteypa nokkurra smærri járniðnaðar- fyrirtækja) þau þrjú fyrirtæki sem áður voru nefnd og fleiri. Fljótlega eftir að Kröflusamning- urinn var gerður 13. júll kom i ljós að starfsmenn nokkurra verktaka þarna voru á betri kjörum að ýmsu leyti en samningurinn gerði ráð fyrir. I Kröflusamningnum var gert ráð fyrir að menn færu eftir frihelgi til vinnu á sunnu- dagskvöldum, en ýmsir verk- takar tóku að heimila mönnum slnum að koma á mánudags- morgun og þá á kaupi. I samn- ingnum var gert ráð fyrir þvl að menn fengju greiddar tvær klukkustundir i ferðalög að norðan, en ýmisfyrirtæki greiddu einnig það sem feröin varð tlma- frekari. Þá greiðir Slippstöðin sinum mönnum sem þarna vinna 10% bónusálag. 30. september fóru starfsmenn HSH fram á það bréflega að fá þessi sömu kjör og aðrir starfs- menn við Kröflu. Fulltrúar HSH samþykktu aö hefja viðræöur um málið. Þær byrjuðu með fundi I Reykjavik 11. október s.l. Þar mætti fulltrúi frá Félagi járniön- aðarmanna og frá atvinnurek- endum. Samkomulag tókst ekki, en viðræðum var haldið áfram norður við Kröflu 18. okt. s.l. Þar höfnuðu fulltrúar HSH algerlega kröfum starfsmannanna. A fundi sem starfsmennirnir héldu siðan á mánudagskvöld — en á þeim fundi var einnig formaður Félags járniðnaðarmanna — var sam- þykkt að halda fast við gerðar kröfur um að hafa sömu kjör og aðrir. Þá gerðist það næst á frihelg- inni sem hófst 22. október s.l. að járniðnaðarmenn á vegum þess- ara þriggja fyrirtækja komú i bæinn að norðan. Hafa þeir ekki farið norður aftur, en starfa nú hjá fyrirtækjunum hér syðra. Formlega séð er ekki hægt að boða vinnustöðvun á staðnum vegna þessa máls þar sem samn- ingar eru i gildi, en við væntum þess allir, sagði viðmælandi Þjóð- viljans, að járniðnaðarmenn og aðrir fari ekki inn I okkar störf við þau verkefni sem HSH á ólokið þarna fyrir norðan. Við treystum á félaga okkar og samstööu þeirra. Rætt við Guðjón Jónsson. Þjóðviljinn bar þessa sögu járniðnaðarmannsins undir Guðjón Jónsson formann Félags járniðnaðarmanna. Hann sagöi: — Mér er vel kunnugt um málið þvi ég hef tekið þátt I við- ræðum og reynt aö leysa málið. En vegna þröngsýni atvinnurek- enda hefur það ekki tekist. Hins vegar getur félag okkar ekki boöað vinnustöðvun, en ég vænti þess að allir járniðnaðarmenn bregðist rétt við stéttarlega. ÖFL sem vilja BANKANN FEIGAN og skrif fjölmiðla hafa spillt fyrir, segir Stefán Gunnarsson bankastj Fjölmiðlar fengu harða gagn- rýni hjá forráðamönnum Alþýðu- bankans, þeim Stefáni Gunnars- syni bankastjóra, Benedikt Daviössyni form. bankaráðs og Inga R. Helgasyni, lögfræöingi bankans, á balaðamannafundi i gær. Þeir ásökuðu fjölmiðla fyrir að hafa gert „Alþýðubanka- málið” svo nefnda að söluvöru, frekar en að um málið hafi veriö skrifað af sanngirni. „Það eru til öfl i þessu þjóðfé- lagi, sem vilja Alþýðubankann feigan og gera allt sem þau geta til að spilla fyrir honum” sagði Stefán Gunnarsson bankastjóri, og aðspurður um hvaöa ölf þetta væru, sagði hann að sterkur al- þýðubanki væri sterkasti bak- hjarl sem verkalýöshreyfingin ætti og þvi gæfi það augaleið að andstæðingar verkalýðshreyfing- arinnar vildu veg bankans sem minnstan. Ingi R. Helgason lögfræðingur bankans, sagði að þaö heföi verið bankaráð Alþýðubankans, sem hefði á sinum tima óskað eftir þvi að sakadómsrannsókn færi fram á viðskiptum 3ja aöila við Alþýðubankann og úr þvi yröi skorið hvort þau væru lögum samkvæmt. Þarna sagði hann að bankaráðið hefði farið algerlega rétt og heiðarlega að, en fjöl- miðlar notað þetta til æsiskrifa og oft farið meö staðlausa stafi og getsakir I málfltuningi sinum i skrifum um málið. „Það hefði sjálfsagt verið hægt að þagga þetta ál niður og leysa það á bak við tjöldin og þá hefði enginn sagt neitt, en þegar rétt og heiðarlega er að farið er málið notað til æsifréttaskrifa”, sagöi Ingi. Það kom fram, aö Alþýðubank- inn heföi tapað 30 milj. kr. á við- skiptum sinum við Air Viking og hefðu þessar 30 milj. kr. þegar verið afskirfaðar, en leitað heföi verið eftir nýjum tryggingum fyrir 60 til 70 milj. kr. skuld sem útistandi er og heföi fyrsta flokks veð þegar fengist fyrir 30 milj. kr. og von væri til þess aö jafn gott veð fengist á þessu ári fyrir af- ganginum. —S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.