Þjóðviljinn - 08.07.1977, Síða 10

Þjóðviljinn - 08.07.1977, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 8. jiill 1977 MINN- ING Björn Konráös Sigurbjörnsson f. 6.3.1894 d. 4.7.1977 Björn Konráös fékk sitt einstæöa nafn frá afa sínum, Birni Konráössyni frá Bjarnar- höfn, sem svo var ávallt nefndur. Björn var fæddur og uppalinn húnvetningur, þótt ungur kæmi hann til sjóróöra suöur á veturna. Ariö 1917 byggöu foreldrar okkar nýbýli, Geitland viö austurenda Miöfjaröarvatns, viö vikina þarsem Auöunn Skökull og Grettir Asmundarson frá Bjargi léku knattleik sinn i gamla daga. Vitanlega var túnlaust og þvi kýrlaust, en þess i staö nokkrar geitur.og einnig var þar i fyrstu fært frá og sat ég 9 ára snáöinn yfir ánum. Þá lá þjóövegurinn milli Suöur- og Noröurlands aust- anmegin viö vatniö, og bærinn þvi alveg i þjóðbraut, sem fööur minum, Sigurbirni Björnssyni, og móöur, Sigurlaugu Nieisardóttur, þótti hinn mesti kostur. A leiö heim eitt kveldiö reiö fram á mig ungt par, og maðurinn á einum af glæsilegustu hestum sem maður sá. Allar tegundir feröafólks á hestum sá maður alla daga, aö landpóstinum meðtöldum, þvi aö bilaöldin var þá ekki runnin upp, en þetta fannst mér meö þvi glæsilegasta, og varö þvi meira undrandi, er kallaö var á mig með nafni. Þar reyndist vera kominn Björn bróðir minn, þá kaupa- maður á Holtastööum i Langadal og með konuefni sift, Arndisi Guðmundsdóttur frá Móbergi. Ég hef siðar oft hugsaö sem svo, aö ekki heföi veriö undarlegt þótt Björn væri hrifinn af Arndisi, þvi að ég, stráklings anginn dáöist aö glæsileik hennar. Stutt varö hennar ævi, hún lést fáum árum siðar frá tveimur ungum drengjum: Leifi (nú múrara i Hafnarf.) og Sigurbirni (sendibilstjóra i R.). Mörgum árum siðar, er viö Björn vorum báöir fluttir hingaö til Reykjavikur. eignaöist Björn stúlku meö sveitunga slnum, Guönýju Þóröardóttur. Hún var svo lánsöm, aö alast upp á þvi góöa heimili, Oddgeirshólum I Hraungerðishreppi hjá frú Elinu Steindórsdóttur sem var henni sem besta móöir og hefur verið sjúkraliði i Borgarnesi undan- farin ár, en er nú viö föndur- kennslu þar. 011 systkinin til samans eiga hóp barna. Heimilisfesti á Suöurlandi átti Björn fyrst i Hafnarfirði og komst þá að sjálfsögöu I kynni viö Verkamannafél. Hlif, sem aörir verkamenn, og vék aldrei af þeirri baráttulinu siöan til 83ja ára aldurs. Hann var skapheitur baráttumaður, og haföi sjálfur alist upp að mestu hjá vanda- lausum, vegna heilsubrests móöur sinnar, og munaöar- leysingjum á þeim tima var fátt til varnar og staöir all-misjafnir. Þetta haföi hann sjálfur reynt.og ört skap þolir illa kúgun, og I þessum málum fann hann aldrei neinn meðalveg, baráttan fyrir þann snauða og kúgaöa var honum heilagt mál. Sjálfur kunni hann ekki aö hlifa sér, en samverkamaður hans, Olafur Þorkelsson, lýsir honum svo sjötugum: Verkhraöi þinn er mörgum i minni, magnþrungin orka i hverium leik. Glaöur i hópi, glaöur i sinni, gagnlega skyldan aldrei sveik. Ævi þin veröur ei vegin né metin aö veröleikum eins og sönnuster. Allajafnan aö góöu getin. Getur hver betra óskaö sér? Og nú, þá Björn er allur, sendir hann þessa smjaðurslausu llfs- viöurkenningu: Þú ólst I brjósti ást til fóstru þinnar, þó ættir heima lengi i Reykjavik. Löngun bóndans lá þér tregsár innar, landsýn húnversk var þér kærleiksrik. Nú biö ég drottin drengnum taka móti, dauöaþreyttum eftir langan dag. Hann kynntist minna gulli en hörðu grjóti en gafst ei upp viö lifsins haröa slag. Þannig ber þessi góðvinur hans honum vitni, samferðarmaöur, sem hefur unnið höröum höndum fyrir sinu lifsbrauöi sem Björn,og munu báöir svo fara, að hvorugur eigi óvin sér að baki. Fyrir tveim áratugum féllu leiðir Björns og Dagbjartar Olafsdóttur saman. Dagbjört er fædd 28. mai 1901 aö Steig I Mýrdal. Dótturdóttir Björns ók þeim siöustu helgina til frænda og vina, en ég kom morguninn eftir i morgunkaffiö til þeirra, og áttum viö þar öll glaöa og góða stund sem oft áöur, en nokkurri stund siöar, hafði hann endaö sina lifs- göngu niður á Laugavegi. Kærleiks-og alúöar umhyggju konu sinnar hafði hann I rfkum mæli notið og þess að dóttirin væri sem hennar besta dóttir, vinskaps Dagbjartarfólks, sona sinna og annara góðvina, hvers sagðist hann framar geta óskaö sér. Albúinn væri hann til farar hvern dag sem væri.enda búinn aö fá nokkra viðvörun, en bestu laun sinnar starfsævi held ég aö honum hafi verið veitt, með þessari léttu lifslausn. Björn verður jarðsunginn frá Frikirkjunni föstudaginn 8. júli kl. 1.30, en lagður til hvildar siðar dagsins i Selfosskirkjugaröi. Ótal vina óska her ættir að geta fundið. Bróöurósk min beri þér biarma yfir sundið. Ingþór Sigurbjs. Aðalf. Kaupfélags Stöðfirðinga Aðalfundur Kaupfélags Stöö- firðinga var haldinn á Stöðvarfiröi laugardaginn 11.-6. 1977. Kaupfélagsstjóri Guömundur • Gislason og formaöur Björn Kristjánsson geröu grein fyrir rekstri félagsins á siöasta starfs- ári. Heildarvelta á árinu 1976 var kr. 286.791 þús. Vörusala var kr. 180.148 þús. Launagreiöslur námu alls kr. 29.668.978,- Fastir starfs- menn eru 12. Félagsmenn eru nú 221. Félagiö hefur átt við rekstrar- erfiöleika aö etja undanfarin ár m.a. vegna þátttöku I sjávarút- vegi. Hefur skuldabyrði og óhag- kvæm vaxtakjör lagst þungt á reksturinn. A aðalfundinum var samþykkt ályktun til stjórnvalda og annara aðila sem málið varðar, um lána- mál landbúnaðarins. eystra Sumarferðir Alþýðubandalagsins Sumarhátíð á Breiðumýri Alþýöubandalagiö i Noröur- landskjördæmi eystra efnir til sumarhátiöar á Breiöumýri I Reykjadal um næstu helgi. Föstudagskvöldiö 8. júli munu þátttakendur slá upp tjöldum sinum á hátiðarsvæöinu viö Breiðumýri, á laugardag veröur ýmislegt til skemmtunar, svo sem gönguferö, leikir, iþróttir og skemmtiatriöi sem félögin i kjördæminu sjá um, en hátlöin stendur fram á sunnudag. Skipulag hátiöarinnar miöast við að börn jafnt og fullorðnir geti notið þess sem fram fer. Til að auðvelda undirbúning þarf fólk að tilkynna þátttöku sina hið fyrsta, og gefa upplýs- ingar um hvort það hefur laust bilpláss eða hvort það þarf að komast i bil meö öörum. Rútuferð verður einnig frá Akureyri. Mótsgjald verður 500 kr. fyrir fólk eldra en 15 ára. Eftirtaldir fulltrúar hátiöar- innar taka á móti þátttökutil- kynningum: Ólafsfiröi: Björn Þór ólafs- son, simi 6-22-70. Dalvik: Rafn Arnbjörnsson, simi 6-13-58. Akureyri: Skrifstofa Alþýöu- bandalagsins, Vilborg eöa Kristin, simi 2-18-75. Húsavik: Kristján Pálsson, simi 4-11-39. S.-Þing.: Erlingur Siguröar- son, Grænavatni, Mývatnssveit. N.-Þing.: Angantýr Einars- s°n, Raufarhöfn, simi 5-11-25. þaB er hér á Breiöumýri sem fjölskyldu og sumarhátfö Alþýöubanda- lagsins I Noröurlandskjördæmi eystra veröur haldin um helgina. Alþýðubandalagið í Kópavogi Sumarferð á Strandir Sumarferö Alþýöubandalags- ins i Kópavogi verður farin 15.- 17. júli n.k. Fariö er noröur i Strandasýslu aö Eyri viö Ingólfsfj., lagt afstaökl. 14 frá Þinghól á föstudaginn og ekiö aö Klúku i Bjarnarfiröi þar sem tjaldaö veröur. A laugardaginn veröur ekiö aö Eyri viö Ingólfs- fjörö og hiö stórbrotna landslag norður-Stranda skoðað. Á fáum stööum á Islandi eru fjöll jafn formfögur og hrikaleg og þar. A sunnudag verður ekiö yíir Laxárdalsheiöi um Laxárdal og út Skógarströnd yfir Heydal og Reykjavikur. Fargjald veröur kr. 6.000,00 fyrir fullorðna. Miðapantanir og upplýsingar i sima 41279, Lovisa, og 40595 Karl eöa Hulda fyrir 12. júll. Fólk þarf aö hafa með sér viö- legubúnað og nesti. Miöar veröa afhentir I Þing- hól þriðjudaginn 12. júli kl. 20-22 Ferðanefndin Sumarferðir Alþýðubandalagsins

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.