Þjóðviljinn - 16.04.1977, Blaðsíða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. april 1977
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN:
MATRAÐSKONA óskast til sumar-
afleysinga i eldhúsi spitalans. Hús-
mæðraskólakennaramenntun eða
hliðstæð menntun er nauðsynleg.
STARFSSTÚLKUR, vanar eldhús-
störfum, óskast til sumarafleysinga.
Nánari upplýsingar veitir yfirmat-
ráðskonan, simi 24160.
HJUKRUNARDEILDARSTJORI
óskast til starfa á skurðstofu spital-
ans nú þegar.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR OG
SJÚKRALIÐAR óskast nú þegar til
starfa á hinum ýmsu deildum.
Vinna hluta úr fullu starfi, svo og
einstakar vaktir, kemur til greina.
Nánari upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri spitalans, simi
24160.
Reykjavik 15. april 1977
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5.SÍM111765
Kðpmgstompstalur K!
Trésmiður
Trésmiður óskast til starfa hjá Kópavogs-
kaupstað. Nánari upplýsingar veitir
undirritaður. Umsóknarfrestur er til 1.
mai n.k. og skal skila á þar til gerðum
eyðublöðum sem liggja frammi á bæjar-
skrifstofunum.
Bæjarritarinn í Kópavogi
Söluskrifstofa og
vöruafgreiðsla
Sementverksmiðju ríkisins
á Ártúnshöfða í Reykjavík
er opin frá kl. 8 til 17. A föstudögum verður
þó opið til kl. 18, en alveg lokað á laugar-
dögum.
Sementsverksmiðja ríkisins.
BLAÐBERABIO
ÞJÓÐVILIANS
Laugardaginn 16. april kl. 11 fyrir hádegi
verður sýnd i Hafnarbiói
„Erfingjarnir”, bandarisk kúrekamynd i
litum. Aðalhlutverk: Jack Mahoney og
Kim Hunter.
Ath. Breyttur sýningartími
Sýning í Norræna húsinu
Samspil orðs og myndar
Samspilorðs og myndar nefnist
sýning sem opnuð verður i sýn-
ingarsal Norræna hússins I
dag laugardaginn 16. april.
Með sýningu þessari er ætlunin
að sýna hina nánu samvinnu
skálds og myndlistarmanna, sem
orðið getur i bókaútgáfu. Aðal-
verkið á sýningunni er bók
Asgers Jorns og Halldórs
Laxness: Die Geschichte vom
teurem Brot, sem kom út i Sviss
1972. Litógrafiur Asgers Jorns
verða sýndar og einnig handskrif-
aður texti Halldórs Laxness, sem
unninn er á sama hátt. Nokkr
ar myndir og textar annarra
þekktra rithöfunda og mynd-
listarmanna, bæði evrópskra og
ameriskra verða lika á sýning-
unni. Uppsetningu sýningarinnar
hefur Frank Ponzi, listfræðingur,
annast.
Sýningin verður opin kl. 17-19
laugardaginn 16. april og kl.
14—19 til sunnudagsins 24. april.
A sama tima verður sýning i
bókasafni Norræna hússins á
norrænum þýðingum á verkum
Halldórs Laxness.
WÓDLEIKHÚSIÐ
DÝRIN 1 HALSASKÓGI
40. sýning i dag kl. 16. Uppselt.
Sunnudag kl. 14.
Þriðjudag kl. 16. Uppselt.
GULLNA HLIÐIÐ
i kvöld kl. 20,
þriðjudag kl. 20.
LÉR KONUNGUR
sunnudag kl. 20.
Fáar sýningar eftir.
Litla sviðið:
ENDATAFL
miðvikudag kl. 21.
Næst siðasta sinn.
Miðasala 13,15-20.
LEIKFÉLÁG
^REYKIAVlKUR
SKJALDHAMRAR
i kvöld, uppselt.
föstudag kl. 20,30.
STRAUMROF
sunnudag kl. 20,30.
BLESSAÐ BARNALAN
frumsýn. þriöjudag, uppselt.
2. sýn. miðvikudag, uppselt.
SAUMASTOFAN
fimmtudag kl. 20,30.
Miöasala l Iðnó kl. 14-20,30.
Simi 16620.
Austurbæjarbíó
KJ ARNORKA OG
KVENHYLLI
i kvöld kl. 23,30.
Miðasala i Austurbæjarbiói kl.
16-23,30. Simi 11384.
Fóstbræöur á æfingu
Fóstbræðurflytja„Óð um ísland”
Karlakórinn Fóstbræður heldur
samsöngva fyrir styrktarfélaga
Þingsjá
Framhald af bls. 6.
allir helst að renna út á sama
tima. Utanrikisráðherra
kvaðst þó áskilja sér rétt til að
skipta um skoðun i þessu máli
eins og áður.
Ég trúi þvi
Hann sagði um kjarnorkuvopn-
in: Það er náttúrlega einn mögu-
leiki til þess að ganga úr skugga
um það hvort bandarikjamenn
hafa hér kjarnorkuvopn eða ekki.
Hann er sá aö koma upp stofnun
eða hópi manna sem hefur vit á
þessum málum. Utanrikisráð-
herra dró i efa að stofnun eins og
Alþjóða friöarrannsóknarstofn-
unin i Stokkhólmi fengist til þess
að rannsaka kjarnorkumálin hér.
Kvaðst ráðherrann byggja þessa
skoðun sina á nokkurri reynslu.
En, sagði Einar, ég trúi þvi að
kjarnorkuvopn séu ekki geymd i
Keflavik.
Umræður urðu ekki frekari um
skýrslu utanrikisráðherra.
Björgunarlaun
Framhald af bls. 17
Bisnessmennirnir voru mjög
þakklátir fyrir björgunina og
buðu Georg Winter dætur sinar
fjórar, 14-16 ára gamlar, til hjú-
skapar. Mér var sagt, segir Wint-
er, að ef ég neitaði, þá hefði ég
móögað mennina herfilega og
gæti svo farið að ég yrði settur inn
eða eitthvað þaðan af verra.
sina 20., 21., 22. og 23. april n.k. I
Austurbæjarbiói, og mun kórinn
þá flytja bæði rússnesk og finnsk
lög. Kórinn fór i fyrra i söngför til
Sovétrikjanna og Finnlands.
Einnig verða á efnisskránni stutt-
ir úrdrættir úr nokkrum óperum.
Sigfús Einarsson var heiðurs-
félagi kórsins lengi og til minn-
ingar um að 30. jan. si. voru 100 ár
liðin frá fæöingu hans mun kórinn
syngja nokkur lög eftir hann
Þá frumflytja Fóstbræður einn-
ig nýtt islenskt tónverk fyrir
karlakór og pianó eftir Þorkel
Sigurbjörnsson og nefnist það
„Óður um Island.” Texti er úr
samnefndum ljóöabálki eftir
Hannes Pétursson.
StjórnandiFóstbræðra er Jónas
Ingimundarson,undirleikari Lára
Rafnsdóttir, og einsöngvarar þau
Svala Nielsen, Kristinn Hallsson
og Sigurður Björnsson. — hs.
Alþýðubandalagið i Kópavogi.
Starfshópur um skipulagsmál og umhverfisvernd ræöir mengun og hol-
ræsamál á fundi sinum i Þinghól mánudagskvöld 18. april kl. 20.30
Einar Ingi Sigurðsson og Sigurður Björnsson verkfræðingur reifa mál-
in. Allir áhugamenn velkomnir. — Stjórn AB Kóp.
Herstöðvaandstæðingar
Skrifstofa Tryggvagötu 10. Opiö 5-7. Laugard. 2-6. Simi: 17966.
Sendið framlög til baráttu herstöövaandstæðinga á gironúmer:
30309-7.
Starfshópur i Vesturbæ
Fundur verður haldinn að Tryggvagötu 10 mánudaginn 18. april
kl. 20.30. Rætt um útgáfuefni itengslum við herstöðvamálið.
Allir velkomnir.
Starfshópur i Smáibúðahverfi
Fundur verður haldinn að Tryggvagötu 10 miðvikudaginn 20.
april kl. 20.30. Rætt um aronskuna.
Allir velkomnir.
Hverfahópur herstöðvaandstæðinga i Laugar-
nes- Voga og Heimahverfi
heldur fund að Tryggvagötu 10. fimmtudaginn 21. april kl. 20.30.
Allir velkomnir.