Þjóðviljinn - 14.08.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 14.08.1977, Blaðsíða 3
Sunnudagur 14. ágúst 1977 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 3 l'ljugamli la'risvciiiii Maliarislii Mahcsli V«gi...cOa cr liann liaia aft ll«|l|IU? sem mesta athygli vakti var þó „upphafningin” sem felst i þvi aö fólk getur hafist á loft af hugar- aflinu einu saman og svifið um kennslustofurnar „eins og Pétur Pan” svo vitnað sé i einn kennar- ann. Þessi list lærist i þremur liöum; fyrst læra menn aö hoppa eöa lyfta sér upp i svona hálfs metra hæð, siöan svifa þeir um og loks öðlast þeir getu til aö fljúga um að vild sinni. Vitaskuld kostar það drjúgan skilding að tileinka sér þessi göf- ugu fræði. Getur kostnaðurinn farið upp i eina miljón króna fyrir 12-16 vikna námskeið (timalengd- in fer eftir þvi hvort viðkomandi hefur einhverja reynslu i inn- hverfri ihugun áður en flugtim- arnir hefjast). Hopp eða flug? En blaðamenn sem eru i eðli sinu tortryggnir kvarta undan skorti á sönnunum fyrir þvi að eitthvaösé hæft i gylliboðum jóg- ans. Þeir vilja fá að sjá þó ekki væri nema einn fljúgandi læri- svein M aharishis. Það hefur þeim ekki tekist enn. Að visu hafa þeir séð meðfylgjandi ljósmynd af fljúgandi manni, en þeir tor- tryggnustu i stéttinni benda á aö maöurinn gæti einfaldlega verið að hoppa. Eitt sinn buðu blaðafulltrúar jógans upp á flugsýningu ef hægt yrði að safna saman tiu manns sem gætu greitt samtals 200 þús- und krónur fyrir ánægjuna. Þeg- ar það skilyrði hafði verið upp- fyllt i tveim borgum i Kanada bárust boð frá höfuðstöðvum fyr- irtækisins um að slikar flugsýn- ingar væru ósamboðnar virðingu þess og þvi bannaðar. Menn lifa þvi enn i algerri ó- vissu um hvort nokkuð sé hæft i auglýsingum fyrirtækisins. Fátt hefur kvisast um hvernig kennsl- unni er háttað, nema hvaö frést hefur að heppiiegra sé að stunda hópflug með fólki af sama kyni en gagnstæðu, þvi þá er færra til að dreifa athyglinni, og svo er fólki ráðlagt að fljúga einungis þar sem dýnur eða koddar hylja gólf, þvi lendingar eru sagðar geta verið ansi harkalegar. — ÞII (Byggt á Timc) Otrúlegá hagstætt verð Undanfarin ár hafa verið mikil kauptið fyrir allra handa jógaspek- inga— að visu misspaka — sem kunna að spila á áhuga fólks á þvi að öðl- ast kosmiska yfirsýn yf- ir heiminn. Hafa þeir komið i hrönnum frá Indlandi og lagt stóra hópa vesturlandabúa að fótum sér — þangað til fer að sjást i gegnum þá. Einn þessara manna er Maha- rishi Mahesh Yogi sem öðlaðist heimsfrægð þegar hinir einu sönnu Bitlar settust við fótskör hans. Eins og hjá mörgum öðrum hafði áhugi þeirra vaknað viö neyslu ýmisskonar vimugjafa, einkum skynvilluefna á borð við LSD og meskalin. En Bitlarnir dugöu Maharishi skammt.svo hann fór i krossferð um Vesturlönd og boðaði fagnað- arerindi „innhverfrar ihugunar” (Transcedental Meditation eins og fyrirbærið nefnist á ensku). Varð honum vel ágengt, og árið 1975 þegar hann var á hátindi vel- gengninnar sóttu 40 þúsund Nýjasta nýtt á markaðstorgi hinnar hag- nýtu jógaspeki manns námskeið hans og starfs- manna hans i mánuði hverjum. En allt sem ris er dæmt til að hniga, og i ár er tala þeirra sem iðka innhverfa ihugun undir handarjaðri Maharishi dottin nið- ur i 4 þúsund á mánuði. Það sér hvert mannsbarn að fyrirtæki sem upplifir þvilikt mótlæti verð- ur að gripa til einhverra ráða ef það á ekki að leggja upp laupana og fara á hausinn. Upphafning Maharishi boðaði þvi allt sitt kennaraliðá fund i Sviss þar sem hann sýndi þvi nýjungar sem fyr- irtækið var að setja á markaðinn. Nú átti að veita fólki innsýn i það sem á indversku nefnist „sidd- his” og merkir yfirnáttúrulega hæfileika. Meðal nýjunganna var að kenna fólki að ganga i gegnum veggi, öðlast óendanlega sam- kennd og veröa ósýnilegt. En það Ruggustólar frá Júgóslavíu FLJUGA LÆRIÐAÐ Vörumarkaöurinn Itf. Húsgagnadeild s. 861 12

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.