Þjóðviljinn - 16.04.1977, Qupperneq 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. aprll 1977
Járnblendiverksniidjan
Framháld af bls. 16
lei&slu á um 48.800 tonnum af
kisiljárni.
Hins vegar kemur fram i raf-
magnssamningi, nánar tiltekiö i
4. gr. hans, aö Járnblendifélagiö
treystir sér ekki til aö tryggja
Landsvirkjun orkukaup nema aö
þvi marki sem mundi duga til aö
framleiöa 39.600 tonn á ári meö
tveim ofnum eöa 19.800 tonn á ofn.
1 samningnum er tilsvarandi
stærö tiltekin iorkueiningum, þ.e.
396 GWst á ári (2 ofnar).
1 reynd mun þessi lágmarks
kauptrygging Járnblendifélags-
ins vera enn minni en 396 GWst á
ári. Ýmis ákvæöi i rafmagns-
samningi, einkum þó 17. grein
hans, lækka nefnilega skuldbind-
ingar Járnblendifélagsins gagn-
vart Landsvirkjun varöandi lág-
marks orkukaup.
Af ákvæöum rafmagnssamn-
ingsins veröur þvi ljóst, aö ekki
er gert ráö fyrir, aö meöalfram-
leiösla verksmiöjunnar verði
meiri en um 39.600 tonn, þegar
báöum ofnum er komiö upp, eöa
innan við 80% af áætlaöri af-
kastagetu verksmiöjunnar.
Það verður þvi aö telja óvar-
legt aö reikna meö 50.000 tonna
ársframleiöslu aö meöaltali, eins
og gert er i hinum opinberu arö-
semisútreikningum er fylgja
frumvarpinu.
Yfirgnæfandi iikur á tap-
rekstri verksmiðjunnar.
Eina tekjulind járnblendiverk-
smiöjunnar mun vera af sölu
kisiljárns. Tekjuhliö fyrirtækisins
er þvi háð tveim megin stæröum:
sölumagni og söluveröi. Viö erum
þegar búnir að sýna aö áætlaö
sölumagn sé óraunhæft, enda
benda bæöi ytri aöstæöur og
samningsákvæöi til þess aö fram-
leiöslan og salan veröi
sveiflukennd og nokkuö minni en
gert var ráö fyrir.
Sé rekstraryrirlit járnblendi-
verksmiöjunnar skoöaö i þessu
ljósi og stuöst viö rekstraryfirlit,
sem Þjóðhagsstofnun geröi ný-
lega og birt var i Þjóöviljanum 16.
mars s.l., kemur I ljós aö sjá má
fram á stórfellt tap verksmiöj-
unnar.
Samkvæmt þvi yfirliti , sem
byggt er á fullum afköstum verk-
smiöjunnar og á verölagi ársins
1976 yröi rekstrartap verksmiöj-
unnar 22 milljónir n.kr. á ári, en
ef miðaö var viö rekstrargrund-
völl 1985 og verölag 1978 var
rekstrarhagnaöur 7 milljónir
n.kr.
Samkvæmt meöf. rekstraryfir-
liti (Tafla I), sem viö höfum gert,
og byggt er á forsendum sem
samræmast betur undanfarinni
greiningu okkar (einkum hvaö
varöar framleiöslu- og sölu-
magn), mun rekstrartap verk-
smiöjunnar vera um 30milj.n.kr.
miöaö viö verölag 1976 eöa um
1130 milj. isl. kr. á ári á núverandi
gengi. Sé hins vegar miöaö viö
áætlað verðlag 1978 og rekstrar-
Pípulagnir
Nýlagnir, breytingar
hitaveitutengingar.
Sími 36929 (milli kl. 12 og
l og eftir kl. 7 á kvöldin)
grundvöll ársins 1985, þá veröur
hallinn 8 milj. n.kr. eöa um 300
milj. isl. kr. á núverandi gengi.
Nú segir þetta engan veginn
alla söguna.
Undanfarin ár hefur nefnilega
verö á hráefnum til iðnaðar fariö
mjög hækkandi og er kisiljárn-
iönaöur engin undantekning i
þessu sambandi. Séu skoöaöar al-
mennar hráefnisvisitölur (t.d.
visitala MOODY’S frá Bandarikj-
unum, visitala REUTER’S frá
Bretlandi og visitala The
ECONOMIST fyrir iönaö I Bret-
landi), kemur I ljós aö hráefnis-
verö hefur aukist allt aö þvi tvö-
falt hraöar en markaösverö á
kisiljárni. Hins vegar hafa norsk
hráefni til framleiöslu á kisiljárni
i 'Noregi hækkaö álika og sjálft
kisiljárnveröið. Þannig hafa
Norömenn ekki hækkað verö hrá-
efna sinna aö sama skapi og flest-
ir aörir og má rekja þaö til þess
aö þarlendir framleiöendur hafa
hér mikilla hagsmuna aö gæta.
Hina almennu hækkun á hráefn-
um má hins vegar rekja til þess
að þróunarlönd, sem ráöa yfir
miklum hluta hráefnanna, hafa i
vaxandi mæli krafist hærra verös
• og þar meö „réttlátari hlutdeild-
ar i iönaðarframleiðslu heims-
ins”.
Séu rékstraryfirlit Þjóðhags-
stofnunar fyrir árin 1976 og 1985
skoöuð nánar, kemur I ljós aö 1
þvi fyrra er hráefnakostnaöur
43%. af sölutekjum en i þvl siöara
er tilsvarandi liöur aöeins 34% ,
þrátt fyrir þaö aö hækkun hrá-
efnisverös i Noregi til kisiljárn-.
framleiöslu þar hefur verið álika
mikil og hækkun á markaðsverði
kisiljárns. Engin rök eru siöan
færö til þess aö réttlæta þessa
hugsanlegu þróun.
Hins vegar má benda á, aö ef
hráefniskostnaöur heföi veriö
áætlaöur 43% eins og hann var á
siðasta heila rekstrarári (1976) ,
þá heföi rekstrarhalli verksmiöj-
unnar orðiö 8 milj. n.kr. á ári I
staö 7 milj. n.kr. hagnaöar. Hér
er i öllum tilfellum miöaö viö full
afköst verksmiöjunnar (50.000
tonn). Náist ekki aö framleiða —
og selja — þau 50.000 tonn á ári,
sem ráö er fyrir gert, þá vofir yfir
enn meiri taprekstur.
Ýmislegt fleira má benda á
sem kemur til með aö skeröa enn
rekstrarafkomu verksmiöjunnar
og skal drepiö aöeins á tvö atriöi
til viöbótar.
• Akvöröun um stækkun slöara
ofns mun auka stofnkostnaö
að óákveönu marki og þar
meö greiöslubyröi félagsins i
formi afborgana og vaxta.
Rétt er aö geta þess hér, aö
þótt afkastageta verksmiöj-
unnar yröi aukin meö þessu
móti, er hvergi gert ráö fyrir
tilsvarandi aukningu á sölu-
tryggingum af hálfu ES.
• Engir samningar liggja fyrir
um hráefnakaup eöa um
kostnaö, sem af þeim mun
hljótast. Hins vegar mun vera
kunnugt um að kvars, raf-
skaut og járn sé fáanlegt hjá
ES i Noregi. Til samans er
áætlaö aö umræddir hráefna-
liöir myndi um 40% af hrá-
efnakostnaöi. Skv. tækni-
samningi mun þaö vera hlut-
verk ES aö aöstoöa og gefa ráö
viö „útvegun, val og flutning á
hráefnum fyrir verksmiöj-
una”. Ekki treystum viö okk-
ur til þess að spá um þaö hve
mikil áhrif aðstaöa ES I mótun
ákvaröana i þessu máli mun
hafa á kostnaö verksmiðj-
unnar.
Þaö er þvi engan veginn út i
hött þótt fullyrt sé aö rekstrar-
grundvöllur verksmiöjunnar sé
óraunhæfur. Allavega má segja
þaö, aö á grundvelli þeirra gagna,
sem fyrir liggja, hafi alls ekki
tekist aö sýna fram á slikan
grundvöll, jafnvel þó hann kunni
að finnast einhvers staöar.
Hvaöa hag sér ES í þátt-
töku sinni?
Þessi spurning vaknar um leiö
og ljóst veröur aö yfirgnæfandi
likur eru á taprekstri Járnblendi-
félagsins. Þegar reynt var aö
svara þessari spurningu, kom i
ljós aö helstu upplýsingar, sem
varpaö gætu ljósi á þessa hlið
mála, liggja ekki á lausu, hvorki i
opinberum gögnum alþingis né
hjá Járnblendifélaginu sjálfu.
Þaö sem myndi t.d. varpa
mestu ljósi á hag Elkem-Spiger-
verket af þessu fyrirtæki, eru
upplýsingar varðandi viöskipti
Járnblendifélagsins við ES vegna
stofnframkvæmda svo og upplýs-
ingar um eöli og umsvif tækni-
legrar þjónustu, sem gert er ráö
fyrir aö ES veiti Járnblendifélag-
inu, eftir að verksmiöjan er kom-
in upp. Allt þetta er á huldu, enda
er okkur tjáö, aö áætlanir um
stofnkostnaö séu mjög grófar enn
sem komiö er. Þaö er þó öllum
ljóst, aö ES ætlar sér vænan bita
af þeim 18 miljöröum, sem verk-
smiðjan á aö kosta.
En þrátt fyrir ytri annmarka,
hefur okkur tekist aö gera mjög
varlega áætlun um rekstrartekj-
ur beggja eigenda Járnblendifé-
lagsins, þ,e. Elkem-Spigerverket
og Islenska rikisins. Þessi áætlun
súnir aö ES mun ekki bera
umtalsverða áhættu þótt svo aö
verksmiöjan yröi rekin meö
miklu tapi. Töflur II og III, sem
hér fylgja, sýna hvernig á þvi
stendur.
1 tölu II má sjá, að tekjurES aí
fyrirtækinu veröa állka og tekjur
islenska rikisins, séu tekjur rikis-
ins vegna eignarhlutdeildar i
Landsvirkjun taldar meö. Sé
hlutdeild rikisins I Landsvirkjun
sleppt, eru tekjur ES 2.3-4 sinnum
meiri en tekjur rikisins. Þessi
áætlun er varleg aö þvi leyti, aö
hér hafa ekki verið taldar meö
tekjur ES vegna sölu á kvarsi og
járngrýti frá eigin námum, né
tekjur ES vegna sölu á varahlut-
um og öörum búnaöi til viðhalds
og endurnýjunar. Hins vegar
bendir margt til þess, aö ES ætli
sér þó nokkrar tekjur af sölu á
þessum vörum.
A sama tima má sjá i töflu III
aö fjárframlag islenska rikisins
vegna verksmiöjunnar er rúm-
lega fjórum (4) sinnum meira en
framlag ES, sé hlutdeild rikisins i
framkvæmdum Landsvirkjunar
viö Sigöldu og viö raflinu til verk-
smiöjunnar talin með. Sé sú hlut-
deild ekki talin meö, er framlag
islenska rikisins rúmlega tvisv-
ar sinnum meira en framlag ES.
Margt bendir til þess aö
hagnaöur ES af fyrirtækinu veröi
,nokkuö meiri en hagnaöur is-
lenska rikisins, þrátt fyrir það, aö
ES taki mun minni þátt i stofn-
kostnaði fyrirtækisins. Þaö er þvi
ljóst að áhætta Elkem-Spiger-
verket er ekki sambærileg viö
áhættu Isl. rikisins og ekki undar-
legt aö ES sækist eftir þessu sam-
starfi, þrátt fyrir væntanlegan
taprekstur.
Fjölþjóða auðhringurinn
Elkem-Spigerverket
Fjölþjóöa auöhringir eru fyrir-
tæki, sem reka samræmda fram-
leiöslu, hráefnaöflun og sölustarf-
semi I ýmsum löndum og hafa
jafnframt yfirráð yfir þeim hrá-
efnaauölindum eöa sölumörkuö-
um, sem nauösynleg eru fyrir
starfsemi þeirra. 1 þeim tilfellum
er fjölþjóöa auöhringir leita sam-
starfs hjá stjórnvöldum einstakra
þjóörikja, leitastþeir viö aö hafa i
Bsf. Byggung
Kópavogi
Framhaldsaðalfundur verður haldinn i
Hamraborgli dag laugardaginn 16. april
kl. 2 eftir hádegi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Rætt um byggingarframkvæmdir árið
1977.
Stjórnin.
sinum höndum öll yfirráð yfir
framleiöslunni. Enda eru hrá-
efnaöflun, framleiösla og sala i
þeirra augum samtvinnuö heild,
sem ekki veröur brotin upp án þess
aö viö þaö glatist völd. Afstaöa
hringanna er þvi eölileg, sé tekiö
miö af sjálfsögöum markmiöum
slikra fyrirtækja um hámörkun
arösins (skýrgreining hugtaksins
aröur látum viö nú liggja milli
hluta). — Undirritaöir hafa nú
fylgst með atferli fjölþjóöa auö-
hringa um nokkurt skeiö og
hvergi rekist á tilfelli, þar sem
slikum hringum hefur ekki tekist
aö halda völdum sinum fyrir
framleiösluferlinum óskertum,
þrátt fyrir samstarf viö ýmis
þjóðriki.
Og Elkem-Spigerverket er eng-
in undantekning hvaö þetta
áhrærir. Auöringurinn er meö
samræmda starfsemi i mörgum
löndum, Evrópu og viðar. Hann
hefur tryggt sér auölindir (nám-
ur), orkulindir, verksmiöjur og
sölukerfi (Fesil, norska sölusam-
lagiö kisiljárnframleiðenda er I
raun stjórnað af Elkem). í sam-
starfi sinu viö Islenska rikiö, hef-
ur Elkem lykilaöstööu varöandi
sölustarfsemi, hráefnaöflun og
tækniþróun, enda litur Elkem á
verksmiðjuna I Hvalfirði aöeins
sem hlekki framleiöslukerfi sinu.
Þetta kemur kynlega fram 112. gr
(17) aðalsamningsins. Þar segir
m.a.:
„Við gerö framleiöslu- og sölu-
áætlana (...) skulu ES og Járn-
blendifélagiö vinna saman i þeim
tilgangi aö komast aö hagkvæm-
asta skipulagi frá sjónarmiöi
starfseminnar I heild”. (undir-
strikun okkar).
Engin skynsamleg rök mæla
heldur meö þvi , aö ES reyni aö
láta Járnblendifélagiö hagnast
um of, og er þaö sama hvort ES
ætti fyrirtækið aö öllu leyti eöa
einungis aö hluta. Ef rekstrar-
áætlanir Járnblendifélagsins
sýndu verulegan hagnaö, þá
mynduöust rök fyrir þvi aö fyrir-
tækiö greiddi hærra raforkuverö
en raun ber vitni. En orkan er jú
ein af aöalástæöum fyrir þvi aö
ES leitaöi eftir þessu samstarfi.
Af þeim upplýsingum, sem
fram hafa komiö um hag Elkem-
Spigerverket af fyrirtækinu og
um tap Islenska rikisins af þvi, er
greinilegt að hér er um hefð-
bundið arörán aö ræöa en ekki um
norræna samvinnu i jákvæöri
merkingu oröanna.
Lokaorð
I grein þessari hefur veriö f jall-
að um rekstrarhorfur og hag-
kvæmni járnblendiverksmiöju,
sem lagter til aö reisa i Hvalfiröi.
Megin niöurstööur þessarar
greinar eru sem hér segir:
• Markaðshorfur á kisiljárni
eru slæmar. Vonir manna um
að kreppan I stáliönaöinum sé
i rénun eru ekki nægilega rök-
studdar.
I áætlunum Þjóöhagsstofnun-
ar um arðsemi járnblendi-
verksmiöjunnar er annað
hvort hlutur hráefna I fram-
leiöslunni vanreiknaöur eöa
spár um söluverð of bjart-
sýnar.
• Tryggingar Elkem-Spiger-
verket (væntanlegur sam-
starfsaöili Isl. rikisins i þessu
fyrirtæki) á sölu á afuröum
járnblendiverksmiðjunnar,
eru ekki I samræmi viö þaö,
sem gert er ráö fyrir að fram-
leiöa þar. Þannig eru arö-
semisáætlanir byggöar á sölu-
tekjum, sem ekki fá staöist i
raunveruleikanum.
• Hagur Elkem-Spigerverket af
þessu samstarfi er mun meiri
enhagurislenska rikisins, þrátt
fyrir að framlag auöhringsins
og þar meö áhætta hans sé
langt um minni en framlag og
áhætta islenska rikisins.
Við teljum aö fyrirliggjandi
rekstraráætlanir um járnblendi-
verksmiöju I Hvalfiröi séu tákn-
rænar fyrir andvaraleysi þeirra,
sem um þessi mál hafa fjallaö.
Flestar forsendur sem liggja til
grundvallar rekstraráætlunum
eru fengnar frá hagsmunaaöil-
um (Elkem-Spigerverket og
Járnblendifélaginu) en sjálfstæö-
ar rannsóknir isl. aöila hafa ekki
verið geröar af þvi er næst verö-
ur komist.
Niöurstööur þessarar greinar
benda þvi eindregið til þess, aö
leggja beri niöur öll áform um
rekstur járnblendiverksmiöju i
Hvalfiröi á grundvelli þess frum-
varps sem nú biður afgreiðslu á
alþingi Islendinga.
8.4.77
Þjóðviljinn
óskar að ráða afgreiðslustjóra frá næstu
mánaðamótum. Skriflegar umsóknir
með upplýsingum um fyrri störf sendist
útbreiðslustjóra blaðsins ekki siðar en 22.
april nk., og veitir hann frekari upplýsing-
ar.
Blikkiðjan Garöahreppi
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboö.
SÍMI 53468