Þjóðviljinn - 02.07.1977, Blaðsíða 11
Pressan og
sósíalisminn
Blaöiö „Mladá Fronta” birti
þann 25. júni 1968 ræöu hins
þekkta kvikmyndageröar-
manns og blaöamanns A.J.
Liehms, sem hann skömmu áö-
ur haföi haldið á þingi tékk-
neska blaðamannasambands-
ins. Ræöan er nokkuð stytt i is-
lenskri þýðingu.
,,Ég hef alls engan áhuga á
umyröum þeirra, sem ekki geta
kyngt tjáningarfrelsi dagblaö-
anna. 1 þeirra augum er vanda-
málið einfalt: Annað hvort
munu þeir bera sigur úr býtum,
og þar með glötum við
tjáningarfrelsi landsins, og öllu
þvi frelsi, sem i kjölfar þess
siglir, eða þeir biða ósigur.
. Ég hef meiri áhuga á þvi sem
hinum svonefndu framfarasinn-
um liggur á hjarta. Þeir virðast
álita, að frjáls blaðamennska sé
nauðsynleg til að þjóna betur
endurfæðingunni; að sósialism-
inn þarfnist tjáningarfrelsis
blaðanna til að betrumbæta
sjálfan sig. Sósialisminn þarfn-
ast pressunnar. En þarf pressan
á sósíalismanum að halda? Og
ef svo er, þá til hvers?
Pressan (og hér á ég við alla
fjölmiðla) varð ekki til fyrir til-
stilli sósialismans. Iðnaður,
landbúnaður, réttarkerfi — ekk-
ert af þessu varð til vegna
sósialismans. Það er sósial-
isminn, sem á að þjóna þróun
iðnaðar, landbúnaðar og réttar-
kerfis, en ekki öfugt. Hinir
framfarasinnuðu megna ekki að
rifa sig lausa úr prisund gam-
alla hugmynda: Þeir hafa
ennþá tilhneigingu til að lita á
pressuna sem áhald; tæki
stjórnmálakerfisins, verkfæri
flokksins, stjórnarinnar og
kerfisins. A einn hátt er pressan
allt þetta, en ekki einvörðungu.
Hinn eiginlegi tilveruréttur
pressunnar á okkar dögum er sá
að sjá fyrir reglulegu og sam-
felldu sambandi milli meðlima
þjóðfélagsins; að veita öllum
borgurum þær upplýsingar,
sem nauðsynlegar eru tii skoð-
anamyndunar og til að taka
ákvarðanir, og sjá til þess, aö
ekki sé einkaleyfi á upplýsing-
um, þvi það fæðir óhjákvæmi-
lega af sér valdaeinokun.
Það er áhugavert, að i þeim
iðnaðarlöndum, þar sem sósial-
ismi er ekki viö völd, er það æ
sjaldgæfara, aö blöð og timarit
séu eign stjórnmálaflokka eða
stjórnmálahreyfinga. Pressan
er að mestu leyti óháð stofnun,
sem gegnir næstum þvi sama
hlutverki og lungu mannslikam-
ans: Inn- og útöndun þjóð-
félagsins gerist fyrir tilstilli
pressunnar. Ef pressan bregst,
fær þjóðfélagið öndunarörðug-
leika og sýkist.
Þarf þá pressan á sósialism-
anum að halda? Það er skoðun
min, að hún þarfnist hans svo
framarlega sem sósialisminn
getur gefið henni meira frelsi og
sjálfstæði en annað þjóðfélags-
skipulag, og svo framarlega
sem tilveruréttur pressunnar er
meiri innan sósialistisks kerfis
I
■
I
■
i
■
i
D
I
D
1
GS
1
en innan annarra þjóðfélags-"
kerfa. Geti sósialisminn ekki§
gefið pressunni þessi lifsskil-*
yrði, þarf pressan ekki á honumi
að halda. Og þaö sem meira er,"
sósialisminn vinnur gegn press-n
unni.
Hvað á sósialisminn að gera J
til að tryggja pressunni sem I
best lifskilyrði? Við þeirri ■
spurningu er aöeins til eitt svar, §
sem ef til vill gildir ekki i dag,«
en ætti að gilda innan nánustu ■
framtiðar: Pressan verðurj
skilyrðislaust að vera eign«
þeirra, sem vinna i henni. I
Pressan er ekki sem betlari,"
sem snikir sér frelsi eða |
umburðarlyndi. Pressan og ■
blaðamennirnir geta aðeinsl
boöið þessu þjóðfélagi upp á"
eina þjónustu: Nefnilega að ■
reyna að upplýsa alla i landinu ■
um allt, sem þar gerist. Z
Sósialisminn i Tékkóslóvakiu I
getur annað hvort þegið slika ■
þjónustu (og hagað aðstæðum §
eftir þvi), eða hafnað henni og ■
kveðið þarmeð hinn endanlega ■
og óafturkræfa dóm yfir sjálfum *
sér. Gerist þetta, er timi til ■
kominn að við förum að leita að "
nýrri vinnu. Við óskum að þjóna ■
án þess aö vera undirgefnir.” ■
Tauschen? (þýska = „skiptá’’)
Þó að svarti markað-
urinn sé bannaður með lögum,
vilja yfirvöld ná sem mestum
gjaldeyri af túristum, og fylgja
reglunum þvi ekki svo strangt
eftir. En hvað gerir hinn almenni
tékki við erlendan gjaldeyri? Það
getur verið mismunandi, en yfir-
leitt verslar hann fyrir
peninganna i svonefndu Tuzex-
búðum, sem hafa tollfrjáls-
ar, vestrænar gæöavörur á
boðstólunum. Bankarnir skipta
erlendum gjaldeyri i Tuzex-
peninga, sem notaðir eru til að
kaupa skandinavisk húsgögn,
japanskar ljósmyndavélar eða
skoskt viski, möo. vörur, sem eru
óaðgengilegarfyrir hinn almenna
borgara i Tékkóslóvakiu. Að
nafninu til eiga Tuzex-búöirnar
að vera fyrir túristana, en i reynd
eru þær sæluriki gjaldeyrisbrask-
aranna. Rikið fær vestrænan
gjaldeyri, bisarnir hljóta for-
boðnar vörur, sem þeir geta átt
sjálfir, eða selt með hagnaði.
Efnahagstilraunin,
sem var kæfð i fæðingu
Svarti markaöurinn og aðferðir
rikisins til að ná I erlendan gjald-
eyri eru náttúrulega aöeins litiö
kýli á efnahagslega sjúkum
þjóðarlikama. Hiö gamla efna-
hagskerfi, sem fylgdi stalinist-
iskum linum skrifstofuveldisins,
hafði að sjálfsögðu marga ókosti.
Utanrikisverslunin var háð Sovét
(2/3 af útfluttum vörum),
framleiðsluvélarnar voru viðast
hvar gamlar og úr sér gengnar,
og vinnukraft vantaöi til að full-
nægja e f t i r s p u r n i n n i .
Framleiðsla gæðavara fór
minnkandi, skipulagning fram-
leiðslunnar var einráð, og eftir-
spurn á neysluvörum illa sinnt.
Aðrar ástæður mætti nefna: Sein
þróun þjónustu- og samgöngu-
mála, litill verðmunur á vana-
legum vörum og gæðavörum, nei-
kvæður greiðslujöfnuður I ára-
raðir og litlar þjóðartekjur.
Það voru þvi mörg efnahagsleg
vandamál, sem biöu Dubcek-
stjórnarinnar, eftir að stalinist-
anum Novotny hafði verið vikið
til hliðar i ársbyrjun 1968. Hin-
um umbótasinnuðu efnahags-
kenningum hagfræðingsins og
varaforsætisráðherrans Ota Siks,
var hrint I framkvæmd, með
þeim afleiðingum að Sovétrlkin
óttuðust efnahagslega gagn-
byltingu i allri Austur-Evrópu.
Þetta var kannski afgerandi
orsök innrásarinnar.
t formála siðari útgáfu á bók
sinni „Skipulanging og markað-
ur”, (hún var fyrst gefin út i Prag
1967), skrifaði Ota Sik:
„Aöstaða Tékkóslóvakiu var
mjög erfið i ársbyrjun 1968, og
nýja stjórnin átti ekki annarra
kosta völ, en að skýra fólkinu frá
efnahagsástandinu eftir að
Novotný-stjórninni var vikið frá.
Þetta varð þó ekki til þess, að
menn misstu móöinn. Þvert á
móti óx pólitisk samheldni og
baráttuhugurinn var meiri en
nokkru sinni áður. M.a. var
hleypt af stokkunum frjálsu
framlagí til peninga- og gullsjóðs
rikisins. Hreinskilni i efnahags-
vandræðum þjóðarinnar, auð-
skilin framkvæmdaáætlun og
almennt traust á hinum nýju
leiðtogum, sem ekki byggðu
lengur völd sin á lygum og of-
beldi, heldur á opinskáum
upplýsingum, varð til þess, að
nýja stjórnin hlaut á nokkrum
mánuðum stuðning, sem gerði
okkur öfundsverð i augum
annarra þjóða.”
1 niðurlagi bókarinnar kemst
Ota Sik að eftirfarandi niður-
stöðu: „Sérhver, sem ber sósial-
istiska hagfræði fyrir brjósti, og
vonar að hún muni bera sigur úr
býtum i hinni sögulegu sam-
keppni við kapitalismann, verður
að viðurkenna aö hættan leynist
ekki i hagfræðistjórn sósialist-
iskra atvinnuvega. Nei, hættuna
er að finna i hinu seinlega og stifa
kerfi skrif stofuveldisins.
Fremsta verkefni marxismans, i
kenningu og reynd, er þvi að
berjast gegn þessu kerfi, og
stuðla að sósialistisku skipulagi,
sem reynist frjósamt i hagfræöi-
legum skilningi.”
Ota Sik býr nú i útlegð. Hinar
framfarasinnuðu hagfræði-
kenningar voru brenndar á
hreinsunarbáli hinna nýju vald-
hafa eins hverjar aðrar villu-
trúarkenningar. 1 dag rikir hið
gamla efnahagskerfi að nýju. Og
efst á Letenske-hæðinni breiðir
Stalin-stöpullinn út svartan
granitfaðminn.
Sími Ol ooo
Þjóðviljans er J_
Laugardagur 2. júli 1977* ÞJÓÐVILJINN — SIÐA II
Ný verslun í Breiðholti
V algarður
Ný verslun, Valgarður, hefur
nú opnað I Breiðholti I, Bakka-
hverfi. Eigcndur hennar eru tveir
reyndir verslunarmenn, þeir
Gunnar Kjartansson og Þórður
Sigurðsson, en sá siðarnefndi er
lærður matreiðslumaður og
framreiðir sjálfur hluta af þeim
kjötvörum sem á bóðstólum eru.
í Valgarði geta breiðhyltingar
fengið allt það sem islenskt heim-
ili þarfnast á þessum siðustu og
kröfuhörðustu timum. Mjólk,
kjöt, nýlenduvörur og önnur
heimilisvara er öil fyrir hendi i
Valgarði, og nýr fiskur verður
einnig fáanlegur á meðan sjó-
sækjendurnir bregðast ekki.
Þeir Gunnar og Þórður hafa
báðir langa reynslu I verslunar-
störfum, en siðustu árin hafa þeir
unnið hjá Hagkaup. Myndin af
þeim er tekin i hinni nýju verslun
sl. fimmtudag.
— gsp
Heimsóttu
Chicago
Verðlaunahafar í ritgerðasamkeppni
Æskunnar og Flugleiða
Siðastliðinn vetur efndu Flug-
leiðir h.f. og Barnablaðið Æskan
til Verðlaunasamkeppni. Tvenn
fyrstu verðlaun voru ferö til
Chicago en auk þess voru flug-
ferðir innanlands og bókaverð-
laun I boði. Mjög mikil þátttaka
var i verðlaunagetrauninni og
u.þ.b. helmingur svara var rétt-
ur.
Hinn 6. mal var dregið úr rétt-
um lausnum og hlutu fyrstu verð-
laun,ferð tilChicago og dvöl þar,
þeir Sveinn Asgeirsson, Hliðar-
götu 4, Neskaupstað 12 ára og
Einar Már Jóhannesson 11 ára,
Ásgarðsvegi 13, Húsavik. Flug-
ferðir innanlands hlutu Guörún
Harðardóttir, Austurvegi 3, Hris-
ey, Edda Ellsabet Egilsdóttir,
Skólavegi 20, Fáskrúðsfirði, Elin
Björnsdóttir, Hliðarvegi 43, Isa-
firði og Davlð Jónsson, Hliöar-
vangi 24, Hellu, Rangárvalla-
sýslu. Bókaverðlaun hlutu Sigrún
Einarsdóttir, Tunguvegi 4,
Reykjavik, Snædis Snæbjörns-
dóttir, Lindarholti 5, Ólafsvik,
Gunnar Þ. Haraldsson, Innra
Leiti, Búðardal, Brynja Hjálm-
týsdóttir, Vallholti 32, Selfossi,
Kristin Guðjónsdóttir, Hars-
dorffsveg 6b, Kaupmannahöfn,
Kristinn Friðriksson, Vitastig 3,
Akranesi, Gisli Rúnar Baldvins-
son, Alfaskeiði 80, Hafnarfirði,
Guðný Hallgrimsdóttir, Lágholti
13, Mosfellssveit, Þorgeröur Sig-
urðardóttir, Kársnesbraut 51,
Kópavogi og Baldur Þ. Guð-
mundsson, Skólavegi 12, Kefla-
vik.
Þeir Sveinn Asgeirsson og Ein-
ar Már Jóhannesson fóru verö-
launaferðina til Chicago 30: maí
og komu aftur til Islands 3. júni.
Auk þeirra voru með i ferðinni
ritstjóri Æskunnar og blaðafull-
trúi Flugleiða.
Meðan dvalið var I Chicago var
borgin skoðuð eftir föngum.
Hæsta bygging heims, The Sears
Tower, var heimsótt, dagstund
eytt i skemmtigarðinum,The Gre-
at America, en nú er ár frá þvi
hann var opnaður og keppir við
Disney-skemmtigarðana. Þá
heimsótti verölaunahafarnir dag-
blaðið Chicago Daily News og
söluskrifstofu Loftleiða, sem er á
besta stað i borginni, við South
Michigan Avenue. Frásögn og
myndir úr Chicagoferð verð-
launahafanna mun birtast i Æsk-
unni næsta vetur.
Bladberar-
vinsamlegast komið á afgreiðslu blaðsins
og sækið rukkunarheftin.
Opið til kl. 18.00 mánud.-föstud.
Þjóðviljinn Siðumúla 6 - simi 81333.