Þjóðviljinn - 12.08.1977, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. ágúst 1977
w Lausar stöður við
skólana á Sauðárkróki
Staða hjúkrunarfræðings við Gagnfræða-
skóla, Barnaskóla og Leikskóla.
Matreiðslumaður i heimavist Gagnfræða-
skóla og Iðnskóla.
Ráðsmaður i heimavist Gagnfræðaskóla
og Iðnskóla.
Húsvörður i Gagnfræðaskóla.
Þessar stöður eru lausar frá 1. september,
eða eigi siðar en 1. október n.k.
Umsóknarfrestur er til 17. ágúst og skulu
skriflegar umsóknir berast á bæjarskrif-
stofurnar við Faxatorg fyrir þann tima.
Upplýsingar verða gefnar af skrifstofu-
stjóra og bæjarstjóra i sima 95 - 5133.
BÆJARSTJÓRINN Á SAUÐÁRKRÓKI.
g^gj
Akranes
Til sölu er fimm herbergja ibúð. íbúðin
var byggð til útrýmingar heilsuspillandi
húsnæðis og skal við ráðstöfun slikra i-
búða láta þær f jölskyldur sitja fyrir sem i
lökustu húsnæði búa og mesta ómegð
hafa, eða eiga samkvæmt vottorði læknis
við verulega vanheilsu að striða.
Umsóknir, þar sem greint er frá ástæðum
viðkomandi, sé skilað til undirritaðs sem
jafnframt veitir nánari upplýsingar. Um-
sóknir þurfa að berast fyrir 20. ágúst
næstkomandi.
Akranesi 12. ágúst 1977
Bæjarritarmn.
Tilkynning
til söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir júli-mán-
uð er 15. ágúst. Ber þá að skila skattinum
til innheimtumanna rikissjóðs ásamt sölu-
skattsskýrslu i þririti.
Fjármálaráðuneytið 10. ágúst 1977.
Skipasmíði
Tilboð óskast i framkvæmdir við breyt-
ingu á m/s Baldri fyrir Hafrannsóknar-
stofnun.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Borgartúni 7, Reykjavik, gegn kr.
10.000,- skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11:00
f.h. þriðjudaginn 20. september 1977.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
I ■ II
Lúðrasveit verkalýðsins, undir stjórn ólafs L. Kristjánssonar.
Samkór trésmiða og
Lúðrasveit verka-
lýðsins í Óslóarför
Með frásögn hér i blað-
inu af för Samkórs tré-
smiða og Lúðrasveitar
verkalýðsins á norræna
alþýðutónlistarmótið í
Osló reyndist ekki rúm
fyrir birtingu nema einn-
ar myndar, — af Sam-
kórnum. Hér koma hins-
vegar myndir úr förinni
af Lúðrasveitinni og frá
mótsslitunum. —mhg-
Séö yfir mannfjöldann viö slit
tónlistarhátiöar alþýöu I
Frognergaröinum i Osló.
■ 11
111
mmm
VII
Bll
■ ■■
III
IIR
III KIR
IIR
III
811
III
III
Konur, liggið ekki á glámbekk...
Mótmælaalda í Los Angeles
vegna ógildingar nauögunardóms
Dómstóll i Los Angel-
es hefur nýlega ógilt
fyrri dómsniðurstöðu i
nauðgunarmáli á þeim
forsendum að rétturinn
hafi fengið ónógar upp-
lýsingar. Hefur mál
þetta vakið miklar deil-
ur, og mótmæli, en
dómarinn, Lynn D.
Compton hefur látið þau
orð falla, að þar sem
konur hafi verið varaðar
mjög rækilega við að
veifa bilum á götum úti,
ætti þeim að vera ljóst
að þær geti átt von á að
menn sem taka þær upp
i leiti á þær. 1 umræddu
máli var maður nokkur
ákærður fyrir að hafa
nauðgað stúlku, sem
bað um far i bil hans eft-
ir að bill hennar bilaði i
nágrenni Los Angeles.
Hafaþessi ummæli vakiö mikla
reiðiöldu og segja m.a. fulltrúar
samtaka sem hafa barist fyrir
breyttu almenningsáliti í nauðg-
unarmálum að ummælin geti
hvatt menn til að nauðga konum,
sem þeir taka upp i bila sina.
Alan Robbins, öldungadeildar-
þingmaður i Kaliforniu hefur sagt
að umælin muni draga kjark úr
konum sem hefur verið nauðgað
og koma i veg fyrir að þær kæri
nauðgunina. Talið er að um 60%
nauðgana séu nú kærðar á móti
aðeins 10% árið 1973 eftir þvi sem
Robbins segir. Nauðganir hafa
aukistí Los Angeles á þessu ári, á
meðan öðrum alvarlegum afbrot-
um fækkar, og nemur aukningin
16,6%. Kvennasamtök í Los
Angeles munu beita sér fyrir
ógildingu siðari dómsúrskurðar-
ins og segir talsmaður einnar
þeirra, Joan Robins, að i stað
þess að vara konur við að biðja
ókunnuga menn um bilfar, hefði
dómarinn átt að benda bílstjór-
um á að konur, sem þeir taka upp
i.óskieftir bilfari en ekki samför-
um. Þá hafa einnig orðið miklar
umræður vegna ummæla dómar-
ans um að hinn ákærði hafi ekki
beitt likamlegu ofbeldi við
fórnardýrið, en ekið með hana á
afvikinn stað. Þeir sem hafa
mótmælt þessum ummælum
benda á að konur sem ekki þora
að berjast á móti, þegar reynt er
að nauðga þeim, muniekki heldur
þora að kæra nauðgunina. Hefur
til skamms tima þurft að sýna
likamlega áverka til að nauðgun
væri viðurkennd og hefur það
hvatt konur til að berjast við
nauðgara og oft endað með
hörmulegustu misþyrmingum og
jafnvel morðum, þar sem oft er
um afbrigðilega menn að ræða.
(Þýtl — þs)