Þjóðviljinn - 12.08.1977, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 12. ágúst 1977
Styrkir til
sérmenntunar
Thorvaldsensfélagiö stofnaði
sjóö meö 10 miljón króna fram-
lagi á aldarafmæli félagsins.
Sjóður þessi heitir Gjöf Thor-
valdsensfélagsins og er hlutverk
hans n.a. að styrkja einstaklinga
til náms erlendis, sem sérmennta
sig til að annast vanheil og af-
brigðileg börn og unglinga.
Úthlutað hefur verið styrk úr
sjóðnum á þessu ári til eftirtal-
inna:
Asgeir Guðmundsson, Dagmar
Gunnarsdóttir, Erla Guðjóns-
dóttir, Gréta Eyland Pálsdóttir,
Guðlaug Snorradóttir, Jórunn
Kristinsdóttir, Margrét Arnljóts-
dóttir, Sigriður Magnúsdóttir,
Sigriður Pétursdóttir, Sigrún E.
Hjartardóttir, Unnur Agúst-
sdottir og Yngvi Hagalinsson.
Hringbordsum-
ræður um kirkjuna
ORÐIÐ, timarit Félags guðfræði-
nema, er komið út, 1. tbl. 11. ár-
gangs. Blaðið hefst á hringborðs-
umræðum, þar sem fjallað er um
efnið „Hvernig bregzt kirkjan við
breyttum timum?”, en i þeim
taka þátt dr. Björn Björnsson, sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson,
Guðrún Asmundsdóttir leikkona,
Haraldur ólafsson lektor, dr.
Þórir Kr. Þórðarson og Halldór
Reynisson guðfræðinemi.
Þá skrifar dr. Hallgrimur
Helgason um norrænt kirkjutón-
listarþing i Noregi og Danmörku,
og dr. Björn Björnsson er með
grein um trú og visindi.
Sr. Jónas Gislason skrifar
greinina „Innhverf ihugun —
hvað er það?” og er þar að finna
uppiýsingar um hreyfinguna
Transcendental Meditation, sem
mikið hefur starfað hérlendis, og
má gera ráð fyrir, að þær veki
talsverðar umræður.
Ritstjóri Orðsins er Valdimar
Hreiðarsson, en i ritnefnd eru Jón
Valur Jensson og Jón Ragnars-
son.
Blaðið kostar 240 kr. og fæst á
eftirtöldum stööum: Bókaverslun
Sigf. Eymundsonar, Austur-
stræti, „Kirkjufelli" viö Ingólfs-
stræti, „Bókinni", Skólavöröu-
stig. og Bókaverzlun Helgafells,
Laugavegi 100.
Aöalfundur hús-
eigandafélags
Miðvikudaginn 20. júll s.l. var
aðalfundur llúseigendafélags
Reykjavikur haldinn f húsakynn-
um lélagsins að Bergstaðastræti
lla, Keykjavík.
1 stjórn voru kjörnir: Páll S.
Pálsson hrl., lormaður, og með-
stjórnendur Alfreð Guðmundsson
forstöðumaður, Giíðmundur R.
Karlsson skrifstofustjóri, Lárus
Halldórsson endurskoðandi og
Birgir Þorvaldsson forstjóri.
Skrifstofa félagsins er opin frá
kl. 16.00 — 18.00 hvern virkan dag
og er félagsmönnum frjálst að fá
þar endurgjaldslaust upplýsingar
um hagsmunamál húscigenda, og
ávallt eru fáanleg á skrifstofunni
eyðublöð fyrir húsaleigusamn-
inga.
Upplýsinganiiölun
tollheimtumanna
Þann 4. ágúst s.l. lauk i Reykja-
vík viðræðum v-þýskra og is-
lenskra stjórnvalda um gerð
samnings um gagnkvæma aðstoð
i.tollamálum. Samningaviðræður
þessar hófust i júni 1976 og er nú
lokið með þvi að samningsaöilar
hafa gengið frá uppkasti að
samningi sem gert er ráð fyrir að
verði undirritaður i Bonn á hausti
komanda eftir að hafa hlotið staö-
festingu löggjafarþinga beggja
landanna. Samningurinn kveður i
aöalatriðum á um gagnkvæma
upplýsingagjöf samningsaðila
með það að markmiði að vinna
gegn brotum á tollalöggjöf land-
anna. Samningur þessi er jafn-
framt fyrsti tvihliða samningur
sem tsland gerir við erlent riki
um slikt samstarf.
Umsjón: Magnús H. Gislason.
Torfi Þorsteinsson:
Gamla búö
Eigendur og starfsmenn
í dag heldur Torfi
Þorsteinsson áfram að
segja ævisögu Gömlu
búðarinnar i Höfn og rek-
ur ýmsar þær minningar,
sem við hana eru tengd-
ar.
Það var aldarandi
þessara ára, að líta á
fátæklinginn likt og saka-
mann, sem stóð í óbættri
sök við samtíð sína og
kaupmaðurinn var síst
dómharðari en ýmsir
Eymundur Jónsson I Dilksnesi,
einn þeirra, sem reistu Gömlu
búð af grunni f Höfn.
aðrir í þessum efnum. En
úrslitavaldið um
innheimtu skulda var í
höndum kaupmannsins
og skal hér aðeins eitt
slikt dæmi fært til
frásagnar.
Misjöfn eru kjörin
mannanna.
Ekkja ein, sem bjó við erfiðan
fjárhag og nokkra ómegð komst
i vanskil við kaupmanninn á
Hornafirði, og krafðist hann
fullra skuidskila, sem leiddu til
þess,að bú ekkjunnar var borið
undir hamar hreppstjórans,
ásamt einhverjum gripahúsum,
sem seld voru til niðurrifs.
A næsta vori var ekkju og
börnum hennar komið i vistir i
nærliggjandi sveitum, en karlæg
móðir borin i rúmi hreppaflutn-
ingi yfir f jórar sveitir uns komið
var i áfangastað, þar sem
gamla konan karlæga fékk að
dveljast á sveitarframfæri, uns
brár hennar lokuðust i siðasta
blundi.
Aðeins hálfum áratug siöar
var kaupmaðurinn krafinn
skuldaskila af lánardrottni sih-
um, Landsbankanum. Enginn
hreppaflutningur var þá
framkvæmdur, en bæði atvikin
munu hafa sært aðstandendur i
kviku.
Svo margs á Gamla búðin að
minnast.
Ýmsir eigendur
Fyrsti eigandi verslunarinnar
i Höfn var Ottó Thulinius. Hann
fluttist burtu frá Hornafirði árið
1901, en við tók Þórarinn Thulin-
ius, bróðir Ottós, sem átti versl-
unina til 1908. Verslunarstjóri
þessi ár var Þórhallur Daniels-
son, þá ungur maður, nýkominn
frá verslunarnámi i Kaup-
mannahöfn. Hann keypti versl-
unina og rak hana á eigin reikn-
ing allt til ársins 1920, eða i 12
ár, en þá lagði hann niður
húsbóndavald i Gömlu búð, er
hann seldi verslunina með
gögnum hennar og gæðum i
hendur nýstofnuðu Kaupfélagi
Aus tur-Skaftfellinga, sem
þarna kom til valda þann 1. júni,
1920.
Fyrsti kaupfélagsstjórinn,
sem rikjum réði i Gömlu búð,
var Guömundur Jónsson, bóndi
i Hoffelli. Hann rikti þar aðeins
tvö ár, en við völdum tók þá Jón
Ivarsson, sem hingað kom frá
Borgarnesi og var æðsta vald
Gömlu búðar allt til ársins 1944,
er hann lét af forstjórastarfi hjá
Kaupfélagi Austur-Skaftfell-
inga.
Ösanngjarnt væri að rekja svo
sögu Gömlu búðar, að nokkurra
starfsmanna hennar sé ekki aö
einhverju getið.
Nokkrir af fyrstu starfsmönn-
um búðarinnar voru horfnir úr
sjónmáli fyrir minni þess er
þetta ritar og verður þeirra þvi
hér aö engu getið. Einn af elstu
valdamönnum og starfsmönn-
um Gömlu búðar var Þórhallur
Danielsson og man ég hann þó
ekki að neinu ráöi fyrr en
veldisskeiði hans var að mestu
lokið. Þórhallur Danielsson var
vinmargur, svo að margir við-
skiptavinir verslunarinnar
söknuöu samskipta við hann er
hann afsalaði sér völdum i
Gömlu búð. Ari áður en Þórhall-
ur seldi verslun sina i hendur
Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga
átti Þorsteinn Jónsson, kaup-
félagsstjóri á Reyðarfirði, ferð
um Austur-Skaftafellssýslu og
Stefán Sigurðsson, Grimsstöð-
um. Lengi starfsmaður Gömlu
búðar. Vann einkum við utan-
búðarstörf.
hitti þá Þórhall Danielsson.
Honum segist svo frá:
„Það var þar sem annars-
staðar, einn maður stóð upp úr
fjöldanum: Þórhallur Daniels-
son, kaupmaður á Höfn. Ég var
kaupfélagsstjóri og varannt um
þá nýju stefnu, sem samvinnu-
félagsskapurinn var, og fór meö
hægö aö gera athugasemdir, en
Þórhallur Danielsson. Vinsæll
og vel metinn kaupmaður á
Ilöfn.
á þær var ekki hlustað og ég er
viss um, að ef ég hefði farið að
hnjóða i Þórhall, hefði ég hvergi
fengið kaffieða gistingu i Aust-
ur-Skaftafellssýslu. Þá þekkti
Björn Jónsson, bóndi i Dilks-
nesi. Var um langan aldur af-
greiösiu- og skrifstofumaður I
Gömlu búð.
ég Þórhallekkert nema af góðri
afspurn, en ég man, að ég sagði
við frændur mina, að ég mætti
til að fara og sjá þennan ágæta
mann og það gerði ég. Ég varð
ekki fyrir vonbrigðum. Móttaka
þarog risna vari fullu samræmi
við það, sem ég hafði heyrt, og
varð til þess að ég kom þar oft-
ar”.
Af þessum ummælum má það
greinilega marka, hve Þórhall-
ur Danielsson var vinmargur og
vel kynntur.
Kaupfélagsstjórar
Bjarni Guðmundsson vareinn
af elstu starfsmönnum i Gömlu
búð, en hann hóf þar starf sem
ungur drengur og vann að versl-
unarstörfum aö mestu i' sömu
húsum alltfrá upphafi ævistarfs
til æviloka. Bjarni var i fyrstu
afgreiðslumaður i búðinni og
siðar aðalbókari. Hann var
nemandi i Gagnfræðaskóla
Akureyrar i tið Stefáns skóla-
meistara þar og mótaðist þar á
margvislegan hátt. Þar komst
hann i náin kynni við elsta ung-
mennafélag landsins, Ung-
mennafélag Akureyrar og
brautryðjendur þess, og bar
merki þeirra kynna allt til
dauðadags. Hann skrifaði eina
listrænustu rithönd allra sinna
samtiðarmanna og bera höfuð-
bækur verslunarinnar þvi óræk-
an vitnisburð. Hann varf jölhæf-
ur gáfu- og listamaður með
margþætt hugðarefni, m.a. var
hann frfstundamálari, tónlistar-
maður, leikari, sauðfjárræktar-
maður og leiðtogi i góðtempl-
arareglu. En vegna fjölþættra
gáfna vildi hugurinn stundum
hvarfla frá dagsins önn, einkum
ef tækifæri gáfust til þess að
blanda geði við guma.
Með eigendaskiptum þeim,
sem urðu, þegar kaupmanna-
verslun lagðist niður og kaup-
félag var stofnað, urðu á vissan
hátt þáttaskil i sögu Gömlu búð-
ar. Þeirra þáttaskila gætti þó
ekki verulega fyrr en árið 1922,
en þá sest þar i valdastól Jón
Ivarsson, kaupfélagsstjóri, sem
fór þar með æðsta fram-
kvæmdavald til áramóta 1942-
1943.
Jón er fæddur og uppalinn
Borgfirðingur, mótaður af ung-
mennafélagshreyfingu upp-
vaxtarhéraðs sins, ásamt holl-
um háttum lýðskólahugsjónar
Hvitárbakkaskóla, þar sem
hann dvaldist ungur við nám og
siðar við Verslunarskóla Is-
lands.
Jón ívarsson neytti valda i
Gömlu búð af festu og fyrir-
hyggju mikils fjármálamanns
og kom Kaupfélagi Austur-
Skaftfellinga áfallalaust gegn-
um holskeflur heimskreppunn-
ar á fjórða tugi aldarinnar. Jón
var óvenju glöggur maður á
fjármál og hefði vafalaust notið
þeirra hæfileika vel sem ráðu-
nautur rikisstjórnar um efna-
hagsmál.
Starfsmenn
Starfsmenn við afgreiðslu- og
skrifstofustörf i Gömlu búðvoru
margir. Einna lengstan starfs-
aldur þar munu þeir hafa átt
Björn Jónsson, bóndi i Dilksnesi,
og Stefán Sigurðsson, kenndur
við Grimsstaði. Björn vann
jöfnum höndum við afgreiðslu-
störf innan búðar og við skrif-
stofustörf, enda var hann lista-
skrifari.
Stefán vann mest við utan-
búðarstörf. Hann var einstakt
prúðmenni og samviskusamur
með afbrigðum,en svifaseinn til
snúninga. Þegar Stefán var bú-
inn að átappa og vigta steinoli-
una, kolin, saltið og baðlyfið,
sem ævinlega tók langan tima,
strauk hann venjulega hægri
hendi yfir prútt alskeggið áð-
ur en hann tók blýantinn upp
úr vestisvasanum og byrjaði
að færa úttektina inn i af-
greiðslukladdann. Allt þetta tók
geysilega langan tima, sem oft
reyndi á þolinmæði þeirra, sem
langa leið áttu fyrir höndum
heim til sin. En sú var bót i máli
að hraði umferðarinnar var þá
mældur með annarri mælistiku
en nú gerist, og kapphlaupið við
Ottó Thulinius. Lét flytja
Gömlu búð á Höfn og stofnsetti
þar fyrstur fastaverslun.
timann var þá nærri óþekkt
hugtak.
Af öðrum starfsmönnum
Gömlu búðar má nefna Guðna
Jónsson, Gunnar Snjólfsson,
Björn Guðmundsson, siöar for-
stjóra Aburöareinkasölunnar,
Sigurjón frá Þorgeirsstöðum,
Svavar Guðnason, listmálara,og
Runólf Bjarnason. Frh.