Þjóðviljinn - 02.07.1977, Page 3
Fyrsta verk sovétmanna i ófriöt
Laugardagur 2. júli 1977 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 3
Gereyding allra
herstödva í Noregi
og á íslandi
segir í skýrslu bandarískrar þingnefndar
1 AP-frétt i Morgunblaöinu I
gær er sagt að starfsmenn fjár-
laganefndarinnar hafi orðiö al-
deilis hlessa er þeir komust að þvi
að búnaður bandariska herliðsins
á Islandi, „sem væri þröskuldur-
inn að Atlantshafinu”, væri
ekkert nema þrjár gamlar eftir-
litsflugvélar, nokkrar orrustu-
þotur og ein ratsjárstöð. Onnur
ratsjárstöð hafi eyðilagst i óveðri
fyrir nokkrum árum, en aldrei
Ákæra rannsóknarhóps Heimskirkjuráðsins:
Audhringar ábyrg-
ir fyrir vanþróun
og stöðnun
GENF 30/6 Reuter — Hópur
kirkjunnar manna, hagfræðinga
og starfsmanna verkalýðs-
samtaka sakaði i dag fjölþjóðlega
auðhringa um að vera ábyrgir
fyrir vanþróun og stöðnun i efna-
hagsmálum þriðja heimsins og
hvatti kirkjufélög til gagnráðstaf-
ana. Starfshópur þessi var settur
á laggirnar af heimskirkjuráðinu
og hefur hann með höndum
könnun á starfsemi f jölþjóðlegra
auðhringa.
Heimskirkjuráðið hefur aðal-
stöðvar sinar i Genf og eiga aðild
að þvi um 290 kirkjufélög mót-
mælenda og rétttrúaðra (orþó-
doxra). 46 menn eru i rann-
sóknarhóp þessum. Hópurinn
sakar fjölþjóðlegu auðhringana
um að hagnýta sér ódýrt vinnuafl
þróunarlanda til þess að tryggja
sér gróða af auðlindum þeirra,
safna að sér gifurlegum auði og
samsvarandi valdi án viðeigandi
eftirlits og ábyrgðar og að hag-
nýta sér dýra tækni, er hringarnir
hafa yfir að ráða, til þess að afla
sjálfum sér mikils gróða i stað
þess að láta tæknina verða til
góða þeim löndum, er hringarnir
starfa i.
Fjöldahandtökur á
studningsmönnum
Nkomos
SALISBURY 1/7 Reuter — Einn
af forustumönnum Afriska
þjóðarráðsins i Ródesiu, stjórn-
málasamtaka blökkumanna er
Joshua Nkomo stendur fyrir,
sagðist i dag telja að yfir hundrað
stuðningsmanna samtakanna
hefðu verið handteknir i gær af
lögreglu Ródesiustjórnar. Tals-
inaður stjórnarinnar neitaði þvi
ekki að handtökurnar hefðu átt
sér stað, en vildi ekki láta uppi
neinar tölur.
Afriska þjóðarráðið (ANC)
stendur i nánu sambandi við
Afrikumannasamband Zimbab-
we(ZAPU),sem starfar erlendis.
Bæði þessi samtök lúta forustu
Nkomos. Talsmenn Ródesiuhers
halda þvi fram, að Nkomo, sem
hefur dvalið utanlands i ár, safni
nú miklu liði skæruhermanna á
vegum ZAPU i Sambiu, og sé það
lið ætlað til meiriháttar sóknar
gegn minnihlutastjórn ródesiu-
manna.
Með vaxandi skæruhernaði
eykst flótti hvitra manna frá
Ródesiu og i gær var staðfest að
einn af þingmönnum Ródesiu-
fylkingarinnar og fyrrum
ráðherra, Wickus de Kock, væri á
förum til Suður-Afriku alfarinn.
Hann þvertók þó fyrir að sér
gengi til bleyðimennska. De Kock
er af búaættum og hefur ætt hans
búið i Ródesiu i þrjár kynslóðir.
TEKKÓSLÓ V ÖSKUM
FLÓTTAMÖNNUM
GEFNAR UPP SAKIR
PRAG 30/6 Reuter — Tékkósló-
vösk stjórnarvöld tilky nntu I dag
að um 75.000 tékkóslóvökum, sem
flýðu land eftir innrás Varsjár-
bandalagsins 1968, væru hér með
gefnar upp sakir og gætu þeir
snúið heim hvenær sem þeim
sýndist. Flóttamenn þessir höföu
verið dæmdir fjarverandi i sex
mánaða til fimm ára fangelsis-
vistar á þeim grundvelli að þeir
hefðu yfirgefið landið ólöglega.
vera
verið endurreist. Er i skýrslunni
lýstyfirundrun á þessu kæruleysi
um herstöðina á íslandi, miðað
við meint mikilvægi hennar.
Segir ennfremur að þetta úrelta
tækjadrasl muni ekki einu sinni
duga til að vara við og verjast
hljóðfráum sprengjuþotum sovét-
manna. Eitthvað virðist þó
málum blandið i skýrslu þessari,
þvi að Morgunblaðið hefur það
eftir blaðafulltrúa hersins á Vell-
inum að herinn þar hafi til um-
ráða 9 Orion-könnunarflugvélar
og 3 EC-121 ratsjárflugvélar.
Höfundar skýrslunnar hugga
sig við það, að þrátt fyrir ógnar-
mátt sovétmanna og þá sérstak-
lega atómvæddan kafbátaflota
þeirra séu landfræðilegar að-
stæður hagstæðar Bandarikj-
unum, þar eð kafbátar og flug-
vélar sovétmanna yrðu að fara
framhjá varnarstöðvum i Noregi
og ,,I gegnum hinar svokölluðu
Grænlands-lslands-Bret-
lands-gáttir” til að geta herjað
sunnar á Atlantshafi. Eins og
nærri má geta, yrði þá fyrsta
áhugamál sovétmanna i striði við
Nató að gereyða sem ógrunsam-
legast öllum herstöðvum Nató i
Noregi og á Islandi, enda er i
skýrslunni einmitt gert ráð fyrir
þvi að sovétmenn myndu Iáta
þetta verða sitt fyrsta verk, ef til
ófriðar kæmi.
Eftir skýrslu þessari að dæma
hefur bandariska varnarmála-
ráðuneytið hingað til verið svo
bjartsýnt að telja sig geta séð
fyrir strið milli Nató og Varsjár-
bandalagsins með 23 daga fyrir-
vara (Ekki er útskýrt i fréttinni
hvernig þeir hafi farið að reikna
það.) En nýjar athuganir tveggja
bandariskra öldungardeildar-
þingmanna, Sams Nunn og
Deweys Bartlett, hafa leitt i ljós
likur á þvi, að þessi frestur yrði
ekki nema nokkrir dagar eða
jafnvel klukkustundir.
1 skýrslunni er samkvæmt
Reuter-frétt lagt til, að Nató
„hagnýti sér herstöðvar sinar i
Noregi til þess að loka
Norður-Atlantshafinu fyrir so-
véska flotanum.” Ekki er tekið
fram I skýrslunni, hvernig þessi
aukni vigbúnaöur i Noregi eigi að
framkvæmast, hvort norðmenn
eigi að standa að honum einnig
(þeir hafa til þessa frábeðið sér
erlendar herstöövar) eða banda-
menn þeirra i Nató einnig. Þá er á
það bent aðhægt væri að draga úr
sovésku hættunni með þvi að hafa
flugvélamóðurskip stöðugt til
staðar á Norður-Atlantshafi, en
ekki virðast höfundar skýrsl-
unnar hrifnir af þeirri lausn
sökum þess að hún myndi út-
heimta byggingu nýrra flugvéla-
móðurskipa sem kosta myndu
morð fjár, eða hálfan tiunda mil-
jarð dollara, samkvæmt útreikn-
ingi skýrsluhöfunda.
11! i *1 • I ^4
l*» V’ , '. ,ý'.
ÍL
, <
■
chevette
Þú mátt kalla hann hvað
semþúvilt!
Þaö má Kalla hann fólksbíl: Þaö fer
mjog vel um fjóra fullorðna menn i
Chevefte Auk þess er pláss fyrir
mikinn farangur Chevelfe er vel bú-
mn til oryggis og þæginda. og ódýr i
rekstri eins og fjölskyldubilar eiga aö
Þaö má kalla hann stationbíl: —
vegna þess, sem hann hefur aö
geyma að huröarbaki Opnaöu aftur-
huróina. leggöu niður sætisbakiö og
þarna er pláss fyrir húsgogn. hljóó-
færi, garöáhöld, reiöhjól, pða frysti-
kistutylli af matvörum.
Þaö má kalla hann sportbíl: — þó
ekki væri nema vegna rennilegs utlits
En 1256 cc vélin eykur enn á spenn-
inginn um leiö og hun er ræst — og
svo skutlar hun manni upp i 100 km á
15.3 sek. Chevette er léttur í stýri og
liggur vel'á vegi En enginn bensin-
hákur nema siður sé.
Chevette frá Vauxhall er nafniö, en þú getur kallaö hann hvaö
sem þú vilt: fjölskyldubíl, flutningabíl eöa spennandi sportbíl.
^Véladeild
M Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900