Þjóðviljinn - 02.07.1977, Blaðsíða 5
Laugardagur 2. jiill 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Frystihúsið lokað siðan í maí
Atvinnuástand hefur
verið heldur bágborið í
Ólafsvík í vor. Þegar við
vorum þar á ferðinni var
frystihúsið lokað og hafði
verið lokað vegna hrá-
efnisskorts síðan 6. maí.
Þegar frystihúsið er í
gangi vinna þar til dæmis
70-80 konur. Það er því
bágborið atvinnuástandið
hjá konum í ólafsvik.
Það er sérlega sorglegt að
ganga um tómt frystihúsið, þvi
hér er um eitthvert glæsilegasta
frystihús landsins að ræða. 011
aðstaða er þar til fyrirmyndar,
kaffistofa og anddyri skreytt
með Drápuhliðargrjóti. Þaö
vantar bara fiskinn.
Það er grátlegt, sagði Kjartan
Þorsteinsson i Ólafsvik við okk-
ur, að sjá svona vinnubrögð.
Byggö glæsileg fiskverkunarað-
staða, en það gleymist bara að
frystihús án fisks er út i hött.
Okkur vantar togarann, sagði
Kjartan. Það er að visu búið að
kaupa togara. Það er 2 ára
gamall franskur togari og heitir
Lárus Sveinsson. Hann var bara
settur i slipp til breytinga um
leið og hann kom og er ekki
væntanlegur niður á næstunni.
Þvi hafði verið heitið að hann
færi i 1-2 túra um leið og hann
kæmihingað, svona til að skaffa
hráefni, en það var svikið og
hann settur beint i slipp.
Annars virðist vera mesta
stjórnleysi á þessu frystihúsi.
Það er lokað vegna hráefnis-
skorts, en samtimis eru bátar
frystihússins stopp vegna þess
að frystihúsið opnar ekki.
Þess utan missti frystihúsið
frá sér báta sem höfðu lagt upp
hjá þeim i vetur.
Og svo lokaði beinaverk-
smiðjan vegna hráefnisskorts
og nú er beinunum ekið út á
Sand.
I þessu 1100 manna plássi er
enginn iðnaður til að taka við
fólki er frystihúsiö bregst. Við
höfum ekki einu sinni iðnaöar-
menn, segja menn i Ólafsvik,
þeir annaö hvort flytja burt eða
setja upp verslun.
Kaupfélagið i plássinu er rek-
ið af K.B. i Borgarnesi, og að
sjálfsögðu eru menn i ólafsvik
ekki allskostar ánægðir með
það. — Það skilur ekkert eftir
hér i plássinu, segir Kjartan, ef
hagnaður verður þá er hann
fluttur suður til Borgarness og
kemur okkur ekki til góða.
En við erum vongóðir um
framtiðina, og koma togarans
ætti að verða til bóta. Við þyrft-
um bara eina 2 til viöbótar, seg-
ir Kjartan Þorsteinsson að lok-
um.
I veitingasölu sjóbiiðarinnar I ólafsvlk er hægt að kaupa góðan is-
lenskan mat. Við mælum með staðnum. Kokkurinn heitir Jón Þór
Einarsson og stendur hér yfir potti með nýrri ýsu.
Íbúðír seljast á hálfvirdi
Bágt atvinnu-
ástand í Ólafsvík
SNÆFELLINGAR
SÓTTIR HEIM
Það þætti lélegt að selja 113 fm
ibúð fyrir 5 miljónir i Reykjavík
og fá bara helminginn út.
segir Rúnar Benjamínsson um aðstöðumun í dreifbýli
og á höfuðborgarsvœði
Ég á hér rúmlega 100
ferm íbúöarhæð. Ég er að
byggja mér einbýlishús —
timburhús upp á meira en
10 milj. — og þess vegna
vil ég selja þessa íbúð. En
það er hægar sagt en gert
að selja húsnæði úti á
landi.
Ég er núna kominn með
kaupanda að ibúðinni. Og fyrir
þessa 113 ferm fæ ég 5 miljónir.
þar af aðeins 2,5 miljónir i
útborgun. Það þætti vist heldur
léleg sala á höfuðborgarsvæðinu
— sagði Rúnar Benjaminsson i
Ólafsvik er viö spurðum hann
um aðstöðumun milli dreifbýlis
og höfuðborgarsvæðisins.
— Það er margt sem kemur
þarna inn i dæmið. Það hefur
sina kosti að búa úti á landi, en á
mörgum sviðum er aðstöðu-
munurinn geysimikill.
Húsnæðisdæmið sýnir þetta.
Þótt ibúöaverð sé lægra i
endursölu hér en i Reykjavik,
þá er annað vöruverö hér mun
hærra en þar. Oft heyrum við
vörur eins og t.d. sykur
auglýstar helmingi ódýrari i
Reykjavik en hér.
Munurinn er það mikill að i
raun getur það borgaö sig að
fara i innkaupaferð til
Reykjavikur og fylla bilinn af
nauðsynjavörum.
Verðlagseftirlit er ákaflega
bágborið hér, eins og sjálfsagt
viða. Það er algeng sjón að sjá
hvern verðmiðann yfir annan.
Og munurinn á lægstu og hæstu
verðmiðum er ofthelmingur.
Og við megum ekkl gleyma
oliunni. Þeim hitaveitunot-
endum i Reykjavik þætti sjálf-
sagt hart að þurfa að borga
mörg hundruð þúsund i
kyndingarkostnað fyrir meöal-
stóra ibúð.
Hér i Ölafsvik vantar til-
finnanlega félagsheimili. Bæði
til skemmtana og sem aðstöðu
fyrir ýmsa félagsstarfsemi.
Fólk hér i Ólafsvik er
félagslynt, en það vantar bara
aðstöðuna.
Það félagsheimili sem nú er
til byggðu templararnir upp úr
aldamótunum og það er að
sjálfsögðu engan veginn full-
nægjandi.
En þrátt fyrir að hér skortir
ýmislegt er ég þó ánægður að
búa hér. Ég er ólsari og verð
það áfram, sagði Rúnar að
lokum. eng
H j úkrunarf ræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa við
Borgarspitalann sem fyrst
Vinnutimi 8.00—16.00 eða 9.00—13.00. Fri
um helgar.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga á fastar
næturvaktir. Fullt starf eða hlutavinna.
Upplýsingar á skrifstofu hjúkrunar-
forstjóra i sima 81200.
RITARI
Ritari óskast nú þegar til starfa við
sjúklingabókhald og önnur skrifstofustörf.
Verslunarskóla- eða hliðstæð menntun
áskilin.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum
sendist skrifstofu Borgarspitalans fyrir 7.
júli n.k.
Reykjavik, 1. júli 1977.
BORGARSPÍTALINN*