Þjóðviljinn - 12.08.1977, Side 8

Þjóðviljinn - 12.08.1977, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. ágúst 1977 Föstudagur 12. ágúst 1977 >JóÐVILJINN — SIÐA 9 FRA IRLANDI —i & jg&gg v' ' mHHHl eftir Úlfar Þormóðsson Otlendingi virðist sem tvö mestu stórveldi í nú- tímanum á írlandi séu ka- þólska kirkjan og herra Guinness. Hún sér um að slæva frjálsa hugsun og baráttuþrek alþýðunnar, hann heldur þessari sömu alþýðu svomátulega mildri með bjórnum að snerpan verður ekki meiri en bjór- inn gefur. Og fyrir það að hafa haldið þjóðinni hálf- fullri um árhundruð frið- þægir svo herra Guinness með skriftum í kirkjunni og færir henni og alþýð- unni dýrar gjafir. Og Drottinn allsherjar lítur til með þeim sem hann hefur velþóknun á, og gengi beggja, kirkjunnar og hr. A leiðinni að Glendalough (Tveggjavatnadalsins) i Wicklow hæðadrögunum suður af Dyflinni erekið hjá minnsta þorpi Irlands. Þar fyrirfinnast aðeins tvö ibúö- arhús, skóli og að sjálfsögöu kirkja, vel við vöxt handa tveim- ur fjölskyldum. Þannig er ekki einvörðungu séö fyrir umfram- þörf fyrir tilbeiðslu i höfuðborg- inni, heldur og I hinum smæstu bvggðum. Kirkjan sér að verulegu leyti um rekstur skóla og sjúkrahúsa á Irlandi. Þar er ekki sparað guös- oröiö; i unglingaskóla, þar sem kennsla hefst klukkan átta að morgni, hafa nemendur tekið þátt i morgunmessu, sem byrjað er að syngja klukkan sjö. Hvernig sið- an vinnudagurinn skiptist á milli námsgreina, raunverulega upp- lýsandi náms og kirkjufræða og bændahalds, er mér ekki um kunnugt, en hitt fékk ég aö vita, að utanbókar skal hver og einn kunna reiprennandi svör, undir- Alþýðunni er haldið mátulega mildri með bjórnum. Guinness, vex og vex og vex. Hér verður ekki gerð tilraun til að rekja trúarbragðasögu Ira. En með ofbeldi, ofsóknum og blóð- baöi fyrri alda er nú svo komiö aö 95% þeirra sem i lýðveldinu búa eru skráöir innan kaþólsku kirkj- unnar, og fyrir vikið er hún sterk- asta apparatið innan lýðveldisins. Kirkjan er allsstaðar Fyrr i þessum pistlum hefur verið á þaö drepið hversu mörg og vegleg musteri kaþólskir hafa reist drottni sinum i Dyflinni, stærstu, veglegustu og skrautleg- ustu byggingar 'borgarinnar og þær sem mestur iburður er 1 allra opinberra bygginga, enda er riki- dæmið ofsalegt þvi fleiri miljóna- mæringar en Guinness einn þurfa að leggja nokkuð með sálu sinni. vörpuðu lýöinn meö þeirri gamal- kunnu kveöju; félagar verka- menn! Heitt var þeim i hamsi sem vonlegt var þar sem þeir ræddu óréttlætiö og stéttaskipt- inguna I landinu. Þeir ræddu einnig um atvinnuleysið og bruðl stjórnvalda; gæsku þeirra i garð auövaldsins og afskiptaleysið af almannavelferð. Siðan bentu þeir á glæstar bankahallir og reisuleg- ar byggingar stórmagsina og hrópuöu: ,,í þetta verja þeir þjóð- arauðnum, en ekki til bættra al- mannatrygginga, til að reisa i- búðir yfir það fólk, sem I fátækra- hverfunum býr! Félagar verka- menn! Við skulum......” En að þeim dytti til hugar aö benda aft- ur fyrir sig þar sem guðdómnum hafði veriö reist miljónahöll i al- gjöru tilgangsleysi og án þess nokkur þörf væri á, þvi gamla kirkjan, há til lofts og við milli veggja, stóð ónotuð til kristni- halds hundrað metra frá! Slikt er vald kirkjunnar yfir hverjum og strikað SVOR, við 350 spurning- um úr ritningunni áöur en hann fær fermingu, svo greinilega hef- ur kristindómsfræðslan ekki orðið útundan við samningu náms- skrárinnar. Félagar verkamenn Sjálfsagt eru það stjórmála- menn með aðstoð embættis- manna sem námsskrána semja. Og er þar komið aö nokkuð lýs- andi atriði um ægivald kirkjunn- ar I landinu og styrka stöðu henn- ar, þvi borgaralegir stjórnmála- og embættismenn hljóta að vera enn þá háðari henni en það stjórn- málaafl, sem nú skal frá sagt: Einn föstudagseftirmiödag höfðu vaskir ræðumenn komið sér fyrir á tröppum nýrrar og veg- legrar kirkjubyggingar i einu út- hverfi Dyflinnar, Dun Laoghaire. Þar voru á ferð ungkommar og á- .AíSj, Kirkjugarðar með hinum sérkennilegum Irsku krossum og leifum varðturna, sem sumir eru frá vfkingaöld, setja mikinn svip á byggðir landsins. (Ljósm. s. jóh). Kirkjan, bjórinn og mannlesar ástrídur einum I þessu landi andstæðn- anna, rlkidæmisins og örbirgðar- innar. Hún er hafin yfir gagnrýni, jafnvel frá róttækustu þjóðfélags- hópunum; enda gagnrýni á hana vlsasti vegurinn til sjálfstortim- ingar. ,,Sá, sem ekki er á móti yð- ur, hann er meö yður.” Og uppi undir hvolfþökum glæstra mil- jónamustera Drottins allsherjar bergmálar boðskapur frelsarans úr munni hins feita þjóns og berst til eyrna hinna snauðu sem smyrsl á veraldarsárin: „Sælir eruð þér, fátækir, þvi að yðar er Guðs ríki”. Þar er afkomuöryggi En kannski ertu ekki alveg viss i þinni sök. Þá ferðu til öryggis til messu einu sinni á dag; litur inn i kirkjuna þina þegar þú átt leið hjá, biöur bænir meö eða án að- stoöar talnabandsins, krossar þig A þönum um götur Dyflinnar — með viðkomu Ikrá eða kirkju. þegar þú átt leið fram hjá kirkju, hvort sem þú ert strætisvagna- stjóri eða farþegi, skriftar fyrir presti þlnum og játar efasemdir þínar og leggur svo pening af skorti þinum I samskotabaukinn þvi enn þá er eyrir ekkjunnar I fullu verðgildi. Vegna hinna miklu umsvifa sinna þarf kirkjan marga þjóna. Og I landi þar sem atvinnuleysiö er ekki undir 15% af vinnufærum mönnum er ekki skortur á mönn- um, sem leita atvinnuöryggis I faðmi 1 kirkjiunnar. Þú færð llka bærileg laun. Svo máttu drekka vln og reykja, og aldrei þarftu að svelta eöa standa i biðröð á föstu- dögum með atvinnuleysingjun- um, sem eru að sækja bæturnar sinar. Ef þér lýst betur geturðu orðið munkur með sama afkomuör- yggi og prestur og þarft ekki einu sinni að ganga I munkakufli held- ur valsar um I borgaralegum klæðum; svona eru klaustujrregl- ur Irskra bræöra frjálslyndar. Eða þá þú verður nunna og stund- ar kennslu eða hjúkrunarstörf, laus undan mataráhyggjum snauörar móður með fullt hús barna. Þér er allavega borgið leitirðu I náðarfaðminn breiða og hlýja. Sáluhjálp Guinn- esættarinnar En þótt þú sért auðugur og eigir mikið undir þér getur þó efinn sótt á þig engu aö slður; efinn um endalokinn og velferð sálarinnar eftir allt veraldarvafstriö. Jafn- vel gætiröu hafa verið ósanngjarn við einhvern viö auðsöfnun þlna svo ótrúlegt sem það nú er. En þannig hefur farið fyrir hinum mikla bjórframleiðanda herra Guinness og fjölskyldu hans. Og þá er bara aö gefa með sér. Hjá honum er llka af nógu að taka,þvl ekki er einasta aö hann framleiöi bjórinn ofan I hina þorstlátu þjóft heldur kemur hann vlðar við I viðskiptaheiminum; hann meira að segja gefur út hljómplötur, og lýtur svo lágt I gróöaleitinni að búa til leöurbelti með upphleyptu nafninu sinu á sylgjunni og stimplar strigapoka með merki ættar sinnar eftir aö hann hefur breytt þeim I handtöskur. Taktu þér far með hópi undir irskri leiðsögn um Dyflinni og hlustaðu á leiðsögumanninn, kannski þann sama sem kallar Jón Sigurðsson þeirra Iranna, Eamon de Valera, fyrrv. forsæt- isráðherra og siðar forseta, „that old bastard”, og hefur siðan upp lofræðu um herra Guinness og hans slekti. Ofurlltið sýnishorn: 1 kirkju heilags Patreks: „Þennan yndisfagra steinda glugga gaf herra Guinness söfn- uðinum.” I Georgiska ibúðahverfinu: „Þessar Ibúöarlengjur gaf herra Eiga þær I nokkurt hús að venda? Guinness alþýðufólki. Hann lét byggja það sérstaklega handa þvi, og það er meira að segja sér- stakt baðhús tilheyrandi þessum ibúðum.” I dýragaröinum: „Þessi ljón gaf herra Guinness dýragarðin- um og Irsku þjóðinni allri.” I St. Stephens Green, öðrum stærsta almenningsskemmti- garði Dyflinnar: „Þennan garö átti herra Guinness. Hann gaf Dyflinnarbúum hann af rausn sinni.” . Og meira gætirðu fengið að heyra. Ástin húsnæðislaus Um það leyti sem næturkyrröin er að sigrast á kvöldhúminu og ilmur gróðursins gerist þungur skaltu ganga þig út á O’Connell- stræti og viröa fyrir þér einn þátt- Inn I samleik þessara tveggja mestu stórvelda Irska lýðveldis- ins: herra Guinness og guödóms- ins: Klukkan er orðin rúmlega hálf tólf. A kránum er hætt aö selja bjórinn hans Guinness, ómar Irsku þjóðlaganna eru þagnaðir, krárhaldararnir að senda við- skiptavinina út. Sumir ráfaeinnig út i nóttina, aðrir i margra sam- fylgd; oft piltur og stúlka, maöur og kona. Pörin fara ekki langt frá kránni sinni. Þau leita að stæði upp við húsvegg eða undir ljósastaur. Þar fallast þau I faðma og kyssast; sum kuldalega án ástrlðu, önnur logandi og hemja vart þrá slna. Astfangið, ógift fólk á ekki I nein hús að venda með atlot sln. Heim til sin fer það ekki; sllkt yrði ekki liðið af foreldrum eða húsráðendum, hótelin taka ekki við þessu fólki og mótel, eins og Eykon ætlaði að koma upp I Hverageröi hér um árið, fyrir- finnast ekki hér I þessari borg. Syndin og börnin Kirkjan hefur enda kennt slnu fólki aö ástarsamband fyrir gift- ingu sé synd; ógnarleg synd og eigi ekki undir neinum kringum- stæðum að eiga sér staö. Ung kona sagði mér af systur sinni, sem ekki drakk bjór og var þvl ekki slævð af höfgi ölsins til þess að eðlileg náttúra hennar til karl- manna kafnaði. Hún fór eftir eðli sinu. En hún átti ekki getnaöar- verjur, hvorki pillur, lykkjur né hettur, og elskhuginn eini átti engan smokk. Þetta hefur kirkjan stranglega bannað fólki að nota; Guði eru ekki þóknanlegar hömlur á frjósemi. Heldur eru Guði ekki þóknanleg rit og bæklingar um það hvernig verjast megi frjóvg un án útanaðkomandi hjálpar- tækja. Og sannast að segja er Guð almáttugur allur á móti þvi hér á Irlandi að fólk fræðist um kynlif með nokkrum öðrum hætti en þeim sem „eðlilegur er i vigðri sambúð”, upp á þann gamla og góða máta sem dugað hefur mannkyninu til timgunar fram á okkar daga. Kynlifshamingja eða fullnæging? Hvað er nú það? Kannski vegna allrar þessarar andstöðu Guðs almáttugs við kynlifsfræðslu og varnir, kannski vegna þess að við megum ekki lesa eplin af skilningstrénu eða kannski bara vegna þess að Guð almáttugur er svo mikiö upp á frjósemina, þá enduðu ástarævin- týrin systur hennar vinkonu minnar, sem vel að merkja bjó úti i sveit og gat þvl fundið aðra og betri staði til ástarleikja en skuggasund eöa ljósastaura Dyfl- innar, — með því aö hún varð ólétt. Og hvilik skelfing! Hvllik smán fyrir ættina! Burt, sögðu foreldrarnir, burt með þig! En vegna þess að þetta voru góðir foreldrar létu þau dótturina ekki vera burtu nema I nlu mánuði, og kölluðu hana þá aftur til föðurhúsa. En. Hún kom barnlaus! Veldu um það dóttir góð, hvort þú vilt einhverntima fá að sjá þlna heimasveit á nýjan leik, ein- hverntíma að sjá vini þina og kunningja, einhverntima að hitta systkini þin og foreldra og gefðu þá barnið óséð, eöa búðu með þvi ein i vesöld þinni og sjáöu ykkur farboröa báðum! Kristið siögæði? Hiö tvöfalda siögæöi Gakktu þig eftir götunni. Sum- ar meyjarnar fela andlitin á brjóstum ástvina sinna meðan þú gengur fram hjá, og slðan byrjar leikurinn á ný. Þetta eru viðvan- ingarnir. Þú gengur fram hjá aðeins eldri hjúum; þau kyssast án upplits, án faðmlaga; hanga saman á kjöftunum heitir það upp á islenskan móð. Og enn gengurðu. Þú gengur fram á rétt eitt afbrigði Iskrar æskuástar; hér eru ekki viðvaningar I ástar- lifi götunnar: Heit faðmlög, ör andadráttur, niðurbælar frygðar- stunur. Þannig er kirkjan völd að tvö- földu siðgæði með þessari ljúf- lyndu þjóð: Það sem þú mátt ekki gera gerirðu samt; bara öðruvisi og á annan hátt en náttúran ætl- ast til af þér. Þú hefur ekki átt samfarir; þú stundar ekki sjálfs- fróun. Hér er öðru vlsi að farið. Og á meðan hinir giftu hlaöa niður ómegðinni og æskan reynir af fyllsta megni að bæla kynhvöt sina með svörtum Guinnessnum eða svala henni ella án þess al- mættið sjái til, sötrar biskupinn vlnið sitt úr kristalsstaupi, og hver veit nema aö hann sé að velta þvi fyrir sér hvernig honum megi takast að losna frá árans vandræðum, sem uppvist varð um á liönum dögum og einhvern- veginn verður að losa kirkjuna undan. Þessi eru vandræði hans: Kirkjunnar þjónn gerðist brot- um brottvikningu úr starfi svo og öðrum refsingum. Sjálfur ætlaði hann að taka máli sinu fyrir þeim hæsta rétti sem áfrýjað yröi til. Hvað þætti mönnum svo sem um aö heyra nákvæma lýsingu á f jár- dráttarmáli....? Hvað á biskup hinnar siöa- vöndu kirkju að gera? Ekki mál....eða þá....nei.... þetta og þviumllkt má almenningur ekki fá að vita. Og meðan biskupinn, nær al- mættinu en alþýðunni, brýtur heilann yfir sérrýglasi kímir hin þolgóöa þjóð, sem veit svo miklu meira en hún lætur uppi; hér skal Varlega, börnin góð, þetta getur fano ma. legur við Guös lög. Kennari við heimavistarskóla. Kenndi stúlk- um. Varð ástfanginn af' einni þeirra og hún af honum. Og synd- in barði uppá: Þau elskuöust og það kviknaði nýtt lif! Hinn klerk- legi kennari fékk pokann sinn með það sama og uppvist varö um ódæði hans, og hann var leyst- ur frá kristilegum heitum sinum með smán. En þá hljóp hællinn I. Hinn brottvikni vissi eitt og annað um kirkjuleg málefni. Og hann hótaði að áfrýja úrskurði ekki um tala nema kannski við menn frá öðrum löndum. Það er margslungin þjóö, trar. Lokaorð Ég vil I lokin endurtaka það, sem ég minnti á I fyrsta pistli minum frá írlandi: Hér er ekki um aö ræða úttekt á landi né þjóð. Fjarri-þvi: Hér er aðeins sagt frá þvi sem augað sá og eyraö nam á tiu dögum i fögru landi merkrar þjóðar; þjóðar sem viö Islend- ingar mættum margt af læra. -úþ. Meira aðsegja kommar munu hika við að gagnrýna kirkjuna...

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.