Þjóðviljinn - 16.01.1977, Blaðsíða 3
Sunnudagur 16. janúar 1977 ÞJÓPVILJINN — StÐA 3
Þjóöviljinn efnir til sam-
keppni um VEGGSPJALD
Dagblaðiö Þjóðviljinn boðar til
samkeppni um veggspjald sem
vekja skal athygli á markmiðum
blaðsins sem „málgagns sósial-
isma, verkalýðshreyfingar og
þjóðfrelsis”.
Spjaldið skal vera til nota utan-
húss sem innan, og einnig mun
það birtast sem forsiða sunnu-
dagsblaösins.
Keppninni er hagað eftir sam-
keppnisreglum FÍT.
Tillögum skal skilað i eftirfar-
andi hlutföllum: lengd 34 sm,
breidd 25 1/2 sm. Endanleg stærð
veggspjalds verður helmingi
stærri.
Tillögum ber að skila til Finns
Torfa Hjörleifssonar útbreiðslu-
stjóra Þjóðviljans, Siðumúla 6
Reykjavik, fyrir 30. mars nk.
Sérhver tillaga verður að vera
nafnlaus. A bakhlið tillögunnar
limist venjulegt lokað, hvitt um-
slag sem i eru fullkomnar upplýs-
ingar um nafn og heimilisfang.
Þurfi aö póstsenda tillögur,
skal vel frá þeim gengið og þær
póstlagðar fyrir 30. mars.
Samkeppnin er öllum opin.
Af bandarískum bókamarkaöi:
Rithöfundur
inn á
undanhaldi
Bandariski bókamarkaðurinn
er fullur af dýrum og þykkum
bókum, sem beint eða óbeint ætla
að kenna mönnum að lifa ham-
ingjusamara lifi en þeir nú gera.
Það er einkenni þessara bóka, að
þær eru illa skrifaðar, en það er i
reynd ritstjóri forlagsins sem á
að fá skömm i hattinn fyrir það en
ekki höfundur hverrar bókar.
Málum er nú orðið svo háttaö,
að það er forlagið sem tekur aö
sér helming starfans við handrit-
ið, það „hreinsar”, breytir, strik-
ar út, umbyltir textanum sem
höfundurinn kemur með. Höfund-
urinn kemur með drög til athug-
unar en ekki fullgerða bdk, þvi
hann veit vel að hann fengi frum-
gerð sina aldrei út gefna.
Útgefandinn tekur ekki aðeins
aö sér fóstruhlutverk yfir ómynd-
ugum höfundi, heldur gerist hann
beinlinis foreldri bókar, þvi það
er hann sem pantar bók um á-
kveðið efni. Það veröur æ algeng-
ara — einnig á sviði fagurbók-
mennta — að útgefandinn gerir
höfundi grein fyrir nokkrum
æskilegum og söluhæfum við-
fangsefnum. Ef að höfundurinn
gefur gróðavonir tekur útgefandi
hann til meðferöar llkt og sál-
fræðingur sjúkling sinn. Annars
er hann látinn sigla sinn sjó og
sekkur fljótlega.
Afleiðingin er sú, að þær bækur
sem út koma eru sjaldan verk rit-
höfunda. Bækur eru skrifaðar af
prestum, kennurum, sálfræðing-
um, allskonar lifskoöanafim-
leikamönnum og textahöfundum
sem hafa kvikmyndanef. Orö
þeirra hafa þann tilgang einn að
miðla ákveðnum hugmyndum og
staöreyndum á ákveðinn markað.
Þvi verða menn að skipta þvi
sem skrifað er I bækur og hand-
bækur. Seinni flokkurinn eru
skrifaðar af leigupennum (svo-
nefndum draugahöfundum) fjalla
um efni sem eru i tisku, þær eru
útþynning á þvi sem sæmUega al-
varlega hugsandi menn hafa áður
skrifaö um Hitler eða Watergate
eða frumstæða menningu ein-
hverrar smáþjóöar svo dæmi séu
nefnd.
Ungur höfundur, sem vill taka
verk sitt alvarlega, verður aö
hafa sterk bein til að standast
þrýsting af hálfu forlagsins I þá
veru, að hann flytji atburöarásina
yfir á lögreglustöðina, geri kyn-
ferðislegu kaflana litrikari, spili
meira á viöbrögö kvenna, læðist
að borgaralegum lesendum með
meiri gætni, passi að skjóta þeim
ekki skelk i bringu.
Það kemur og fyrir að kvik-
myndafélag, sem keypt hefur rétt
til að kvikmynda bók, lætur það
veröa sitt fyrsta verk að kaupa
mikið magn af bókinni tU að
halda henni nokkran vikuri viðbót
á metsölulesta. Þarrnig er leikið
með veruleikann, þróun mála fær
ekki að hafa sinn gang.
(Dagens Nyheter)
Dómnefnd mun ljúka störfum
fyrir 14. april nk., og verða úrslit
þá birt við opnun sýningar á úr-
vali úr tillögunum. Tillögurnar
veröa endursendar að sýningu
lokinni
Fyrir bestu verðlaunahæfa til-
lögu verða veitt ein verðlaun að
upphæð kr. 200.000,- Verðlauna-
upphæðin er ekki hluti af þóknun
teiknara, verði tillagan prentuð.
Þjóðviljinn áskilur sér þar fyrir
utan rétt til að kaupa aðrar tillög-
ur til útgáfu og greiða fyrir þær
með hliðsjón af verðlagningu
FIT.
Dómnefnd skipa: Frá Þjóðvilj-
anum Árni Bergmann, frá Félagi
islenskra teiknara Þröstur
Magnússon, og oddamaður er
Björn Th. Björnsson listfræðing-
ur.
Ritari nefndarinnar er Finnur
Torfi Hjörleifsson, sem jafn-
framt er trúnaðarmaöur og veitir
allar frekari upplýsingar i sima
81333.”
-Jekkavióskipti
Tilkynning til
viðskiptamanna
Athygli viðskiptamanna innlánsstofnana er vakin á því, að frá og
með 17. janúar 1977 verða tékkar því aðeins bókfærðir á reikninga
að innstæða sé fyrir þeim. Ef svo er ekki, þegar tékka er framvísað,
verður reikningnum lokað fyrir frekari skuldfærslum uns full skil
hafa verið gerð
Áhersla er lögð á, að sérhver innstæðuiaus tékki verður tekinn til
innheimtumeðferðar, og skuldari (útgefandi eða framseljandi)
jafnframt krafinn um vanskilavexti og innheimtukostnað. Innstæða
reikningsins verður fastsett og henni ráðstafað til greiðslu
kröfunnar svo sem hún nægir til.
Þá er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi atriði:
Það er óhjákvæmilegt að gera meiri kröfur til viðskiptamanna
þegarnýir reikningar eru stofnaðir.
Áríðandi er að skapa samstöðu allra viðskiptaaðila um notkun
persónuskilríkja við tékkameðferð. Innheimta innstæðulausra
tékka er tekin upp í vaxandi mæli hjá reikningsbanka og kröfugerð
haldið bæði að útgefanda og framseljanda.
Reykjavík,14. janúar 1977
■Samvinnunefnd bankaog sparisjóða1
söfnun
A þingi Alþýðuflokksins síöastliöið haust var gerð itarleg uttekt á eignum, skuldum og
fjárhagslegum rekstri flokksins. Var þetta gert á opnum fundi, og fengu fjölmiðlar öll
gögn um máliö. Hefur enginn stjórnmálaflokkur gert fjárhagslega hreint fyrir sinum
dyrum á þann hátt, sem þarna var gert.
Það kom i Ijós, að Alþýöuflokkurinn ber allþunga byrði gamalla skulda vegna Alþýðu-
blaðsins. Nú um áramótin námu þær 8,4 milljónum króna aö meötöldum vangreiddum
vöxtum.
Ilappdrætti flokksins hefur variö mestu af ágóöa sinum til að greiða af lánunum. Þaö
hefur hinsvegar valdið þvi, að mjög hefur skort fé til að standa undir eðlilegri starfsemi
flokksins, skrifstofu með þrjá starfsmenn, skipulags- og fræðslustarfi.
Framkvæmdastjórn Alþýðuflokksins hefur samþvkkt að hefja söfnun fjár til að greiða
þessar gömlu skuldir að svo miklu leyti sem framast er unnt. Verður þetta átak nefnt
„Söfnun A 77” og er ætlunin að leita til sem flestra aðila um land allt. Stjórn söfnunar-
innar annast Garðar Sveinn Arnason framkvæmdastjóri flokksins. Má senda framlög
til hans á skrifstofu flokksins I Alþýðuhúsinu, en framlög má einnig senda til gjaldkera
flokksins, Kristinar Guömundsdóttur eöa formanns flokksins, Benedikts Gröndal.
Þaö er von framkvæmdastjórnarinnar, aö sem flestir vinir og stuðningsmenn Alþýöu-
flokksins og jafnaðarstcfnunnar ieggi sinn skerf I þessa söfnun, svo aö starfsemi flokks-
ins komist sém fyrst i eðlilegt horf.
Alþýðuflokkurinn
r
v.
mm^mm^mmmm^aaaamammmammmammmmmaaaam^mammmmammmmmammmmmmam^mammammmmm
SÍÐASTI
SKILADAGUR
I J
Happdrætti Þjóöviljans
Opiö í dag aö Skólavörðustíg
19 milli kl. kl. 14 og 18
v J