Þjóðviljinn - 08.07.1977, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 08.07.1977, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN ‘ Föstudagur 8. júli 1977 * — Llnan er upptekin... Nasískur böðull sagdur týndur BOENOS AIRES 5/7 Reuter — Argentínska stjórnin hefur heim- ilað að Eduard Roschmann, sem ákærður er fyrir mikla hlutdeild i fjöldamorðum á gyðingum I Lett- landi i siðari heimsstyrjöld, skuli framseldur til Vestur-Þýska- lands. En sá böggull fylgir skammrifi að argentinsk yfirvöld segjast ekki hafa hugmynd um, hvar Roschmann sé nú. Hann kom að sögn til Argentinu 1948, og vestur-þýskir embættismenn segjast hafa heimildir fyrir þvi, að hann hafi verið þar nýlega Roschmann haföi á hendi stjörn gyðingahverfisins i Riga, höfuð- borg Lettlands, meðan þjóðverjar hersátu landið. Þar bjð margt gyðinga og drápu nasistar þá flesta. Embættismenn i Bonn segja, aö um 30.000 óbreyttir borgarar hafi verið myrtir í Riga meðan þjöðverjar hersátu borg- ina, og þegar gyðingahverfið þar var eytt 1943, voru þeir ibúa þess, sem eftir lifðu, sendir i útrým- ingarbúöir nasista i Auschwits i Póllandi. undir fötsku nafni. Alþjóðleg kvikmyndahátið MOSKVU (APN). Attatiu og sex lönd, svo og Sameinuðu þjóðirnar og Unesco, hafa látið I ljós ósk um að taka þátt i tiundu alþjóðlegu kvikmyndahátiðinni I Moskvu, að þvi er fréttaritara APN var skýrt frá hjá upplýsingamiðstöð alþjóð- legu k vikmy ndahá tiðarinnar. Hátlðin verður opnuð 7. júlf n.k. I stóru höllinni I Kreml. Kvikmyndir þær frá sósialisku löndunum, Bandarikjunum, Italiu, Frakklandi, Bretlandi og Japan, sem eru á dagskrá kvik- myndahátiðarinnar, eru mjög at- hyglisverðar. Meðal gesta á kvik- myndahátiöinni verða kunnir meistarar kvikmyndageröarlist- arinnar svo sem Michaelangelo Antonioni, Kaneto Shíndo, Charl- es Aznavour og Georges Garvar- ents. Til sölu Chevrolet vega árgerð ’73. Upplýsingar i sima 75501. Kípnof skauystaður fil -------------------- Skólafulltrúi Staða skólafulltrúa i Kópavogi er hér með auglýst laus til umsóknar. Staðan verður veitt frá 1. september 1977. Umsóknar- frestur er til 5. ágúst 1977. Umsóknum skal skila á sérstökum eyðublöðum til undirrit- aðs, sem veitir nánari upplýsingar. Bæjarritarinn i Kópavogi. Náttúruspjöll í Hvalfirdi Einhversstaðar verða vondir að vera, sagði sr. Jón Einarsson i Saurbæ er við hringdum og spurðum hann álits á þeim frumskógi raflinu- mastra er nú er verið að setja upp i Saurbæjar- hlið til að flytja rafmagn að Grundartanga. Það eru óneitanlega mikil nátt- úruspjöll af þessum tröllauknu möstrum þar sem þau rlsa upp úr kjarrivaxinni Saurbæjarhliðinni. Og mjög mikið jarðrask hefur orðið i kringum uppsetninguna. Haustlitir kjarrsins I hliðinni verða þvi hér eftir yfirþyrmdir af gráum steintröllum. Séra Jón sagðist hafa haft aðr- ar hugmyndir um staðsetningu mastranna, en þeim hefði ekki verið sinnt og nú væru möstrin komin þarna. Þau kæmu ekkert á óvart/' á þeim hefði verið von. Væri hann nú að venja sig við að horfa upp á þetta. Eins og kunn- ugt er stóð til að taka linuna yfir Hvalfjörð á móts við Grundar- tanga, en til að spara fé og tima var ákveðið að þjösnast með lin- una fyrir Hvalfjörð með þeim fagra árangri er nú má lita þegar ekinn er vegurinn fyrir Hvalf jörð. Undirbúningsstofnfundur Orkubús Vestfjarða 14. júlí Á siðasta alþingi voru sam- þykkt lög um að sameina alla orkuframleiðendur á Vest- fjörðum undir einn hatt Nú standa yfir umræður og undir- búningur að málinu og fyrir- hugaður er undirbúnings- stofnfundur 14. júli nk. Þessar upplýsingar fékk Þjóðviljinn hjá Aage Steinsson rafveitu- stjóra Vestfjarða. Það er iðnaðarráðu- neytið sem hefur forystu um stofnun Orkubús Vestfjarða og fyrir nokkrum dögum konu fulltrúar frá þeim sveitar- félögum sem reka sjálfstæö orkuver á Vestfjörðum til Reykjavikur til að gera grein fyrir eigum sinum. Það er Suðureyrarhreppur, sem rek- ur hitaveitu, og ísafjarðar- kaupstaður, Djúphrepparnir og Patrekshreppur með raf- veitur. Rikið hefur þegar ákveðið að láta eignir Raf- magnsveitna rikisins til Orku- búsins. Meiningin er að bæði hita- veitur, vatnsorkuver og kyndistöðvar verði reknar af þessu nýja orkubúi. Aage Steinsson sagði að þessi breyting yröi örugglega til bóta, en eftir á að gera heildarskipulag fyrir allt landið og þvi nokkuð I óvissu hvernig málum verður háttað i framtiðinni. —GFr Hljómleikar i Tónabæ t sumar verður boðið upp á röð hljómleika i Tónabæ á þriðju- dagskvöldum I júli og ágúst. Dag- skráin, sem fyrir liggur er þann- ig: 5. júli voru „Visuvinir” með visnakvöld, 12. júli verður hljóm- sveitin „Tivoli”, 19. júli verður „Fresh”, 26. júli spilar „Eik”. 9. águst veröa „Jassmenn” á ferð- innimeð Viðar Alfreðsson i farar- broddi, 16. ágúst verður „Cobra”, 23. ágúst verður „Brimkló” og endapunkturinn er svo settur af „Péker” 30. ágúst. Hér gefst tækifæri til að hlusta á vinsælar hljómsveitir við góð skilyrði, en ekki er reiknað með dansi. Miðaverð verður 600 krón- ur i hvert skipti. Flokkun styrkja eftlr vísindagreinum N emendaleikhúsið sýnir í Lindarbæ Hlaup- vidd sex eftir Sigurð Pálsson. í kvöld kl. 20:30. AHra siðasta sýning. Miðasala frá kl. 17-19 simi 21971 Landnýtingar- ráðunautur Dr. ólafur Dýrmundsson tók til starfa hjá Búnaðarfélagi Islands sem landnýtingarráðunautur 1. júli s.l. Verkefni Ólafs i þessu nýja starfi verður að fylgjast með notkun landsins í nánu samstarfi við Landgræðsluna og Rannsókn- arstofnun landbúnaðarins og leið- beina bændum á þvi sviði. Hann mun nú á næstunni gera yfirlit um ástand afrétta og fá sem gleggst yfirlit um fjölda fénaðar á afrétt- um landsins. Ólafur R. Dýrmundsson lauk búfræðikandidatsprófi frá Land- búnaðardeild Wales Aberystwyth háskóla. Doktorsprófi lauk hann árið 1972 frá sama skóla. Dokt- orsritgerðin fjallaöi um kyn- þroska og frjósemi sauðfjár. Búnaðarsamband Framhald at 12 siðu bændur, þvi erfitt vill reynast að fá fagmenn amk. út um sveit- irnar. Rólega farið f ræktunina Ekki er um verulegar rækt- unarframkvæmdir aö ræða. Margir bændur eru komnir með það stór tún, sem þeir þurfa miðað við bústofninn, — og komast yfir að hirða um. Alltaf er þó eitthvað ræktað og raunar kannski frekast hjá þeim, sem þegar hafa stærstu túnin. Ekki veit ég til þess að jarðir fari hér i eyði nú og nokkuð er um aö fólk úr þéttbýli leiti eftir , jarðnæði. Byggðasaga. Búnaðarsambandið hefur nú gengist fyrir þvi, að gefin verði út byggðasaga Snæfellsness. Þar verður ábúendatal, myndir af bændafólki, býlum og bygg- ingum. Við byrjuðum á þessu verki á sl. ári og er að þvl stefnt, að bókin geti komið út siðari hluta þessa árs. lj/mhg Lyfin Við birtingu skýrslu um úthlutun styrkja úr visindasjóöi féll niður eftirfarandi tafla um flokkun styrkja eftir visindagreinum: I. Raunvisindadeild. Grein Fjöldi styrkja Heildarfjárhæö Stæröfræði 1 1.000 Eðlis- og efnafræði Erföafræði, dýra- og grasafræöi, 3 1.800 liffræði og vistfræði 14 7.300 Læknisfræði 10 4.170 Jarðfræöi 8 4.650 Jarðeðlisfræöi 3 2.000 Búvisindi,-hagnýt náttúrufræöi 3 1.800 Annaö 2 480 44 23.200 þúskr. II. Hugvisindadeild. Grein Fjöldi styrkja Heildarfjárhæö Sagnfræöi (ýmis) 8 2.800 Menningarsaga 1 500 Fornleifafræði 3 900 Sagnfræði alls (sbr. og guðfræði) 12 4.200 Staðfræði, örnefnafræði 2 800 Listfræöi 1 300 Bókmenntafræði 4 1.600 Búkfræöi 1 500 Málfræði 4 1.200 Lögfræði 4 1.100 Hagfræði 3 900 Félagsfræði 2 450 Sálfræði, skólafræði 2 700 Guðfræði, kirkjusaga 2 400 Samtals 37 12.150 þúskr. Framhald af 16. siðu. með áreiðanlegum upplýsingum um lyf sem gefnar eru út af opin- berum aðilum eöa undir eftirliti. iffirvöld i Sviþjóð og Noregi gefa td. út slikar bækur og Læknafé- lagið I Danmörku og ennfremur gefa lyfjaframleiöendur þar út bók sem er undir eftirliti. Hægt er að treysta þessum bókum, sagöi Tómas, enda eru þær mikið not- aðar hérlendis. Eins og kunnugt er má ekki auglýsa lyf nema i læknatima- ritum og sagði Tómas að hann vissi ekki neitt læknarit í heim- inum sem ekki birti auglýsingar um lyf. Vissi hann heldur ekki til að birting slikra auglýsinga bryti i bága við siðareglur lækna, en hins vegar væri vitað mál að ekki mætti taka mark á öllum upplýs- ingum sem þar koma fram. —GFr Pfpulagnir Nýlagnir, breyting ar, hitaveitutenging- ar. Simi 36929 (milli kl. 12 og l og eftir kl. 7 á kvöldin)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.