Þjóðviljinn - 16.01.1977, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 16.01.1977, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJ6ÐV1LJINN Sunnudagur 16. janúar 1977 SVAVAR GESTSSON Sagt frá áætlun sem gerir ráð fyrir auknum umsvifum ALUSU1SSE á Islandi sem samsvara um 10 álbræðslum eins og þeirri sem er í Straujnsvík nú Forslöan á „áætlun integral” útgáfunni sem Gunnar Thoroddsen og Steingrímur Hermannsson fengu haustiö 1974. Um þetta plagg hefur veriö rætt á fjölda funda fslenskra ráöamanna viö forráöamenn ALUSUISSE. Næsti fundur um áætlun „integral” er ákveöinn I næsta mánuöi. „Áætlun intergral” Rökstuöningur þeirra manna sem eindregnast beittu sér fyrir samningunum viö auöhringinn Alusuisse i upphafi var einkum fólginn i þvi aö þaö væri lifsnauö- syn fyrir okkur aö losna viö raf- orkuna sem fyrst, þvi aö senn myndu kjarnorkuver ryöja fall- vatnsvirkjunum úr vegi sem hag- kvæmari orkuver. Þessar kenn- ingar náöu slikum heljartökum á postulunum aö þeir reyndust til- búnir til þess aö iáta raforkuna frá islenskum fallvötnum fyrir hvaö litiö sem var. Jafnframt þessum ákafa I aö losna viö raforkuna fór ekki hjá þvi,aö af og til létu postular borg- arastéttarinnar skina i hinn raun- verulega tilgang þess aö semja viö útlendinga um álveriö.. Aö afla sér nýrra bandamanna lslenskir kapitalistar eru ákaf- lega veikburöa; þeir hafa aldrei haft aöstööu til þess frá 1942 aö traöka á verkalýösstéttinni eins og sumir þeirra kusu helst. Þeir vilja því gjarnan eignast sem sterkasta bandamenn hér á landinu. Og þótt því væri boriö viö aö fallvötnin yröu smásaman einskis nýtar. orkulindir og þess vegna yröi aö losna við orku þeirra tafarlaust kom af og til i ljós aö áhuginn á samningum viö útlendinga var leiötogum viö- reisnarstjórnarinnarkjarni máls- ins, og alfa og omega: Eyjólfur Konráö Jónsson boðaöi 20 ál- bræðslur á borö við þá i Straums- vik sem framtíðarsýn ihalds- aflanna. Til þessa boðskapar Eyjtílfs Konráös hefur oft verið vitnaö siöan.ekki sist af andstæð- ingum þeirrar stefnu sem viö- reisnarstjórnin framkvæmdi i stóriöjumálum. Sjaldan hafa ihaldsmenn þó tekiö undir þá stefnumörkun opinskátt; þeir saklausari telja vafalaust aö Eykon hafi þarna oröið á mismæli i ákafanum, en þeir sem til þekkja vita hiö sanna: Hinn alþjóölegi auöhringur Alusuisse hefur áhuga á útfærslu starfsemi sinnar á íslandi, og siöan núver- andi rikisstjóm komst til valda hafa veriö i gangi samfelldar viöræöur viö fulltrúa auöhrings- ins um athafnir hér á landi sem i raun jafngilda 10 áibræðsium af þeirri stærö sem nú er starfrækt i Straumsvik. Hætta á þvi, aö auðhringurinn auki umsvif sin, er þvi i raun óhugnanlega nærriog hefur færst nær framkvæmdinni jafnt og þétt um árabil. Um þessa hættu vissi Magnús Kjartansson meðan hann var iönaöarráöherra og þess vegna freistaöi hann þess að móta nýja stefnu i stóriöjumálum sem heföi I reynd getaö sett skoröur viö þeirri háskalegu stefnu sem viöreisnarstjórn Alþýöuflokksins og Sjálfstæöisflokksins stóö aö. Áætlun í fjórum áföngum 1 ritinu „Islensk orkustefna” er sýnt fram á þann grundvallar- mun sem stefna vinstristjórnar- innar i afstöðunni til erlendra auöhringa heföi haft i för meö sér ogveröurþaö ekki endurtekiöhér en bent á ritiö til glöggvunar. Þessi stefna var knúin fram af Alþýöubandalaginu þar sem ráö- herrar framsóknar og frjáls- lyndra höfbu i fyrstu ekki skilning á nauösyn þess að Islendingar ættu meira en helming i fyrirtæk- inu viö Hvalfjörð. Loks sam- þykktu þeir stefnu Alþýöubanda- lagsins, og eftir aö núverandi rikisstjórn var mynduð itrekaði Ólafur Jóhannesson á alþingi aö framsókn fylgdi enn þessari meginstefnu. En siöan hefur margt breyst: Siöan hefur Ólafur notið gistivináttu Alusuisse og siöan hafa fulltrúar stjórnar- flokkanna veriö i látlausu samningamakki um „Aætlun INTEGRAL”, sem hér verður sagt frá i meginatriöum. Þaö var á útmánuöum 1973 — meöan vinstristjórnin sat enn viö völd — aö forráöamenn Alusuisse settu saman áætlun þessa. Hana kynntu þeir siösumars fyrir þá- verandi iðnaöarráöherra Magn- úsi Kjartanssyni sem hafnaöi henni alfariö, en forráöamenn auðhringsins neituöu gjörsam- lega ab endurskoða hiö smánar- lega raforkuverö þrátt fyrir þung rök Magnúsar. Lögöu forráöa- menn Alussuisse áætlanir sinar á hilluna I bili er þeir fengu hinar dræmu undirtektir iönaöarráö- herrans — áætlanirnar voru geynrdar, ekki gleymdar. Hægristjórnin kom til valda haustiö 1974, slðustu daga ágúst- mánaöar. Ekki haföi Gunnar Thoroddsen setiö nema mánuö I ráöherrastól iönaöarráöuneytis- ins er Alusuisse kynnti „Aætlun integral” á ný.og nú gekk hún enn lengra en áöur. Þessi áætlun gerði ráð fyrir fjórum áföngum: 1. áfangi Stækkun álverksmiöjunnar i Straumsvik þannig aö aflþörf hennar ykist um 20 megavött, úr 140 I 160 megavött. Þessi áfangi hefur nú þegar verið samþykktur á alþingi og er i undirbúningi. 2. áfangi 1 öörum áfanga „áætlunar integral” segir aö álbræöslan i Straumsvik hafi verið þannig hönnuö aö gert sé ráö fyrir stækk- unum, fyrst um 80 MW og siöan enn 80 i fjórða kerskála. Fyrra föstudag viöurkenndi Gunnar Thoroddsen i sjónvarpsþætti aö gert væri ráö fyrir þriöja kerskál- anum, 40.000 tonna ársfram- leiðslu, og ætti þessi áfangi aö taka til sin meirihluta af 140 megavatta Hrauneyjafossvirkj- un. 3. áfangi I þessum stærsta áfanga var gertráö fyrir þvi aö islenska rikiö og Alusuisse heföu samstarf um stofnun fyrirtækisins ALIS. Framlög eignaraðila og eignar- hluti skiptist 50:50; islendingar legðu fram vatnsréttindi, Alusuisse námuréttindi. Er félag þetta,ALIS,hefur veriö stofnaö skal þaö hefjast handa viö undirbúning þess aö stofna enn annaö félag, ALLONIS, sem sjái um rekstur báxitnáma, súráls- verksmiöju og bræöslu sem henti islensku orkukerfi sem tryggöi iðjuverum 8000 gigavattstundir á ári (sjö sinnum meira en álveriö Afangarnir í hernámsáætlun ALUSUISSE í „áætlun integral” er gert ráð fyrir fjórum áföngum: 1 Álverksmiðja i Straumsvik sem framleiðir 75.000 tonn á ári (þegar byggð) og stækkun hennar siðar til 10.000 tonna ársframleiðslu i viðbót. (Þegar samþykkt) 2 Stækkun álbræðslunnar i Straumsvik fyrst um 40.000 tonna ársframleiðslu (nú á döfinni), siðan 40.000 i viðbót. 3 Stofnun hlutafélags islensku rikis- stjómarinnar og Alusuisse — ALIS — þar sem aðilar eigi 50:50. íslendingar leggi fram virkjunarréttindi en Alusuisse báxitnámuréttindi. ALIS stofni siðan með fleiri aðilum rekstra rfélag, ALCONIS. Framleiðslugeta 500.000 tonn á ári. Orkunotkun 8000 gigavattstundir á ári. 4 Súrálverksmiðja á Reykjanesi. Framleiðslugeta á ári 300 eða 600 þúsund tonn súráls (hráefnið fyrir ál- verksmiðju). Stofnkostnaður þeirra mannvirkja sem hér þarf til -verksmiðjur og orku- ver - er ekki undir 350-400 MILJ- ARÐAR KRÓNA.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.