Þjóðviljinn - 02.07.1977, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Laugardagur 2. júll 1977
Málgagn sósíalisma,
verkalýðshreyfingar
og þjóöfrelsis.
(Jtgefandi: (Jtgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
Umsjón með sunnudagsblaði:
Arni Bergmann.
Auglýsingastjóri: (Jlfar Þormóðsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Sfðumúla 6, Simi 81333
Prentun: Blaðaprent hf.
Hreint borð
Á sama tima og umræður fara fram um
hugsanlegar takmarkanir á veiðum
islenskra sjómanna hefur sjávarútvegs-
ráðherra, Matthias Bjarnason, tilkynnt,
að ekki eigi að segja upp fiskveiðasamn-
ingum við færeyinga, belga eða
norðmenn. Rikisstjórnin virðist þvi enn
fylgja fyrri stefnu sinni i landhelgismálinu
sem falist hefur i sifelldum undanslætti
gagnvart útlendingum og skerðingu
islenskra réttinda að sama skapi. Þessi
undansláttarstefna felur leynt og ljóst i
sér fyrirætlanir stjórnvalda um að flækja
islendinga á ný i samninganet Efnahags-
bandalagsins. Viðræður forystumanna
Efnahagsbandalagsins við islenska
ráðamenn i Reykjavik fyrir nokkrum
vikum siðan og yfirlýsing sjávarútvegs-
ráðherra nú benda eindregið til fyrirætl-
ana rikisstjórnarinnar um að láta Efna-
hagsbandalaginu i té veiðiréttindi á
islenskum miðum, jafnvel á sama tima og
réttur islendinga til veiða yrði verulega
takmarkaður.
í viðtali við Þjóðviljann á fimmtudag
andmæiti Lúðvik Jósepsson harðlega
þessum fyrirætlunum sjálvarútvegs-
ráðherra og rikisstjórnarinnar. Lúðvik
bendi á, að nú væru allra siðustu forvöð að
segja upp samningum við færeyinga,
belga og norðmenn, ef þeir ættu að renna
út um svipað leyti og samningurinn um
veiðiheimildir vestur-þjóðverja—sem
útrunninn er i nóvember. Þá væri -
nauðsynlegt fyrir islendinga að hafa
algerlega hreint borð hvað varðar veiði-
heimildir útlendinga innan landhelginnar.
Lúðvik Jósepsson itrekaði fyrri yfir-
lýsingar Alþýðubandalagsins um að
stefna bæri að þvi að engin erlend veiði-
skip yrðu innan landhelginnar i árslok.
Engin nauðsyn knýr islendinga til
áframhaldandi samninga við belga og
norðmenn. Belgia er eitt af aðildarrikjum
Efnahagsbandalagsins og við eigum i
viðtækri deilu við bandalagið. Áfram-
haldandi réttur belga á islenskum miðum
gæti þvi orðið inngönguhlið fyrir önnur
riki Efnahagsbandalagsins inn i islensku
landhelgina. Engir gagnkvæmir fiskveiði-
hagsmunir knýja okkur heldur til
áframhaldandi samninga við norðmenn.
Hins vegar getur komið til greina að gera
sérstaka samninga við færeyinga með
þeim skilyrðum að þeir auki sjálfir fisk-
veiðilögsögu sina og geri ekki á sama tima
samninga við Efnahagsbandalagsrikin
um viðtækar veiðiheimildir innan land-
helginnar við Færeyjar.
Þjóðviljinn itrekar sérstaklega lokaorð
Lúðviks Jósepssonar i viðtali við blaðið:
„Það gæti reynst hættulegt ef ekki yrði
gert hreint borð við útlendinga fyrir
áramót. Við eigum raunverulega ekki
annarra úrkosta völ eins og ástandið er i
okkar sjávarútvegsmálum.”
Nýjasta sýningin á hinni frægu — Já, já
— Nei, nei — stefnu Framsóknarflokksins
fór fram i tengslum við nýgerða kjara-
samninga. Hinn gamalreyndi forystu-
maður flokksins, Eysteinn Jónsson, sem
fyrir nokkrum árum hvarf af Alþingi og
taldist hætta afskiptum af stjórnmálum,sá
að svo illa var nú fyrir flokknum komið að
nauðsynlegt væri að hressa dálitið upp á
andlit hans. Arftaki Eysteins, Ólafur
Jóhannesson, hafði i útvarpsumræðum
gefið yfirlýsingu til stuðnings kröfunni um
100 þús. kr. lágmarkslaun, en dregið yfir-
lýsinguna siðan til baka i Morgunblaðinu
næsta dag. Verkalýðshreyfingunni hafði
þvi reynst skammgóður vermir af orðum
núverandi formanns Framsóknar-
flokksins.
Gamli foringinn reis þvi úr hinum helga
steini og beitti áhrifum sinum i stjórn
Sambands islenskra samvinnufélaga til
að fá samþykkta mjög almennt orðaða
yfirlýsingu. Með góðum vilja mátti lesa úr
yfirlýsingu sambandsstjórnar vissan
stuðning við stefnu verklýðshreyfingar-
innar. Þegar verkalýðshreyfingin ætlaði
siðan að hagnýta sér þessa yfirlýsingu og
ganga til samninga við Sambandið,
fórnaði sambandsstjórn höndum og benti
á Vinnumálasambandið sem væri aðilinn
sem annaðist samningana fyrir hönd sam-
vinnuhreyfingarinnar. Vinnumála-
sambandið var hins vegar ekki tilbúið til
neinna sérstakra viðræðna.
Forystumenn Vinnumálasambands
samvinnufélaga höfðu i nýgerðum kjara-
samningum nákvæmlega sömu samstöðu
með Vinnuveitendasambandinu eins og
þeir hafa haft áður. Við samningaborðið
sagði Vinnumálasambandið „Nei, nei” og
gerði þar með að engu „Já, já” yfir-
lýsingar hinnar pólitisku forystu. Þegar
samningunum var lokið sló formaður
Vinnumálasambands samvinnufélaga,
Skúli J. Pálmason, „Já, já”-grimuna úr
höndum formanna Framsóknarflokksins,
bæði þess núverandi og fyrrverandi:
Áhrif Vinnumálasambandsins i þessum
samningum eru ekki að minum dómi
meiri heldur en öðrum „samningum”,
sagði formaður Vinnumálasambandsins i
viðtali við Ríkisútvarpið.
Þar með lauk nýjustu „Já, já — Nei,
nei” sýningu forystuliðs Framsóknar-
flokksins. Eins og alltaf áður voru það
ekki „Já, já” yfirlýsingarnar, sem giltu
þegar að samningaborðinu kom. Vinnu-
málasambandið stóð þar við hlið atvinnu-
rekenda eins og áður og hélt „Nei, nei”
merkinu hátt á lofti.
Iiogtr awur rtrúlalkarre
uintír hugarré
fumlmaéWnl
Sumar, þessar
og vissar
Embættismenn temja sér
iumir svo loðinn frásagnarmáta
að fyrir vejulega dauölega
menn er erfitt að ráða i textann.
ölafur ólafsson, landlæknir,
segir m.a. i grein um lyfja-
neyslu i Þjóðviljanum á
fimmtudag að ,,i ákveðnum hjú-
skaparstéttum hér á iandi er
neysla miklu meiri en almennt
gerist. Ég hirði ekki um að
nefna þessar stéttir sérstaklega
i þessari grein.”
Seinna kemur svo: „Neysla er
svipuð i sömu hjúskaparstétt-
um.” — „Niöurstöður hóprann-
sókna gefa eindregið til kynna
að sjúkdómstiðni er algengari i
þeim hjúskaparstéttum og ald-
urshópum (eldra fólk) sem að
framan er greint.” — „Það er
enginn vafi á að félagsleg- og
efnahagsleg aöstoð hér er al-
mennt minni en á hinum Norð-
urlöndunum og vissar hjúskap-
arstéttir eru afskiptar.”
Sumar, þessar og vissar hjú-
skaparstéttir eru meira í dópinu
en aðrar, fær maður að vita hjá
landlækni. Frásögn af þessu
tagi vekur hjá mér ógurlega
forvitni og grunsemdir um að
verið sé að leyna einhverju.
Hvaða hjúskaparstéttir eru i
lyfjum; eru það miðaldra
heimafrúr, piparsveinar eða
piparjúnkur, ekkjur eða ekklar,
fráskildir eða hommar?
Forvitinn fœr
ekki svar
Til þess að svala forvitninni
útvega ég mér Timarit um
lyfjafræði og Læknablaðið, en
þar er skýrt frá niðurstöðum
fyrstu kannana á lyfjanotkun
hérlendis og samanburði milli
Norðurlandanna. Þar fæst að
visu ekkert svar um hjúskapar-
stéttirnar, þótt greinarnar séu
margar og lærðar. Allir liggja
þvi áfram undir grun, heima-
frúr jafnt sem fráskildir, og
aðrir sem skipa má i hjúskapar-
stétt.
1 Læknablaðinu skortir hins-.
vegar ekki á föðurlegar ábend-
ingar frá landlækni, borgar-
lækni og ráðuneytisstarfsmanni
til lækna um að fara sparlega
með lyfjaávisanir, og segja þær
meira en nokkrar tölur um það,
að lyfjaaustur hefur verið orð-
inn hættulega mikill.
J I
gegnþunglyndi 1
ogkvíða
Sinequan y
stuðlarað
bættum svefni •*
'W£~
Valium Roche
er róandi
Læknablaðið er 39 lesmálssið-
ur. Nákvæmlega jafnmargar
siður eru i blaðinu af auglýsing-
um frá lyfjaframleiöendum og
umboðsmönnum þeirra hér-
lendis. Þar auglýsa lyfjahring-
irnir Pfizer, Upjohn, Squibb,
Beecham, Roche og fleiri. Þetta
eru allt saman heilsiðuauglýs-
ingar i öllum regnbogans litum
þar sem spilað er á skynhrif les-
andans. Sem betur fer er lyfja-
framleiðendum bannað að aug-
lýsa á almennum markaði, en
þeir eiga auðvitað fyrst og
fremst erindi við þá sem fara
með ávisanaheftin, læknana. Nú
skyldi maður ætla að læknar
fengju það staðgóða menntun að
þeir gætu ráðið fram úr lyfja-
skrám, þar sem væru staðfestar
opinberar upplýsingar um eðli
hinna ýmsu lyfja. Það nægir
greinilega ekki, þvi lyfjafram-
leiöandanum Roche og Lækna-
blaðinu þykir við hæfi að læknar
viti að „Þegar aðaiáhyggjuefni
sjúklingsins er hjartað stuðlar
Valium Roche að bestum
árangri.”Og hversvegna? spyr
fávis hómópati. Jú. Valium
Roche er: „Meira en róandi
lyf.”
Þetta eru haldgóðar upplýs-
ingar i blaði sem að öðru leyti er
helgað umræðu um róandi lyf.
Ó, fumlausa iðni
Enda þótt við höfum Lyfja-
verslun rikisins, þykir öruggara
að hafa umboðsmannakerfi eins
og i áfenginu til þess að stuðla
að heildsalagróða og vöru-
áróðri. Tvöfalt kerfi dugar best,
og færir Læknablaðinu góðan
bisness um leið og það visar
læknunum veginn i lyfjaávisun-
um.
Með þvi að lesa Læknablaðið
hafa læknar komist að þeirri
niðurstöðu að „Mogadon Roche.
er af þrem gildum ástæðum
ákjósanlegasta svefnlyfið”,
enda ávisa þeir þvi mest allra
svefnlyfja, sjúklingum og
Roche til yndisauka.
í blaðamennsku er mikið fum
og órói og oft skortur á hugarró.
Þessvegna ætla.ég samkvæmt
tilvisan Læknablaðsins beint til
heimilislæknisins mins og biðja
um Nobrium Roche. Það „lægir
öldur óróleikans og veitir hug-
arró”og veitir mér umfram allt
það sem ég þarf mest á að
halda: FUMLAUSA IÐNI.-ekh
<Mogadon>„
í r at þrem gildum éttatðtm) ökjöMmfsgacta avefatyfiö