Þjóðviljinn - 14.08.1977, Side 2

Þjóðviljinn - 14.08.1977, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 14. ágúst 1977 BYRJIÐ DAGINN MEÐ GÓÐUM MORGUNMAT Tíu tillögur að morgunverði: 1. Hafragrautur meö 1 1/2 dl mjólk, brauðsneið með lifrarpylsu, brauðsneið með mögrum osti, te eða kaffi, ávaxtasafi (1 glas). 2. Súrmjólk með rúsínum og örlitlu af púðursykri 1 brauðsneið með kjötáleggi, hrökkbrauð með osti, á- vaxtasaf i. 3. 1 egg, 1 glas undanrenna (2 dl), brauðsneið með sild, brauðsneið með agúrku og osti, ávaxtasafi. 4. Kornflögur með mjólk og rúsinum, brauðsneið með epli og osti, hrökkbrauð með kjötáleggi, á- vaxtasaf i. 5. Jóghúrt, brauðsneið með kjötáleggi, brauðsneið með smurosti, ávaxtasafi. 6. súrmjólk með rifnu epli og örlitlu af púðursykri, rúgbrauð með lifrarkæfu, hrökkbrauð með osti og agúrku, ávaxtasafi. 7. Muesli og mjólk (2. dl, gjarnan undanrenna), 1 brauðsneið með eggi og agúrku, hrökkbrauð með osti, epli. 8. 1 brauðsneið með osti, ein brauðsneið með f iskaf- göngum, ein brauðsneið með tómati og papriku, 1 glas af mjólk, 1 appelsína. 9. Jóghúrt, brauð með eggi og tómötum, epli, ávaxtasaf i. 10. Súrmjólk með appelsínusafa, púðursykri og rús- inum, brauðsneið með kjötáleggi, brauðsneið með agúrku og osti, eplasafi. Kaf f i og te geta menn bætt inn í matseðilinn eftir smekk. Börn á skólaaldri þurfa nauðsynlega að borða nægan og f jölbreyttan morgunmat til þess að halda vinnugleði og þrótti í skólanum. 1 glas af kókómjólk (mjólk með kókómalti) og sykurhúðað korn með mjólk er til dæmis ekki fullnægjandi morgunverð- ur, og inniheldur allt of mikinn sykur. Skreytið brauðið gjarnan með grænmeti, sem inniheldur, járn og C-vítamín, t.d. steinselju, sól- selju, graslauk, papriku o.fl. Þetta á að vera á morgunverðarborðinu Hér vantar hins vegar ýmislegt, og annað má missa sín, t.d. sykruð ávaxtasulta. Brauðið á helst að vera gróft, og það vantar ávexti, grænmeti og kjötálegg Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir Fjölbreyttur morgunmatur inniheldur öll helstu næringarefni og 1/4 af hitaeiningum fyrir daginn. Hér er gróft brauð, ávaxtasafi, ávextir, grænmeti, kjötálegg og súrmjólk. t>að hefur aukist mjög á seinni árum, að nota svamp i dýnur og sessur. Er þá gjarnan saumað utan um hann með fallegum efnum, sem siðan er hægt að taka af og þvo eftir þörfum. Nú er meira að segja hægt að láta sauma utan um svampinn þar sem hann er keyptur og koma sjálfur með áklæðið. En það er betra að at- huga hvort hætta er á að efnið, sem notað er i áklæðið, hlaupi við þvott. Þess eru dæmi að áklæðið nái hvergi nærri þvi utan um svampinn eftir þvott og þá er það ónýtt. Flest bómullar- efni hlaupa eitthvað við þvott. Þess vegna þarf að sniða áklæðið riflega og gæta þess að þvo það ekki við meira en 60 gr. hita, ef hætta er á að það hlaupi. Þess eru dæmi að fólk hafi ekki gættsin,er það hefur þvegið ver utan af svampdýnum, og eyði- lagt verið vegna þess að engar þvottaleiðbeiningar fylgdu með dýnunni. Hér vantar ýmislegt t framhaldi af greininni um fæðupýramidann um daginn, þar sem fram kom hversu mikið af hinum ýmsu fæðutegundum við þurfum að borða, ætlum við að fjalla um samsetningu hinna ýmsu máltiða dagsins og byrj- um hér á morgunverðinum. Morgunverðurinn ætti að inni- halda um 1/4 af hitaeininga- fjöldanum og góður morgun- verður er mjög þýðingarmikill fyrir afköst okkar og úthald yfir irfarandi fæðutegundir eru æskilegar á morgunverðarborð- ið. (Auðvitað borðar enginn allt þetta.en við sjáum einnig tillög- ur um samsetningar hér á sið- unni.) Skyr, súrmjóik, jóghúrt eða ým- ir. Hafragrautur, muesli eða ó- sykrað morgunverðarkorn. Gróft brauð eða hrökkbrauð. Magurt álegg, t.d. ostur eða kjöt. Avaxtasafi, ávextir. Nýtt grænmeti. Egg. Ef þú borðar t.d. skyr á morgnana er tilvalið að blanda ávöxtum eða hreinum ávaxta- safa út i. Þú eykur ekki aðeins við vitamininnihaldið i skyrinu með þvi, heldur geturðu um leið dregið úr sykurneyslunni. Einn- ig er ágætt að nota muesli eða morgunverðarkorn út i t.d. súr- mjólk, eða skyr. t stað hvita sykursins er betra að nota púðursykur út á súr- mjólkina eða skyrið. Sykurhúð- að morgunverðarkorn telst ekki holl fæða, þótt börn séu oft sólg- in i það. Það gefur þeim falska saðningskennd og kemur i veg fyrir að þau borði nóg af öðrum mat, auk þess sem það er óhollt fyrir tennurnar. Ef hafragrautur er á borðum, er ekki nauðsynlegt að borða mikið af brauði, en annars er yf- irleitt mælt með tveimur brauð- sneiðum. Ekki er mælt með nema sem svarar tveimur mat- skeiðum af fitu yfir daginn (fyr- ir mann i léttri vinnu) og hún á að innihalda sem mest af fjöló- mettuðum fitusýrum. Eins og við höfum áður fjallað um er linólsýran þýðingarmesta fjöló- mettaða fitusýran, en hún er t.d. i sólblómaoliu, maisoliu og so»a- oliu, en litið er af henni i olifu- oliu, kókosfeiti, smjöri og rjóma. Talið er að mettuð fita hækki kólesterolinnihald blóðs- ins, en fjölómettaðar firusýrur lækki það. Þess vegna er rétt að bruða ekki með smjörið, en reyna fremur að velja feitmeti sem i eru fjölómettaðar fitusýr- ur. En það er fleira en fitan sem hefur áhrif á kolesterolið i blóðinu. Ekki er ráðlegt af sömu ástæðu að borða meira en 4 egg i viku en egg hafa mjög hátt kólesterolinnihald. Það er allt of mikið að borða egg á hverjum morgni, til viðbótar við þau egg sem við kunnum að borða með öðrum máltiðum og sern notuð eru t.d. i bakstri. Aleggið á helst að vera mag- daginn. Þar sem flestir eru að flýta sér þegar þeir borða morg- unverð, leggja þeir allt of litið upp úr góðum og lystugum morgunmat og allt of margir láta kaffibolla og eina brauð- sneið nægja. Arangurinn verður oft sá að við erum sljó og kraft- litil fram að hádegi, en þá orðin svo svöng að við borðum allt of mikið. Það er miklu betra að borða fjölbreyttan morgunmat og siðan minna i hádeginu. Eft- urt t.d. magur ostur eða kjöt. Ýmsar tegundir af áleggi inni- heldur mikið af „dulinni” fitu, t.d. lifrarkæfa og er þá óþarfi að nota smjör. Grænmeti og ávext- ir eru gott álegg, en ekki er mælt með sætum sultum eða á- vaxtahlaupi. Glas af ávaxtasafa tryggir meirihlutann af C-vita- minþörfinni yfir daginn, en ruglist ekki á hreinum ávaxta- safa og drykk úr gervikjörnum, sem inniheldur sama og ekkert af C-vitamini. Kaffibolli eða teþolli spillir engu, svo framarlega sem við notum sykur út i i hófi. Hér á siðunni eru nokkrar til- lögur að morgunverði. Menn i erfiðisvinnu mega auka heldur við magnið, sem gefið er upp.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.