Þjóðviljinn - 02.07.1977, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. jdll 1977
12
Kvennaknattspyrna hefur
tekiö mikinn fjörkipp á þessu
ári. Undanfarin ár hafa fá liö
iðkaö kvennaknattspyrnu en i ár
eru 6 liö sem skipa 1. deild og
leikin tvöföld umferö. Sann-
leikurinn er sá aö allnokkuö er
farið aö tala og rita um kvenna-
knattspyrnu og þaö aö veröleik-
um.
Islandsmötkvenna i 1. deild er
rúmlega hálfnaö og hefur Valur
tekið forystu öllum á óvart, þvi
félagiðhefur ekki fyrr tekið þátt
ikvennaknattspyrnu. Siðustu ár
hafa F.H. og Breiðablik verið
bestu liöin, en Fram og Valur
hafa bæst í hópinn á þessu ári.
Ennþá er aðeins leikiö I einum
aldursflokki, en ef fram fer sem
horfir, má fastlega gera ráð
fyrir þvi, að aldursflokka-
skipting verði upp tekin. Þaö
sem e.t.v. kemur til meö að
standa kvennaknattspyrnu fyrir
þrifum, ef áhugi eykst, er aö-
stöðuleysi hvað velli og
búningsaöstööu varöar, fyrir
svo utan þessi eilifu fjármáí
sem allt eru aö drepa. Nógu erf-
itt reynist félögunum aö koma
drengjaknattspyrnunni frá sér,
hvaö þá aö bæta miklu viö nema
að gera ný mannvirki. En staö-
reyndin viröist blasa viö, aö
kvennaknattspyrna á vaxandi
vinsældum aö fagnavog þvi ber
að fagna.
Enn er aöeins eitt mót á veg-
um K.S.I., en ég spái því, að
fljótlega verði krafist a.m.k.
Bikarkeppni fyrir stúlkurnar og
svo meira siðar.
A hverju sumri koma hingaö
til lands unglingalið í knatt-
spyrnu. Siöustu ár hefur farið
vaxandi aö skosk liö komi
hingað og islensk fari til Skot-
lands. Hér áður fyrr voru sam-
skipti á þessu sviði aöallega við
Norðurlöndin, en vegna ferða-
kostnaðar hefur þessi breyting
orðið á. Knattspyrnugeta þess-
ara flokka er mjög misjöfn, en i
flestum tilfellum svipuö þeirri
islensku.
Ég tel að svona samskipti séu
gagnleg, ef vel er til vandaö
hvað allan undirbúning og
fararstjórn varðar. Slikar feröir
VIKUPISTILL
Flautað
mega ekki aöeins veröa
skemmtiferöir,án aga og reglu.
Þá er betra heima setið.
Um þessar mundir eru a.m.k.
kosti þrjú unglingalið frá Skot-
landi i Reykjavlk og munu
næstu kvöld þreyta kappleiki
við unglingalið Reykjavikur-
félaganna og nágrannabyggðar.
Leikir þessir eru oft skemmti-
legir og vel þess viröi fyrir fólk
á næstu góöviöriskvöldum aö
rúlla á vellina og horfa á þessa
leiki; auk þess kostar það ekk-
ert.
Deilur virðast komnar upp
milli leikmanna 1. deildar og
knattspyrnudómara um orsakir
fyrir tiðum slysum i knatt-
spyrnuleikjum. Engin úttekt
hefur farið fram á þvi, hvort
tiðni sé meiri nú en áöur. Fyrir-
liöi Vikings á leikvelli, Eirikur
þorsteinsson, átti athyglisvert
viðtal viö blaðamann Morgun-
blaösins um þessi mál s.l.
fimmtudag, og siöan hefur einn
af okkar fyrrverandi knatt-
spyrnudómurum, Jörundur
Þorsteinsson, gagnrýnt fyrr-
greint viðtal. Ég tel að hér sé
hreyft viðkvæmu en alvarlegu
máli, og báöir hafi nokkuð til
sins máls, þvi sjaldan veldur
einn þá tveir deíla.
E.Þ. ræddi einkum þann þátt
að dómarar dæmdu of litið og
vægt á gróf brot, sem siðan yllu
alvarlegum meiðslum, á meðan
þeir litu stundum meira á svo-
kailaða smámuni og vittu menn
fyrir þá frekar.
Hvað fyrra atriði varöar er ég
ekki sammála E.Þ. Allir dóm-
arar dæma eins vel og þeir geta
hverju sinni, hvað varðar alvar-
leg brot og reyna að koma i veg
leiks
fyrir að menn meiöist, en menn
sjá misjafnlega vel. Hitt vita
allir að erfitt er að dæma áður
en menn hafa brotið af sér.
Astæðan fyrir meiðslum knatt-
spyrnunannaer þvi að minu viti
ekki. dómurunum að kenna,
langt frá þvi. Hinu er ég E.Þ.
alveg sammála, að svokölluð
smáatriði — eru oft gerð að of
stórum málum og dómarar láta
slikt of oft fara I „pirrurnar” á
sér. Dómarar dæma eftir lögum
og reglum um knattspyrnumót
en lög eru oft ákaflega teygjan-
leg, og þvi verður brjóstvitíð
stundum að ráöa, vegaog meta
hlutina eða með öðrum orðum,
að andi laganna á að ráða ferð-
inni.
Varðandi bréf J.Þ. er ég hon-
um sammála um aö of djúpt sé i
árinni tekið hjá E.Þ. Varðandi
hinn meginþátt J.Þ. þar sem
hann ræðir um starf dómarans
til knattspyrnunnar i heild, þar
sem dómarar leggi svo og svo
mikið til knattspyrnunnar, álit
ég að þeir leggi ekkert meira en
aðrir sem að knattspyrnumál-
um starfa, og stundum minna.
Ég vek athygli á þessum um-
ræðum, þvi að i siðasta pistli
minum kom ég nokkuð inn á
meiðsli knattspyrnumanna og
meðferð þeirra meiðsla á eftir.
Um þennan þátt ræddu þessir
menn ekkert, og tel ég að það sé
mergurinn málsins, að koma i
veg fyrir meiðsli, ef hægt er, og
siðan að finna fljótustu leiðina
til lækninga. Ég endurtek þvi
það sem ég sagði siðast, aö sá
þáttur er vanræktur bæöi hjá
K.S.l. og öðrum er þessum mál-
um sinna, og úrlausnar er þörf.
Bikarkeppnin I knattspyrnu
nýtur meiri og meiri vinsælda
með hverju ári. Þó er það ennþá
svo, að 1. deildin er nr. 1 og Bik-
arinn nr. 2. Engin þjóð litur með
eins mikilli iotningu til Bikar-
keppninnar og englendingar,
enda vekur úrslitaleikur þeirrar
keppni heimsathygli árlega.
Sl. fimmtudag var dregið I
aðalkeppni Bikarsins, eða 16
liöa keppnina sem svo er nefnd,
og þá má segja að Bikarkeppnin
sé fyrst farin af stað fyrir al-
vöru.
1 þessari umferð sem leikin
verður 12.-14. júli n.k. vekja
tveirleikir mesta eftirvæntingu,
þe. Akranes-Breiðablik og Val-
ur-Þór, en það eru einu 1. deild-
ar liðin sem drógust saman.
Engin annarrardeildar lið dróg-
ust saman að þessu sinni,
þannig að búast má við mjög
harðri keppni i 2. og 3. umferð,
og spá min er sú að eingöngu 1.
deildar lið sláist þar.
Eins og nú árar með tekjur af
leikjum 1. deildar, er næstum
gullnáma fyrir lið að komast I
úrslitaleik Bikarkeppninnar, og
ef vel tekst til er spá min að
úrslitaleikur i ár gefi yfir 1
miljón krónur i tekjur i hlut
þeirra félaga er leika úrslita-
leikinn, og þvi til mikils að
vinna.
Islenska landsliðið bætti ein-
um sigri i safnið i landsleiknum
við norðmenn s.l. fimmtudag.
Sigur i landsleik er alltaf sæt-
ur, en getur stundum verið súr-
sætur, og svovarnú.Eftir leikinn
átti ég tal við allmarga menn
um hann og hitti ég engan sem
þótti hann skemmtilegur eða vel
leikinn, en voru að vonum
ánægðir með sigurinn. Mér
fannst leikurinn hálfleiðinlegur
á köflum. Liðin voru mjög ólfk.
Styrkleiki islenska liðsins var
vel leikinn varnarleikur með-
góðum markverði, þar sem fá
mistök voru gerð, en hefðu get-
að orðið afdrifarik, og svo nokk-
ur skyndiupphlaup i sóknar-
leiknum.
Norska liðið lék all skemmti-
lega knattspyrnu á miðjum vell-
inum, en mörkin eru til end-
anna. Liðið reyndi enga
gegnumbrotsaðferð, hvorki upp
kantana né með fallegum leik-
fléttum eða öðrum ráðum og
sjaldnast nema þrir menn i
sókninni.
Bæði liðin sköpuðu sér þvi
mjög fá marktækifæri, og þvi
litið um skemmtileg tilþrif að
ræða,Aðeins tvö markskot sáust
i leiknum sem talandi er um.
Af islenskum leikmönnum
fannst mér mest koma til þeirra
sem fæsta landsleiki hafa að
baki,Janusar og Atla. Af at-
vinnumönnunum stóð einn upp
úr, Marteinn Geirsson. Ég tel að
ástæðulaust sé að velja menn I
landslið, jafnvel þó um lykil-
menn fyrri ára og fyrirliða sé að
ræða,ef þeir hafa ekki æft og
haldið sér i „formi” 20 daga
fyrirlandsleik, enda sást greini-
leg afturför hjá fyrirliðanum,
minni yfirferð og allur þyngri
frá sfðasta leik. Það getur engin
landsliðsnefnd leyft sér gagn-
vart öðrum leikmönnum að
velja menn i landslið sem ekki
leggja jafn hart að sér og þeirx
sem ekki komast i liðið. Slikt \
býður aðeins heim erfiöleikum i
framtiðinni; menn geta ekki
kosið sjálfa sig i landsliö, og
hæfilegur agi er einmitt eitt af
þvi sem landsliðið undanfarin
ár hefur haft hvað best.
t stuttu máli: Eftir um það bil
viku hlé hefst islandsmót 1.
deiidar aftur á morgun með leik
á Skipaskaga milli Akraness og
Vals. Eins og staðan er i dag,
getur hér orðið um úrslitaleik
mótsins að ræða. Þegar flautað
verður til leiksloka, mun staðan
e.tv. skýrast. STOPPER.
Kagnar Bjornsson, Þorkell Bjarnason og Guðmundur Jónsson
,,klára”-skapi. — Mynd: Eirikur Þorvaidsson.
Skeiöyöllurinn á
F ornustekkum
Fyrir nokkrum dögum
birti Landpóstur frásögn
af nýjum skeiðvelli, sem
hestamenn í Austur-
Skaftafellssýslu hafa
gert að Fornustekkum í
Nesjum. Verður völlurinn
vígður með því, að þar
verður haldið fjórðungs-
mót austfirskra hesta-
manna upp úr næstu
mánaðamótum.
Þær myndir, sem hér
birtast, eru tengdar hinu
væntanlega fjórðungs-
móti á Fornustekkum.
—mhg
Guömundur Jónsson, form.
hestamannafélagsins. — Mynd:
Eirikur Þorvaldsson.