Þjóðviljinn - 02.07.1977, Page 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. júll 1977
81 styrkur úr
Vísindasióði
Nú er lokiö úthlutun styrkja
Visindasjóðs fyrir árið 1977. Var
þetta i 20. sinn sem úthlutað var
úr sjóðnum. Heildarfjárhæð
umsókna til sjóðsins nam rúm-
lega brefaldri þeirri upphæð (35
miljónum) sem unnt er að veita.
Astæðan er vafalaust sú að Lána-
sjóður Islenskra námsmanna hef-
ur fellt niður kandidatsstyrki þá,
sem veittir hafa verið nokkur
undanfarin ár.
Sem fyrr segir var heildarfjár-
hæð umsókna langt umfram
greiðslugetu sjóðsinsog þurfti þvi
að synja fleiri umsækjendum en
nokkru sinni fyrr. Bitnaði þetta
ekki sist á námsmönnum i
doktorsnámi. er eiga aðgang að
lánum úr Lánasjóði isl. námsim.
Visindasjóður skiptist i tvær
deildir, Raunvisindadeild og
Hugvisindadeild. Til Raunvis-
indadeildar bárust að þessu sinni
100 umsóknir. Veittir voru 44
styrkir að upphæð 23.2 miljónir
króna. Arið 1976 veitti deildin 35
styrki að fjárhæð 16.905 miljónir
króna. Fjárhæð styrkjanna var á
bilinu 160 þúsund — 1 miljón.
Hugvisindadeild bárust 67
umsóknir, en einn umsækjandi
dró umsókn sina til baka. Alls
veitti deildin 37 styrki að fjárhæð
12.15 miljónir. Árið 1976 veitti
Hugvisindadeild 24 styrki að f jár-
hæð 7.85 miljónir króna. Alls
hafa þvi verið veittir 81 styrkur úr
Visindasjóði og heildarfjárhæöin
er 35.35 miljónir króna.
Eftirtaldir fengu styrki úr
Raunvisindadeild (allar tölur eru
þúsundir króna):
I. Aöalsteinn Sigurðsson fiski-
fræðingur og Karl Gunnarsson
líffræöingur 400. Til framhalds-
rannsókna á botndýrum og þör-
ungum við Surtsey. 2. Agnar
Ingóifsson vistfræðingur 700. Til
vistfræðilegra rannsókna á fitju
og fitjatjörnum. 3. Arnþór
Garöarsson fuglafræðingur og
Gísli Már Gislason liffræðingur
700. Til rannsókna á botndýrum
og fæðukeðjum i Laxá i Suður-
Þingeyjarsýslu. 4. Asgeir Einars-
son dýralæknir200. Til rannsókna
á ormum i sauðfé. 5. Axel
Jóhannsson liffræðingur 700.
Rannsókn á eðli lipið-prótein
samskipta i frumuhimnum. Unn-
ið við háskólann i Oxford. 6. Björn
Jóhannesson jarðvegsfræðingur,
Ingimar Jóhannsson liffræðingur
og Jónas Bjarnason efna-
fræðingur 550. Akvörðun á
uppleystum lofttegundum i fisk-
eldisvatni og rannsóknir á grunn-
vatni i Kelduhverfi. 7. Egill
Hauksson eðlisfræðingur 200.
Rannsókn á radon-innihaldi
hveravatns á íslandi með tilliti til
notkunar við jarðskjálftaspár. 8
Einar Júliusson eðlisfræðingur
600. Til rannsókna á sjónvörpun
með lágri tiðni. 9.
Gigtsjúkdómafélag tslands 400.
Til f araldsfræðilegra rannsókna á
gigtsjúkdómum. Jón Þorsteins-
son læknir hefur umsjón með
verkefninu. 10. Guðmundur
Þorgeirsson Iæknir700. Rannsókn
á áhrifum blóðflagna á æðaþel.
Verkefnið er unnið við Case
Western háskólann i Cleveland.
II. Guðni Alfreðsson liffræöingur
600. Rannsókn á mengun af völd-
um salmonellasýkla. 12. Gunnar
Sigurðsson læknir 300. Rannsókn
á fituefnaskiptum sjúklinga með
hækkaða blóðfitu. 13. Gylfi
Baldursson heyrnfræðingur 280.
Framhaldsrannsókn á skaðlegum
áhrifum rauðra hunda á fóstur-
skeiði með tilliti til sérþarfa
heyrnarskertra barna. Unnið við
háskólanni Halifax. 14. Haraldur
Halldórsson liffræðingur 650.
Rannsókn á áhrifum geislunar á
kóligerla. Verkefnið er unnið við
háskólann i Sussex. 15. Helga
Margrét ögmundsdóttir læknir
250. örvun átfruma með ónæmis-
hjálpurum (krabbameins-
rannsóknir). Verkefnið er unnið
við háskólann i Edinborg. 16.
Helgi Björnsson jarðeðlis-
fræðingur 1.000. Til að smiða,
prófa og þróa mælitæki til könn-
unar á þykkt jökla. 17. Hreinn
Haraldsson jarðfræðingur 200.
Setfræðileg rannsókn á aurum
Markarfljóts frá sjó og inn undir
Þórsmörk. 18. Jarðeðlisfræði
Veðurstofu tslands500. Rannsókn
á hraða jarðskjálftabylgja i efri
hluta möttuls undir íslandi.
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur annast rannsóknina.
19. Jón G. Hallgrímsson læknir
160. Til að ljúka rannsókn á
sjúkdómnum pneumothorax
spontaneus (loftbrjóst) á tslandi.
20. Jón Þorsteinsson læknir 400.
Til kliniskra, ónæmis- og erfða-
fræðilegra rannsókna á gigtar-
sjúkdómum. 21. Kjartan Thors
jarðfræðingur 1.000. Til
rannsókna á setflutningi og set-
myndun á landgrunninu fyrir
suðausturlandi. 22. Kristinn J.
Albertsson jarðfræðingur 400. Til
framhalds rannsókna á aldri
berglaga með kalium-argon að-
ferð. 23. Ivka Munda liffræðingur
500. Framhaldsrannsóknir á þör-
ungum við strendur Islands. 24.
Náttúrugripasafnið á Akureyri
200. Til þess að ljúka rannsókn á
flóru Þingeyjarsýslu. 25. ólafur
Jensson læknir og samstarfs-
menn 1.000. Rannsókn á erfða-
þáttum og sjúkdómseinkennum i
sambandi við heilablæðingar. 26.
Páll Imsland jarðfræðingur 900.
Til rannsókna á jarðfræði Jan
Mayen, framhaldsstyrkur. Verk-
efnið er unnið við Norrænu eld-
fjallastöðina. 27. Pálmi Möller
tannlæknir 260. Til að ljúka
rannsókn á útbreiðslu og tiðni
tannskemmda i börnum á Islandi.
28. PéturM. Jónasson liffræðing-
ur 550. Rannsókn á lifriki Þing-
vallavatns. 29. Ragnheiður
Guðrún Guðmundsdóttir 1.000.
Framhaldsrannsóknir eftir
doktorsnám i stærðfræði. Verkið
verðurunnið viðháskólann iUpp-
sölum. 30. Rannsóknastofa
Háskóla islands í lyfjafræði 500.
Til tækjakaupa vegna rannsókna
á stjórn samdráttarkrafts hjarta-
vööva. 31. Rannsóknarstofa
Norðurlands 800. Könnun á nota-
gildi selen-og kóboltköggla handa
sauðfé. Jóhannes Sigvaldason og
Þórarinn Lárusson landbúnaðar-
fræðingar annast rannsóknina.
32. Rannsóknastofnun landbúnað-
arins500. Rannsókn á niturnámi i
rótarhnýðum islensks hvitsmára.
Fram haldsstyrkur. Guðni
Harðarson liffræðingur annast
rannsóknina undir umsjón
Pjarna Helgasonar jarðvegs-
fræðings. 33. Rannsóknastofnun
landbúnaðarins 500. Rannsókn á
vaxtarlagi sauðfjár. Sigurgeir
Þorsteinsson liffræðingur annast
rannsóknina undir umsjón Björns
Sigurbjörnssonar. 34. Raunvis-
indastofnun Háskólans, Jarðvfs-
indastofa 400. Rannsókn á vatna-
setum i Fnjóskadal, framhalds-
styrkur. Þorleifur Einarsson
jarðfræðingur annast rannsókn-
ina. 35. Sigurður V. Hallsson
efnaverkfræðingur 500. Til að
ljúka samanburðarrannsókn á
vexti klóþangs á íslandi, Irlandi,
Noregi og Frakklandi. 36.
Sigurður H. Richter dýrafræðing-
ur600. Rannsókná snikjudýrum i
meltingarvegi nautgripa.
Framhaldsstyrkur til verkefnis-
ins sem er unnið við Tilraunastöð
háskólans i meinafræði að Keld-
um sem þáttur i samnorrænni
rannsókn. 37. Sigurður Steinþórs-
son jarðfræöingur800. Til smiði á
háþrýstiofni er nota skal til
rannsókna á eiginleikum basalt-
kviku. 38. Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur 370. Til að ljúka
vinnu við Islandsbindi ritsins
Catalogue of the Active
Volcanoes of the World. 39.
Sveinn Jakobsson jarðfræðingur
580. Til að ljúka bergfræði-
rannsókn á nútima blágrýtis-
hraunum á eystra gosbeltinu.
Verkefnið verður unnið i Kaup-
mannahöfn. 40. Unnsteinn
Stefánsson haffræðingur og Björn
Jóhannesson jarðvegsfræðingur
450. Rannsókn á efnabúskap
Miklavatns i Fljótum. 41. Þór-
arinn Stefánsson eðlisfræðingur
1.000. Rannsókn á árekstrum
orkulitilla fareinda. Framhalds-
styrkurtil þessa verkefnissem er
unnið við tækniháskólann i
Þrándheimi. 42. Þorteinn
Guðmundsson 500. Rannsókn á
veðrun á smærri jarðvegs- og
sandkornum með sérstöku tilliti
til losunar á næringarefnum.
Verkið er framhaldsrannsókn
eftir doktorsnám, unnið við
háskólann i Freiburg. 43. Þuriður
Jónsdóttir heyrnfræðingur 200.
Heyrnarmælingar á nýfæddum
börnum. Að verkefninu verður
unnið við Nova Scotia Hearing
and Speech Clinic i Halifax. 44.
Ævar Petersen dýrafræðingur
200. Vistfræðirannsókn á teistu.
UnniðiFlateyá Breiðafirðiog við
háskólann i Oxford.
Eftirtaldir fengu styrki úr Hug-
visindadeild:
1. Aðalsteinn Daviðsson mennta-
skólakennari 250. Til að semja
málfræðilegan leiðarvisi með
sænsk-islenskri orðabók. 2. Anna
Agnarsdóttir B.A. 400. Til að
ljúka ritgerð um stjórnmálaleg
og verslunarleg samskipti
Islands og Bretlands á timabilinu
1800—1820. (Doktorsverkefni við
London School of Economics). 3.
Arnmundur Bachman og Gunnar
Eydal lögfræðingur (kr. 200 þús.
hvor)400. Til að semja ritgerð um
almennan hluta vinnuréttar með
samanburði við rétt nágranna-
þjóðanna, einkum dana og norð-
manna. 4. Ásgeir S. Björnsson
lektor400. Til að kanna og búa til
útgáfu höfundarverk Benedikts
Gröndal eldra. 5. Björn Þ.
Guðmundsson borgardómari 300.
Til að ljúka ritgerð um réttinda-
ákvæðistjórnarskráa hinna ýmsu
rikja og bera þau saman við
islenska löggjöf meö sérstöku til-
liti til endurskoöunar islensku
stjórnarskrárinnar. 6. Björn
Teitsson sagnfræðingur 400. Til
rannsókn á islenskri byggða-
sögu. 7. Dóra S. Bjarnason M.A.
300. Til að rannsaka þátt
islenskra athafnamanna i félags-
legum breytingum á tslandi á
árabilinu 1938—1977 (doktors-
verkefni við University of Read-
ing). 8. Eirikur Jónsson kennari
500. Til rannsókna á tilurð skáld-
sögunnar tslandsklukkunnar eftir
Halldór Laxness. 9. Félag bóka-
safnsfræðinga500. Til að vinna að
útgáfu á skrá yfir Islensk rit
1944—1973. 10. Gisli Gestsson
safnvörður 300. Til að gera forn-
leifafræðilega grein fyrir
uppgreftri bæjarrústar i Álfta-
veri. 11. Guðmundur S. Alfreðs-
son cand. jur.300. Til að rannsaka
réttarstöðu Grænlands. (Doktors-
verkefniviðHarvardháskóla). 12.
Guðrún Sveinbjarnardóttir
fornleifafræðingur 400. Til að
gera fornleifafræðilega grein
fyrir uppgreftri i Kópavogi. 13.
Séra Gunnar Kristjánsson 200. Til
guðfræðílegrar rannsóknar á
skáldsögunni Heimsljósi eftir
Halldór Laxness. (Doktorsverk-
efni við Ruhr-háskólann i
Bochum). 14. Dr. Haraldur
Matthiasson menntaskólakennari
300. Til að rannsaka staðfræði
Landnámabókar. 15. Helgi
Þorláksson cand. mag.400. Til að
halda áfram rannsókn á mikil-
vægi islenskrar utanrikis-
verslunar á miööldum fram til
1430. (Doktorsverkefni við Björg-
vinjarháskóla). 16. Dr. Egon
Hitzler sendikennari 300. Vegna
kostnaðar við útgáfu doktorsrit-
gerðar um sel og selfarir á
tslandi. 17. Höskuldur Þráinsson
cand. mag. 400. Til að rannsaka
setningafræði islenskra sagna.
(Doktorsverkefni við Harvard-
háskóla). 18. Jón Guðnason lektorr
300. Til að rannsaka upphaf og
þróun islenskra stjórnmálaflokka
á árunum 1897—1916. 19. Krístján
Árnason cand. mag. 400. Til að
rannsaka hljóðdvalarbreyting-
una i islensku. (Doktorsverkeini
við Edinborgarháskóla). 20.
Lúðvik Kristjánsson rithöfundur
400. Vegna kostnaðar við undir-
búning útgáfu ritverks um
islenska sjávarhætti. 21. Magnús
Pétursson stjórnarráðsfulltrúi
300. Vegna kostnaðar við
rannsókn á fjármagnstilfærslum
frá riki til sveitarfélaga með sér-
stöku tilliti til jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga. 22. ólafur Asgeirs-
son menntaskólakennari 300. Til
rannsókna á sögu Neshrepps inn-
an Ennis (siðar Fróðárhrepps) á
Snæfellsnesi. 23. ólafur Kvaran
listfræðingur 300. Til að rannsaka
táknhyggju i islenskri myndlist á
20. öld. (Doktorsverkefni við
Lundarháskóla). 24. Páll Sigurðs-
son dósent 100. Vegna kostnaðar
við að búa til prentunar ritgerð
um þýðingu eiðs og heitvinningar
i réttarfari. 25. Ragnar Arnason
M.Sc. 300. Til að semja ritgerð
um hagkvæmasta skipulag
Islenskra fiskveiða. (Doktors-
verkefni). 26. Reynir Bjarnason
námsstjóri 400. Til að rannsaka
árangur þeirra breytinga á námi
og kennslu i liffræði, sem unnið er
að á vegum skólarannsóknadeild-
ar menntamálaráðuneytisins
undir umsjá Reynis. (Doktors-
verkefni viðHarvardháskóla). 27.
Christopher Sanders B.A. 300. Til
að ganga frá texta og ljúka inn-
gangi að útgáfu á Beverssögu
(þýddri riddarasögu). 28. Séra
Sigurjón Einarsson sóknarprest-
ur 200. Til að ljúka ritgerð um
þátt Marteins biskups Einars-
sonar i sögu siðaskiptanna á
tslandi. 29. Dr. Sven Þ. Sigurðs-
son reiknifræðingur 150. Til að
skrifa (ásamt öðrum) greinar-
gerð um niðurstöður i ritinu Tiðni
orða i Hreiðrinu (skáldsögu Ólafs
Jóhanns Sigurðssonar) eftir
Baldur Jónsson, tilraunariti i
máltölvun. 30. Sverrir Tómasson
cand. mag. 400. Til að rannsaka
helgisagnaritun Bergs ábóta
Sokkasonar. 31. Svæðiskönnun
sunnan Skarðsheiðar 500.
(ábyrgðarmaður Þorlákur H.
Helgason menntask.kennari) Til
að rannsaka menningarsögu
sveitanna sunnan Skarðsheiðar.
32. Tryggvi Sigurðsson magister
300. Til að rannsaka félagslega
aðlögun og persónuleikaþroska
100 likamlegra fatlaðra barna og
unglinga (doktorsverkefni við
Sorbonne-háskóla). 33. Þórarinn
Þórarinsson fv. skólastjóri 200.
Til að rannsaka rauðablástur fyrr
á öldum og kanna i þvi skyni
gjallhóla á Eiðum á Héraði og
Lundi i Fnjóskadal. 34. Þórólfur
Þórlindsson M. A. 150. Til
greiðslu kostnaðar við að ljúka
doktorsritgerð um samspil máls,
félagslegra samskipta og vit-
rænna þátta með tilliti til
islenskrar menningar og að-
stæðna. 35. Dr. Þráinn Eggerts-
son lektor300. Tilað vinna að töl-
fræðilegri rannsókn á áhrifum
peningamála á mikilvægar hag-
stærðir á Islandi. 36. ögmundur
Jónasson M.A. 300. Til að
rannsaka íslenska frjálslyndis-
stefnu á 19. öld i alþjóðlegu
samhengi. (Doktorsverkefni viö
Edinborgarháskóla). 37.
örnefnastofnun Þjóðminjasafns
500. Til þátttöku i samnorrænum
ömefnarannsóknum, sem bera
heitið örnefni og þjóðfélag.
N emendalelkhúsið
sýnir í Lindarbæ
Hlaup -
vídd sex
eftir Sigurö Páisson.
Vegna mikillar aðsóknar
verða tvær sýningar
Sunnudagskvöld kl20:20
Mánudagskvöld kl. 20:30
Miðasala I Lindarbæ frá kl. 17-
19 alla daga simi 21971.
Allra siðustu sýningar.
Matthías
Framhald af 1
neytinu i tillöguformi ásamt rök-
stuðningi. Siðan myndi ráðuneyt-
ið eiga viðræður og hafa samráð
við heildarsamtök sjómanna auk
Fiskifélags Islands, og að þvi
loknu gefa út reglugerð ef ráðlegt
er talið að gera slikar breytingar.
Það eru þvi fyrirmæli ráðu-
neytisins að framangreindar við-
miðunarreglur komi ekki til
framkvæmda og að fyrri viðmið-
unarreglur skuli vera óbreyttar
nema ráðuneytið ákveði annað.
— GFr.
Sprenging
Framhald af 13. siðu.
um rannsóknir á dýrum, sem
drápust af völdum geislavirkni,
og áhrif geislavirkni á jurtalif.
Medvedef telur að rannsóknir á
sprengingarsvæðinu hafi ekki
verið leyfðar fyrr en eftir 1964,
þegar Nikita Krústsjof hafði verið
vikið frá völdum. Medvedef lýkur
grein sinni, sem birtist i breska
visindatimaritinu New Scientist,
með þessum orðum: ,,Við verð-
um að láta okkur þetta að kenn-
ingu verða og tryggja að svo
hörmulegur atburður komi ekki
fyrir oftar.” Eins og kunnugt er
tiðkast það viða að grafa úrgang
frá kjarnorkuverum i jörðu,
einnig i þéttbýlum iðnaðar-
löndum.
Múlaþing
Framhald af bls. 7.
ið slika hluti til Skjalasafnsins á
Egilsstöðum. Stuðlum aö þvi að
þar verði aðstaða til að rannsaka
og skrifa austfirska sögu.
Nú þegar þetta 9. hefti Múla-
þings er sent til áskrifenda, er
rétt að geta þess að fyrsta heftið
er uppselt. En önnur hefti eru
fáanleg enn hjá söluaðilum Múla-
þings. I Reykjavik fæst Múlaþing
hjá Bókinni Skólavörðustig og hjá
bókaverslun Sögufélagsins
Garðastræti 13, gengið inn frá
Fischersundi. Þeir sem vilja ger-
ast meðlimir Sögufélags Austur-
lands verða um leið áskrifendur
Múlaþings. Austfirðingar heima
og burtfiuttir, göngum i sögufé-
lagið og styrkjum með þvi útgáfu
Múlaþings. Tilkynnið ykkur til
einhvers i ritnefndinni. I Reykja-
vik tekur Auðun H. Einarsson
Viðimel 57, simi 17992, við nöfnum
þeirra sem vilja ganga i Sögufé-
lag Austurlands.
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi:
Kópavog-vesturbæ (Þjóðviljinn
og Tíminn)
Lauiásveg
ÞJÓÐVILJINN
Vinsamlegast haf.ið samband við af greiðsiuna
Síðumúla 6 — sími 81333
Herstöðvaandstæðingar
Sem kunnugt er, gengst Miðnefnd Samtaka herstöövaandstæð-
inga fyrir erindrekstri útum land um þessar mundir. Um siðustu
helgi var farið um Vesturland, en um þá næstu eru áformaðir
fundir á Norðurlandi ^vestra. Erindrekar Samtaka herstöðva-
andstæðinga, þeir Vesteinn ólason form. Miönefndar, Hall-
grimur Hróðmarsson og Jón Proppé, munu gangast fyrir
fundum með herstöðvaandstæöigum á viðkomandi stöðum þar
sem kynnt verður starf Samtakanna og stefna og rætt um starf-
semi útá iandi. Fundir verða sem hér segir:
Laugardaginn 2. 7. kl. 14.00 í Félagsheimilinu á Blönduósi.
Laugardaginn 2. 7. ki. 17. 001 Argarði, Skagafirði.
Sunnudaginn 3. 7. kl. 15.00 i Villa Nova, Sauðárkróki.
Sunnudaginn 3. 7. kl. 8.30 að Suðurgötu 10, Siglufirði.