Þjóðviljinn - 16.04.1977, Side 9

Þjóðviljinn - 16.04.1977, Side 9
Laugardagur 16. aprll 1977' ÞJÖÐVILJINN — StÐA 9 í tilefni alþjóðlegs gigtarárs: Gigt er algeng- asta orsök ör- orku eða fötlunar Rætt við Hauk Þórðarson yfirlækni og Kára Sigurbergsson sérfræðing í gigtlækningum á Reykjalundi A þessari mynd er hluti af starfsfólki Reykjalundar, einn fulltrúi frá hverri þeirri stétt manna, sem nauösynleg er tii að lækning gigtarsjúklinga megi takast. F.v. Maria Guömundsdóttir, hjúkrunarkona, Dagbjört Þóröardóttir, forstööukona, Þórey Guömundsdóttir féiagsráögjafi, Birgir Johnsson sjúkra- þjálfi, Björg Jónsdóttir sjúkraliöi, Kári Sigurbergsson læknir, Anne Grethc Hansen, iöjuþjálfi, Tómas Lárusson, verkstjóri, Björn Ásmundsson, forstööumaöur,og Haukur Þóröarson yfirlæknir. „Æ, það er bara gigtarskömm- in aö angra mig'.' Hver hefur ekki heyrt eldra fólk segja þessa eöa svipaða setningu? Hver hefur ekki heyrt hana i islenskum leik- ritum, eins og til að mynda hjá Skugga-Sveini,og hver hefur ekki lesið þessa eða svipaða setningu i islenskum sögum? Og vegna þess að gamla fólkið sagði þetta oftast i mildiiegum mæðutón hefur fólk litið á gigt sem einhvers konar stirðleika i gömlu vinnuslitnu fólki. En er það nú svo að gigt sé ekki alvarlegri en það? „Nei, það er öðru nær, gigt er Jangt frá þvi að vera einangrað fyrirbrigði, sem stirðleiki i gömlu fólki; til eru um 170 tegundir gigtarsjúkdóma og þeirra verst er liðagigtin”. Það er Kári Sigur- bergsson, sérfræðingur i gigtar- lækningum, sem svarar spurn- ingunni, þegar við heimsóttum Reykjalund i gær, en þar er 1/3 af 150 sjúklingum gigtarsjúklingar. Ástæðan fyrir þvi að við heimsóttum Reykjalund, til að ræða við lækna og fólk, sem er hrjáð af gigt er sú, að i ár, 1977 er alþjóðlegt gigtarár, og Gigtar- félag Islands og Gigtsjúkdóma- félag isl. lækna vilja af þvi tilefni vekja sérstaka athygli á þeim mikla þjóðfélagsvanda, sem gigt- sjúkdómar eru, án þess að þeim hafi verið sinnt innan heilbrigðis- þjónustunnar og af almenningi eins og nauðsyn krefur. Útbreiddur sjúkdómur „Eru gigtarsjúkdómar þjóðfélagsvandi hér á landi, Kári?” „Alveg tvimælalaust, og má sem dæmi nefna, að talið er að 9 af hverjum 10 sem leita læknis einhverntimann á ævinni geri það vegna gigtar. Eins má nefna að af 150sjúklingum hér á Reykjalundi eru 50 gigtarsjúklingar og enn má nefna, að gigt er talin algengasta orsök fötlunar og örorku og að lokum má nefna að hér á landi er talið sannað að fleiri vinnustundir tapist vegna gigtveiki en nokkurs annars sjúkdóms.” „En hvað er þá gigt?” „Þetta er góð spurning, vegna þess útbreidda misskilnings, að gigt sé aðeins stirðleiki i gömlu fólki. Til eru um 170 tegundir af gigtarsjúkdómum, svo fólk getur séð að um annað og meira en stirðleika i gömlu fólki er að ræða. Gigt er vissulega stirð- leikasjúkdómur, sem byrjar i liðamótum, eða nálægum vefjum, i baki og hálsi. Sú gigt sem algengust er i eldra fólki er svo nefnd slitgigt og hún er algengasta tegund gigtar i full- orðnu fólki, og má eiginlega kalla hana króniska liðagigt. En versta og hættulegasta tegund gigtar er liðagigtin. Hún spyr ekki um aldur; börn jafnt sem gamalt fólk fær liðagigt, já, fólk á öllum aldri. Hér fyrrum var liðagigt talin ólæknandi, eða i það minnsta illlæknandi. En sem betur ver hefur þetta breyst.og i dag er hægt að hjálpa miklum meirihluta þeirra sem fá liða- gigt.” Sameiginlegt átak. Og Kári heldur áfram: „1 sambandi við gigtlækningar vil ég taka fram, að til þess að þær beri árangur þarf sameigin- legt átak margra aðila. Þeir sem vinna þurfa saman, svo árangur náist, eru gigtarsérfræðilæknar skurðlæknar, rannsóknalæknar, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, meinatæknar, félagsráðgjafar og siöast en ekki sist verkstjórar sem stjórna vinnu sjúklinga i endurhæfingu. Þá þarf að vera fyrir hendi skilningur hjá yfir- völdum hve gigtarsjúklingar þurfa mikla félagslega hjálp. Hér á landi er mikill skortur á fólki i margar þessara starfs- greina, sem ég nefndi, og þá ekki sist á sérfræðingum i gigtarsjúk- dómum. Það eru ekki nema 4 slikir sérfræðingar til hér á landi, sem er alltof litið miðað viö hve gigt er útbreiddur sjúkdómur. Þá er enn eitt sem nauðsynlega þarf að kppa i lag hér á landi, en það er hve lyfjakostnaður liða- gigtarsjúlinga er óskaplega mik- ill. Fólk með liðagigt þarf margar tegundir af meðölum og það þarf að greiða 650 kr. fyrir hvert lyf sem er alltof mikið, auk þess sem það þarf svo að greiða lækni 600 krónur fyrir hverja heimsókn. Þetta verða svimandi háar upphæöir þegar saman er dregið allt sem þarf til að lækna liðagigt.” Framþróun en fer hægt. „Hefur orðið mikil framþróun i lækningum liðagigtar siðustu ár- in?” „Já, hún hefur orðið nokkur, en samt finnst manni sú þróun of hæg. Og það er ekki nema von að manni finnist hægt fara, þegar sú staðreynd blasir við, að um 1% islendinga eru með liðagigt.” „Hvaða aðferðum er helst beitt til lækningar á liðagigt?” „Það er lyfjagjöf, skurðlækn- ingar, og siðan endurhæfing, hita- böð og æfingar.” Endurhæfing Haukur Þórðarson er yfirlækn- ir á Reykjalundi og þekkir þvi allra manna best til endurhæfing- arlækningar hér á landi. Við spurðum hann hvernig viö islend- ingar stæðum á þessu sviði, „Hér á landi eru starfandi 7 örorku og endurhæfingarlæknar, sem er alltof litill hópur. Nú, en við hér á Reykjalundi stöndum sennilega best ailra hvað endur- hæfingarlækningar snertir, enda má segja að það sem aðgreinir Reykjalund frá öðrum sjúkrahús- um, sé einmitt endurhæfingar- lækningar. Reykjalundur hefur alveg frá byrjun verið endurhæf- ingarsjúkrahús, fyrst fyrir berklasjúklinga, en eftir að tekist hafði að sigrast á berklunum tók endurhæfing fólks með aðra sjúk- dóma við. Starfsgreinum, sem fólk i endurhæfingu getur unniö við hér á Reykjalundi, hefur fjölg að mjög,og hefur það stuðlað að þvi að fólk geti fengið vinnu útá hinum frjálsa vinnumarkaði, um- fram það sem áður var, eftir að dvöl þess hér lýkur. Við gerum allt sem við getum til þess að vinnan hér sé sem lik- ust þvi sem gerist á almennum vinnumarkaði, en að ekki sé litið á hana sem eitthvert tilgangslitið föndur. Menn verða að vinna ákveðinn tima á dag, þeir þurfa að stimpla sig inn og út á vissum timum og þeir fá greitt fyrir sina vinnu og þá peninga eiga þeir óskerta. Þetta hefur gefist vel i gegnum árin. Nú, en auðvitað erum við lika með fólk, sem aldrei kemur til með að fara útá hinn almenna vinnumarkað, bæði vegna aldurs og annars. Annars er það svo að engu er hægt að slá föstu, þegar um endurhæfingu er að ræða. Það kemur fyrir að fólk sem maður heldur að geti aldrei farið á almennan vinnumarkað nær sér svo vel að það getur það; þetta er svo einstaklingsbundið. Varðandi gigtlækningar hefur iðjuþjálfun komið að mjögmiklu gagni. Iðjuþjálfun er tiltölulega ný grein en hefur miklu áorkað i endurhæfingu gigtarsjúklinga. Þess vegna stendur nú til að auka iðjuþjálfun hér á Reykjalundi verulega og stendur til að tifalda það húsnæði sem nú er fyrir hendi til iðjuþjálfunar. Þá megum við ekki gleyma sundlauginni sem er kannski stærsti þátturinn i endurhæfingu, ekki bara gigtarsjúklinga, heldur allra sem þurfa á endurhæfingu að halda. Við fengum mjög góða sundlaug hér fyrir 3 árum, og það er ekki sterkt til orða tekið að segja að hún hafi gefið góða raun”, sagði Haukur Þórðarson yfirlæknir að lokum. — S.dór Það fylgja þessu óskaplegar kvalir segir Ólafía Auðunsdóttir, sem hefur haft liðagigt í 18 ár „Það getur enginn, nema sá sem reynt hefur, imyndað sér hve ægilegur sjúkdómur liða- gigtin er. Ég hef haft liðagigt i 18 ár og það var ekki fyrr en ég kom hingað að Reykjalundi fyrir 3 árum að mér fór að skána og á þessum tima hef ég fengið ótrúlega mikinn bata. Ég kom hingað bundin i hjólastól, en get nú orðið gengið um hjálparlaust”, sagði Ólafia Auðunsdóttir, er við ræddum viö hana i gær, þar sem hún dvelur að Reykjalundi. Ólafia sagði að þetta hefði byrjað hjá sér með svo nefndri isgisgigt i baki, en siðan heföi þetta breyst yfir I liðagigt. Liöa- gigtinni fylgdu ólýsanlegar kvalir og það hefði verið óskap- lega erfitt að vinna með þennan sjúkdóm. „Og svo fór að ég gat ekki unnið lengur, og ég fékk engan bata fyrr en ég kom hingað að Reykjalundi. Það versta sem fyrir hvern mann kemur er að geta ekki unnið. Það er dásam- legt að fá að vinna og sofna þreyttur að kvöldi. Fólk lærir að meta það þegar það á þess ekki kost lengur. Nú orðiö get ég unnið svo litið I höndunum og það er allt annað lif,” sagði Ólafla. Um það hvort hún ætti von á enn meiri bata sagðist hún ekki vita. Ólafla Auðunsdóttir „Ég fór til Spánar I fyrra sumar og var þar I hitanum og mér hefur aldrei liðið betur siðan ég fékk þennan sjúkdóm, enda fer kuldi afar illa með fólk sem hefur liðagigt, en hitinn aft- ur á móti veldur manni velllðan. Hér á Reykjalundi er gott að vera og ég veit fátt betra en stunda heit böð og sundlaugina hér. Enda, eins og ég sagði áðan, byrjaði mér ekki að batna fyrr en ég kom hingað og það er mikil breyting að geta gengið óstudd, frá þvi að geta ekki hreyft sig úr hjólastól, og það á aðeins 3 árum.” —-S.dór. Með liðaglgt í 27 ár Rætt við Margréti Sigurðardóttur „Ég hef haft vonda liðagigt allt siðan 1951, en ég var áreiðanlega farin að finna fyrir henni miklu fyrr, strax sem ung stúlka, en þá voru þetta bara kallaðir vaxtarverkir I krakk- anum”, sagði Margrét Sigurðardóttir, sem i eitt og hálft ár hefur dvalist að Reykja- lundi. „Fyrst bar á liðagigtinni i höndunum, og þessu fylgdu miklar kvalir. En það var ekki um annað að gera en halda áfram að vinna, ég var húsmóð- irogvarðað sjá um mitt heimili En svo ágerðist þessi sjúkdóm- ur og fór i handleggina og uppi axlir, og siðan fékk ég lika liðagigt I hnén. Verst af öllu var þó gigtin I öxlunum og kvalirnar maður”. „Getur fólk með liðagigt sofið án lyfja?” „Það er sennilega misjafnt, en það hefur verið mitt lán, að ef vel hefur verið um mig búið hef ég alltaf getað sofið, annars hefði ég ekki haldið þetta út, eins og kvalirnar voru miklar.” „Nú ertu búin að vera hér siðan 1975, hefurðu fengið ein- hvern bata?” Margrét Sigurðardóttir „Já, ég hef fengið ótrúlega mikinn bata. Það er ekki hægt að likja liðan minni nú saman við það sem var þegar ég kom hingað. Ég get sagt þér það, að þegar ég kom hingað mátti alls ekki við mig koma, þá hljóðaði ég af kvölum; nú er þetta allt annað lif. Ég hef fengið hér lyf, heita bakstra.og svo er ég i iðju- þjálfun, sem hefur gert mér mjög gott. Og nú er svo komið að ég get staulast um á hækjum og þótt ég hafi ekki von um að geta nokkru sinni sleppt þeim, þá er það mikil framför að komast á þær. Og svo get ég orðið heklað dálitið, en það er lika það eina sem ég get unnið i höndunum, þær eru orðnar svo skemmdar af liðagigtinni. En það sem er mest um vert, ég geri mér vonir um enn meiri bata, og það er fyrir öllu.” —S.dór.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.