Þjóðviljinn - 16.01.1977, Síða 11

Þjóðviljinn - 16.01.1977, Síða 11
Plakat úr búkastrlAinu Sérstætt bóksölustríð: Bækur sem kaffibætir? I ýmsum löndum, t.d. Sviþjóð og nú síðast i Vest- ur-Þýskalandi hefur komið til nokkurra deilna og málaferla út af þvi, hvar og á hvaða verði eigi að selja bækur. Bóksalar og forlög hafa beitt samtökum sinum til aö reyna aö sporna gegn þeirri þróun aö nokkrar þær bækur, sem auðveld- ast er aö selja, leiti út úr eigin- legri bóksölu og sé seldar ódýrar en i bókabúðum t.d. i stórum kjörbúöum, kaffisjoppum, á bensinstöövum o.s.frv. Hér er ekki einungis um aö ræöa reyfara eða hálfklámrit i ódýrum útgáf- um. Til dæmis hefur mikið boriö á þvi i Þýskalandi aö kaffibrennsl- ur hafi tekið upp á þvi aö selja ýmisskonar handbækur með öðr- um varningi i keöjum útsölustaöa sem þær reka. Eitt slikt fyrirtæki i Bremen hefur t.d. selt 3,2 milj. eintaka af sjö bókum á undan- förnum þrem árum. Hér er um aö ræða matreiðslu- bækur, dýrabækur, feröahand- bækur, og nokkrar vinsælar af- þreyingarsögur. Sumar bækur er beinlinis framleiddar fyrir þessa sölu og koma aldrei i venjulegar bókabúðir. Bóksalar eru foxillir yfir þess- ari þróun. Þeir segjast missa af sölu sém geri þeim kleift aö hafa á boðstólum mikið úrval allskon- ar bóka, sem ekki hreyfast mikið. Og þegar nokkrar söluglaðar bækur eru teknar út úr og þær hafðar á boðstólum um allar trissur, þá muni likur á þvi minnka enn, að leiðir þeirra sem einna minnst lesa, liggi i al- mennilega bókabúð. Bóksalar og forlög hafa hingað til tapaö sinum málum i Þýska- landi. Kaffibókaverslunin blómg- ast — i bili. Enn eykst fjölbreytni mjólkurafurða YMIR er kominn á Ýmir er sýrð mjólkur- afurð, svipuð súrmjólk en miklu þykkari. Ýmir er ívið fitu- og kol- vetnasnauðari en vcrulega prótínríkari en venjuleg súrmjólk. Ýmir má nota á svipaðan hátt og sýrðan rjóma, t.d. í salöt, búðinga, frómas og trifli, eða mcð ávöxtum. Ýmir er ijúffengur einn sér. markaðinn Þekktasta uppskriftin í ná- grannalöndum okkar mun vera að strá yfir hann blöndu af rifnu rúgbrauði og púðursykri. Ýmir cr holl fæöa. Það á hann sameiginlegt mcð öðrum sýrðum mjólkur- afuröum. Sunnudagur 16. janúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍDA — ll Enskur höfundur sækir skáldsagnaefni hingaö t haust dvaldi hér á landi ungur enskur rithöfundur, Dominic Cooper að nafni og vann að heimildasöfnun fyrir sina þriöju skáldsögu. A hún að byggjast á málum systkinanna Jóns og Sunnefu, sem á 18. öld frömdu sifjaspell, voru dæmd til dauöa en dóu áður en til aftöku kæmi. Dominic Cooper hefur þegar gefið út eina skáldsögu, Dead of Winter (Chatto & Windus, 1975), sem hlotið hefur mjög góðar viðtökur báeði i Bretlandi og Bandarikjunum. Fjallar hún um einyrkja, sem lifir fábrotnu lifi i Norður-Skotlandi og með vel- gengnisinnivekur hann öfund ná- granna sins. Er sagan skrifuð af mikilli nærfærni og þekkingu á staðháttum, enda dvaldi höfund- urinn mánuðum saman i eyðibýli á söguslóðunum til að auðvelda sér ritun hennar. M.a. hefur þessi bók aflað höfundi sinum stýrks frá Edinborg, hún hefur verið kosin ein af 4 bestu bókum ársins (1975) af bókmenntaklúbbi i Skot- landi og siðast en ekki sist hefur höfundurinn. hlotið S. Maugham Award 1976, en þeim heiðri fylgir styrkur, sem skylt er að eyða á erlendri grund, og valdi hann ts- land, m.a. vegna þess að hann hefur áður dvaiið hér á landi um 2 ára skeið, og þykir vænt um land- iö. Onnur skáldsaga hans kemur væntanlega út hjá Chatto & Windus í april n.k. og ber heitið „Sunrise”. t „Dead of Winter” leitar Dominic fanga i Njálu, og er til- vitnun fremst i bókinni úr Njálu, þar sem segir frá afturhvarfi Gunnars. Aö lokum má geta þess til gamans, að faðir hans og systir hafa bæði lagt listinni lið á Fróni: Martin Cooper, sem er tónlista- gagnrýnandi viöDaily Telegraph i London, kom hingað á fyrstu listahátiðina og fjallaði um hana i blaði sinu, auk þess sem hann fjallar um flesta islenska lista- viðburði i Lundúnum; og systir hans Imogen Copper er pianóleik- ari og lékhér fyrirfáum árum hjá Tónlistarfélagi Reykjavikur við góðan orðstir, og hefur hún viöa farið siðan. Er von á plötu með leik hennar á markaö einhvern tima á næsta ári. 0 Tökum að okkur nýlagnir I hús, viögeröir á eldri raflögnum og raftækjum. RAFAFL SVF. Kynniö ykkur af- sláttarkjör Kafafls á skrifstofu félagsins, Barmahliö 4 Reykja- vík, simi 28022 og i versiuninni aö Austur- göti' 25 Hafnarfiröi, simi 53522. HEILDSALA — SMASALA umboösmaöur Autolite/Motorcraft vörur Þ. Jónsson & Co Skeifan 17, Reykjavík. símar 84515 — 84516

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.